Sunnudagsblaðið - 14.07.1957, Síða 10
/
42 G SUNNUDAGSBLAÐIÐ
Saud konungur Saudi-Arabíu í lieimsókn hjá Eseinhower forseta.
um þægindum og íburði. Lofthit-
unarkerfi af nýjustu gerð heldur
hitástiginu í íbúðunum jafnan
mátulegu, og raki loftsins er einn-
ig eins og bezt verður á kosið, enda
þótt eyðimörkin og borgin Riyadh
sé þurr og heit eins og bakarofn.
Það er heldur engan veginn ótrú-
legt, sem sagt er, að hjákonur
Saud konungs gangi í nýjustu
tízkukjólum beint frá Dior.
BÍLAR KÓNGS OG BÖRN.
Einkabílar Sauds konungs eru
um 200 — allir af Cadillac-gerð.
Margir af þeim eru að sjálfsögou
til reiðu fyrir konur konungsins,
hjákonur og uppkomna syni. Með
an hann dvaldist í Ameríku gerði
liann pöntun í 60 nýjum bílum af
sömu tegund. Sumir af bílunum
eru alsettir eðalsteinum utan og
innan, og í nokkrum þeirra er
innbyggt sjónvarpstæki. Engin
sjónvai-psstöð er að vísu ennþá
starfandi í Saudi-Arabiu, en kon-
ungurinn mun hafa í hyggju að
koma upp einni stöð, og mun það
verða einkasjónvarpsstöð hans.
Aimenningur í landinu nýtur
nefnilega lítið alls olíugróðans, og
það eru áreiðanlega ekki margir
verkamenn, sem myndu hafa efni
ú því að kaupa sér sjónvarpstæki.
Ekki er vitað með vissu, hve
mörg börn konungsins eru. Hæsta
talan, sem nefnd hefur verið, er
274, en þetta mun vera meira ágizk
unartala, með því að hvorki hann
sjálfur né aðrir munu leggja kapp
á að halda nákvæma tölu yfir
börn hans — í Arabiu gera menn
sér nefnilega ekki þá fyrirhöfn,
að telja dæturnar með. Aftur á
móti er talið, að synir konungsins
sénu ekki nema um 25.
Sá eini af þessum sonum, sem
nokkrar sögur fara af, er einn af
þeim yngstu; hinn þriggja ára Ma-
zour prins. Hann var sá eini, sem
fékk að fylgjast með föður sínum
tii Ameríku, Við komuna til Wasli
ington veitti fólk því eftirtekt að
litli snáðinn veifaði með vinstri
höndinni, og að einn af fylgdar-
mönnum konungsins bar drenginn
út úr einkaflugvél konungsins.
Mazour litli hefur nefnilega feng-
ið lömunarveiki, og hægri hand-
leggur hans er ennþá mikið lam-
aður og hægri fótur lítils háttar.
Saud konungur tók þennan son
sinn með til Ameríku til þess að
láta hina færu lækna þar rann-
saka hann. Umhyggja sú og ást-
ríki, er konungurinn auðsýndi
drengnum var svo einlæg, að
Ameríkumenn urðu snortnir. Upp
runalega höfðu þeir nefnilega ver
ið fremur kuldalegir og tekið heim
sókn Sauds konungs af hinu mesta
fálæti.
Konungurinn breytir sýnilega
eftir hinu gamla arabiska orðtæki,
sem segir:
„Uppáhaldsbörn mín eru þau
sjúku, þar til þau verða heilbrigð,
þau smáu, þar til þau eru vaxin,
þau sem eru fjarverandi heimil-
inu, þar til þau eru aftur komin
heim.“
Læknar gáfu Saud konungi góð
ar vonir um að Mazour myndi ná
sér að fullu, og þá er sá tími
ef til vill ekki langt undan, að hann
hætti að vera uppáhaldsbarn föð-
ur síns.
Á heimleiðinni frá Washington
staðnæmdist konungurinn í Kairo
til þess að ræða við aðra forráða-
menn hinna arabisku ríkja, en um
leið og þeirri ráðstefnu var lokið,
flýtti hann sér heim í ríki sitt.
Vegna dálætis hans á Mazour litla
voru allar eiginkonur hans og hjá-
konur — að undantekinni móður
Mazour — í hinu mesta uppnámk
svo að konungur varð að hraða
sér heim til þess að stilla til frið-
ar, svo að aftur kæmist á ró og
öryggi.
Mazour litli vann hugi allra, er
kynntust honum á ferðalaginu-
Elann er fríður sýnum, vel uppal-
inn og hin mesta hetja. Við allar
hinar þjáningarfullu skoðanir og
meðhöndlun hjá læknunum, ga^
hann aldrei frá sér hið minnsta
hljóð.
Mesta ánægja Mazour litla vai
þegar hann kom í stóra leikfanga-
verzlun eina í New York og mátti