Morgunblaðið - 25.07.2004, Page 4

Morgunblaðið - 25.07.2004, Page 4
FRÉTTIR 4 SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ hreiðrað hefur um sig á höfuðborg- arsvæðinu, og er langalgengasta flugan þessa dagana. Geitungar eru einnig farnir á kreik, og fjölgar nú í búum þeirra með hverjum deginum. Dæmi eru þess á Vest- urlandi og við Breiðafjörð, að geit- ungar hafi komið í sveimi líkt og mývargur og ekki verið hægt að dvelja utandyra af þeim sökum. „Trjágeitungurinn er sterkasti stofn geitunga hér á landi, en hann fannst fyrst í Borgarfirðinum árið 1982. Áður höfðu bú holu- og húsa- geitunga fundist í Reykjavík,“ út- skýrir Erling. Hann segir geit- ungabúin vera í miklum vexti þessa dagana, og sjá megi daga- mun á búunum. „Eftir miðjan ágúst fara þeir meira á kreik og geta orðið árásargjarnari,“ útskýr- ir hann. Hins vegar er frænka geitungs- ins, hunangsflugan, iðin við að bera frjó á milli plantna, og vinnur sitt verk sómasamlega. Segir Erling engan skaða af hunangsflugunum, og vonast til þess að meindýra- eyðar og aðrir láti þær í friði. SUMARIÐ hefur verið hliðhollt skordýrum hérlendis, og þau tímg- ast vel, að sögn Erlings Ólafsson- ar, skordýrafræðings á Náttúru- fræðistofnun Íslands. „Það er svo hlýtt þessa dagana, og í þeim að- stæðum eru öll skordýr á meiri hreyfingu. Það má til dæmis sjá í hegðun geitunga, þeir eru meira á ferðinni og meira á varðbergi í kringum bú sín,“ segir Erling í samtali við Morgunblaðið. Leyfa hunangsflugum að vinna sín þarfaverk í friði „Það má segja að það fljúgi allt sem flogið getur þessa dagana, til dæmis jötunuxar og flær. Það er góð viðkoma af öllu,“ bætir hann við. Fjöldi fólks hefur tekið eftir flóabitum, sérstaklega eftir göngu í náttúrunni og nærri hreiðrum fugla. „Flóabitin eru lengi að gróa,“ bætir Erling við, en segir misjafnt eftir einstaklingnum hvernig líkaminn bregst við bitum. Nokkrar skordýrategundir hafa fjölgað sér meira en áður hefur þekkst, til dæmis lítil gul fluga sem Geitungar á varðbergi og mikið á ferðinni Ljósmynd/Magnús L. Sveinsson Fullnægði dauðadómnum um kvöldið „ÉG fann þetta bú þegar ég var að snyrta trén í garðinum,“ segir Magnús L. Sveinsson, fyrrverandi formaður Verslunarmannafélags Reykjavíkur. „Geitungarnir brugðust hart við, þegar ég nálgaðist bú þeirra og réðst einn þeirra umsvifalaust á mig og stakk mig í andlitið svo ég bólgnaði und- an. Ég kom ekki miklum vörnum við og hopaði, en kvað þegar upp dauða- dóm yfir geitungunum, sem ég fullnægði þegar dagur var að kveldi kom- inn og flestir geitungarnir voru komnir inn í búið.“ Góð viðkoma hjá hverskyns skordýr- um og allt flýgur sem flogið getur MIKIÐ hefur verið um að vera á Þingeyri undanfarna daga þar sem í gangi hefur verið sérstök afmæl- isdagskrá í tilefni þess að Íþrótta- félagið Höfrungur fagnar 100 ára afmæli sínu á þessu ári. Dagskráin hófst sl. fimmtudag með setningu af- mælishátíðarinnar og stendur fram á sunnudagskvöld. Meðal gesta á há- tíðinni er forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, sem mun í dag prédika í hátíðarmessu sem hefst kl. 13 og síðan vera viðstaddur hátíð- arathöfn í íþróttahúsinu. Alla dagana hefur mikið verið um að vera á Þingeyri fyrir bæði börn og fullorðna. Íþróttafélagið Höfrungur var stofnað á Þingeyri 20. desember árið 1904 og mun vera eitt af elstu íþróttafélögum landsins. Tildrög að stofnun félagsins má rekja til þess að undir aldamótin 1900 flutti á Þing- eyri ungur og efnilegur íþróttamað- ur úr Hafnarfirði, Anton Proppé, er m.a. hafði notið tilsagnar innlendra og erlendra manna í fimleikum. Íþróttaáhugi hans smitaði fljótt út frá sér og fyrr en varði hafði hann fengið nokkra unga menn í lið með sér til íþróttaæfinga er hófust vet- urinn 1901–1902 eftir því sem tími gafst til og aðstæður leyfðu. Fóru æfingarnar fram í ofnlausu vöru- geymsluhúsi er Wendel, versl- unarstjóri Gramsverslunar og hús- bóndi Antons Proppé, lánaði endurgjaldslaust. Anton útvegaði öll áhöld en mest voru iðkaðar æfingar á svifrá og stökk. Ekkert fast skipulag var á þessum íþróttaæfingum en Anton og félagar hans voru sammála um að nauðsyn- legt væri að koma reglu á þær og haustið 1903, um það leyti er æfing- ar skyldu hefjast, komu þeir saman til fundar og stofnuðu með sér fé- lag er gefið var nafnið Höfrungur en formað- ur var kosinn Anton Proppé. Héldu æfingar svo áfram um veturinn en fóru nú fram í húsi templara sem fékkst gegn vægu verði. Þegar kom fram á haust 1904 var tekið til við að undirbúa form- legan stofnfund fyrir félagið þar sem lög fyr- ir það skyldu m.a. lögð fram. Var sá fundur haldinn 20. desember og er það fyrsti bókfærði fundur fé- lagsins og sagður stofnfundur. Margþætt starfsemi á sviði íþrótta og menningar Síðan hafa árin liðið og hefur öfl- ugt starf einkennt félagið alla tíð, jafnt á sviði íþrótta sem menningar. Sigmundur Þórðarson, núverandi formaður Höfrungs, segir að- spurður mikið líf vera í félaginu þrátt fyrir háan aldur og það láti engan bilbug á sér finna. „Starfsemi félagsins er margþætt, það heldur t.d. uppi æfingum í fótbolta og frjáls- um íþróttum sem eru vel sóttar og nú til margra ára hef- ur það staðið fyrir íþrótta- og leikj- anámskeiðum á sumr- in. Það lætur líka tals- vert til sín taka í menningarlífinu því margir helstu við- burðir ársins á Þing- eyri eru á snærum Höfrungs. Má þar t.d. nefna jólaballið, sem er eitt stærsta sinnar tegundar á norð- anverðum Vest- fjörðum, og þrett- ándagleðina. Félagið hefur einnig séð um hátíðarhöldin 17. júní og hina vinsælu söngvarakeppni sem þá fer fram og við héldum núna í fimmtánda sinn. Þetta eru svona föstu liðirnir en svo bætast alltaf við ýmis tilfallandi verkefni og uppá- komur.“ Þegar Sigmundur er spurð- ur um ástæður þess að félagið hafi náð að lifa svo lengi, þá segir hann að Þingeyringar hafi alla tíð borið hag þess fyrir brjósti. „Hver einasti íbúi hefur verið vakinn og sofinn yf- ir velferð félagsins og lagt sitt af mörkum svo það fengi að dafna. Þannig var það fyrir heilli öld og þannig er það í dag, öðruvísi væri þetta ekki hægt.“ Mikill kraftur í aldar- gömlu íþróttafélagi Hátíðahöld á Þingeyri í tilefni af 100 ára afmæli Íþróttafélagsins Höfrungs Sigurður Þórðarson, formaður Höfrungs. Ljósmynd/Guðfinna M. Hreiðarsdóttir Merki íþróttafélagsins Höfrungs er frá fyrstu áratugum síðustu aldar. LÖGREGLAN í Hafnarfirði stöðv- aði um eittleytið í fyrrinótt karlmann á þrítugsaldri eftir að bifreið hans mældist á 176 km hraða á Reykja- nesbraut, skammt frá Hafnarfirði, þar sem leyfilegur hámarkshraði er 90 km/klst. Maðurinn var að taka fram úr öðr- um bíl þegar hann var tekinn í radar og má hann eiga von á kæru. Þá stöðvaði lögregla bíl innanbæjar um fjögurleytið en ökumaður hans er grunaður um ölvun. Tekinn á 176 km hraða ALLT bendir til að Norður-Hérað, Austur-Hérað og Fellabær verði sameinuð í eitt sveitarfélag með um þrjú þúsund íbúa. Sveitarstjórn Norður-Héraðs ákvað á fundi sínum í fyrrakvöld að samþykkja tillögur samstarfsnefndar en hin sveitar- félögin hafa nú þegar lýst yfir vilja til sameiningar. Að sögn Soffíu Lárusdóttur, for- seta bæjarstjórnar Austur-Héraðs, hefst nú önnur umræða um málið og ef niðurstaðan verður jákvæð verður gengið til kosninga 15. október næst- komandi. Nýtt sveitarfélag myndi þá taka til starfa í byrjun nóvember og spanna allt Fljótsdalshérað utan Fljótsdalshrepps. 3000 íbúar yrðu í nýju sveitarfélagi ♦♦♦ SUMARIÐ er tíminn fyrir hjólreið- ar og þessi Hafnfirðingur, sem setti stefnuna á Hrafnistu, steig fák sinn af miklum móð. Hann setur líka ör- yggið á oddinn og hefur hjálm á höfði til að forðast meiðslin. Morgunblaðið/Sverrir Hjólað í Hafnarfirði

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.