Morgunblaðið - 25.07.2004, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 25.07.2004, Qupperneq 8
ÖRN Sigurðsson, formaður Höfuð- borgarsamtakanna, segir þá útfærslu við færslu Hringbrautar til suðurs, sem nú er unnið eftir, meingallaða. Hann segir sterk- ar vísbendingar um að aðeins sú leið hafi verið skoðuð og því hafi skipulagsyfirvöld ekki sinnt því hlutverki sínu að skoða alla mögu- leika til hlítar. Samtökunum hafi í þrígang verið neitað um að sjá gögn um aðra kosti sem voru skoðaðir. Eitt og hálft ár er síðan samtökin kærðu framkvæmdina til úrskurðar- nefndar skipulags- og byggingarmála og óskuðu eftir verkstöðvun. Þar var m.a. gerð grein fyrir broti á upplýs- ingalögum og að ekki hefðu allir möguleikar verið kannaðir til hlítar. Örn segir að ný greinargerð með kærunni sé í undirbúningi. Örn segir slaufugatnamótin mein- gölluð, sem og þá útfærslu sem nú er unnið eftir við færslu Hringbrautar. Framkvæmdin geri Reykjavíkur- borg að enn meiri bílaborg, sem sé sjúkdómseinkenni illra skipulagðrar borgar. Fólk fari allra sinna erinda á bíl, enda geri skipulagið ráð fyrir því, og hér séu um 600 bílar á hverja 1.000 íbúa. Telur að aðeins ein leið hafi verið skoðuð Í viðtali við Ólaf Bjarnason, for- stöðumann verkfræðistofu umhverf- is- og tæknisviðs Reykjavíkur, sem birtist í Morgunblaðinu fyrir viku, sagði Ólafur að margir kostir hefðu verið skoðaðir áður en sú leið sem nú er unnið eftir varð ofan á. Örn segir vísbendingar um að aðeins þessi eina leið hafi verið skoðuð. Höfuðborgar- samtökin hafi í þrígang leitað eftir því að fá að sjá gögn um hvaða kostir voru skoðaðir, með vísan til upplýs- ingalaga, en alltaf verið neitað um slíkt. „Ég hef sem sagt ekki trú á því að borgarverkfræðingurinn og Vega- gerðin hafi skoðað margar leiðir, alla vega hafa þeir ekki verið tilbúnir til að sýna okkur það. […] Það er ein af skyldum yfirvalds af þessu tagi að skoða alla möguleika,“ segir Örn. Vilja götuna í opinn stokk og hringtorg Höfuðborgarsamtökin hafa afhent borgaryfirvöldum gögn um þá leið sem þau vilja fara. „Við lögðum fram tvær tillögur til að bjarga því sem bjargað verður fyrir Landspítalann.“ Samtökin leggja til að Hringbraut verði lögð í opinn stokk fyrir sunnan Landspítalalóðina og hringtorg komi í stað slaufugatnamóta. „Með því að setja götuna í opinn stokk er hægt að bjarga um 40.000 m² af byggingarlandi á B-reit LSH [þar sem Tanngarður er í dag]. Það finnst okkur mikils virði og ég veit að Land- spítalamönnum finnst það líka. Með því að setja hringtorg við Bústaða- veg, í staðinn fyrir þessar slaufur sem Vegagerðin ætlar að gera, er upplagt að leggja gömlu Hringbrautina niður í stokk og þar með fengi Landspítali – háskólasjúkrahús eina samfellda byggingarlóð. Þá væri hægt að þróa hana og byggja upp nákvæmlega eft- ir þörfum spítalans sjálfs.“ Örn segir að það kosti ekki krónu meira en núverandi lausn að leggja Hringbrautina í stokk. Hringtorgið myndi kosta um 350 milljónir króna til viðbótar. Hann segir að sam- göngu- og skipulagsnefnd hafi ve- fengt kostnaðarmat samtakanna. „Þar er rangt farið með, við höfum birt athugasemdir við það og sýnt fram á það með rökum að okkar full- yrðing stenst; að opinn stokkur kost- ar ekki meira en núverandi fram- kvæmd.“ Örn segir það kolrangt sem Ólafur sagði í Morgunblaðinu, að fyrirhuguð slaufugatnamót á mótum Hring- brautar, Snorrabrautar og Bústaða- vegar séu góð út frá umferðartækni- legum sjónarmiðum. „Þetta er algjör þversögn, þau eru tæknilega afar slæm, eins og reynslan sýnir af einum fernum öðrum sambærilegum gatna- mótum í Reykjavík,“ segir hann. Klippir lóð LSH í tvennt Ólafur sagði þessa útfærslu tryggja aðgengi að Landspítalanum, sem væri jafnframt ein helsta for- senda færslu Hringbrautar, ásamt þörf spítalans fyrir land til uppbygg- ingar. Örn segir að gamla Hring- brautin, sem á að vera aðalaðkomu- leiðin að spítalanum, klippi lóðina í tvennt. „Við höfum sýnt LSH að þeg- ar spítalinn verður endanlega skipu- lagður geti skipuleggjendur hans sótt sér aðkomu hvert sem er,“ segir Örn og nefnir að aðkoma verði t.d. mögu- leg frá nýrri Hringbraut við Hlíðar- fót, sunnan við Umferðarmiðstöðina, en þar verði ljósastýrð gatnamót. Þá væri hægt að hafa sjálfstætt gatnakerfi, sem þjóni spítalanum ein- um. „Það verður auðvitað mjög þvingandi fyrir spítalann að þurfa að byggja sitt hvorum megin við Hring- brautina,“ segir hann og bætir við að Höfuðborgarsamtökin vilji jafnframt að hringtorg verði gert á mótum Snorrabrautar og Eiríksgötu. Áfram mikil umferð á „gömlu“ Hringbrautinni Miðað við núverandi skipulag á gamla Hringbrautin að vera aðalað- koman að spítalanum, en vegurinn verður einnig opinn fyrir almenna umferð. Dregið verður úr hraðanum með hringtorgum og hraðahindrun- um. Örn segir að í mati á umhverfis- áhrifum komi fram að gamla Hring- brautin geti tekið um 15.000 bíla á sólarhring. Hann telur að mun fleiri muni velja að fara þessa leið og gatan verði því fljótlega fullmettuð. Einhverjir muni t.d. velja að beygja af Miklubraut strax yfir á gömlu Hringbrautina þegar þeir eigi leið niður í miðbæ. Þá muni þeir sem eiga leið frá Snorrabraut í miðbæinn frekar fara eftir gömlu Hringbraut- inni, þótt þar verði hringtorg og hraðahindranir, en að fara í slaufu niður á nýju Hringbrautina, þar sem þeir geti lent á þrennum ljósum. Hver fermetri dýrmætur „Ólafur segist ekki telja að miklu landi sé fórnað og talar um land eins og það sé einskis virði. […] Að okkar mati er hver fermetri lands á þessu svæði dýrmætur. Ef það er hægt að minnka umfang svona gatnamóta er hægt að byggja nær þeim og nýta landið til annars. Það er einfalt. Vega- gerðin er sennilega að sóa þrefalt meira landi en þarf fyrir hringtorgs- gatnamót og það eru nokkur þúsund fermetrar byggingarlands. Með hringtorgslausninni sparast kannski 8–10.000 fermetrar lands,“ segir Örn. Einnig segir hann að ekki megi tengja almennt gatnakerfi inn á stofnbrautir nema á fáum stöðum og það þurfi að vera mjög langt á milli gatnamóta. Því sé það rangt sem Ólafur segir að nýja Hringbrautin verði góð tenging fyrir Vatnsmýrar- svæðið. „Að tengja endalausar húsa- götur inn í stofnbrautina er eins og að tengja slagæðakerfi sjúklings við sogæðakerfið. Þetta er hugsanavilla.“ Vilja slíta tengsl samgöngu- yfirvalda og borgarskipulags Örn segir slæmt að byrjað sé á öf- ugum enda, þ.e.a.s. að stofnbrautin sé lögð áður en hugsað er um heildar- skipulagið. „Með því að byggja Hringbrautina fyrst er verið að eyði- leggja landið, draga úr verðmæti þess og skapa skilyrði til þess að ekki sé hægt að byggja nálægt brautinni og hafa áhrif á skipulagið fyrirfram.“ Höfuðborgarsamtökin vilja að allt er lýtur að skipulagsmálum á höfuð- borgarsvæðinu verði flutt á hendur sveitarfélaganna. Örn segir að tvennt þurfi til svo slíta megi tengslin milli samgönguyfirvalda og borgarskipu- lagsins. „Það þarf að koma flugvell- inum í burt og sveitarfélögin á höf- uðborgarsvæðinu þurfa að taka yfir stofnbrautirnar og fá tekjustofnana. Þau þurfa að yfirtaka skipulag, hönn- un, framkvæmdir og rekstur á þess- um stofnbrautum þannig að sam- gönguyfirvöld komi hvergi nálægt borgarskipulaginu,“ segir Örn. Meingölluð færsla Örn Sigurðsson Höfuðborgarsamtökin leggja til að Hringbrautin verði lögð í stokk undir hringtorg þannig að öll gegnum-umferð fari um stokkinn. Ofan á hann komi hringtorg sem umferð um Bústaðaveg og Snorrabraut fari um. Þá vilja samtökin að hringtorg verði gert við mót Eiríksgötu og Snorrabraut- ar. Á þennan hátt væri lóð Landspítalans sameinuð í eina.                                nina@mbl.is Formaður Höfuðborg- arsamtakanna segir að þrefalt meira land sé lagt undir umferð- armannvirki í útfærsl- unni á flutningi Hring- brautar sem nú er unnið eftir en þeirri lausn sem samtökin leggi til. Hann segir að Vegagerð rík- isins og borgaryfirvöld eigi sök á því að Reykja- vík sé ein alversta bíla- borg í heimi. FRÉTTIR 8 SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Andstæðingar hval-veiða segja sigurhafa unnist á árs- fundi Alþjóðahvalveiði- ráðsins þegar fellt var út ákvæði sem kvað á um að kosið yrði um tillögur Henriks Fischers, for- manns ráðsins, á næsta ársfundi. Niðurstaða fundarins nú var að nefnd, sem sett var á laggirnar á fundinum, myndi halda áfram stefnumótunar- vinnu á grundvelli tillagna Fischers og að drög að nýju skipulagi hvalveiða í atvinnuskyni yrðu kynnt á næsta ársfundi. Fylgjendur hvalveiða eru ekki síður vígreifir og telja sig hafa unnið ótvíræðan sigur. Kon- ráð Eggertsson hrefnuveiðimaður segir þessa niðurstöðu stærstu skrefin í sögu ráðsins síðustu tutt- ugu árin. Formaður íslensku sendinefndarinnar á ársfundinum, Stefán Ásmundsson, segir að nú sé bjartara yfir þessum málum en áður. Sjávarútvegsráðherra, Árni M. Mathiesen, tekur ekki eins djúpt í árinni þegar hann segir að í þessu felist ákveðnir möguleikar, en í sjálfu sér engin niðurstaða. Í svipaðan streng tekur Árni Finns- son, formaður Náttúruverndar- samtaka Íslands. Svipaða sögu er að segja frá við- brögðum erlendis. Susan Lie- berman hjá World Wildlife Fund segir að þótt niðurstaða fundarins sé skref í átt að hvalveiðum í at- vinnuskyni sé aðeins um lítið skref að ræða og ekki jafnstórt og Jap- anir hefðu viljað. WWF og fleiri félagasamtök munu koma að und- irbúningi að hinu nýja skipulagi. Japanir óánægðir Japanir lýstu yfir óánægju með niðurstöðu fundarins og Minoru Morimoto, sendifulltrúi Japans, segir að áhyggjur Japana varð- andi framtíðarþýðingu Alþjóða- hvalveiðiráðsins fyrir sig hafi auk- ist. „Hins vegar eru Japanir reiðubúinir að gera það sem þarf til að taka upp hvalveiðar á nýjan leik með þeim raunhæfu skilyrð- um sem hið nýja skipulag kveður á um,“ segir Morimoto. Bandaríkjamenn studdu tillög- una um að halda áfram viðræðum um tillögur Fischers en William Hogarth, sendifulltrúi Bandaríkj- anna, segir að afstaða þeirra hafi ekki breyst, Bandaríkin séu enn mótfallin hvalveiðum í atvinnu- skyni og hafi áhyggjur af vísinda- veiðum vegna þess að þær séu í raun stundaðar í viðskiptaskyni. Hogarth segir að á endanum geti svo farið að Bandaríkjamenn styðji ekki neina af þeim tillögum sem fram koma í greinargerð Fischers, en þeir segjast verða að nota greinargerðina sem grund- völl fyrir frekari viðræður. U-beygja Bandaríkjamanna Norðurskautssamtökin segja að fundinum hafi lokið án þess að haldfastur árangur hafi náðst og að aðalmálið innan ráðsins, hvort leyfa eigi hvalveiðar á ný, sé enn óleyst. Að samtökunum standa hagsmunaaðilar í sjávarútvegi í Íslandi, Noregi, Færeyjum, Kan- ada og Grænlandi. Samtökin segja að endanlegt orðalag tillögunnar sýni að hval- veiðiandstæðingar vilji ekki inn- leiða hið nýja skipulag. Samtökin segja einnig að bandaríska sendi- nefndin hafi tekið U-beygju síð- asta daginn eftir að hafa verið beitt þrýstingi dýraverndunar- samtaka. Nokkrar deilur voru á fundin- um um hvaða áhrif hið nýja skipu- lag myndi hafa, þ.e. hvort upptaka þess leiddi sjálfkrafa til þess að al- þjóðlegt bann við hvalveiðum félli úr gildi. Í fréttatilkynningu sam- takanna segir að flestar þjóðir, sem áttu fulltrúa á fundinum, hafi talið að upptaka skipulagsins leiddi ekki sjálfkrafa til brottfalls bannsins, en hefði skipulagið ekki þau áhrif sæju þær þjóðir, sem styddu upptöku hvalveiða á nýjan leik, ekki tilgang í að ræða skipu- lagið frekar. Markaðurinn ræður Það er alveg ljóst að þessi nið- urstaða eykur lítið líkurnar á því að hvalveiðar í ábataskyni hefjist. Hún felur aðeins í sér að áfram skuli ræða það hvort eigi að leyfa hvalveiðar. Er það meðal annars gert í því skyni að viðhalda trú- verðugleika ráðsins en samkvæmt stofnsáttmála þess er það hlut- verk ráðsins að hafa stjórn á hval- veiðum, ekki koma í veg fyrir þær með ráðum og dáð. Þeirri skoðun hefur vaxið fiskur um hrygg innan ráðsins að veiðar verði að leyfa í þessu skyni í mjög takmörkuðum mæli og undir miklu eftirliti vegna þess að ráðið standi áfram gegn veiðum þótt vísindanefnd þess hafi sýnt fram á að hvalastofnar víða um heim, einkum á norður- hveli, þoli töluverðar veiðar án þess að þeim sé stefnt í voða. Í raun og veru er tekist á um gjörsamlega andstæð sjónarmið, þar sem sættir takast líklega aldr- ei. Komi til þess að Alþjóðahval- veiðiráðið leyfi veiðar í einhverj- um mæli verður um leið leyfilegt að versla með hvalaafurðir á al- þjóðlegum mörkuðum. Þá ræðst það svo endanlega hvort hvalveið- ar í ábataskyni hefjast, því mark- aðurinn ræður því hvort veiðarnar borga sig. Fréttaskýring| Enn er með öllu óvíst hvort hvalveiðar í ábataskyni hefjast á ný Allir telja sig sigurvegara Alþjóðahvalveiðiráðið heldur áfram að ræða endurupptöku hvalveiða Hvalur skorinn í Hvalfirði. Mjög skiptar skoðanir um niðurstöður  Skiptar skoðanir eru um nið- urstöðu fundar Alþjóðahval- veiðiráðsins. Andstæðingar hval- veiða segja niðurstöðuna sigur fyrir sig en Japanir eru óánægð- ir og Norðurskautssamtökin segja að enginn árangur hafi náðst á fundinum. Íslenskir hval- veiðisinnar eru ánægðir, en þeir sem á móti eru segja að í raun hafi lítið sem ekkert gerst hjgi@mbl.is, arnihelgason@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.