Morgunblaðið - 25.07.2004, Blaðsíða 9
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 9
O
D
D
I H
Ö
N
N
U
N
L
21
02
Nýtt hjá okkur!
Þvottavél, WXL 126SN
Ný 6 kg þvottavél með íslensku stjórnborði.
1200 sn./mín., orkuflokkur A plús.
Frábær kaup!
Kynningarverð: 69.800 kr. stgr.
Þurrkari, WTXL 2101EU
Nýr 6 kg þurrkari með íslensku stjórnborði.
Gufuþétting (enginn barki), 9 kerfi.
Frábær kaup!
Kynningarverð: 64.800 kr. stgr.
Afmælisþakkir
Innilegar þakkir til vina minna og vandamanna,
sem glöddu mig með heimsóknum, gjöfum og
skeytum á áttatíu ára afmæli mínu 5. júlí sl.
Ragnar Jóhann Lárusson,
Borgarholtsbraut 45,
Kópavogi.
Meðferðaraðilar!
Erum með gullfallegt húsnæði á frábærum stað
fyrir heilsumiðstöð. Við auglýsum eftir meðferðaraðilum
til að taka þátt í stofnun miðstöðvarinnar.
Álfdís Axelsdóttir hómopati, sími: 567 4491 og
Kristbjörg Kristmundsdóttir jógakennari og blómadropaþerapisti, sími: 861 1373.
UNDANFARIÐ hefur framgangur
lúpínu verið til umræðu í þjóð-
félaginu og hafa margir lýst yfir
áhyggjum vegna aðgerðaleysis
stjórnvalda á meðan aðrir dásama
þessa öflugu landgræðslujurt.
Í liðinni viku fóru Hjörleifur
Guttormsson, náttúrufræðingur,
Benedikt Sigurjónsson, formaður
Umhverfismálanefndar Fjarða-
byggðar, Guðrún Á. Jónsdóttir,
plöntuvistfræðingur á Nátt-
úrustofu Austurlands, ásamt fleir-
um til að skoða vaxtarstaði sjald-
gæfra plantna í fjallinu ofan við
Neskaupstað.
Meðal tegunda sem skoðaðar
voru eru stinnasef og lyngbúi sem
báðar eru mjög sjaldgæfar teg-
undir. Stinnasef hefur fundist á
nokkrum stöðum á Austurlandi og
í Strandasýslu á Vestfjörðum en
lyngbúinn hefur aðeins fundist á
nokkrum stöðum norðarlega á
Austfjörðum og er hann friðaður
samkvæmt náttúruverndarlögum
sökum þess hve sjaldgæfur hann
er.
Í námunda við vaxtarstaði
beggja tegunda vaxa stórar lúp-
ínubreiður „sem munu án nokkurs
vafa eyðileggja þessa vaxtarstaði
lyngbúa og stinnasefs áður en
mörg ár verða liðin “ segir Guð-
rún Jónsdóttir hjá Náttúrustofu
Austurlands. Að hennar mati er
ástæða til að kanna hvort sam-
bærileg vá steðjar að vaxt-
arstöðum sjaldgæfra og friðlýstra
tegunda víðar um land og bregð-
ast við þar sem hætta er á ferð-
um.
Öflug
landgræðslujurt
Á vef Náttúrufræðistofunnar
um flóru Íslands segir að lúpínan
sé mjög öflug landgræðslujurt, en
á hinn bóginn ber að varast að
setja hana í eða nálægt grónu
landi því ef hún kemst í mólendi
leggur hún það undir sig smátt og
smátt og eyðir úr því öllum
gróðri.
Víða á Austfjörðum hefur lúp-
ínan verulega sótt í sig veðrið á
undanförnum árum og dreift sér
ört um fjallshlíðar, sérstaklega í
nágrenni þéttbýlisstaða. Lúpínan
eirir engu og skríður jafnt yfir
ógróna mela sem vel gróna lyng-
bolla og stuðlar þannig að teg-
undafábreytni á stórum svæðum.
Sums staðar hefur lúpínan eyði-
lagt vinsæl berjalönd í bæjarland-
inu, húsmæðrum og öðrum berja-
unnendum til mikillar armæðu.
Lúpína ógnar friðlýstum plöntum
Lyngbúi á Aust-
fjörðum í hættu
Neskaupstað. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Áhyggjur: Hjörleifur Guttormsson
skoðar vaxtarstað lyngbúa ofan við
Neskaupstað. Í baksýn má greina
lúpínubreiðu sem er farin að skríða
niður í mólendið.
Morgunblaðið/Kristín Ágústsdóttir
Lyngbúi: Plantan er
ekki í blóma um þess-
ar mundir, en ber
fjólublá blóm.