Morgunblaðið - 25.07.2004, Side 14

Morgunblaðið - 25.07.2004, Side 14
S traumhvörf urðu á ís- lenskum húsnæðis- lánamarkaði 1. júlí þegar húsbréfakerfið var í öllum aðalatrið- um lagt af og nýtt íbúðabréfakerfi sett á í þess stað. Aðdrag- andi breytinganna var, eins og gefur að skilja, nokkuð langur og unnu margir að undirbúningi og fram- kvæmd þeirra. „Varðandi þetta ferli, sem við vor- um að ljúka við fyrsta júlí, þá má segja að þetta séu stærstu skulda- bréfaskipti sinnar tegundar sem fram hafa farið á Íslandi,“ segir Guðmundur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, en sjóðurinn gaf út hús- og húsnæð- isbréfin sálugu og gefur út íbúða- bréfin sem komið hafa í þeirra stað. „Auðvitað hafa fyrirtæki og ríkis- sjóður staðið í því áður að gefa út ný skuldabréf og verða sér úti um fjár- muni með einum eða öðrum hætti til að fjármagna sína starfsemi og einn- ig hafa hér verið skuldabréfaskipti í líkingu við þetta en engin svona stór, enda er Íbúðalánasjóður á stærð við suma banka hér á landi.“ Að sögn Guðmundar er Íbúða- lánasjóður nú að nálgast fimm hundruð milljarða króna markið í útlánum. „Útlánin byggjast eins og menn vita á því að við seljum okkar skuldabréf og það eru þá heildar- skuldir sjóðsins og að sama skapi heildareignir hans, því þetta tvennt helst nokkurn veginn í hendur. Þar fyrir utan á sjóðurinn um tólf millj- arða króna í eiginfé.“ Það sem fór fram dagana 28. til 30. júní sl. var að stærstum hluta útistandandi hús- og húsnæðisbréfa var skipt út fyrir íbúðabréf, og verð- ur útgáfu þeirra fyrrnefndu hætt, þótt þau húsbréf, sem enn standa úti, séu í fullu gildi. „Þessum skuldabréfaskiptum var ætlað að setja á markað mjög við- skiptahæfa verðbréfaflokka sem væru gjaldgengir jafnt innanlands sem erlendis. Við höfum orðið vör við það á undanförnum árum að er- lendir fjárfestar sækja í æ ríkari mæli í þá fjárfestingu sem íslensk skuldabréf eru. Þeir hafa verið að átta sig á því að hér er um verðmæt- ar eignir að ræða sem vert væri að hafa í sínum skuldabréfasöfnum.“ Guðmundur segir að hingað til hafi ákveðnar tæknilegar hindranir staðið í veginum fyrir snurðulausum viðskiptum erlendra aðila með ís- lensk verðbréf. Því hafi verið ákveð- ið að stokka upp þessa verðbréfaút- gáfu, gera hana markaðshæfari og einfaldari í öllum viðskiptum og gera hana gegnsærri. „Húsbréfin gömlu voru til að mynda nokkuð flókin í eðli sínu. Þau voru með út- dráttarfyrirkomulagi sem truflaði verðmyndun þeirra og hafði til að mynda þau áhrif að ávöxtunarkrafa þeirra var alltaf önnur en húsnæð- isbréfanna, sem við gáfum líka út.“ Munurinn á húsbréfum og hús- næðisbréfum var sá að húsnæðis- bréfin seldi sjóðurinn beint til að fjármagna peningalán hans, en hús- bréfin voru afhent einstaklingum sem fengu lán hjá sjóðnum og það var svo á þeirra könnu sjálfra að koma bréfunum í verð. Ítarleg útboðslýsing „Húsbréfaflokkarnir voru með innköllunarákvæði, auk þess sem margir þeirra voru litlir, illa mark- aðshæfir og sumir komnir til ára sinna. Þess vegna var talin ástæða til að fara í að endurskipuleggja þessa verðbréfaútgáfu og upphaf þess ferlis má segja að hafi verið þegar fjármálaráðherra skipaði nefnd til þess að endurskipuleggja verðbréfaútgáfu ríkissjóðs og Íbúðalánasjóðs,“ segir Guðmundur. Í nefndinni áttu sæti fulltrúar fjármála- og félagsmálaráðuneytis, auk fulltrúa Íbúðalánasjóðs, Seðla- banka og Lánasýslu ríkisins. Nefnd- in hóf störf í mars 2001 og skilaði nefndaráliti til fjármálaráðherra í október 2003. „Seinni hluti þessarar vinnu sner- ist að mestu um verðbréfaútgáfu Íbúðalánasjóðs, þar sem menn voru sammála um að verðbréfaútgáfa rík- issjóðs væri í sæmilega föstum skorðum og í réttum farvegi, en að nauðsynlegt væri að taka á þessari útgáfu Íbúðalánasjóðs. Í framhaldi af vinnu nefndarinnar ákveður félagsmálaráðherra að fara í þessa endurskipulagningu á hús- næðislánakerfinu og tilkynnir þessa breytingu 31. desember 2003, og til- kynnir jafnframt að breytingunum skuli vera lokið þann 1. júlí 2004. Þá skuli vera komin hér ný vinnubrögð, búið verði að leggja niður húsbréfa- kerfið, að Íbúðalánasjóður fjár- magni sína starfsemi með útgáfu nýrra skuldabréfa og veiti síðan peningalán til allra viðskiptavina,“ segir Guðmundur. Frumvarp um skiptin var kynnt í ríkisstjórn og lagt fram á Alþingi í marsmánuði, og var frumvarpið af- greitt sem lög frá Alþingi í maí í ár. Tíu innlendum bönkum og fjármála- fyrirtækjum var boðið að taka þátt í að safna saman bréfunum og fá fyrir það þóknun. Haldinn var fundur með samstarfsaðilum þann 21. júní. Dagana 28., 29. og 30. júní var skip- titilboðum safnað og lágu niðurstöð- ur þeirra fyrir þann þrítugasta. Sjö- unda júlí síðastliðinn voru skiptin svo gerð upp. „Þetta er verkefnið sem við byrj- uðum að vinna að strax eftir síðustu áramót og höfum verið að vinna að allt til dagsins í dag.“ Guðmundur segir að til að tryggja hnökralausan undirbúning og fram- kvæmd skiptanna, og að þetta væri allt gert með faglegum hætti og rétt að öllu staðið, hafi sjóðurinn ráðið til ráðgjafar við sig hinn virta þýska banka Deutsche Bank. „Hans ráðgjöf og aðkoma að mál- inu var afar mikilvæg og kom okkur sem verðbréfaútgefendum á nýtt og hærra plan, ef svo má að orði kom- ast. Sem dæmi um það unnum við ít- arlega, nákvæma og greinargóða út- boðslýsingu á hinum nýju bréfum. Þar koma m.a. fram allar upplýs- ingar um skiptiferlið, hvernig staðið er að því, hverjir séu þátttakendur með okkur í því. Svo er þar lýsing á bréfunum, upplýsingar um lánshæf- ismat þeirra, lýsing á íslensku efna- hagslífi og umfjöllun um ríkis- ábyrgðina. Svo ítarlega hefur ekki áður verið staðið að útboðslýsingu á skuldabréfum hér á landi og er von- andi að þetta geti orðið öðrum út- gefendum til fyrirmyndar.“ Að sögn Guðmundar var megintil- gangurinn með skuldabréfaskiptun- um, fyrir utan það að gera skulda- bréfaflokkana vel markaðshæfa, sá að lækka vexti. „Til þess erum við að gera þá svona vel markaðshæfa að þeir séu aðgengilegir fyrir sem Stærstu skuldabréfaskipti íslenskrar fjármálasögu Dagana 28. til 30. júní var ríflega 90% hús- og húsnæðisbréfa Íbúðalánasjóðs skipt út fyrir nýja tegund skuldabréfa, íbúðabréf. Í samtali við Morg- unblaðið fer Guðmundur Bjarnason, fram- kvæmdastjóri sjóðsins, yfir aðdraganda skiptanna, framkvæmd þeirra og árangur. Morgunblaðið/Eggert Guðmundur Bjarnason, framkvæmdastjóri Íbúðalánasjóðs, segir starfsfólk sjóðsins afar stolt af því hversu vel hafi til tekist með skuldabréfaskiptin. 14 SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.