Morgunblaðið - 25.07.2004, Side 23

Morgunblaðið - 25.07.2004, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 23 22% verðlækkun til Kanarí í vetur með Heimsferðum Skógarhlíð 18, sími 595 1000. www.heimsferdir.is Munið Mastercard ferðaávísunina Aðeins 10 íbúðir á þessum ótrúlegu kjörum á Paraiso - bókaðu strax Kynnum glæsilegt 4 stjörnu spa hótel með hálfu fæði, frá kr. 48.690.- Nýr glæsivalkostur á Ensku ströndinni, hótel Eugenia Victoria, - 4 stjörnu spa hótel, með glæsilegum garði, veitingastöðum, skemmtistöðum, skemmtiprógrammi, glæsilegu spa sem er frítt fyrir farþega Heimsferða og hálft fæði innifalið allan tímann. Sjá www.heimsferdir.is • 22% afsláttur, m.v. verð 2003 - Paraiso. • 10.000 kr. afsláttur af fyrstu 400 sætunum. Aðeins takmarkaður fjöldi sæta í hverju flugi á afslætti. • Gildir ekki um flugsæti eingöngu. • M.v. að bókað og staðfest sé fyrir 6.ágúst 2004 eða meðan afsláttarsæti eru laus. Verð kr. 28.095 M.v. hjón með 2 börn, Paraiso Maspalomas, vikuferð, 4.janúar, með 10.þúsund kr. afslætti. Netverð. Verð kr. 39.290 M.v. 2 í íbúð, 4. janúar, Paraiso Maspalomas, vikuferð, 4.janúar, með 10.þúsund kr. afslætti. Netverð. Verð kr. 48.690 M.v. 2 í herbergi, Eugenia Victoria, 4 stjörnu hótel, vikuferð, 4.janúar, með hálfu fæði. Netverð. 4. janúar - vikuferð Verð kr. 49.950 M.v. 2 í Paraiso Maspalomas, vikuferð, 4.janúar, með 10.þúsund kr. afslætti og netafslætti. 4. janúar - 2 vikur Verð kr. 57.250 M.v. 2 í íbúð Beach Flor, 2 vikur, 25.janúar, með 10.þúsund kr. afslætti og netafslætti. 25. janúar - 2 vikur 22% verðlækkun á Paraiso - einum vinsælasta gististað Heimsferða Þökkum ótrúlegar viðtöku. Nú hafa yfir 2000 manns tryggt sér ferðina með Heimsferðum til Kanarí í vetur og aldei fyrr höfum við tryggt jafn glæsilegt framboð hótel á jafn lágu verði. Nú höfum við tryggt okkur viðbótargistingu á Paraiso íbúðarhótelinu á ótrúlegu verði. Þeir sem bóka strax njóta nú forgangs að bestu gististöðunum og lægsta verðinu, því þeir sem bóka fyrir 6.ágúst, tryggja sér 10.000 kr. afslátt á manninn. Bókaðu á www.heimsferdir.is Lægsta verðið til Kanarí hjá Heimsferðum EITT STERKASTA GOLFMÓT ÁRSINS Vinna Íslendingarnir aftur á Canon PRO/AM? PRO/AM 2004 Nýherji hf. · Borgartúni 37 · 105 Reykjavík · Sími 569 7700 · Fax 569 7799 Canon og Nýherji standa fyrir einu sterkasta golfmóti ársins, Canon PRO/AM 2004, þegar fremstu kylfingar landsins mæta þeim Trevor Immelman og Tony Johnstone. Mótið fer fram á golfvelli Keilis á Hvaleyri í Hafnarfirði, 26. júlí nk. Nýherji, í samstarfi við Golfsamband Íslands og Golfklúbbinn Keili, býður sterkustu kylfingum landsins að taka þátt í mótinu og þá tryggðu þrír efstu keppendurnir á Nýherji Canon Open, sem haldið var 19. júní sl., sér þátttökurétt í mótinu. Á síðasta móti fór Sigurpáll Geir Sveinsson með sigur af hólmi og Magnús Lárusson hafnaði í öðru sæti. Það verður því spennandi að fylgjast með hvort íslensku kylfingarnir ná að endurtaka leikinn og sigra þá Immelman og Johnstone. Ná Íslendingarnir að stöðva Immelman? Trevor Immelman er fimmti tekjuhæsti kylfingurinn á Evrópsku mótaröðinni um þessar mundir en hann hefur unnið sér inn rúmar 65 milljónir kr. á þessu ári. Þá er hann i 36 sæti á heimslistanum. Trevor Immelman er 25 ára gamall og fetaði í janúar síðast liðnum í fótspor Gary Players þegar hann varði sigur á South African Airways Open með framúrskarandi spilamennsku en það mót er liður í Evrópsku mótaröðinni. Þá sigraði Immelman á Opna þýska meistaramótinu í maí sl. en þar hafnaði Padraig Harrington í öðru sæti. Immelman hefur verið á góðri siglingu síðustu tvö ár og það verður því spennandi að sjá hvernig honum gengur að kljást við íslensku kylfingana. Sigraði Els Tony Johnstone er gamall reynslubolti en hann gerðist atvinnumaður árið 1979. Hann sigraði Ernie Els með tveimur höggum á Alfred Dunhill SA PGA árið 1998 og sigraði á Qatar Masters árið 2001 þar sem Robert Carlsson lenti í öðru sæti og Angel Cabrera í því sjötta. Um er að ræða eitt sterkasta golfmót ársins – Gríptu tækifærið og mættu á Hvaleyrina. Ókeypis aðgangur. Dag einn, sem ég sat við eldhús-borðið mitt og var að skoða í Morgunblaðinu mynd af eyrarrós, (einni skrautlegustu íslensku blóm- plöntunni), hringir síminn og mig ávarpar ástríðufull- ur umhverfissinni sem ber afar mikla umhyggju fyrir hin- um íslenska blóm- gróðri. Eftir að hafa lokið af erindi sínu barst tal viðmæl- anda míns að gróðri og ég fór af því tilefni að tala um þjóð- arblómið og hina íðilfögru eyrarrós. – Þá sagði viðmælandinn mér frá válist- anum sem birtur var fyrir 8 árum, þar sem upplýst var að 235 íslenskar plöntur væru í útrýmingarhættu. „Og hvað – eru margar þeirra út- dauðar ?“ segi ég. „Það má Guð vita, ég hef reynt að fylgjast með þessu með því að hringja í þar til bæra valdsmenn og athuga málið en fengið þau svör að vegna lausagöngu búfjár sé erfitt um vik að koma í veg fyrir að jurtunum fækki,“ svarar viðmælandinn. „Eru kindurnar virkilega að rífa í sig allan blómgróðurinn okkar? „Það eru ekki bara sauðkindur sem eyða blómgróðrinum heldur líka mannkindur. Vegna lausagöngunnar leyfist t.d. blómasöfnurum að geysast um landið til að safna jurtum í alls kyns krem og te sem verið er að fram- leiða úr íslenskum jurtum. Þannig er m.a. rifinn upp í tonnatali (liggur mér við að segja) þessi vesalings viðkvæmi heiðagróður sem bindur hina fok- gjörnu mold okkar hrjóstrugu eyju,“ sagði viðmæladinn. „Það er eins og fólk haldi að þetta sé bara allt í lagi! Og ekki aðeins er látið átölulaust að mestu að fólk rýi landið þannig gróðri heldur eru menn jafnvel að fjandskapast yfir því að nýjar jurtir nemi hér land. Þeir horfa hneykslaðir út í loftið og segja að jurtir sem berist hingað séu ekki íslenskar plöntur. Hvernig halda þeir að plöntur hafi yf- irleitt borist til Íslands? Auðvitað komu fræ þeirra hingað með vindi, vatni, fuglum og fólki, allt frá því að eldgos kom Íslandi á kortið endur fyr- ir löngu – rétt eins og gerst hefur með Surtsey. Og nú eru menn jafnvel farn- ir að höggva upp tré á Þingvöllum undir því yfirskini að þau séu af er- lendum uppruna. Í umboði hverra er verið að þessu – það þætti mér gaman að vita,“ hélt viðmælandi minn áfram. Það er von að hann spyrji – nær þætti mörgum að gróðursetja trjá- plöntur úti í náttúrunni heldur en höggva þær upp. Ef við getum tekið hér við útlendu fólki til búsetu ættum við að geta horft upp á það ógrátandi að nýjar plöntur nemi hér land, á hvern hátt sem þær gera það. Einu sinni sagði mér læknir að það væri „vel varðveitt leyndarmál“ að „genabanki“ okkar Íslendinga væri nokkuð fátæklegur og því veitti okkur ekki af blöndun við erlenda kyn- stofna, – ætli því geti ekki verið ein- mitt þannig varið með „jurtabank- ann“ íslenska? Eitt er víst, ef það eiga að vaxa hér á Íslandi einhver „ eilífðar smáblóm“ áfram, væri ráð að hyggja að hvernig þeim 235 plöntum vegnar sem voru á válistanum fyrir átta árum og gæta þess að fleiri blómplöntur komist ekki á þennan skuggalega lista. – Annars gæti svo farið ýmsir aðrir en „eilífðar smáblómið“ verði með „titrandi tár“ á hvarmi þegar upp er staðið. ÞJÓÐLÍFSÞANKAR/Hefur fjölgað á válistanum? Eitt eilífðar smáblóm? Til stendur víst að velja Íslendingum þjóðarblóm og er sem óðast verið að kynna ýmis blóm til sögunnar í tilefni þess. Hver íslenska blómjurtin af ann- arri sýnir sig á síðum dagblaða og má ekki á milli sjá hver fegurst er. Per- sónulega er ég hrifnust af fjalldalafífli, hann er svo fallega hæverskur og kurteis þar sem hann drúpir dreyrrauðu höfði í átt að hinu íslenska grágrýti, allsendis óvitandi um yndisleik sinn. Eftir Guðrúnu Guðlaugsdóttur

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.