Morgunblaðið - 25.07.2004, Blaðsíða 24
24 SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
H
jónin Helena
Böðvarsdóttir
og Paolo del
Grosso sjá um
að samfélagið í
spænska þorp-
inu La Marina
við strönd
Miðjarðarhafs fái góðan mat og geti
farið að skemmta sér og dansa við
söng Jósefínu á La Marina Sport
Complex, vinsælasta veitinga- og
skemmtistað þessa yndislega Mið-
jarðarhafsbæjar. Raunar er bærinn
„troðfullur“ af veitinga- og kaffihús-
um. Hins vegar er staðurinn þeirra
Paolo og Helenu að mínu mati og
flestra annarra eini valkosturinn, ef
fólk ætlar að sameina það að fá sér
verulega góðan mat og taka sporið á
eftir. Samkeppnin er mikil, en La
Marina Sport Complex er eins og
kletturinn í hafinu. Hann stendur
alltaf fyrir sínu með listakokka,
sönginn hennar Jósefínu og undir-
spil eiginmannsins og sonarins, sem
er gítarsnillingur sér á parti í anda
Santana.
La Marina er í miðju griðlandi
allra þjóða kvikinda, sem hafa kosið
sér að búa á því svæði í heiminum,
sem Alþjóðaheilbrigðismálastofnun-
in lýsti sem einu af heilnæmustu
svæðum heims fyrir mannfólkið.
Loftslagið er eins og í Paradís, „vet-
urinn“ svona tveir mánuðir á ári og
frosts gætir nánast aldrei nema
e.t.v. yfir blánóttina þessa gæsa-
lappavetrarmánuði janúar og febr-
úar.
Á svæðinu öllu þar sem La Mar-
ina er, bæði fyrir norðan og sunnan
borgina, eigi fjarri Alicante, búa
mörg hundruð Íslendingar sem eiga
eða leigja hús þar, ýmist til árs-
dvalar eða dvalar hluta úr ári. Flest-
ir Íslendingar, sem búa þarna í
heilsubótarloftslaginu, eru þarna
þegar myrkrið og kuldinn eru að
hrella fólk hér upp á Íslandi. Yfir
vetrartímann eru það aðallega hús-
eigendur, þótt margir þeirra fari
heim yfir jólahátíðarnar.
Ekki aftur snúið
Í vetur héldu íslenzkir húseigend-
ur á Alicante/Torrevieja-svæðinu
árshátíð sína og varð veitinga- og
skemmtistaðurinn La Marina
Sports Center fyrir valinu. „Þetta
var einhver langbezt heppnaða
árshátíðin, sem ég man eftir,“ sagði
heimavanur Íslendingur.
Árið 1990 fór Helena Böðvars-
dóttir í ósköp venjulega sólarferð til
Spánar, eins og títt er um Íslend-
inga. Eitt kvöldið fór hún á veit-
ingastað í þorpinu La Marina, sem
heitir La Marina Sport Complex.
Þar hitti hún ítalskan þjón, sem
vann á staðnum, Paolo del Grosso að
nafni. Á milli þeirra neistaði strax,
þau kynntust en ekki varð meira úr
því. Tæpum þremur árum síðar kom
Helena aftur til La Marina og aftur
hittir hún Paolo á sama veitinga-
staðnum. Þá varð ekki aftur snúið.
Nú, fjórtán árum síðar, búa þau í La
Marina ásamt þremur börnum, Þór-
unni, Marisu og Benjamín, og reka
sjálf veitingastaðinn La Marina
Sport Complex, sama stað og fyrstu
kynnin urðu!
En þau hjónin hafa ekki verið í
La Marina alla sína tíð, því Helena
fékk fljótt heimþrá og var ákveðið
að halda heim til Íslands. Um þetta
leyti fæddist Marisa, dóttir þeirra
hjóna, en hún er nú á tíunda ári.
Þremur árum síðar fæddist þeim
sonur, Benjamín, sem nú er 7 ára.
Áður átti Helena Þórunni, ungling-
inn á heimilinu. Hún er 13 ára göm-
ul.
Á þessum tíma, snemma á tíunda
áratugnum, var erfitt að fá vinnu í
erfiðu atvinnuástandi á Íslandi. Þau
fluttust samt nokkru síðar, eða
1995, til Íslands og Paolo fékk vinnu
hjá pípulagningameistara og fljót-
lega þægilegri vinnu hjá Steinboch-
þjónustunni, lyftaraþjónustu, sem
selur og gerir við þvílík tæki. Paolo
vann á verkstæði fyrirtækisins þau
sjö ár sem Helena og Paolo bjuggu
hérlendis.
Ódýrt miðað við Ísland
Ég heimsótti Helenu og Paolo á
skemmtilegu heimili þeirra, sem er
reyndar beint á móti veitingastaðn-
um handan götunnar, þar sem þau
hafa heldur betur tekið til hendinni
og breytt tveimur íbúðum í eina.
Það er annríkt hjá Paolo og hann
hefur lítinn tíma til að spjalla við
blaðamann. Um Ísland segir hann,
að þar sé svo sem þokkalegt að
vera, en hann hryllir við tilhugs-
uninni um kuldann.
„Landið er fallegt, en það er alltof
kalt á Íslandi,“ segir hann. Helena
gerir nú ekki mikið úr því, en segir
að það sé alltof dýrt að búa á Ís-
landi. „Hér í La Marina er fullt af
fólki, sem getur lifað ágætu lífi á
ellilífeyrinum sínum,“ segir hún og
það eru orð að sönnu, að Spánn er
ódýrt land miðað við Ísland, þótt
vöruverð hafi hækkað ótrúlega mik-
ið, þegar skipt var úr gömlu góðu
pesetunum yfir í evruna. Sígilt
dæmi er náttúrlega verð á léttvíni.
Á Spáni er hægt að kaupa prýðilegt
rauðvín fyrir eina til tvær evrur,
sem samsvarar u.þ.b. 100 til 200
krónum. Sams konar vín hér heima
kostar um 12–15 hundruð krónur.
Eftir sex ára dvöl á Íslandi flutt-
ust þau þaðan til La Marina. Þetta
var í júní 2002 og þá fór Paolo að
vinna aftur hjá La Marina Sport
Complex, sem hann hafði reyndar
átt hlut í lengi eftir að hann aðstoð-
aði vini sína, ítölsk hjón, þegar þau
stofnuðu staðinn. Paolo er fæddur í
litlum bæ skammt frá Napólí á Ítal-
íu, en fluttist ungur maður til Eng-
lands, þar sem hann bjó og starfaði í
um 20 ár. Þá fluttist hann til Spánar
ásamt þessum vinum sínum.
Söngurinn ómar um hverfið
Í fyrrahaust tóku Helena og
Paolo veitingareksturinn á Sport
Complex á kaupleigu og hafa rekið
staðinn upp á eigin reikning í allan
vetur. Raunar hafði Paolo boðizt áð-
ur að taka staðinn á leigu en beið
með það þangað til í fyrra. Þegar ég
spyr hann hvort hann vilji ekki bara
kaupa staðinn segir hann, að það
komi vel til greina, þegar aðstæður
leyfa. Þá kæmi líka til greina að
stofna nýjan stað.
Veitingastaðurinn er bæði innan
og utan dyra. Í þessum bransa verð-
ur það að teljast hálfgerð nauðsyn á
Spáni. Verulegan hluta ársins er
loftslagið nefnilega svo gott, að
gestirnir, einkum ferðamennirnir,
kjósa fremur að sitja utan dyra en
innan. Og vitanlega færa Jósefína
og hljómsveitin sig út og söngurinn
úr barka Jósefínu ómar um hverfið.
Þetta er ekki venjulegur túrista-
staður, réttara væri að lýsa honum
sem „blönduðum“ stað, því veitinga-
og skemmtistaður Helenu og Paolo
er nánast eini staðurinn sem býður
upp á lifandi músík og aðstöðu fyrir
þá sem vilja dansa með. Þess vegna
sækja Spánverjarnir þangað líka til
að dansa flamenco og aðra spænska
dansa. Á sumrin er lifandi tónlist á
hverju kvöldi.
Einn fastagesturinn, vel áttræður
karl, ekur oftast tvisvar til þrisvar í
viku langa leið úr öðru þorpi til að
dansa við söng Jósefínu. Hann er
gamall flamenco-meistari og sá
kann sko að sjarmera kellingarnar
upp úr skónum. Það eina sem gerir
staðinn túristalegan eru þakkarorð
söngkonunnar Jósefínu eftir hverja
syrpu, stundum hvert lag. Gracias!
Thank You! Danke Schön! Tackar
så mycket! Takk fyrir! og svona
þakkarbuna á einum 15–20 tungu-
málum rennur upp úr henni nokkr-
um sinnum á kvöldi.
„Reksturinn hefur gengið ágæt-
lega,“ segja þau hjónin, „þótt við
höfum e.t.v. ekki tekið við staðnum
á bezta tíma, í byrjun vetrar. Þetta
er kannski ekki líflegasti tíminn,
svona yfir vetrarmánuðina,“ segja
þau. „Þetta er gífurlega mikil
vinna,“ segir Helena „og ég geri ráð
fyrir, að vinnudagurinn hjá Paolo sé
einhvers staðar í kringum 15–16
klukkustundir á dag, þótt dagamun-
ur sé á traffíkinni á veitingastaðinn.
Staðurinn er opnaður kl. 10 á
morgnana og þar er opið eftir þörf-
um fram til eitt, tvö eða þrjú á nótt-
unni. Mest er náttúrlega að gera um
helgar. Auk þess er staðurinn opinn
alla daga ársins nema á aðfangadag,
það er eini dagurinn sem við höfum
lokað,“ segir Helena
Línudans, kvennafundir og messur
Helena bendir á að staðurinn
njóti ákveðinnar sérstöðu, því ýmsir
hópar sækist eftir að halda veizlur
þar, árshátíðir, fundi og alls kyns
samkomur. Til þess að þjóna sér-
óskum hafa þau sal á efri hæðinni
fyrir ofan vetingastaðinn. Í desem-
ber hafi t.d. verið ákaflega mikið að
gera, bæði á vetingastaðnum og í
salnum uppi.
Þess má einnig geta að Íslending-
arnir, sem búa í La Marina, og gest-
komandi Íslendingar hittast alltaf
einu sinni í viku á veitingastaðnum
til að spjalla og skiptast á fréttum.
Salurinn á efri hæðinni er leigður
út til alls kyns hópa, þar er t.d.
kenndur línudans, kvennahópar eru
með fundi, messur eru haldnar
reglulega og alls kyns félagsstarf-
semi hefur þarna fast aðsetur. Þá er
brezkur keiluvöllur (bowling) við
staðinn, sem Bretar sækja mikið, og
á sumrin getur fólk farið í sundlaug,
sem ítölsku vinirnir þeirra reka á
lóðinni.
Ég spyr hvort þetta sé ekki vin-
sælasti staðurinn í La Marina, en
Helena vill ekki fullyrða að svo sé.
„Það er svo mikið af stöðum hérna í
bænum og margir mjög góðir, en
e.t.v. má segja að við njótum þess
hversu mikið okkar staður hefur
upp á að bjóða auk veitingahússins,
að ekki sé nefnd Jósefína og hljóm-
Marisa, dóttir þeirra Paolos og Helenu.
Jósefína, söngkonan sem heldur uppi stuðinu á La Marina Sport Complex
Veitingamennirnir og hjónin Paolo og Helena í pásu úti í sal.
Reka veitingastaðinn
þar sem þau kynntust
Veitinga- og skemmtistaður
Helenu Böðvarsdóttur og
Paolo del Grosso í spænska
þorpinu La Marina er eng-
inn venjulegur túristastaður
að mati Halldórs Halldórs-
sonar, sem þangað vandi
komur sínar til að gæða sér
á gómsætum réttum, taka
sporið og hlýða á söng Jós-
efínu.
’Það er einhver linkaí skólakerfinu heima
og börn eru ekki lát-
in taka ábyrgð á
sjálfum sér – og ekki
kennt það. Það er
aldrei tekið á vanda-
málum, heldur ríkir
einhvers konar
„linkulýðræði“ í
skólum heima.‘