Morgunblaðið - 25.07.2004, Side 26

Morgunblaðið - 25.07.2004, Side 26
UMRÆÐAN 26 SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ www.fujifilm.is 2 á vikuÓKEYPISSUMARLEIKUR FUJIFILM Fyrst og fremst vil ég benda á nokkur grundvallaratriði um útlend- ingalögin. Fyrir utan nánustu að- standendur Íslendinga, flóttamenn eða stúdenta, fjalla lögin aðallega um „útlenska verkamenn“. Makar Ís- lendinga, flóttamenn og stúdentar eru eins kon- ar undantekningar í lög- unum og stundum hafa þeir forréttindi umfram áðurnefnda verkamenn, enda eru aðstæður þeirra aðrar en verka- mannanna. „Dvalarleyfi fyrir maka Íslendings“ er þægilegra en venjulegt dvalarleyfi að mörgu leyti. T.d. fær maki Ís- lendings að starfa án sérstaks atvinnuleyfis. Hann getur skipt um vinnu eða hætt að vinna ef svo ber undir. Auk þess er hann með fullan aðgang að félagslegri þjónustu eins og t.d. barnabótum eða húsaleigubótum. Nú á Íslendingur maka, sem er yngri en 24 ára, og sækir sá hinn sami um dvalarleyfi með „venjulegum hætti“, s.s. á eigin forsendum sem ein- staklingur. Hvað þarf að vera fyrir hendi til að slíkt leyfi fáist? Meginskilyrði fyrir veitingu dval- arleyfis eru þrjú: húsnæði, sjúkra- trygging og framfærsla. Fyrri tvö at- riðin eru ef til vill í lagi, en hvað um framfærslu? Hér verðum við að at- huga að framfærsla þarf að vera „sjálfstæð“ og að tekjur makans hafa engin áhrif á hana, jafnvel þótt um hjónaband sé að ræða. Hvaða áhrif hefur það? Skoðum málið samkvæmt lögunum ásamt núgildandi reglugerð- unum. Það þýðir annaðhvort A) að við- komandi útlendingur þarf að sýna fram á að hann hafi 78.000 kr. inni á bankareikningi sínum fyrir hvern mánuð sem hann vill vera á landinu. Ef hann ætlar að fá leyfi til eins árs þarf tæp milljón króna að vera inni á reikningnum áður en leyfið er veitt. Eða B) að hann þarf að verða sér úti um starf hér á landi, fá starfsleyfi og sýna viðeigandi yfirvöldum undirrit- aðan starfssamning. Hér eru mörg at- riði sem krefjast athugunar. Í fyrsta lagi er atvinnuleyfi bundið við tiltekið starf og er ekki hægt að skipta um vinnu án þess að það falli úr gildi. Í öðru lagi er atvinnuleyfi aðeins veitt ef um fullt starf, en ekki hlutastarf, er að ræða. Í þriðja lagi þarf útlending- urinn að yfirgefa landið missi hann starfið, og í síðasta lagi getur hann ekki endurnýjað leyfið ef hann þiggur félagslega aðstoð eins og fjárhags- aðstoð frá sveitarfélögum. Það er augljóst að þessi skilyrði henta ekki öllum erlendum mökum Íslendinga. Hvað gerist verði útlensk eiginkona Íslendings ófrísk og geti því ekki haldið áfram vinnu? Hvað gerist ef maki á lítið barn og vill því aðeins vinna hlutastarf? Hvað gerist ef maki missir vinnuna? Sé erlendi makinn öryrki eða veikur, og því ófær um að vinna, getur hann ekki einu sinni fengið leyfi til að flytjast hingað til að byrja með. Þetta er ekki sann- gjarnt, en þetta eru afleiðingar þess að lögunum er aðallega ætlað að fjalla um erlenda verkamenn, en ekki aðra innflytjendur. Ég er á móti „24 ára reglunni“, en hún er orðin að lögum og því verður að fylgja henni. Þess í stað vil ég að gerðar séu nokkrar breytingar á nú- gildandi reglugerðum sem settar hafa verið með stoð í lögum um útlendinga. 1) Tekjur hins íslenska maka eiga að vera taldar með þegar framfærsla útlendingsins er reiknuð. 2) Erlendir makar Íslendinga eiga að fá óbundið atvinnuleyfi. 3) Það að hafa þegið félagslega aðstoð á ekki að hafa nein áhrif á end- urnýjun dvalarleyfis. Ég tel breytingar þessar vera nauðsynlegar til að hægt sé að tryggja venjulegt hjónalíf á Íslandi. Verði reglugerðunum hins vegar breytt í þessa átt hefði það í raun sömu áhrif og ef „24 ára reglunni“ hefði verið sleppt frá upphafi. Dómsmálaráðherra endurtekur, í áðurnefndu bréfi, þá skoðun sína að mótmæli gegn „24 ára reglunni“ byggist á misskilningi. Það má vera að ég hafi misskilið lögin og að útlend- ingar geti notið hjónalífs með íslensk- um maka sínum eins og þeir hafa áður getað gert. Ef sú er raunin verð ég manna glaðastur og bið alla hlutaðeig- andi afsökunar á andmælunum. Ég mun hins vegar fylgjast með þróun mála af athygli. Réttindi erlendra maka Íslendinga Toshiki Toma skrifar um málefni innflytjenda ’Það er augljóst aðþessi skilyrði henta ekki öllum erlendum mökum Íslendinga.‘ Höfundur er prestur innflytjenda. ÞORLEIFUR Örn Arnarsson skrifaði á dögunum opið bréf til Björns Bjarnasonar dómsmálaráð- herra, sem birtist á síð- um Morgunblaðins, þar sem hann lýsir áhyggj- um sínum vegna rétt- arstöðu erlendrar unn- ustu sinnar. Þar sem hún er yngri en 24 ára getur hún ekki, sam- kvæmt svokallaðri „24 ára reglu“ í útlend- ingalögunum, fengið dvalarleyfi sem maki Íslendings. Svar Björns Bjarna- sonar við bréfi Þorleifs birtist í Morgunblaðinu hinn 12. maí sl. Þar segir: „[hún] ein- faldlega ekki dvalarleyfi „sem maki“, en getur eftir sem áður sótt um leyfi með venjulegum hætti. […] Vitaskuld yrði litið til hjúskapar útlendingsins við Íslending við meðferð umsókn- arinnar.“ Mig langar dálítið til að fjalla um þau atriði sem ráðherrann bendir á. Toshiki Toma Á SÍÐASTA ári birtum við í Morg- unblaðinu skrá yfir gestabækur í vörðum umhverfis Eyjafjörð og fylgdi með kort sem sýndi staðsetn- ingu varðanna. Reyndust þetta vera 22 gestabækur. Rétt er að geta þess að okkur bárust síðar upplýsingar um eina vörðubók í viðbót, í Bryðjuskál í vestanverðu Staðarbyggðarfjalli í 600 m hæð. Einnig má geta þess að bætt hefur verið úr gestabókartapinu á Kistu, sem minnst var á í umræddri grein. Nú höfum við reynt að viða að okk- ur upplýsingum um skála og kofa sem eru dreifðir um dali og fjöll um- hverfis Eyjafjörð. Sumir skálanna sem við teljum upp mundu ýmsir telja að ekki heyrðu til Eyjafjarð- arsvæðisins og vissulega ekki til Eyjafjarðarsýslu. En flestir teljast þeir þó vera í óbyggðum fjöllum og dölum umhverfis Eyjafjörð í víðum skilningi. Okkur sýnist að telja megi 26 skála á þessu skilgreinda svæði. Auðvitað eru þessi hús mismunandi, misstór og í misgóðu ástandi og eign- arhald þeirra er margvíslegt. Nefna má slysavarnaskýli, gangna- mannakofa, ferðafélagsskála og hús í einkaeign. Flestir þeir skálar sem hér um ræðir eru opnir almenningi og er það ferðamönnum mikið öryggi og til þæginda. Þó verður ekki sest að í sumum þeirra nema með leyfi eig- enda eða umsjónarmanna. Skíða- staðir og skálar Landsvirkjunar, Galtaból og Bleiksbúð, munu vera lokaðir almenningi. Ljóst er að það er skylda eigenda og umsjónarmanna að halda þessum eignum sínum vel við, og ekki síður hvílir sú skylda á ferða- mönnum að ganga vel um. Sumir skálarnir eru á afskekktum stöðum sem einungis verður komist að gang- andi eða á vélsleðum eða siglandi en að öðrum liggja jeppaslóðir. Hæsti skálinn er Tungnahryggsskáli sem er um 1190 metrum yfir sjávarmáli, en slysavarnarskýlin eru sum hver niðri við sjávarmál. Í meðfylgjandi töflu eru gefin upp staðsetningahnit og hæðartölur og eru þær upplýsingar að mestu teknar úr GPS-bók Sig- urjóns Péturssonar en við höfum sjálfir bætt við því sem upp á vantaði og þá stundum notið aðstoðar kunn- ingja okkar. Kortið sem hér fylgir sýnir svo landfræðilega staðsetningu þessara skála. Það er von okkar að þessi samantekt lýsi því vel hvaða möguleika ferðamenn hafa á húsa- skjóli í fjölbreytilegum óbyggðunum umhverfis Eyjafjörð. Skálar í óbyggðum Bjarni E. Guðleifsson, Konráð Gunnarsson og Smári Sigurðsson skrifa um vörður við Eyjafjörð ’Sumir skálanna sem viðteljum upp mundu ýmsir telja að ekki heyrðu til Eyjafjarðarsvæðisins og vissulega ekki til Eyja- fjarðarsýslu. ‘ Bjarni E. Guðleifsson Höfundar búa við Eyjafjörð. Bjarni er náttúrufræðingur, Konráð sundlaugarvörður og Smári garðyrkjufræðingur.         +    6  M# %F # + + .;  < 1$" *    .&!  +  %& <@ IIN@G+CI@M<GNB>+?E@ ? ! !! *  %+  O! % .&!  %& B@ IIN@=+C@@M<GNC=+G=@ C /   !! *  %+  !%F 4%F   +  %& B@= I>N>I+CC@M<GN>@+B=E B &  ! "%   #!! (!$"  O! %+ .&! !  ! 1! !# !!+ + !+ ?=> I>N>G+?>EM<GNCE+B?B > !%! ;   !!  - !  ! .&! P L $ ,F #  + !+ GE@ I>NB=+IEBM<GN>E+I?G I 0 % "/! 7  - !  ! .&!   *!  A! <+<=@ I>NB<+C?IM<GN>@+E=B E  ! 7 "/ F!# ,LL !F   *! & B@@ I>NC=+C@=M<GNCI+>IG G    Q F!! / !  -# "  .&! %&!  !!F  >@@ = .#! R -% "F .&! "/ *! -!"" ?G@ I>NCG+CE<M<GN@E+<<I <@ /!" !! 1 !#   6" ,LL !F "/ *! -!"" CI@ I>NC=+CCEM<GN@G+E?C << "$    7 !$  %!!  .! 4%F  6" A BI@ I>NC=+GE@M<GN<?+C@@ <? #  ! .! .&!   *! 6" E=@ I>NCB+GI<M<GN<E+E?> <C !"  Q % A% %!!   $  /  .&! *! *! ! #  % %+ <+<C@ I>N<E+G=>M<GNC<+=?C <B ! 1+  ;  / 1 %!! ,LL !F 0F# &   + !+ G=@ I>N<<+B?@M<GN?@+<G@ <> ./ % A% * .! /&# ,LL !F % %  I>@ I>N@I+E?@M<GN?>+G>@ <I  !! %&"! ,LL !F   *! 6" EC@ I>N@<+E>@M<GN<=+=I@ <E .! F!   $ !" # ! &# ,LL !F  "% G=? I>N@<+IG@M<GN@C+?C@ <G "   4 #F  ,LL 1! !# Q  4  + * + + !+ =I@ I>N@>+<I@M<GN@B+@<@ <= !"  Q !" # ! ,LL !F  "% EI@ I>N<@+<=@M<EN><+>?@ ?@ 6  . / .&! .# >@@ I>N?=+?<@M<EN>B+?<@ ?<    # # % !; %!   ,LL !F .  M  ;  ) 4% <@@ IBN>=+I>@M<EN><+<?@ ??  "  1+  !   !+ / !% ,LL !F $ /# 0  /  <@ IIN@B+G@IM<EN>?+BGB ?B 4&! "" 7 4    .&!  +  %& <@ IIN@=+IC<M<GN@E+B>E ?> - !$" S  / .%& " .&!  +  %& <@ IIN<@+C?EM<GN<B+=EG ?I / / &) !+ .&!  +  %& <@ IIN@I+>G?M<GN<=+@@@ ?C .! Q !   ! % ,LL !F .  =@ IIN@B+BCCM<GN@B+>>> #$' () !% # ( &  *&& !  (+ !   & &&+ #!'  &! #  ' ,!! -'$ ! . # / / 0'  '# 12+."+ +  /   & /.3 '  '!.4  (  4!# 0+ !%      '       (  )             *      ) +    )     , -          +  (       05 /  $'          0 .*/   1  * /      " !  ) 23  ) "*4           !* * )    +    5  /)    * ) (    )(   6  ' / ## !  7*&.'' $'      # ) (   *           (!3!                       Konráð Gunnarsson Smári Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.