Morgunblaðið - 25.07.2004, Page 26
UMRÆÐAN
26 SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
www.fujifilm.is
2 á vikuÓKEYPISSUMARLEIKUR FUJIFILM
Fyrst og fremst vil ég benda á
nokkur grundvallaratriði um útlend-
ingalögin. Fyrir utan nánustu að-
standendur Íslendinga, flóttamenn
eða stúdenta, fjalla lögin aðallega um
„útlenska verkamenn“. Makar Ís-
lendinga, flóttamenn og
stúdentar eru eins kon-
ar undantekningar í lög-
unum og stundum hafa
þeir forréttindi umfram
áðurnefnda verkamenn,
enda eru aðstæður
þeirra aðrar en verka-
mannanna.
„Dvalarleyfi fyrir
maka Íslendings“ er
þægilegra en venjulegt
dvalarleyfi að mörgu
leyti. T.d. fær maki Ís-
lendings að starfa án
sérstaks atvinnuleyfis.
Hann getur skipt um vinnu eða hætt
að vinna ef svo ber undir. Auk þess er
hann með fullan aðgang að félagslegri
þjónustu eins og t.d. barnabótum eða
húsaleigubótum.
Nú á Íslendingur maka, sem er
yngri en 24 ára, og sækir sá hinn sami
um dvalarleyfi með „venjulegum
hætti“, s.s. á eigin forsendum sem ein-
staklingur. Hvað þarf að vera fyrir
hendi til að slíkt leyfi fáist?
Meginskilyrði fyrir veitingu dval-
arleyfis eru þrjú: húsnæði, sjúkra-
trygging og framfærsla. Fyrri tvö at-
riðin eru ef til vill í lagi, en hvað um
framfærslu? Hér verðum við að at-
huga að framfærsla þarf að vera
„sjálfstæð“ og að tekjur makans hafa
engin áhrif á hana, jafnvel þótt um
hjónaband sé að ræða. Hvaða áhrif
hefur það? Skoðum málið samkvæmt
lögunum ásamt núgildandi reglugerð-
unum.
Það þýðir annaðhvort A) að við-
komandi útlendingur þarf að sýna
fram á að hann hafi 78.000 kr. inni á
bankareikningi sínum fyrir hvern
mánuð sem hann vill vera á landinu.
Ef hann ætlar að fá leyfi til eins árs
þarf tæp milljón króna að vera inni á
reikningnum áður en leyfið er veitt.
Eða B) að hann þarf að verða sér úti
um starf hér á landi, fá starfsleyfi og
sýna viðeigandi yfirvöldum undirrit-
aðan starfssamning. Hér eru mörg at-
riði sem krefjast athugunar. Í fyrsta
lagi er atvinnuleyfi bundið við tiltekið
starf og er ekki hægt að skipta um
vinnu án þess að það falli úr gildi. Í
öðru lagi er atvinnuleyfi aðeins veitt
ef um fullt starf, en ekki hlutastarf, er
að ræða. Í þriðja lagi þarf útlending-
urinn að yfirgefa landið missi hann
starfið, og í síðasta lagi getur hann
ekki endurnýjað leyfið ef hann þiggur
félagslega aðstoð eins og fjárhags-
aðstoð frá sveitarfélögum.
Það er augljóst að þessi skilyrði
henta ekki öllum erlendum mökum
Íslendinga. Hvað gerist verði útlensk
eiginkona Íslendings ófrísk og geti
því ekki haldið áfram vinnu? Hvað
gerist ef maki á lítið barn og vill því
aðeins vinna hlutastarf? Hvað gerist
ef maki missir vinnuna? Sé erlendi
makinn öryrki eða veikur, og því ófær
um að vinna, getur hann ekki einu
sinni fengið leyfi til að flytjast hingað
til að byrja með. Þetta er ekki sann-
gjarnt, en þetta eru afleiðingar þess
að lögunum er aðallega ætlað að fjalla
um erlenda verkamenn, en ekki aðra
innflytjendur.
Ég er á móti „24 ára reglunni“, en
hún er orðin að lögum og því verður
að fylgja henni. Þess í stað vil ég að
gerðar séu nokkrar breytingar á nú-
gildandi reglugerðum sem settar hafa
verið með stoð í lögum um útlendinga.
1) Tekjur hins íslenska maka eiga að
vera taldar með þegar framfærsla
útlendingsins er reiknuð.
2) Erlendir makar Íslendinga eiga að
fá óbundið atvinnuleyfi.
3) Það að hafa þegið félagslega aðstoð
á ekki að hafa nein áhrif á end-
urnýjun dvalarleyfis.
Ég tel breytingar þessar vera
nauðsynlegar til að hægt sé að
tryggja venjulegt hjónalíf á Íslandi.
Verði reglugerðunum hins vegar
breytt í þessa átt hefði það í raun
sömu áhrif og ef „24 ára reglunni“
hefði verið sleppt frá upphafi.
Dómsmálaráðherra endurtekur, í
áðurnefndu bréfi, þá skoðun sína að
mótmæli gegn „24 ára reglunni“
byggist á misskilningi. Það má vera
að ég hafi misskilið lögin og að útlend-
ingar geti notið hjónalífs með íslensk-
um maka sínum eins og þeir hafa áður
getað gert. Ef sú er raunin verð ég
manna glaðastur og bið alla hlutaðeig-
andi afsökunar á andmælunum.
Ég mun hins vegar fylgjast með
þróun mála af athygli.
Réttindi erlendra maka Íslendinga
Toshiki Toma skrifar
um málefni innflytjenda ’Það er augljóst aðþessi skilyrði henta ekki
öllum erlendum mökum
Íslendinga.‘
Höfundur er prestur innflytjenda.
ÞORLEIFUR Örn Arnarsson
skrifaði á dögunum opið bréf til
Björns Bjarnasonar dómsmálaráð-
herra, sem birtist á síð-
um Morgunblaðins, þar
sem hann lýsir áhyggj-
um sínum vegna rétt-
arstöðu erlendrar unn-
ustu sinnar. Þar sem
hún er yngri en 24 ára
getur hún ekki, sam-
kvæmt svokallaðri „24
ára reglu“ í útlend-
ingalögunum, fengið
dvalarleyfi sem maki
Íslendings.
Svar Björns Bjarna-
sonar við bréfi Þorleifs
birtist í Morgunblaðinu
hinn 12. maí sl. Þar segir: „[hún] ein-
faldlega ekki dvalarleyfi „sem maki“,
en getur eftir sem áður sótt um leyfi
með venjulegum hætti. […] Vitaskuld
yrði litið til hjúskapar útlendingsins
við Íslending við meðferð umsókn-
arinnar.“ Mig langar dálítið til að
fjalla um þau atriði sem ráðherrann
bendir á.
Toshiki Toma
Á SÍÐASTA ári birtum við í Morg-
unblaðinu skrá yfir gestabækur í
vörðum umhverfis Eyjafjörð og
fylgdi með kort sem sýndi staðsetn-
ingu varðanna. Reyndust þetta vera
22 gestabækur. Rétt er að geta þess
að okkur bárust síðar upplýsingar um
eina vörðubók í viðbót, í Bryðjuskál í
vestanverðu Staðarbyggðarfjalli í 600
m hæð. Einnig má geta þess að bætt
hefur verið úr gestabókartapinu á
Kistu, sem minnst var á í umræddri
grein.
Nú höfum við reynt að viða að okk-
ur upplýsingum um skála og kofa
sem eru dreifðir um dali og fjöll um-
hverfis Eyjafjörð. Sumir skálanna
sem við teljum upp mundu ýmsir
telja að ekki heyrðu til Eyjafjarð-
arsvæðisins og vissulega ekki til
Eyjafjarðarsýslu. En flestir teljast
þeir þó vera í óbyggðum fjöllum og
dölum umhverfis Eyjafjörð í víðum
skilningi. Okkur sýnist að telja megi
26 skála á þessu skilgreinda svæði.
Auðvitað eru þessi hús mismunandi,
misstór og í misgóðu ástandi og eign-
arhald þeirra er margvíslegt. Nefna
má slysavarnaskýli, gangna-
mannakofa, ferðafélagsskála og hús í
einkaeign. Flestir þeir skálar sem hér
um ræðir eru opnir almenningi og er
það ferðamönnum mikið öryggi og til
þæginda. Þó verður ekki sest að í
sumum þeirra nema með leyfi eig-
enda eða umsjónarmanna. Skíða-
staðir og skálar Landsvirkjunar,
Galtaból og Bleiksbúð, munu vera
lokaðir almenningi. Ljóst er að það er
skylda eigenda og umsjónarmanna að
halda þessum eignum sínum vel við,
og ekki síður hvílir sú skylda á ferða-
mönnum að ganga vel um. Sumir
skálarnir eru á afskekktum stöðum
sem einungis verður komist að gang-
andi eða á vélsleðum eða siglandi en
að öðrum liggja jeppaslóðir. Hæsti
skálinn er Tungnahryggsskáli sem er
um 1190 metrum yfir sjávarmáli, en
slysavarnarskýlin eru sum hver niðri
við sjávarmál. Í meðfylgjandi töflu
eru gefin upp staðsetningahnit og
hæðartölur og eru þær upplýsingar
að mestu teknar úr GPS-bók Sig-
urjóns Péturssonar en við höfum
sjálfir bætt við því sem upp á vantaði
og þá stundum notið aðstoðar kunn-
ingja okkar. Kortið sem hér fylgir
sýnir svo landfræðilega staðsetningu
þessara skála. Það er von okkar að
þessi samantekt lýsi því vel hvaða
möguleika ferðamenn hafa á húsa-
skjóli í fjölbreytilegum óbyggðunum
umhverfis Eyjafjörð.
Skálar í óbyggðum
Bjarni E. Guðleifsson,
Konráð Gunnarsson og
Smári Sigurðsson skrifa
um vörður við Eyjafjörð
’Sumir skálanna sem viðteljum upp mundu ýmsir
telja að ekki heyrðu til
Eyjafjarðarsvæðisins og
vissulega ekki til Eyja-
fjarðarsýslu. ‘
Bjarni E. Guðleifsson
Höfundar búa við Eyjafjörð.
Bjarni er náttúrufræðingur,
Konráð sundlaugarvörður og
Smári garðyrkjufræðingur.
+
6 M# %F # + + .; < 1$"
* .&! +
%& <@ IIN@G+CI@M<GNB>+?E@
?
! !!
* %+
O! % .&!
%& B@ IIN@=+C@@M<GNC=+G=@
C / !!
* %+
!%F
4%F +
%& B@= I>N>I+CC@M<GN>@+B=E
B & !
"% #!!
(!$" O! %+
.&! ! ! 1! !#
!!+ + !+
?=> I>N>G+?>EM<GNCE+B?B
>
!%! ;
!! -!
!
.&! PL $ ,F # + !+
GE@ I>NB=+IEBM<GN>E+I?G
I 0 % "/!
7
-!
!
.&! *! A!
<+<=@ I>NB<+C?IM<GN>@+E=B
E ! 7 "/
F!#
,LL !F *!
&
B@@ I>NC=+C@=M<GNCI+>IG
G Q
F!! / ! -#
"
.&!
%&!
!!F
>@@
= .#! R -% "F .&! "/ *! -!""
?G@ I>NCG+CE<M<GN@E+<<I
<@ /!" !! 1 !# 6" ,LL !F "/ *! -!""
CI@ I>NC=+CCEM<GN@G+E?C
<< "$ 7
!$ %!!
.! 4%F 6"
A BI@ I>NC=+GE@M<GN<?+C@@
<? #
! .! .&! *! 6" E=@ I>NCB+GI<M<GN<E+E?>
<C !" Q %
A% %!!
$ /
.&! *! *! ! # % %+
<+<C@ I>N<E+G=>M<GNC<+=?C
<B ! 1+ ;
/ 1 %!!
,LL !F 0F# & + !+
G=@ I>N<<+B?@M<GN?@+<G@
<> ./ %
A% * .! /&#
,LL !F % % I>@ I>N@I+E?@M<GN?>+G>@
<I !!
%&"!
,LL !F *! 6" EC@ I>N@<+E>@M<GN<=+=I@
<E .!
F! $ !" # ! &#
,LL !F "% G=? I>N@<+IG@M<GN@C+?C@
<G " 4#F ,LL 1! !# Q 4 + * + + !+
=I@ I>N@>+<I@M<GN@B+@<@
<= !"
Q !" # ! ,LL !F "% EI@ I>N<@+<=@M<EN><+>?@
?@ 6 . / .&! .# >@@ I>N?=+?<@M<EN>B+?<@
?<
# #% !;
%!
,LL !F . M ;
) 4% <@@ IBN>=+I>@M<EN><+<?@
?? " 1+ ! !+
/ !% ,LL !F
$ /# 0 /
<@ IIN@B+G@IM<EN>?+BGB
?B 4&!
"" 7 4 .&! +
%& <@ IIN@=+IC<M<GN@E+B>E
?> - !$" S / .%& " .&! +
%& <@ IIN<@+C?EM<GN<B+=EG
?I / / &) !+ .&! +
%& <@ IIN@I+>G?M<GN<=+@@@
?C .! Q !
! % ,LL !F . =@ IIN@B+BCCM<GN@B+>>>
#$'
()
!%
#
(
&
*&&
!
(+ !
& &&+ #!'
&!
# ' ,!!
-'$ !
.
#
/ /
0'
'#
12+."+ +
/
& /.3
'
'!.4
(
4!#
0+ !%
'
(
)
*
)
+
)
,
-
+
(
05
/
$'
0
.*/ 1
* /
" ! )
23
)
"*4
!*
* )
+
5
/)
* )
(
)(
6 '
/
##
!
7*&.''
$'
#
)
(
*
(!3!
Konráð Gunnarsson Smári Sigurðsson