Morgunblaðið - 25.07.2004, Page 30

Morgunblaðið - 25.07.2004, Page 30
UMRÆÐAN 30 SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Sporhamrar 6 - Opið hús Björn Þorri hdl. lögg. fastsali, Karl Georg hrl. lögg. fastsali. 108,4 fm glæsileg endaíbúð á 3. hæð ásamt 21,2 fm bílskúr. Íbúðin skiptist í hol, eldhús með borðkrók, tvö stór svefnher- bergi, sérþvottahús, geymslu, fallegt baðherbergi, stóra og bjarta stofu og suðursvalir. Frá- bært útsýni. Verð 17,5 m. 4602. Magnús sími 865-2310 sýnir í dag milli 12.30 og 14.00. Laugavegur 182 • 105 Rvk • Fax 533 481 • midborg id Ingólfur G. Gissurarson, logg. fast. - www.valholl.is - Opið frá kl. 9-17.30. Um er að ræða kjallara, 1. hæð, verslun og 2. hæð, verslun og skrifstofur, samtals 574,3 fm. Húsnæðið er í dag nýtt undir verslunarrekstur. Góð aðkoma og góð bílastæði. Mjög góð staðsetning. Verð tilboð. Uppl. veitir Magnús Gunnarsson, s. 588 4477 eða 822 8242. TIL SÖLU VIÐ BORGARTÚN Íbúðin er stór og falleg með mikl- um svölum. Hringstigi er úr stofu í 24 fm íbúðarherbergi á neðri hæð sem er með sérinngangi. Þar er sjónvarpshol og barnaherbergi. Á gólfum í stofu og herbergi niðri er parket. Í eldhúsi eru flísar á gólfum og milli skápa. Ný eldavél, keramik helluborð og nýr háfur. Fata- herbergi er í hjónaherbergi. Útgengt er á svalir bæði úr hjónaherbergi og stofu. Fimm herbergi. Stærð 94,9 fm. Verð 14.500.000.- Sölumaður er Lárus 824-3934. HÓLL VERÐUR MEÐ OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAG, AÐ FURUGRUND 76 KL. 14-16 Sími 595 9000 Til sölu mjög fallegt, vandað og vel staðsett 50,6 fm heilsárshús ásamt 15 fm svefnlofti. 80 fm verönd er í kringum húsið, hitaveita, rafmagn, kamína, sturta, o.fl. Bústaðurinn stendur á u.þ.b. 1 hektara kjarrivöxnu eignar- landi. Mjög fallegt allt í kring og gott útsýni. Altt fyrsta flokks. Leyfi til að byggja allt að 20 fm gestahús á lóðinni. Húsið er í Svarfhóls- skógi (Vatnaskógi) skammt frá Eyrarvatni og í aðeins 58 km fjarlægð (45 mín.) frá Reykjavík. Húsið er laust strax. SUMARHÚS (HEILSÁRSHÚS) - VATNASKÓGI Nánari upplýsingar gefur Karl í síma 896 2822. karl@fasteignathing.is Húsið við Hólmatún 55 er í dag fok- hellt og tilbúið sem slíkt til afhending- ar. Húsið er mjög vel staðsett í róleg- um botnlanga. Áður hafa 3 hús verið byggð eftir sömu teikningu og hafa þau notið mikilla vinsælda. Um eitt þeirra var m.a. fjallað í Innlit/útlit. Allar nánari upplýsingar veitir byggingameistari á staðnum eða Magnús Einarsson, sölumaður hjá Hóli í síma 696 0044. Byggingameistarinn verður á staðnum og heitt kaffi á könnunni. Hólmatún 55 Stórglæsilegt hús á Álftanesi Opið hús í dag frá 15-17 Sími 595 9000 Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Skeifan - Til leigu Björn Þorri hdl. lögg. fastsali, Karl Georg hrl. lögg. fastsali. 181,7 fm vel staðsett húsnæði á jarðhæð til afhendingar strax. Möguleiki er að fá leigt gott lagerhúsnæði í sama húsi. Laugavegur 182 • 105 Rvk • Fax 533 481 • midborg id GUÐMUNDUR Hallvarðsson, al- þingismaður og formaður samgöngu- málanefndar Alþingis, ryðst fram á ritvöllinn í laugardagsútgáfu Morg- unblaðsins og skrifar m.a. um fyrir- komulag leigubifreiðaaksturs til og frá Keflavík. Verður að segjast að þar gætir mikillar van- þekkingar þingmanns- ins á umræðuefninu. Það er rétt að um svæðaskiptingu er að ræða. Í reglugerð um leigubifreiðaakstur sem byggð er á lögum, sem Guðmundur átti sjálfur þátt í að skapa, er tekið fram að takmarka skuli fjölda leigubifreiða á þeim svæðum þar sem takmörkunin gildir. Þetta þýðir með öðrum orðum að fjöldi leigubifreiða skuli vera 530 í Reykjavík og 40 á svæði því sem við köllum einu nafni Suðurnes að Grindavík undanskilinni. Í ljósi þessara svæðisskiptingar er það óhjákvæmilegt að þegar leigubif- reiðarstjóri yfirgefur sitt svæði þá breytist gjaldið úr innanbæjargjaldi yfir í utanbæjargjald. Leigubifreiðar- stjóri sem keyrir frá Keflavík í átt til Reykjavíkur gerir þetta á Vogastapa en bílstjóri sem kemur af höfuðborg- arsvæðinu skiptir á utanbæjartaxta við Straumsvík. Hið „illa“ utanbæjargjald Guðmundur segir að farþegum eigi eftir að fjölga verulega á næstu árum og mánuðum og þar er ég svo sann- arlega sammála honum en jafnframt skilur leiðir okkar Guðmundar í þessu máli, því eftir þetta er fátt sem ég get tekið undir í grein hans. Að vísu er það rétt að leigubifreið á mæli kostar á bilinu 8–9.000 kr. frá Keflavík til Reykjavíkur, það er að segja þegar keyrt er á hinu „illa“ utanbæjargjaldi. Dýrt, já vissulega svona í hærri kant- inum en hvað myndi gerast ef leigu- bifreiðarstjórar hættu að skipta í ut- anbæjartaxta og keyrðu á innanbæjartaxta alla leið fram og til baka? Guðmundur fullyrðir að við það myndi verðið lækka niður í 4.000– 4.500 kr. Það er rangt. Gjaldið væri nærri því að vera milli 7.000 og 7.500 kr. á taxta 2, næturvinnutaxta, sem ekið er á eftir kl. 17 virka daga og um helgar. Með þessu verði erum við far- in að nálgast það tilboðverð sem í gildi hefur verið á leiðinni Leifsstöð- höfuðborgarsvæðið í mörg ár. Guð- mundur talar um að æskilegast væri að hægt væri að breyta reglugerðinni þannig að allir ímyndaðir múrar yrðu fjarlægðir ferðamönn- um til hagsbóta. Við það gætu leigubifreiða- rstjórar starfað í sátt og samlyndi og allir yrðu ánægðir. Ég trúi því að for- manni samgöngu- nefndar gangi gott eitt til með þessum hug- myndum sínum en því miður eru þær enn sem komið er illa ígrundaðar og byggjast að verulegu leyti á slakri þekkingu á leigubifreiðaakstri á Suðurnesjum. Það eru 40 leigu- bifreiðar í akstri á Suðurnesjum í dag. Þær sinna Reykjanesbæ, Sandgerði, Garði, Vatnsleysustrandarhreppi, varnarstöðinni og Flugstöð Leifs Ei- ríkssonar auk Grindavíkur, þar með talið Bláa lónið. Í Grindavík er enginn takmörkun á leigubifreiðum og starf- ar þar einn leigubíll í dag. Stærsti hluti þessara 40 leigubifreiða sækir vinnu sína til Leifsstöðvar og hefur aðalvinnu sína af því að keyra ferða- menn sem koma til landsins. Nýleg reglugerð Af einhverjum ástæðum hefur þessi umræða alltaf skotið upp kollinum annars slagið og virðist þá umræðan oftast fara þá braut hversu dýrir leigubílarnir séu frá flugstöðinni. Er alþingismaðurinn Guðmundur Hallvarsson að gefa það í skyn að far- gjald á leigubifreiðum standi ferða- þjónustunni fyrir þrifum? Aldrei heyri ég nokkurn mann ræða um verðlagningu ferðamannaverslana sem selja ferðamönnum varning til minja um komuna til landsins. Aldrei heyrt imprað á því að hugsanlega séu til þeir eigendur veitingastaða sem hækka verðið á veitingum sínum á þeim stöðum sem ferðamenn leggja gjarnan leið sína til. Ég minnist þess ekki að hafa heyrt Guðmund tjá sig opinberlega um verðlagningu gisti- staða á Íslandi sem geta hækkað verð og gistingu á milli árstíða svo munar mörg þúsundum króna. Nei, ekki deil- ir þingmaðurinn áhyggjum með ferða- löngum í þeim efnum. En þegar leigu- bifreiðar eiga í hlut verður þingmaðurinn verulega áhyggjufullur og vill breytingar á úr sér genginni reglugerð sem þó hefur aðeins verið við lýði í örfá ár og Guðmundur tók sjálfur þátt í að búa til. Leigubifreiðarstjórar notast við apparat í bílum sínum sem kallast gjaldmælir og er það tæki sem ber að nota við að verðleggja akstur með far- þega. Í verkfalli bifreiðarstjóra í bif- reiðarstjórafélaginu Sleipni árið 2000 þegar mikið reyndi á leigubílstjóra við flugstöðina og orðrómur var á kreiki um óeðlilega verðlagningu á ferðum leigubíla frá flugstöðinni sendi Sturla Böðvarsson, samgönguráðherra og samflokksmaður Guðmundar leigu- bifreiðarstjórum bréf og brýndi fyrir þeim að nota gjaldmælinn, það væri það mælitæki sem bæri að notast við. Leigubílar á Íslandi eru lítið eitt dýr- ari hér á landi en erlendis. Vegalengd- in á milli alþjóðaflugvallarins og höfuðborgarinnar eru aftur á móti 50 km sem er lengra en almennt þekkist. Leigubílstjórar veita þá þjónustu að aka fólki áhyggjulaust á milli ákvörð- unarstaða og verðleggja þá þjónustu í samræmi við ákvarðanir opinberra aðila. Samkeppnisstofnun fer með úrskurðarvald varðandi gjaldskrá leigubifreiða og heimilaði 3% hækkun síðast 11. apríl 2003. Gjaldmælarnir eru löggilt mælitæki og þá ber að nota. Leigubifreiðarstjórar sem aka frá Leifsstöð hafa ekið á tilboðsverði því sem boðið hefur verið upp á af bif- reiðastöðvum á höfuðborgarsvæðinu í mörg ár, leiti ferðamaðurinn eftir því. Óeðlileg verðlagning? Það hefur reyndar verið akkilesarhæll leigubifreiðarstjóra á Íslandi að vera of áfjáðir í að lækka verð vinnu sinnar og líta öfundaraugum í garð nágrann- ans í stað þess að líta í eigin barm og hafa það hugfast að grasið er ekki allt- af grænna hinum megin við lækinn. Ég hef reyndar ráð fyrir Guðmund Hallvarðsson alþingismann og þau eru þessi. Beittu þér fyrir breytingum á rekstargjöldum leigubifreiða, trygg- ingum, bifreiðagjaldi og fleiru. Þar gæti leynst svigrúm til lækkunar á meintu háu verðlagi íslenskra leigu- bifreiða. Það eru fullkomlega óeðlileg vinnu- brögð hjá þingmanninum Guðmundi Hallvarðssyni, sem greinilega er tals- maður þess að sameina vinnusvæði leigubílstjóra í eitt, að gefa það í skyn að leigubifreiðarstjórar séu að verð- leggja vinnu sína á óeðlilegan máta. Það er einfaldlega rangt. Leigubílstjórar á Suðurnesjum hafa sinnt svæði sínu vel og fáar brotalamir verið á starfi leigubifreiða- stöðva á svæðinu. Ef uppi eru hug- myndir um að sameina vinnusvæðin í eitt hlýtur það að vera upphafið að ræða málin við hlutaðeigandi aðila og þar eru leigubílstjórar á Suðurnesjum tilbúnir að hlusta á sjónarmið ann- arra. Að endingu, háttvirtur þingmaður. Hafðu samráð við félög leigubifreiða- rstjóra á Suðurnesjum áður en þú ryðst næst fram ritvöllinn í þessu máli en gakktu ekki erinda leigubif- reiðarstjóra í Reykjavík sem hafa litið vinnuna við Leifsstöð í rósrauðum bjarma um langa hríð. Standa leigubifreiðar í Kefla- vík ferðaþjónustu fyrir þrifum? Kristján Jóhannsson svarar grein Guðmundar Hallvarðssonar ’Hafðu samráð við félögleigubifreiðarstjóra á Suðurnesjum áður en þú ryðst næst fram rit- völlinn í þessu máli en gakktu ekki erinda leigubifreiðarstjóra í Reykjavík.‘ Kristján Jóhannsson Höfundur er í stjórn bifreiðarstjóra- félagsins Freys í Reykjanesbæ.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.