Morgunblaðið - 25.07.2004, Qupperneq 31

Morgunblaðið - 25.07.2004, Qupperneq 31
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 31 BORGARBÓKASAFN Reykja- víkur hyggst á næstunni auka þjón- ustu sína. Hinn 18. ágúst hefjast þar útlán á íslenskri samtímamyndlist í samstarfi við Samband íslenskra myndlistarmanna, SÍM. Borg- arbókasafn og SÍM gera með sér samning um þetta tilraunaverkefni til tveggja ára og ef vel gengur verður haldið áfram að þeim tíma loknum. Myndlistarútlán eða Artótek (sbr. apótek og diskótek), eins og við höf- um kosið að kalla starfsemina í sam- ræmi við hefðina erlendis, verður til húsa á jarðhæð Grófarhúss við Tryggvagötu og þangað getur fólk komið og fengið myndlistarverk að láni gegn hóflegu gjaldi. Hægt verður að skoða verkin á heimasíðu SÍM. Helsinki fyrirmynd Erlendis eru artótek starfrækt með ýmsu móti, sem sjálfstæðar stofnanir eða í tengslum við aðrar stofnanir eins og menningarmiðstöðvar, bóka- söfn eða listasöfn. Þá getur verið mis- munandi hvort artótekin lána ein- staklingum eða eingöngu fyrirtækjum. Reyndar eru útlán á myndlist ekki alveg óþekkt hér á landi. Norræna húsið í Reykjavík hef- ur lánað út grafíkverk til almennings í fjölda ára og Listasafn ASÍ hefur haft milligöngu um leigu til fyr- irtækja á myndlist. Fyrirmyndin að Artóteki Borgarbókasafnsins og SÍM er hins vegar finnsk en Borg- arbókasafnið í Helsinki hefur starf- rækt artótek í samstarfi við samtök listamanna í tæpan áratug með afar góðum árangri. Þessi góða reynsla af myndlistarútláni í Borgarbókasafn- inu í Helsinki var okkur hvatning til að gera þessa tilraun í Reykjavík. Af hverju myndlist í bókasafni? Þótt bókasöfn haldi oftast sínu heiti hafa þau í takt við tímann þróast í menningarmiðstöðvar með fjöl- margt í boði auk prentuðu bókanna. Bókasafnið er tilvalinn vettvangur fyrir starfsemi af þessu tagi en al- menningsbókasafn eins og Borg- arbókasafn er öllum opið og afar fjöl- sóttur staður. Í Borgarbókasafn koma í heimsókn um 650 þúsund gestir á ári. Þar er hægt að fá að láni ýmsar afurðir listrænnar sköpunar, s.s. bækur, tónlist og kvikmyndir. Einhverjir kunna að hafa áhyggjur af því að Artótekið komi til með að þyngja róður gallería í Reykjavík en við væntum hins gagnstæða enda er það reynslan frá Helsinki að þessi starfsemi þrífst vel hlið við hlið í borginni. Á sama hátt og starfsemi bókasafna styður við rithöfunda, bókaútgáfu og bóksölu vonum við að Artótekið verði stuðningur við mynd- listarmenn og rekstur gallería og sýningarsala. M.ö.o. eru vonir bundn- ar við að þessi nýjung verði jákvætt og örvandi innlegg í myndlistarlíf borgarinnar. Borgarbókasafn hefur svo dæmi sé tekið átt mjög gott sam- starf við rithöfnuda og rekur t.d. bók- menntavefinn www.bokmenntir.is þar sem íslenskir samtímahöfundar eru kynntir. Þá hafa t.d. svokallaðar bókmenntagöngur Borgarbókasafns fyrir erlenda ferðamenn, þar sem ís- lenskar bókmenntir eru kynntar, vakið ánægju bóksala í borginni. Myndlistarmenn utan SÍM Artótekið er lýðræðisleg stofnun og ekkert val á sér stað annað en að listamennirnir þurfa að vera fag- menn. SÍM er hagsmuna- og fagfélag íslenskra myndlistarmanna með tæp- lega 500 félaga og félagsskírteini í SÍM dugir því til þess að setja verk í Artótekið. Þar sem fáir af yngstu kynslóð myndlistarmanna eru gengn- ir til liðs við félagið býður SÍM þeim myndlistarmönnum sem nýlega hafa lokið námi að taka þátt í verkefninu þótt þeir standi utan félagsins. Áhugasamir geta haft samband við skrifstofu SÍM, t.d. með tölvupósti á netfangið sim@simnet.is. Í Artótek- inu geta þeir komið verkum sínum á framfæri á á auðveldan hátt. Fjöl- breytnin kemur öllum vel. Því breiðari sem listamannahópurinn er og það svið sem verkin spanna, þeim mun áhugaverðara verður Artótekið. Leiga getur orðið að kaupum Þeir lánþegar sem taka verk að láni í Artótekinu þurfa eins og áður segir að greiða fyrir það ákveðna leigu. Greitt er fyrir mánuð í senn og verð- ur mögulegur lánstími frá einum upp í 36 mánuði. Lægsta leigugjald á mánuði er 1.000 krónur en leigu- gjald verður í hlutfalli við söluverð. Kunni lánþegi vel við verk sem hann hefur að láni getur hann fest á því kaup og dregst þá greidd leiga frá kaup- verði verksins. Þannig getur lánþeginn mátað verkið við sjálfan sig og sjálfan sig við verk- ið áður en hann tekur ákvörðun um að fjár- festa í því. Listamaður sem á verk í útleigu fær á móti mánaðarlegar greiðslur fyrir verk sín. Artótekið er því ekki síður hagsmunamál fyrir myndlist- armenn. Undirbúningur fyrir opnun Artóteksins er í fullum gangi Listamenn eru þegar búnir að til- kynna þátttöku og farnir að skila inn verkum. Við vonum að almenningur taki þessu framtaki fagnandi og geri sér ferð í Grófarhúsið til að skoða myndlistina sem þar verður í boði eft- ir 18. ágúst. Við vonum einnig að Artótekið verði kraftmikil og hressi- leg viðbót við menningarlífið í borg- inni. Nánari upplýsingar um Artótekið má finna í samningi Borgarbókasafns Reykjavíkur og SÍM en hann má skoða á heimasíðum Borgarbóka- safns Reykjavíkur, www.borg- arbokasafn.is, og Sambands íslenskra myndlistarmanna, www.sim.is. Artótek Borgarbókasafns Reykjavíkur og Sambands íslenskra myndlistarmanna Anna Torfadóttir og Áslaug Thorlacius fjalla um Borgarbókasafnið og nýjungar í rekstri þess ’Undirbúningur fyriropnun Artóteksins er í fullum gangi. Lista- menn eru þegar búnir að tilkynna þátttöku og farnir að skila inn verkum. ‘ Anna Torfadóttir Anna er borgarbókavörður og Áslaug er formaður Sambands íslenskra myndlistarmanna. Áslaug Torlacius Jón Hólm Stefánsson, sími 896 4761. Ef þú þarft að selja eða kaupa bújörð hvar á landi sem er hafðu þá endilega samband við okkar mann, Jón Hólm bónda, sem aðstoðar þig með bros á vör. Bújarðir Til leigu - Hársnyrtistofa Okkur hefur verið falið að annast leigu á frábærri hársnyrti- stofu í úthverfi Reykjavíkur. Stofan er falleg og nútímalega innréttuð. Möguleiki á 4 stólum ásamt annarri aðstöðu. Góður og tryggur viðskiptamannahópur. Staðsett í litlum verslunarkjarna með nægum bílastæðum. Kjörið tækifæri fyrir þá sem vilja hefja sinn eigin rekstur. Brjálað að gera fyrir rétta aðila. Allar nánari upplýsingar veita sölufullrúar Fasteignakaupa. Þorbjörn sími 898-1233 og Sirrý sími 848-6071. Erna Valsdóttir lögg. fast.-, skipa- og fyrirtækjasali. Sölufulltrúi: Þorbjörn, gsm 898 1233, tölvup.: thorbjorn@fasteignakaup.is Sölufulltrúi: Sirrý, gsm 848 6071, tölvup.: sirry@fasteignakaup.is Ármúla 15 • sími 515 0500 fax 515 0509 • www.fasteignakaup.is fasteignakaup@fasteignakaup.is Opið hús í dag HJALLAVEGUR 28 - 104 Rvk. Góð 234,3 fm. eign í mjög virðulegu húsi á frábærum stað. Eign- in skiptist í kjallara, 1. hæð, 2.hæð og bílskúr. 3 til 4 svefnher- bergi og möguleiki á fleirum. Tvennar svalir í suður, góð gólfefni, fallegt útsýni og stutt í Laugardalinn og alla þjónustu. Húsið stendur á fallegri lóð á rólegum stað. OPIÐ HÚS Í DAG MILLI 14:00 OG 16:00. SIGURÐUR OG ELSABET BJÓÐA YKKUR VELKOMIN. Fasteignamiðlun Hafnarfjarðar ehf. Sími 517 9500 MARBAKKABRAUT 6 - KÓPAVOGI OPIÐ HÚS Í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL.14-17 Sérlega glæsilegt 202,4 fm hús með innbyggðum bílskúr. Húsið er á tveimur hæðum. Einstaklega vönduð eign í alla staði. Glæsilegur og við- haldslítill garður með góðri verönd. Eign á frábærum stað. Arkitekt Vífill Magnússon. VERÐ 38,0 millj. Uppl. veitir Eiður í s. 820-9515. Viggó Jörgensson Lögg. fasteignasali f a s t e i g n a s a l a

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.