Morgunblaðið - 25.07.2004, Qupperneq 32

Morgunblaðið - 25.07.2004, Qupperneq 32
UMRÆÐAN 32 SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ 3ja-4ra herb. óskast í Grafarvogi Óskum eftir góðri 3ja-4ra herb. íbúð í Grafarvogi fyrir traustan kaupanda. Þarf ekki að losna strax. Valhöll - sími 588 4477 Ingólfur G. Gissurarson, lögg. fast. - www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30. Allar nánari upplýsingar veitir Bárður í s. 896 5221, Þórarinn í s. 899 1882 eða Ingólfur í s. 896 5222 Glæsileg húseign með sex stúdíóíbúðum (fjórar samþykktar) sem hefur nánast öll verið endurnýjuð frá grunni s.s. rafmagn, lagnir, ofnar, gluggar, járn, gólfefni, innréttingar og hurðir. Útsýni. Fimm einkabílastæði á lóð. Eignin hentar sérlega vel til útleigu en hún er staðsett fyrir ofan upplýsingamiðstöð ferða- manna. Til greina kemur að selja eignina í hlutum. Óskað er eftir tilboðum. Nánari upp- lýsingar veitir Óskar. 4167 SKÓLASTRÆTI - EINSTAKT TÆKIFÆRI Fallegt og bjart endaraðhús á pöllum í Fossvoginum með bílskúr. Eignin er samtals 213 fm og skiptist m.a. í hol, snyrtingu, baðherbergi, eldhús, stórar stofur, 3-4 herbergi, geymslu og vaskahús. Húsið er nýlega viðgert að utan. Nýtt gler. Verð 27,9 millj. 4323 GILJALAND - ENDARAÐHÚS MÁVAHLÍÐ - 4RA HER- BERGJA Í RISI 4ra herb. falleg og mikið endurnýjuð risíbúð er skiptist í hol, 3 herb., stofu, eldhús og bað. Nýjar raflagnir eru í íbúðinni auk rafmagnstöflu. Nær öll gólf- efni eru nýleg. Nýleg eldhúsinnr., nýstandsett baðherb. o.fl. Geymsluris er yfir íbúðinni. Í kjallara fylgir sam. þvotthús o.fl. Verð. 13,5 millj. 4350 BOÐAGRANDI Falleg 3ja herb. íbúð á 4. hæð í lyftuhúsi. Íbúðin skiptist í stofu, tvö herbergi, eldhús, baðherbergi, hol og for- stofu. Húsvörður. Íbúðinni fylgir merkt stæði í bílageymslu (innangengt). Verð 13,9 millj. 3719 BARMAHLÍÐ Falleg og rúmgóð 63 fm íbúð í kjallara í þríbýlishúsi í Hlíðunum. Íbúðin skiptist m.a. í forstofugang, hol, baðherbergi, eldhús, svefnherbergi og stofu. Gróin lóð. Verð 9,9 millj. 4351 BOÐAHLEIN - ELDRI BORG- ARAR - ÞJÓNUSTUHÚS Fallegt 85 fm einlyft endaraðhús í Garðabæ. Húsið skiptist í forstofu, hol, stórt herbergi, stóra stofu, eldhús, baðherbergi, þvottahús og sólstofu. Allt sér. Gott aðgengi. Neyðar- hnappur. Laus strax. Verð 17 millj. 4347 BARÓNSSTÍGUR - RISÍBÚÐ 3ja herb. íbúð í risi við Barónsstíg. Eignin skiptist í gang, tvö herbergi, eldhús, stofu og baðherbergi. Húsið er steinhús. Fallegt út- sýni. Gólfflötur íbúðarinnar er meiri þar sem hún er undir súð. Nýtt gler að mestu í íbúð- inni. Verð 9,9 millj. 4359 NJÁLSGATA - SÉRINN- GANGUR Mikið uppgerð 2ja herb. íbúð í bakhúsi við Njálsgötu. Sérinngangur er í íbúðina. Íbúðin skiptist í forstofu, stofu, her- bergi, eldhús og baðherbergi. Íbúðin er mikið uppgerð, m.a. eldhús, baðherbergi. og gólf- efni. Verð 8 millj. 4247 MARKLAND - FOSSVOGI 2ja herb. 55 fm björt íbúð á jarðhæð með sérgarði. Íbúðin hefur mikið verið endurnýjuð s.s. gólfefni (parket og korkur) eldhús o.fl. Fallegur sérgarður til suðurs. Verð 10,5 millj. 4354 Suðurlandsbraut 54 við Faxafen, 108 Reykjavík, sími 568 2444, fax 568 2446. Ingileifur Einarsson, lögg. fasteignasali. Til sölu á góðum stað í Kópavogi 421,4 fm atvinnu- húsnæði. Eignin skiptist í tvo stóra vinnusali með stór- um innkeyrsluhurðum. Að- staða fyrir starfsfólk er mjög góð, eldhús, skiptiherbergi og baðherbergi. Eignin er öll á einni hæð og er aðkoman mjög góð, malbikað plan. Eignin selst með traustum leigusamningum að hluta. ÁSETT VERÐ 26,9 MILLJ. BRYGGJUVÖR - Í LEIGU EINS og vænta mátti af fenginni reynslu lætur Ísraelsstjórn eins og hún sé hafin yfir lög og rétt. Hinn 9. júlí síðastliðinn féll úrskurður Alþjóðadómstólsins Palest- ínumönnum í hag, þegar dómstóllinn í Haag gerði mönnum ljóst, að aðskiln- aðarmúrinn sem Ísr- aelar eru að reisa á landi Palestínumanna er ólöglegur. Múrinn ber að rífa og fjar- lægja og Ísraelsstjórn verður að bæta Pal- estínumönnum það tjón sem þeir hafa orðið fyrir vegna múrsins. En Al- þjóðadómstóllinn gerði meira. Hann gerði þær kröf- ur til alþjóðasamfélagsins, Samein- uðu þjóðanna og einstakra aðild- arríkja að fylgja þessu máli eftir. Það er skylda hvers og eins þeirra, þar á meðal íslenskra stjórnvalda, að gera Ísraelsstjórn ljóst að Ísr- aelsríki er ekki hafið yfir lög og rétt. Nú hefur málið aftur komið til Allsherjarþings Sameinuðu þjóð- anna sem beðið hafði um lög- fræðilegan úrskurð Alþjóðadóm- stólsins í Haag, æðsta dómstigs þjóða heims. Allsherjarþingið hefur ályktað með 150 atkvæðum gegn sex atkvæðum Ísraels, Bandaríkj- anna og örfárra fylgiríkja í anda Alþjóðadómstólsins. Múrinn skal falla. Viðbrögð Ísraelsstjórnar eru söm við sig. Ekkert tillit er tekið til ályktana Sameinuðu þjóðanna frekar en úr- skurðar Alþjóðadóm- stólsins. Haldið er áfram að reisa múrinn sem á að verða meira en 700 kílómetra lang- ur, er víða átta metra hár, ásamt með girð- ingum, gryfjum, raf- eindabúnaði og gerir Berlínarmúrinn nánast að barnaleikgrind. Að- skilnaðarmúrinn, eða apartheid-veggurinn, hefur líka verið kall- aður landránsmúrinn vegna þess að hann er nær allur reistur á landi Palestínumanna og mun þegar byggingu lýkur hafa rænt Palest- ínumenn rúmum helmingi Vest- urbakkans til viðbótar fyrra her- námi. Sharon talar um Palestínuríki en það eiga sam- kvæmt hans áætlun að verða nokkrir landskikar sem verða ein- angraðir hver frá öðrum og um- heiminum. Í raun verður alls ekki líft á þessum svæðum til frambúðar og því felur áætlunin í sér hægfara þjóðernishreinsun, brottflutning þjóðarinnar (transfer), eða þjóð- armorð eins það er skilgreint í al- þjóðalögum. Íslendingum ber eins og öðrum að leggja sitt af mörkum til að gera Ísraelsstjórn það ljóst að Ísraelsríki er ekki hafið yfir lög og rétt. Ljóst er að Sharon og her- foringjarnir sem stýra Ísrael skeyta engu um dómsorð æðsta dómstóls heims né samþykktir al- þjóðasamfélagsins. Meira þarf að koma til. Það er líka ljóst að vonir sem margir bundu við Bandaríkja- stjórn um að hún myndi koma vit- inu fyrir Ísraelsstjórn voru tál- vonir, enda Bandaríkjastjórn sjálf á kafi í innrásum og hernámi. Oft er erfitt að átta sig á sjónvarps- fréttum, hvort verið er að sýna loftárásir á íbúðarhús í Palestínu eða Írak, enda samskonar árás- arflugvélar og þyrlur að verki, F-16 og Apache. Hernaðar- og Múrinn skal falla – þvinga verður Ísrael til löghlýðni Sveinn Rúnar Hauksson fjallar um múrinn milli Ísraels og Palestínu ’Viðbrögð Ísraels-stjórnar eru söm við sig. Ekkert tillit er tekið til ályktana Sameinuðu þjóðanna frekar en úr- skurðar Alþjóðadóm- stólsins.‘ Sveinn Rúnar Hauksson SPURT er: hvað er eiginlega orðið um máttarstólpa almennings í opinberri umræðu í því fjaðrafoki sem geisað hefur um heimsbyggð- ina frá því turnarnir féllu í sept- ember 2001? Hvers vegna er ekki snúist af hörku gegn ásælni ríkisvalds, eins og því bandaríska, sem á stuttum valda- ferli hefur miðlað fáu öðru en ótta og van- þekkingu til þegna sinna og fengið í stað- inn aukið vald til að þrengja að frelsi al- mennings? Hafa menn gjör- samlega gleymt meg- inreglu stjórnmálanna sem sjálft lýðræðið byggist á og sagan sýnir að er ófrávíkj- anleg? Meginreglunni, sem segir að fyrr, stundum strax en oftar síðar, kemur að því hjá öllum valdamönnum, hversu ágætir sem þeir annars eru, að þeir fara að hugsa meira um það að viðhalda eigin völdum og ríkidæmi ásamt völdum tengdra sérhagsmuna- hópa, en um það að þjóna almenn- ingi, sem valdinu er ætlað að þjóna? Tilhneiging sem kom strax í ljós hjá nýjum núverandi vald- höfum í Washington. Fjölmiðlar, verka- lýðshreyfing og ýmsir aðrir aðilar, sem leynt og ljóst hafa barist með almenningi um áratuga skeið gegn ásælni miðstýrðs valds, hvort sem er ríkisvalds eða efna- hagslegs valds, bregð- ast nú sem krosstrén, hver um annan þver- an. Brjóstvörn al- menningsfrelsis lýð- ræðisþjóða Vesturlanda lætur þessi misserin mata sig á órökstuddum og óttablöndn- um fullyrðingum um að handan við hverja grasi gróna hæð, á hverjum flugvelli, í hverju borgarstræti í Evrópu og Bandaríkjunum, kunni að bíða okkar og barnanna okkar grettin Grýla gamla, með svart- hvíta arabaklútinn um höfuð og háls og sjálfvirkan hríðskotariffil; ef hún er þá ekki lögst út í sjálfs- morðsárás með sprengjur í beltinu og hefur hoppað upp í strætisvagn á Piccadilly. En heima í hellinum góða í fjöll- um Afganistan situr Leppalúði síð- skeggjaður í jógastöðu á mold- argólfinu yfir sykruðu te með sí- trónu, sem einskonar pólitískur hugmyndafræðingur á eintali við dvergana sjö, þar sem lögð eru drög að alheimsstyrjöld gegn vest- rænni menningu og öllum vest- rænum gildum. Eins og menning þjóða heimsins sé hver önnur hús- bygging, t.d. turnar tveir í New York, sem vondir menn geti sprengt í loft upp í eitt skipti fyrir öll og þar með sé málið afgreitt. Vestræn menning fyrir bí. En því fer auðvitað víðsfjarri. Menning og lífsgildi hvorki sær- ast né deyja í veraldlegum styrj- öldum, sem háðar eru með sprengjum og vopnaburði. Huglæg gildi berast á banaspjót við önnur huglæg gildi fyrir milligöngu rök- ræðu og mannlegra tilfinninga. Sprengjur og önnur vígtól missa allan tilgang í alvarlegri rökræðu milli ólíkra menningarheima, sem mark er á takandi. Þar gilda rökin ein fyrir niðurstöðum, málsmet- andi aðstæður, hefðir, rótgróin gildi. Öll valdþrungin ógn á þeim vettvangi er skoðanakúgun. Ógn- arstjórn. Aukin miðstýring og fjötrar á frelsi almennings, eru hvort tveggja fastir fylgifiskar styrjalda. Þetta vita allir stjórnmálamenn sem eitthvað hafa kynnt sér mann- kynssöguna. Hvert getur þá al- menningur snúið sér ef brjóst- vörnin hrynur: stjórnarskrá, forseti, stjórnarandstaðan, fjöl- II. Flagð undir fögru skinni: dáðleysi í brjóstvörn frelsisins? Jónas Gunnar Einarsson ritar um frelsið ’Þá tekur við lög-regluríki óttans í heljargreipum Stóra bróður. ‘ Jónas Gunnar Einarsson AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.