Morgunblaðið - 25.07.2004, Side 33

Morgunblaðið - 25.07.2004, Side 33
Eftirfarandi greinar eru á mbl.is: Jón Steinsson: „Það er engin tilviljun að hlutabréfamarkað- urinn í Bandaríkjunum er öfl- ugri en hlutabréfamarkaðir annarra landa.“ Regína Ásvaldsdóttir: „Eitt af markmiðum með stofnun þjónustumiðstöðva er bætt að- gengi í þjónustu borgaranna.“ Jónas Gunnar Einarsson: „Áhrifalaus og mikill meirihluti jarðarbúa, svokallaður almenn- ingur þjóðanna, unir jafnan misjafnlega þolinmóður við sitt.“ Á mbl.is Aðsendar greinar UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 33 FIMMTUDAGINN 8. júlí, sama dag og fyrsta skóflustungan var tek- in að álveri á Reyðarfirði, lögðum við, 37 manna hópur, í leiðangur undir dyggri forustu þeirra Ástu Arnardóttur og Óskar Vilhjálms- dóttur um það svæði sem áætlað er að fari undir vatn ef af virkjun verður við Kára- hnjúka. Við héld- um akandi að Kárahnjúkum og litum þar yfir svæðið. Ég gekk meðfram Hafra- hvammagljúfrum fyrir þremur árum þegar landið var ósnortið. Mig hefði aldrei órað fyrir því sem blasti við mér nú. Vinnuvélar í tuga eða hundraða vís úti um allt og spreng- ingar gullu við jafnt og þétt. Hópurinn hélt frá Kárahnjúkum að Sauðá og gengum við meðfram ánni sem er sönn náttúruperla og gróðurfarið meðfram henni er hreint ótrúlegt, víðir, lyng, alls konar blóm- jurtir og háfjallagróður vex í sátt og samlyndi á leirnum sem jökuláin ryður frá sér, að minnsta kosti 100 tegundir. Áin myndar foss á flúðum og rennur niður í samræmi við gróð- ur og dýralíf. Við tjölduðum við Tröllagilslæk og alla nóttina drundi í vinnuvélum og sprengingar gullu reglulega við þannig að undirtók í fjöllunum. Daginn eftir gengum við meðfram Jöklu og heilsuðum upp á gljúfrabúann sem hljóður stendur sinn vörð. Þegar gengið er með Jöklu gerir maður sér grein fyrir hve landið er gamalt, ótal bergteg- undir blasa hvarvetna við. Áfram var haldið að ármótum Jöklu og Kringilsár. Þar eru stórkostleg gljúfur með hinum mikla Töfrafossi með minnti mig á Skógafoss. Við gengum upp með Kringilsá og tjöld- uðum við Þorleifsmýrar. Landið á þessum slóðum er gróðursælt með ótrúlega fjölbreytta flóru. Á þriðja degi var gengið að Brúarjökli í gegn- um jökulruðninga. Á leiðinni er farið framhjá hraukum sem eru gróð- ursæl svæði. Við gengum í halarófu yfir Brúarjökulinn og komum í Kringilsárrana, friðland hreindýra og gæsa auk annarra dýra. Á svæði sem þessu fyllist maður andakt og finnur vel að hér er maður gestur. Svæðið er ægifagurt og gróðursælt. Gæsir og hreindýr á hverju strái en dýrin eru vör um sig enda óvön gest- um. Allan tímann skein sól í heiði og fjallahringurinn með Snæfell, Kverkfjöll og Herðubreið í broddi fylkingar heilsaði okkur undurfagur. Það er þyngra en tárum taki að þetta landsvæði eigi eftir að fara undir vatn og verða eyðileggingunni að bráð. Ég hefði aldrei trúað hvað þetta er stórt svæði sem lagt er und- ir virkjun og tel fásinnu að ætla að afleiðingar aðgerðanna liggi fyrir. Ég vil skora á ráðamenn þjóð- arinnar að ganga um þetta svæði áð- ur en það verður of seint að bjarga því sem bjargað verður. Ég trúi því ekki að Valgerður Sverrisdóttir sem ég veit að er náttúrusinni, Siv Frið- leifsdóttir og Davíð Oddsson, sem stefnir í að verða næstdáðasti for- sætisráðherra þjóðarinnar, og aðrir í ríkisstjórninni vilji að þeirra verði minnst í Íslandssögunni sem þeirra sem voru völd að mesta náttúruslysi aldarinnar sem aldrei verður bætt. RÓSA MARTA GUÐNADÓTTIR, Hreggvið, 820 Eyrarbakka. Óbyggðirnar kalla Frá Rósu Mörtu Guðnadóttur: Rósa Marta Guðnadóttir ÉG GET ekki orða bundist, ég er ein af þeim sem hafa gaman af að fara í gönguferðir um borgina, sumir hafa sjálfsagt séð mig tína upp rusl á leið minni, ég vil að við hjálpumst að að halda borginn hreinni. Til að gera langa sögu stutta: Daglega geng ég framhjá Hótel Nordica og þar er sóðaskap- urinn ömurlegur í nágrenni hótels- ins, ég hélt þetta væri klassa hótel, það er svo mikið rusl í trjárunnum við hótelið sérstaklega Hallarmúla- megin, að maður skammast sín fyr- ir land og þjóð, búin að hringja í Flugleiðir, mikil ósköp, það yrði nú tekið á þessu strax, þakkað fyrir ábendinguna, nú er rúm vika liðin, gekk þar framhjá síðast í gær, ekki minnkar sorinn, er að hugsa um að tína þetta upp og henda því inní fína lobbýið, næst þegar ég er á ferðinni. KB banki er nú í húsinu, getið þið ekki skellt saman og borg- að einhverjum til að halda þessu í lagi, ef þið hafið umsjónarmann, þá skuluð þið reka hann á stundinni, hann er ekki starfi sínu vaxinn. SVAVA ANTONSDÓTTIR, Háaleitisbraut 39, 108 Reykjavík Hótel Nordica/- Flugleiðir Frá Svövu Antonsdóttur: BRÉF TIL BLAÐSINS Morgunblaðið Kringlunni 1 103 Reykjavík  Bréf til blaðsins | mbl.is A partnership between Handelshøjskolecentret and CEUS www.leisuremanagement.dk Sports Management Arts and Culture Management Tourism Management Bachelor of Leisure Management A global educational experience in Denmark HandelshøjskolecenterStorstrøm Vel skipulagt einbýli á einni hæð. Íbúðin er 135 fm ásamt 35 fm bíl- skúr, alls um 169 fm. Glæsilegur garður með góðum pöllum og skjólveggjum. Góð staðsetning. Stór, björt og rúmgóð stofa. 4 svefnherbergi. Gott flísalagt bað- herbergi . Þvottahús með innrétt- ingu og hurð við inngang. Verð 22,9 millj. Kristín sýnir eignina í dag, sunnudag, frá kl. 16:00 – 18:00. Túngata 16 - Álftanesi Opið hús í dag kl. 16-18 Arnartangi 11 - Einb. á einni hæð Opið hús í dag kl. 16-18 SÍMI 5 900 800 Ólafur B. Blöndal löggiltur fasteignasali Fallegt og vel viðhaldið 174 fm ein- býli á einni hæð með innb. 36 fm bílskúr. 3 stór og rúmgóð herbergi. 2 stórar og bjartar stofur. Fallegar endurn. innréttingar. Glæsilegur garður með veröndum. Samþ. teikningar til af sólskála. Í dag er af- stúkuð einstaklingsíbúð með sér- inngangi í bílskúrnum. Parket og flísar á gólfum. EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR. Verð 24,9 millj. Guðrún Edda og Viktor sýna eignina í dag, sunnudag, frá kl. 16:00 - 18:00 Árbakki - Norður-Hérað Tækifæri á Austurlandi. Höfum til sölumeðferðar örð án fullvirðisréttar. 158 ha. land í einkaeigu og hlutdeild í yfir 500 ha sameignarlandi. Landið liggur að Jökulsá á Dal. Gott 109 fm einbýlishús, mikið endurbætt á síðustu árum. Tvö stór refahús. Hesthús. Malarnámur og fínar veiðilendur. Ásett verð 17,5 millj. Nánari upplýsingar í síma 580-7905. Café Riis Hólmavík Eitt glæsilegasta veitingahúsið á landsbyggðinni til sölu. Upplýsingar hjá Magnúsi í síma 451 3567 / 8923467 Tölvupóstfang Café Riis er caferiis@caferiis.is og heimasíða Café Riis er www.caferiis.is Landspilda úr landi Hafnar í Leirár- og Melahreppi. Heildarstærð landsins er 2.053 hektarar. Land þetta nær yfir stærstan hluta undirlendis við Hafnarfjall, fjallið sjálft og dalina austan við það. Um er að ræða mjög gott beitiland bæði í fjalli og láglendi. Láglendið niður að sjó er um 680 ha og eru þar af skipulagðir 195 ha undir nytjaskóga. Stór hluti láglendisins eru birkiskógar og mólendi og því til- valið til sumarbústaðabyggðar. Þetta er fallegur staður sem býður upp á mikla möguleika. Einungis um 45-50 mín. akstur frá Reykjavík. Miklir tekjumöguleikar fyrir rétta aðila. Tilvalið fyrir hestamenn og annað útivistarfólk. Mögulegt er að kaupa jörðina í smærri hlutum. JÖRÐ Í BORGARFIRÐI Nánari upplýsingar gefur Karl í síma 896 2822. karl@fasteignathing.is leyniþjónustusamvinna milli Ísraels og Bandaríkjanna er mjög náin og nú er stefnt að því að NATO taki í auknum mæli þátt í þessu óskemmtilega samstarfi árása og yfirgangs. Það verður að freista þess að þvinga Ísraela til löghlýðni. Banda- ríkjastjórn mun ekki gera það, þvert á móti elur hún á verstu eig- inleikum herforingjanna í Ísrael, mælir upp í þeim ofbeldið og rétt- lætir miskunnarlaust framferði gegn varnarlitlu fólki í hertekinni Palestínu. Evrópuþjóðirnar eru helsti viðskiptaaðili Ísraela og þeir vilja láta telja sig til Evrópu á sama hátt og Tyrkir sækja stíft inngöngu í samfélag Evrópuþjóða. Evrópuráðið hefur sett Tyrkjum stólinn fyrir dyrnar vegna mann- réttindabrota, ekki síst í garð Kúrda, og af sömu ástæðu hefur enn ekki orðið af inngöngu þeirra í Evrópusambandið. Íslendingar hafa sérstakar sögulegar skyldur gagnvart Ísrael og Palestínu allt frá árinu 1947. Við höfum talist til sérstakra vinaþjóða Ísraels frá þeim tíma. Þess er þó ekki að vænta að frekar sé hlustað á Ísland en önnur ríki og alþjóðasamfélagið í heild. En eftir því yrði tekið í Ísr- ael og um allan heim ef Ísland tæki frumkvæði að aðgerðum til að þvinga þetta vinaríki inn á braut alþjóðalaga, mannúðar og mann- réttinda. Það kemur líka Ísrael vel þegar fram í sækir. En leggja verð- ur áherslu á að aðgerðir sem gripið er til beinist gegn Ísraelsstjórn en ekki gegn ísraelsku þjóðinni. Höfundur er læknir og formaður Félagsins Ísland-Palestína. miðlarnir, verkalýðsfélögin? Ef brjóstvörnin hrynur fyrir til- stuðlan löggjafarvalds í höndum fólks, sem ítrekað beygir sig fyrir óbilgjörnu valdi æðstu ráða- manna? Hvar er skjól í þessari að- för að einstaklingsfrelsinu, sem nú tröllríður húsum um öll Vest- urlönd í skjóli upphitaðrar styrj- aldar gegn hryðjuverkum? Stærsta spurningin er þó þessi: hvað mun fylgja í kjölfarið ef allar varnir bresta og við lofum þessum ógnaröflum Stóra bróður að ganga á lagið? Ef við látum undan miðstýring- aráráttu þeirra sem með æðstu völd fara í þjóðfélaginu hverju sinni og hnígum í duftið, er deg- inum ljósara að við munum öll að lokum snúa til baka til léns- skipulagsins – að þessu sinni til hátæknivædds rafræns léns- skipulags. Og hvað verður þá um allt strit forfeðra vorra, frelsisbar- áttuna sem stóð margar aldir? Ef við týnum niður frelsinu í eftirlits- þjóðfélagi nútímans týnum við að lokum bæði friði og lögum. Þá tek- ur við lögregluríki óttans í helj- argreipum Stóra bróður. Viðvar- andi stríð yfirvalda gegn almenningi. Hverjum hugnast sú framtíðarsýn? Ekki almenningi þjóðanna, mæðrum og feðrum jarðar, sem hata stríð vegna þess að öll stríð skaða börnin þeirra. Er ekki kominn tími til að spyrna við fótum? Höfundur er rithöfundur AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.