Morgunblaðið - 25.07.2004, Qupperneq 37

Morgunblaðið - 25.07.2004, Qupperneq 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 37 ✝ Guðbjörg Gunn-arsdóttir fæddist á Eyrarbakka 18. júní 1927. Hún lést á heim- ili sínu í Garðabæ 13. júlí síðastliðinn. For- eldrar Guðbjargar voru hjónin Björg Björgólfsdóttir, f. 12. maí 1899, d. 9. mars 1963, og Gunnar Ingi- bergur Hjörleifsson, f. 7. ágúst 1892. Gunnar var sjómaður og fórst með togaran- um Sviða hinn 2. des- ember 1941. Á fyrsta ári fluttist Guðbjörg með foreldr- um sínum og systkinum til Hafn- arfjarðar. Systkini Guðbjargar eru Elín Björg, f. 1. okt. 1920, d. 19. okt. 1941, Hjörleifur, f. 19. sept. 1921, Magnús, f. 16. ágúst 1923, Björgólfur, f. 13. okt. 1924, Þor- björn, f. 6. des. 1928, d. 25. apríl 1936, Geir, f. 12. apríl 1930, og Hjörtur, f. 4. apríl 1932. Guðbjörg giftist 16. júní 1949 Ásgeiri Long vél- stjóra og kvikmynda- gerðarmanni, f. 16. september 1927. For- eldrar hans voru hjónin Valdemar Long kaupmaður í Hafnarfirði og Arn- fríður Einarsdóttir Long. Börn Guð- bjargar og Ásgeirs eru: 1) Valdimar Örn, f. 10. desember 1958, í sambúð með Ragn- heiði Björnsdóttur skrifstofustjóra. 2) Björg, f. 17. desem- ber 1960, giftist 7. maí 1983 Jó- hannesi Davíðssyni. Börn þeirra eru Ásdís Björg, f. 8. júní 1980, og Ásgeir Ingi, f. 25. september 1984. Þau hjón skildu árið 1987. Hinn 27. nóvember 1993 giftist Björg Ragn- ari Rögnvaldssyni bakarameist- ara. Sonur þeirra er Rögnvaldur Ágúst, f. 12. júní 1995. Útför Guðbjargar var gerð frá Garðakirkju 22. júlí. Guðbjörg Gunnarsdóttir, sem bor- in var til grafar frá Garðakirkju hinn 22. þ.m., var hin fjórða í röðinni í hópi átta systkina og lifa fimm þeirra syst- ur sína. Þegar ég nú sest niður til þess að skrifa nokkur orð um frænku mína og vinkonu til fjölmagra ára þyrpast að minningar um hana og allar eru þær ljúfar. Þó verður ekki sagt að erfið- leikar og sorg hafi sneitt hjá garði hennar í æsku. Hún var aðeins á barnaskólaaldri er faðir hennar drukknaði frá þessum stóra systkina- hópi. Í því slysi fórust raunar fjórir heimilisfeður í þeirri sömu götu og fjórtán börn stóðu uppi föðurlaus. Ég man vel sem ung stúlka þá hyldjúpu sorg sem grúfði yfir Firðinum í þann tíð. En á fyrstu áratugum liðinnar ald- ar var það ekki sjórinn einn sem krafðist fórna af hafnfirskum og raunar íslenskum alþýðuheimilum. Berklarnir voru á þeim tíma sá vá- gestur sem allir óttuðust, þeir lögðu að velli ungt fólk í blóma lífsins, rændi það manndómsárunum og skilaði því til baka með skerta starfsorku og brostnar vonir, héldi það á annað borð lífi. Af þessum stóra systkinahópi á Selvogsgötu 5 féll elsta systirin í þann val og þrír bræðranna veiktust og höfðu mislanga dvöl á Hælinu, þeim stað sem öllum stóð ógn af en veitti engu að síður þá einu von sem bauðst. Mér býður í grun að þessi ár sorgar og erfiðleika hafi að einhverju leyti mótað líf og skaphöfn Guðbjargar alla hennar ævi og þarf það raunar engan að undra. Við Guðbjörg voru systradætur og voru mæður okkar afar nánar og með þeim miklir kærleikar. Þar sem faðir minn hafði einnig fallið frá þegar ég var á unga aldri og ég einbirni kom það eins og af sjálfu sér að tengsl mín við Guðbjörgu og systkini hennar voru svo náin að mér fannst ég oft vera ein af hópnum. Kynni okkar Guðbjargar urðu svo enn nánari þegar ég giftist og hún, sem var nokkrum árum yngri en ég, varð nánast eins og heimagangur heima hjá mér. Á þeim árum var hún afgreiðslu- stúlka í Bæjarbíói og þar var sýning- arstjóri ungur vélstjóranemi, Ásgeir Long, með ævilangan áhuga á bíó- myndum. Þar með sveif rómantíkin í Bæjarbíói af tjaldinu og niður í salinn. Þegar þau svo giftust og stofnuðu heimili var mikið gæfuspor stigið. Þau reyndust einstaklega samhent hjón og tók Guðbjörg af lífi og sál þátt í fjölmörgum áhugamálum Ásgeirs og þeim verkum sem hann hafði með höndum gegnum tíðina. Heimili þeirra var fallegt og naut þar smekkvísi og alúðar húsmóður- innar ekki síður en lagni og vinnusemi hins rómaða þúsundþjalasmiðs. Á seinni árum er heilsa Guðbjargar tók að gefa sig reyndist Ásgeir henni styrk stoð og kom ef til vill þá betur í ljós en endranær hvern öndvegis- mann hann hefur að geyma. Þau Guð- björg og Ásgeir bjuggu við það barna- lán að eignast tvö börn, Björgu og Valdimar, sem hafa verið foreldrum sínum bæði félagar og gleðigjafar og fært þeim þrjú mannvænleg barna- börn. Um leið og ég þakka langa vináttu og samskipti sem aldrei bar skugga á vil ég votta aðstandendum öllum mína innilegustu samúð. Ester Kláusdóttir (Bíbí). GUÐBJÖRG GUNNARSDÓTTIR ✝ Þórður ValgeirMagnússon fædd- ist í Garðhúsum í Vatnsleysustrandar- hreppi 2. október árið 1929. Hann lést á Hrafnistu í Reykjavík 19. maí síðastliðinn. Foreldrar hans voru þau Magnús Jónsson, f. 1881, d. 1963, og Guðríður Þóra Guð- finnsdóttir, f. á Kleif- um í Skötufirði við Ísafjarðardjúp 1894, d. 1980. Guðríður eignaðist tvo syni. Eldri sonur hennar var Guðfinnur Jón Bergs- son, lengst af lögregluvarðstjóri í Grindavík, f. 29. júní 1925, d. 27. september 1993. Kona hans er Helga Jóhannsdóttir. Þórður átti níu önnur systkini, samfeðra. Guðríður ól syni sína tvo upp á eigin spýtur og bjó fyrst með þá á Vatnsleysuströndinni en fluttist síðan til Hafnarfjarð- ar þar sem synirnir síðan ólust upp. Á ár- unum sem Þórður bjó í Hafnarfirði gerðist hann meðal annars leigubifreiða- stjóri. Um miðja síð- ustu öld reisti hann þriggja hæða húsið í Laufási 5 í Garðabæ og þar átti hann sitt heimili allt til dauða- dags. Þórður starfaði í skipasmíðastöðinni Stálvík frá því hún var stofnsett árið 1962. Þar starf- aði hann síðan sem stálsmiður og suðumaður í tæpa þrjá áratugi eða allt þar til stöðin var lögð niður. Þar var hann við skipasmíðar, og dráttarbrautina, meðal annars við niðursetningu báta og viðhald dráttarbrautarinnar. Útför Þórðar var gerð frá Garðakirkju 28. maí. Kunningi okkar, Þórður Magnús- son, lést 19. maí síðastliðinn. Hann var búinn að vera veikur um tíma en hrakaði stöðugt og lést á Hrafnistu í Reykjavík. Hann var einnig ná- granni okkar og vinur, og kom oft í heimsókn eftir að hann hætti að vinna. Þórður og Magnús unnu sam- an í Stálvík í mörg ár en seinni árin stundaði hann sjóróðra, keypti sér bát og reri einn þegar gaf á sjó. Þórður var ákaflega geðprúður maður, að minnsta kosti í okkar garð, og skemmtilegur. Hann hafði gaman af því að segja sögur og fara með vísur. Svo var hann söngelskur ef svo bar undir og hafði góða rödd, hann kunni mikið af kvæðum og vísum og ótrúlegt hvað hann mundi mikið al- veg frá því að hann var ungur. Þórð- ur las mikið og hlustaði töluvert á út- varp en undi sér ekki lengi við það að horfa á sjónvarp. Hann horfði kannski á fréttir og einstaka íslenska þætti í sjónvarpinu en hafði lítinn áhuga á erlendum myndum enda hafði hann engan áhuga fyrir því að eiga sjónvarp sjálfur og sagðist miklu frekar vilja eyða tíma sínum í lestur góðra bóka og fara í göngu- ferðir og á sjóinn meðan hann hafði heilsu til. Hann fór lítið í heimsóknir nema til einstakra nágranna og stoppaði oftast stutt við en kom fremur oftar. Nánustu ættingjar hans bjuggu í Grindavík og þangað fór hann oft, sérstaklega meðan Finni bróðir hans var á lífi. Þórður var þægilegur í umgengni en gat æst sig upp ef eitthvað bar út af og menn voru ekki sammála honum. En oftast fór hann bara sínar eigin leiðir og var ekkert að ergja sig á því. Þórður var ekki allra en góður vinur vina sinna. Við söknum hans úr nágrenn- inu og það eru ekki margir nú á dög- um sem „droppa“ inn eins og maður segir. Við vottum ættingjum hans samúð okkar. Valborg Soffía Böðvarsdóttir, Magnús Júlíus Jósefsson. ÞÓRÐUR V. MAGNÚSSON Ástkær eiginkona mín og móðir okkar, GUÐBJÖRG SIGNÝ RICHTER, Gljúfraseli 9, Reykjavík, andaðist á Landspítalanum við Hringbraut fimmtudaginn 22. júlí. Jarðarförin verður auglýst síðar. Guðmundur Magnússon, Guðný Guðmundsdóttir, Margrét Guðmundsdóttir, Brynjólfur Guðmundsson. Ástkær móðir, tengdamóðir, amma og lang- amma GUÐLAUG VIGFÚSDÓTTIR, Skólastíg 16, Stykkishólmi, sem andaðist sunnudaginn 18. júlí sl., verður jarðsett frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 28. júlí nk. kl 13.30. Lillían Kristjánsdóttir, Sigurður Hauksson, Sverrir Kristjánsson, Jósefína Pétursdóttir, Andrés Kristjánsson, Kristín Finnbogadóttir, Gunnar Ingi Kristjánsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, MARGEIR JÓNSSON fyrrv. útgerðarmaður, Keflavík, verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju mánu- daginn 26. júlí kl. 13.30. Jóna I. Margeirsdóttir, Margrét Margeirsdóttir, Ásta Ragnheiður Margeirsdóttir, Guðjón Stefánsson, Margeir Margeirsson, Ingibjörg K. Reykdal, Valur Margeirsson, Birna Sigurðardóttir, Haukur Margeirsson, Halldóra Ingimarsdóttir, Guðmundur Margeirsson, Ingibjörg A. Frederiksen, Arnþór Margeirsson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma, INGVELDUR DAGBJARTSDÓTTIR, Melabraut 9, Seltjarnarnesi, sem andaðist á hjúkrunarheimilinu Vífils- stöðum miðvikudaginn 14. júlí, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju mánudaginn 26. júlí kl. 13.30. Þeim, sem vilja minnast hennar, er bent á líknarstofnanir. Guðrún Einarsdóttir, Gottskálk Eggertsson, Sigurður Einarsson, Kristín Jónsdóttir, Guðbjartur Einarsson, Anna Sigurbrandsdóttir, Stefán Einarsson, Kristrún Sigurðardóttir, barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn. Ástkær faðir okkar, KARL JÓHANNESSON kjötiðnaðarmaður, Æsufelli 4, áður til heimilis í Ásgarði 17, sem lést 12. júlí verður jarðsunginn frá Dóm- kirkjunni þriðjudaginn 27. júlí kl. 13.30. Helgi Steinar Karlsson, Bára Lárusdóttir, Jóna Karlsdóttir, Sigrún Karlsdóttir, Jón Bóasson, Karl Jóhannes Karlsson, Kristín Þórisdóttir, Sigurjón Már Karlsson, Marit Guðnadóttir, barnabörn og barnabarnabörn. Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 www.englasteinar.is Englasteinar Legsteinar Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.