Morgunblaðið - 25.07.2004, Qupperneq 40

Morgunblaðið - 25.07.2004, Qupperneq 40
MINNINGAR 40 SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Móðir okkar, tengdamóðir og amma, GUÐRÚN JÓHANNESDÓTTIR, Kambaseli 64, Reykjavík, lést miðvikudaginn 14. júlí. Útför hennar fer fram frá Fríkirkjunni í Reykja- vík þriðjudaginn 27. júlí kl. 15.00. Kolbrún Ýr Jóhannsdóttir, Sigursteinn Gunnarsson, Ásgeir Örvarr Jóhannsson, Sigurlaug Anna Jóhannsdóttir, Óðinn Örn Jóhannsson, Claudia A. Wilson og barnabörn. Móðir okkar og tengdamóðir, SIGRÍÐUR ELLINGSEN, áður til heimilis á Ægisíðu 80, lést á hjúkrunarheimilinu Holtsbúð fimmtu- daginn 22. júlí. Óttar B. Ellingsen, Stefanía L. Jónsdóttir, Steingrímur Ellingsen, Anna Birna Jóhannesdóttir, Lára María Ellingsen, Erlingur Aðalsteinsson, Björg Ellingsen, Broddi Broddason. Hjartanlegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og útför okkar ástkæra ÁRNA BRYNJÓLFSSONAR, Grænumörk 1, Selfossi. Börn og aðstandendur hins látna. Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, JAKOB JÓNSSON, bóndi, Varmalæk, lést á Sjúkrahúsi Akraness fimmtudaginn 22. júlí. Jarþrúður Jónsdóttir, Birna Jakobsdóttir, Halldór Bjarnason, Jón Jakobsson, Kristín Guðbrandsdóttir, Helga Jakobsdóttir, Hallgeir Pálmason, Sigurður Jakobsson, Heiðbjört Ósk Ásmundsdóttir, Magnea K. Jakobsdóttir, Ragnar Andrésson, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir, amma og langamma, SIGRÚN E. ÓLADÓTTIR, Njarðvíkurbraut 32, Innri-Njarðvík, lést á Landspítalanum við Hringbraut aðfara- nótt fimmtudagsins 22. júlí. Jarðarförin fer fram frá Innri-Njarðvíkurkirkju fimmtudaginn 29. júlí kl. 14.00. Páll Kristinsson, Kristinn Pálsson, Björg Valtýsdóttir, Elín M. Pálsdóttir, Sigurður S. Guðbrandsson, Vilhelmína Pálsdóttir, Ingólfur Ólafsson, barnabörn og barnabarnabörn. Það var erfitt að fá fregnirnar af því að þú værir farinn frá okkur. Ekkert okkar óraði fyrir því að eiga ekki eftir að hitta þig aftur. Eftir lifa minningarnar um góðar samverustundir í gegnum árin. Ég kom inn í fjölskylduna fyrir um fimmtán árum þegar við Kjart- an yngsti sonur þinn hófum sam- vist okkar og strax frá fyrsta degi MAGNÚS KJARTAN ÁSGEIRSSON ✝ Magnús KjartanÁsgeirsson fæddist 1. apríl 1944. Hann varð bráðkvaddur laug- ardaginn 10. júlí síðastliðinn og var útför hans gerð frá Garðakirkju 19. júlí. var mér tekið sem einni af fjölskyldunni. Í gegnum árin hefur þú alltaf verið mér svo góður og eru mér minnisstæðir morgn- arnir sem við sátum og drukkum kaffi og spjölluðum um hitt og þetta. Alltaf varst þú reiðubúinn að hjálpa ef eitthvað bjátaði á. Ekki stóð á hjálp þinni þegar við Kjart- an keyptum okkar fyrstu íbúð og vorum í endurbótum og áfram mætti lengi telja. Mikil gleði ríkti þegar nafni þinn kom í heiminn og var ljóst frá fyrsta degi að þið ætt- uð eftir að ná vel saman. Magnús Ari litli sá ekki sólina fyrir honum afa sínum og áttuð þið margar góðar stundir saman. Þið áttuð sameiginlegt áhugamál sem var verkfæri og bátar og átti litli gutt- inn sælustundir með þér í afabát eins og hann kallaði hann sem eru honum ógleymanlegar. Elsku tengdapabbi, orð fá ekki lýst söknuði okkar. Mig langar að þakka þér fyrir allar góðu stund- irnar með þér sem ég mun aldrei gleyma. Mig langar að kveðja þig með þessum fallegu orðum úr Ferðalokum Jónasar Hallgríms- sonar: Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg, en anda, sem unnast, fær aldregi eilífð að skilið. Helga Hrönn. Elsku bróðir, þá er komið að kveðjustund. Minningabrotin hrannast upp, hvert öðru ljúfara. Lítil stelpa á eftir stóra bróður sannfærð um að hann muni alltaf vernda hana gagnvart hættum heimsins, aldrei skammað, ekki einu sinni hastað á, ávallt hjálpað, huggað og glatt. Og stór varstu hvernig sem á það er litið. Ekki bara hávaxinn og myndarlegur svo litla systir var að rifna af stolti, heldur einnig stórhuga og með stórt hjarta. Engan þekki ég sem höfðingjahugtakið hæfir betur. Fyrsta minningin úr gamla hús- inu. Komið kvöld og þið Óskar háttaðir og komnir upp í kojur og kallið: „Mamma, soðið vatn og sultubrauð“ og ég fékk líka. Í heimsókn á Fáskrúðsfirði með pabba og mömmu. Hraða mér nið- ur á bryggju þar sem þú ert um borð í Vininum, orðinn fullgildur sjómaður þá 16 ára, ég bara átta. Þú skælbrosandi eins og alltaf, hlýlegur og góður, fæ ekki síður athygli en fullorðna fólkið, gaukar að mér aurum og ferð með mig í sjoppuna. Finnst ég aðalstjarnan á staðnum með stóra bróður mér við hlið. Ekki slæm tilfinning það. Tíminn líður. Þú komin með kærustu, hana Sigurbjörgu, sem hefur það fallegasta hár sem sú stutta nokkru sinni hefur séð, ljóst, mikið og sítt. Prinsinn fékk þar prinsessuna, fannst mér. Þið að fara á rúntinn á Fordinum, oft- ar en ekki er mér boðið með. Þá er alltaf stoppað í sjoppunni og ég fæ pylsu og sinalco, ís eða hvaðeina sem ég bið um. Er mikið öfunduð af vinkonum mínum sem ekki áttu svona stóran bróður. Nýt þess að eiga tvo, þig og Óskar, ólíkir en alltaf samheldnir og bestu vinir og hvor öðrum betri við litlu systur. Verð ykkur ævinlega þakklát. Og enn líða árin. Sú litla full- orðnast og ævintýraþráin vaknar. Heimurinn er stór og fullur af áhugaverðum stöðum og hlutum sem þarf að kanna. Við á Ítalíu og ég gelgjan hef mestan áhuga á að djamma. Þú skilur það, ekkert að predika en þið Sigurbjörg viljið skoða umhverfið og þá mörgu áhugaverðu staði sem þar er að finna. Man ekkert eftir djamminu en gleymi aldrei ferðum okkar um Róm. Náðir að kveikja áhuga minn á mannlífinu, hinum mörgu sögu- legu minjum og stórbrotnu bygg- ingum enda sérlega skemmtilegur sögumaður. Fann þá að við ættum það sameiginlegt að hafa mikla flökku- og ævintýraþrá. Sá líka að þú varst óvenju ratvís og áttir ein- staklega auðvelt með öll mannleg samskipti, sama hver í hlut átti eða hverrar þjóðar viðkomandi var. Eiginleiki sem átti eftir að koma sér vel síðar bæði í lífi og starfi. Við í eldhúsinu hjá mömmu. Þú segist hafa mætt snemma til að vera viss um að fá eitthvað af hvítu kökunum áður en ég kláraði þær. Tökum okkur smá samræðu- rispu af gömlum vana og höfum gaman af. Ræðum þjóðmálin, snið- ugar hugmyndir og segjum ferða- sögur. Mamma snýst í kringum okkur og bætir á borðið. Fannst verst hve erfitt var oft að ná í þig, þú alltaf á sjónum og langtímum saman á fjarlægum slóðum, Kamtsjatka, Afríka, Arabalönd. Yrði of langur listi upp að telja. Gaman að hlusta á þig segja frá því sem fyrir augu bar í þeim ólíku menningarheimum sem þú kynntist. Mun ætíð sakna þess að heyra þig segja frá. Og æv- intýralegar voru frásagnirnar oft, því þú upplifðir meira en flestir, lést drauma þína rætast. Nokkuð sem mér finnst til eftirbreytni. „Gústa mín, ég skal bara segja þér, að það er ekkert sem ég ekki get og ekkert sem ég ekki kann,“ sagðir þú við mig glottandi, einu sinni sem oftar. Ég mótmælti að sjálfsögðu enda höfðum við það gjarnan fyrir sið að vera sem minnst sammála, jafnvel þó svo að undir niðri værum við það. Annað var bara ekki nógu skemmtilegt. Ég verð þó að viðurkenna að það var fátt sem þú ekki gast gert, því laghentari mann hef ég aldrei þekkt. Gilti þá einu hvort um var að ræða eldamennsku, vélavið- gerðir, húsbyggingar eða að taka á móti barninu þínu með smá aðstoð frá Rósu ljósmóður. Allt lék í höndunum á þér og fannst mér þessum eiginleika ansi ójafnt skipt á okkur systkinin. Aldrei stóð á þér að hjálpa ef þú varst í landi og oft varstu beðinn. Það var tákn- rænt fyrir þig að láta það verða eitt þitt síðasta verk að gera við sláttuvélina fyrir mömmu, kvöldið áður en þú fórst í síðustu sjóferð- ina enda alltaf sérstök tengsl á milli ykkar. Elsku Kjartan, ég vil þakka þér allar góðu minningarnar sem þú hefur gefið mér, fyrir þann hlý- hug, góðmennsku og örlæti sem þú og Sigurbjörg ávallt hafið sýnt mér og dætrunum. Þú gerðir heiminn betri og lífið bjartara. Við systkinin sjáum nú á eftir kærum bróður. Elsku mamma, Sigurbjörg, börn og fjölskyldur. Missir ykkar er mestur. Megi minningin um góðan dreng ylja ykkur um ókomin ár. Ég kveð þig, elsku bróðir, en vona að við eigum eftir að taka okkur smá rispu þótt síðar verði. Þín systir Ágústa. Elsku Kjartan frændi, nú ertu farinn. Við kveðjum þig með sökn- uði en minnumst þín jafnframt með bros á vör. Þannig mundir þú líka vilja hafa það. Minningarnar eru flestar úr eldhúsinu hennar ömmu, þar sem þú sast í gamla stólnum hans afa og borðaðir flat- kökurnar hennar ömmu. Það var einmitt þitt uppáhald, flatkökur með miklu smjöri og vænni slettu af kæfu. Alltaf þegar við vorum litlar og komum í heimsókn, þá breiddir þú út faðminn og skelltir okkur í kjöltuna. Grófa skeggið kitlaði oft en gerði þig svo vinaleg- an. Þú varst mikill sögumaður, enda lent í ýmsu skrautlegu um ævina. Einnig gerðir þú mikið af því að rökræða við mömmu sem sat yf- irleitt við hinn enda eldhúsborðs- ins. Þið nutuð þess að vera ósam- mála, einungis til þess að krydda samræðurnar. Það kom einnig ósjaldan fyrir að þú gaukaðir að okkur systrum ein- um rauðum og sagðir okkur að fara í sjoppuna og kaupa eitthvað gott. Þá leið okkur eins og við værum milljónerar. Já, elsku frændi, þú varst góður og örlátur, ekki síst við okkur börnin. Þú varst líka í okkar huga hetj- an og hraustmennið sem stýrðir stórum skipum gegnum úfinn sjó- inn og náðir alltaf landi, ævintýra- maðurinn sem ferðaðist um allan heiminn, skrappst til útlanda eins og við á milli bæjarhluta, auk þess að koma eiginlega í staðinn fyrir afa sem við misstum svo ungar. Og hvílíkur „afi“. Alltaf góður og hlýr, stór og sterkur með stórt hjarta. Okkur fannst sem þú kynnir allt og gætir allt og enginn skildi börn- in betur en þú. Elsku Sigurbjörg, Pálmi, Garð- ar, Diddi, Dana og fjölskyldur. All- ar góðar vættir veri með ykkur. Hvíldu í friði, elsku frændi, og hafðu þökk fyrir allt og allt. Þínar frænkur, Gunnhildur og Ásgerður. Það er alveg ótrúlegt hvað þú ert heppinn með menn í sambandi við þessa útgerð þína, sagði pabbi við mig þegar við höfðum hitt Magnús skipstjóra í fyrsta skipti. Hann var mannþekkjari hann pabbi minn og hafði rétt fyrir sér. Hafnarröstin hafði verið leigð í verkefni til Grænlands og ég ráðið Magnús sem skipstóra. Verkefni Magnúsar var ótrúlega vandasamt þar sem þetta litla gamla skip átti að vera fljótandi frystihús við Grænland á vegum Dana sem aldr- ei hafði komið að slíku verkefni áð- ur. Fylla átti skipið af grænlensku verkafólki sem ekkert kunni til verka. Kaupa átti fisk á miðunum sem enginn vissi hvort myndi veið- ast eða fást keyptur. Þetta var æv- intýraför hin mesta. Magnús var réttur maður á rétt- um stað í verkefnið og var það samdóma álit mitt og Dananna að fáir eða engir hefðu getað leyst þetta betur. Af einstakri eljusemi kom hann skipinu til Grænlands, tók um borð tuttugu Grænlend- inga og kenndi þeim að frysta fisk. Hann var í samskiptum við tugi skipstjóra og útgerðarmenn, fékk hjá þeim fiskinn og myndaði tengsl sem gerðu hann frægan fyrir þægilega nærveru, umburðarlyndi og skemmtilegheit. Hann frysti 700 tonn um borð í skipinu og salt- aði ótrúlegt magn af hrognum á nokkrum mánuðum. Magnús stóð vaktina frá því að við pabbi slepptum bátnum í maí 2002 þar til við bundum hann í Hafnarfirðinum fimm mánuðum seinna – á hverjum einasta degi hugsaði hann um bátinn eins og hann ætti hann sjálfur, gekk í öll verk og hélt öllu gangandi í kring- um sig á einstaklega jákvæðan hátt. Hann sagði mér að hann hafði einungis einu sinni komist í gönguferð upp í bæinn þar sem þeir lönduðu alltaf þegar fullfermi var komið. Það var alltaf svo brjál- að að gera og svo vildi ég ekki fara langt frá bátnum, sagði hann og brosti á sinn einlæga hátt. Magnús er með eftirminnilegri mönnum sem ég hef kynnst á lífs- leiðinni og skilur eftir sig minn- ingu um fjalltraustan dugnaðar- fork sem var meistari í mannlegum samskiptum og ein- stakt ljúfmenni. Hans verður sárt saknað. Lúðvík Börkur Jónsson.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.