Morgunblaðið - 25.07.2004, Qupperneq 45
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 45
Opið mánudaga - föstudaga
frá kl. 12-18 og laugardaga frá kl. 12-15
Skólavörðustíg 2 – sími 544 8880.
Rýmingarsala
Rýmum til fyrir nýjum vörum
15-30% afsláttur
Ingibjörg Dagmar Gunnarsdóttir
nuddfræðingur
Hef hafið störf á snyrtistofunni
Gyðjunni. Býð alla viðskipavini
velkomna.
Klassískt nudd, slökunar-
nudd, partanudd,
gyðjunudd, sælunudd
og heitsteinanudd.
Skipholti 50d,
sími 553 5044
Kristskirkja í Landakoti var vígð 23. júlí1929. Það var Vilhjálmur van Rossum,hollenskur kardínáli og sérlegur sendi-maður Píusar páfa XI., sem vígði dóm-
kirkju hins nýstofnaða postullega umdæmis á Ís-
landi. Tveimur dögum síðar veitti hann séra
Marteini Meulenberg, nýskipuðum biskupi við
kirkjuna, biskupsvígslu í kirkjunni.
Í dag, sunnudag, verður þessara atburða, sem
staðfestu kirkjulegt sjálfstæði kaþólska trúar-
samfélagsins á Íslandi, minnst í hátíðarmessu í
Landakotskirkju sem hefst kl. 10.30.
Þar sem atburðirnir varða allt kaþólska bisk-
upsdæmið, en ekki eingöngu Landakotssókn,
verða farnar pílagrímagöngur trúaðra frá Mar-
íukirkju í Breiðholti og Jósefskirkju í Hafnarfirði
til dómkirkjunnar, til þess að taka þar þátt í heil-
agri messu.
Kirkjubyggingin þótti á sínum tíma brautryðj-
endaverk, byggð í gotneskum stíl úr steinsteypu.
Upphaflega var gert ráð fyrir háum turnspírum á
turnþaki hennar en þak turnsins var aldrei full-
gert. Var kirkjan nývígð stærsta guðshús á Ís-
landi. Þar er að finna marga fagra gripi, meðal
annars gjafir frá Píusi páfa XI sem gefnar voru
við vígslu hennar. Annan merkisatburð ber upp á
um þessar mundir en það er 60 ára prestsafmæli,
„demantsafmæli“, séra Húberts Oremusar. Hald-
ið var upp á það sl. sunnudag og söng séra Ore-
mus þá hátíðlega messu í dómkirkjunni. Tveir
meðbræður hans, sem komu frá Hollandi, sungu
messuna með honum.
Séra Oremus kom til landsins árið 1978 og hef-
ur starfað hér síðan. Hann lærði íslensku í Há-
skóla Íslands og þjónaði í tíu ár í sókn heilags Jós-
efs í Hafnarfirði, sem aðstoðarprestur og
sóknarprestur. Síðan 1988 hefur hann búið í
prestahúsinu í Landakoti og þjónað við kirkjuna í
Landakoti. Hann var inntur eftir því hvað hefði
orðið til þess að hann kom til Íslands.
„Ég kom til Íslands fyrir 26 árum þegar ég
sneri aftur til Hollands eftir 16 ára dvöl í Miðaust-
urlöndum. Þar starfaði ég fyrst í fimm og hálft ár í
Istanbúl í Tyrklandi við kennslu og sálgæslu. Eft-
ir það var ég kallaður til Egyptalands og var þar í
tíu og hálft ár sem kennari og sóknarprestur.
Ég kom aftur til Hollands í september 1977 þar
sem ég ætlaði mér að starfa áfram. En þá fóru að
berast fréttir frá Íslandi um að presta vantaði,
sem væru tilbúnir til að vera til langframa og læra
tungumálið.“
Þetta varð til þess að séra Oremus lét í ljós
áhuga á að koma hingað þegar þáverandi Reykja-
víkurbiskup, Henrik Frehen, sóttist eftir prestum
fyrir biskupsdæmi sitt.
Hátíð | 75 ár frá vígslu Landakotskirkju og 60 ára prestsafmæli
Pílagrímagöngur til dómkirkju
Séra Húbert Oremus fæddist 20. júlí árið
1917 í bænum Zeist í Hollandi. Hann nam
heimspeki og guðfræði í Panningen í Suður-
Hollandi og fékk þar prestvígslu 19. júlí 1944.
Hann nam kínversku við Sorbonne-háskólann í
París og starfaði eftir það sem prestur og
kennari í Hollandi, Tyrklandi og Egyptalandi
uns hann kom til Íslands. Hér hefur hann
starfað frá 1978.Umgengnisvenjur
Íslendinga
MÉR til mikillar armæðu hefur um-
gengnisvenjum Íslendinga hrakað til
muna á síðustu árum. Það fólk sem
heldur í útilegur yfir sumartímann
virðist ekki bera meiri virðingu fyrir
umhverfi sínu en svo að það skilur
eftir sig heilu hrúgurnar af rusli. Ef
svo heldur fram sem horfir verða vin-
sælustu ferðamannastaðir landsins
orðnir að ruslahaugum innan tíðar.
Þetta er ólíðandi og ekki til eft-
irbreytni.
Náttúruunnandi
Slanguryrði
og fjölmiðlar
ARNAR hafði samband við Velvak-
anda og vildi koma þeirri skoðun
sinni á framfæri að slanguryrði ættu
ekki að sjást í íslenskum fjölmiðlum.
Hann segir slanguryrði skaða ís-
lenska tungu og fjölmiðlar ættu að
sinna því hlutverki að vernda tungu-
mál okkar en ekki stuðla að aukinni
notkun slanguryrða af ýmsum toga.
Hví?
GUÐMUNDUR hafði samband við
Velvakanda og sagðist hafa fengið
nóg af því að ávallt væri verið að níð-
ast á íslenska málinu. Að hans sögn
gerist það oft að þegar íslenskur texti
er settur á erlendar kvikmyndir
stendur „því“ þar sem á að standa
„hví“.
Góðir þættir Steinunnar
ÉG ER mjög ánægð með frammi-
stöðu útvarpskonunnar Steinunnar
Harðardóttur á Rás 1. Þættir henn-
ar, Út um græna grundu, eru vel
heppnaðir og ég reyni að missa ekki
af þeim.
Hanna Ingvarsdóttir
Hálsmen tapaðist
HÁLSMEN tapaðist í Hafnarfirði
eða í Reykjavík fyrir skömmu. Um er
að ræða gullhálsmen með javesteini
(jade). Finnandi vinsamlega hafi
samband í síma 551 3282 eða
899 3382.
Fundarlaun í boði.
Kettlingur fannst
íGarðabæ
KETTLINGUR fannst á Garðaflöt í
Garðabæ hinn 22. júlí sl. Hann er
ekki nema nokkurra mánuða gamall,
hvítur að lit með svartan blett á höfð-
inu sem nær yfir annað augað. Þá
hefur hann svarta rófu.
Upplýsingar í síma 565 3464 eða
565 7503.
Kettlingar fást gefins
TVEIR kettlingar, högni og læða,
fást gefins. Högninn er svartur að lit
en læðan svört og hvít. Kettlingarnir
eru báðir rúmlega níu vikna gamlir,
sætir og skemmtilegir. Upplýsingar í
síma 699 1866.
Kettlingur fæst gefins
RÚMLEGA tveggja mánaða gömul
læða fæst gefins á gott heimili. Hún
er grá og hvít að lit og hvers manns
hugljúfi.
Upplýsingar í síma 561 8854.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Morgunblaðið/RAX
Gestir á Eldborgarhátíðinni skildu
heldur illa við tjaldsvæðið.
1. d4 Rf6 2. c4 g6 3. Rc3 d5
4. Bg5 Re4 5. Bh4 Rxc3 6.
bxc3 Bg7 7. cxd5 Dxd5 8.
e3 c5 9. Df3 Dd8 10. Bc4
O-O 11. Re2 cxd4 12. exd4
Dc7 13. Bb3 Rc6 14. O-O
e5 15. Had1 Ra5 16. Bd5
Be6 17. Bxe6 fxe6 18. De4
Dc4 19. f3 exd4 20. cxd4
Rc6 21. Hd2 Hac8 22.
Hfd1 Bh6 23. Hb2 b6 24.
Bf2 Ra5 25. Be3 Bg7 26.
Rf4 e5 27. Rd5 Hcd8 28.
Re7+ Kh8 29. Hc2 Df7 30.
Hc7 Bf6
Staðan kom upp á hol-
lenska meistaramótinu
sem lauk fyrir skömmu.
Ivan Sokolov (2690) hafði
hvítt gegn Friso Nibjoer
(2578). 31. Hxa7! exd4
31... Bxe7 hefði ekki geng-
ið upp vegna 32. Dxe5+
Bf6 33. Hxf7 Bxe5 34. Hxf8+ Hxf8 35.
dxe5 og hvítur vinnur. 32. Bxd4 Dg7
33. Rxg6+! hxg6 hvítur hefði unnið eft-
ir 33... Dxg6 34. Bxf6+. 34. Hxg7 og
svartur gafst upp.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
UNGUR ljósmyndari, Björn Erlings-
son, hefur gefið út ljósmyndabókina
Ísland – allra veðra von. Bókin er
byggð upp sem ferðasaga sem Björn
hefur sett saman með ljósmyndum
sínum og texta. Hvort tveggja er
sprottið úr þeim víðáttum sem
óbyggðirnar hafa að geyma og úr
þéttbýlinu þar sem menn hafa fund-
ið sér dvalarstað. Ljósmyndirnar,
sem bókina prýða, sýna þann marg-
breytileika sem í íslenskri veðráttu
birtist. Myndirnar eru teknar á öll-
um árstímum, við mismunandi birtu-
og veðurskilyrði; í rigningu, snjó,
hvassviðri og þoku.
Höfundur bókarinnar hefur sjálf-
ur hannað bókina, fært í umbrot, og
að lokum bundið inn hvert og eitt
eintak með handverki sínu. Bókin er
gefin út á íslensku, ensku og þýsku.
Útgefandi bókarinnar er Bókbands-
stofan Kjölur.
Allra
veðra
von
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn