Morgunblaðið - 25.07.2004, Blaðsíða 46

Morgunblaðið - 25.07.2004, Blaðsíða 46
DAGBÓK 46 SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ 80 ÁRA afmæli. Ídag, sunnu- daginn 25. júlí, er átt- ræður Þórður Pét- ursson húsasmíða- meistari á Ísafirði. Hann er fæddur og uppalinn í Hafnardal við Ísafjarðardjúp. Þórður og eiginkona hans, Helga Marselíusdóttir, bjóða vinum og vandamönnum að þiggja veitingar af þessu tilefni, í Faktorshúsinu Hæsta- kaupstað, á afmælisdeginum kl. 16 til 18. Árnaðheilla dagbók@mbl.is 60 ÁRA afmæli. Ídag, sunnu- daginn 25. júlí, er sex- tug Pálína Oswald. Af því tilefni býður hún vinum og vanda- mönnum að fagna þessum tímamótum með sér á heimili sínu, Smárarima 100, kl. 17-20 í dag. 60 ÁRA afmæli. Ídag, sunnu- daginn 25. júlí, er sex- tug Kolbrún Hauks- dóttir, starfsmaður Íslandsbanka. Hún og eiginmaður hennar, Gunnar Þorláksson, verða erlendis á af- mælisdaginn. 1 7 11 15 22 24 12 14 3 9 20 10 4 8 21 23 25 13 17 5 18 6 19 2 16 Krossgáta Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html Lárétt | 1 korgur, 4 hætta, 7 erfið, 8 meðvindur, 9 gljúfur, 11 hetju, 13 stak- ur, 14 trylltur, 15 málmur, 17 tóbak, 20 augnhár, 22 hund, 23 talan, 24 svelg- inn, 25 híma. Lóðrétt | 1 skarpskyggn, 2 minnist á, 3 mann, 4 sleip- ur, 5 farkosti, 6 duglegur, 10 angan, 12 skaut, 13 bókstafur, 15 ómerkileg manneskja, 16 hamingju, 18 ysta brún, 19 koma skapi við, 20 vísa, 21 tíma- bilin. Lausn síðustu krossgátu Lárétt | 1 framlágur, 8 lofar, 9 annar, 10 iðn, 11 týran, 13 gærur, 15 skran, 18 hagur, 21 err, 22 gefin, 23 eldur, 24 hamingjan. Lóðrétt | 2 ráfar, 3 mærin, 4 ágang, 5 unnur, 6 flot, 7 frúr, 12 ana, 14 æfa, 15 segl, 16 rofna, 17 nenni, 18 hregg, 19 gedda, 20 rýrt.  Hrútur (21. mars - 19. apríl)  Hæfileikar þínir til hvers konar list- sköpunar eru með mesta móti þessa dagana. Notaðu tækifærið á meðan það varir. Naut (20. apríl - 20. maí)  Þú færð stórtækar hugmyndir um breytingar á heimilinu í dag. Vertu óhrædd/ur við að bretta upp ermarnar og ráðast í verkið. Þú munt fá þá hjálp sem þú þarft á að halda. Tvíburar (21. maí - 20. júní)  Farðu varlega í að skipta þér af mál- um annarra í dag. Þótt þér gangi gott eitt til mun viðkomandi líklega líta á það sem afskiptasemi. Krabbi (21. júní - 22. júlí)  Þú ert tilbúin/n til að leggja hart að þér til að ná markmiðum þínum. Þú ert einnig staðráðin/n í að kaupa eitt- hvað í dag. Það getur hreinlega ekk- ert stöðvað þig. Ljón (23. júlí - 22. ágúst)  Þú ert sjálfsörugg/ur og sannfærandi í dag og hikar ekki við að vinna að tak- marki þínu. Þú kemur auga á nýja möguleika og ný not fyrir gamla hluti. Meyja (23. ágúst - 22. sept.)  Þú heldur dauðahaldi í eitthvað á svip- aðan hátt og þú gerðir þegar þú varst barn. Reyndu að skoða hegðun þína í raunsæju ljósi þannig að þú getir lært eitthvað nýtt um sjálfa/n þig. Vog (23. sept. - 22. okt.)  Leitaðu samvinnu við aðra til að ná árangri í mikilvægu máli. Reyndu að haga málum þannig að kraftar þínir komi ekki síður öðrum til góða en sjálfri/sjálfum þér. Sporðdreki (23. okt. - 21. nóv.)  Metnaði þínum eru engin takmörk sett þessa dagana. Þér finnst þú geta flutt fjöll. Treystu á sjálfsöryggi þitt því það sem þú gerir mun að öllum líkindum færa þér fjárhagslegan ávinning. Bogmaður (22. nóv. - 21. des.) Þú getur framkvæmt næstum hvað sem er þessa dagana. Áætlanir þínar varðandi ferðalög og framhalds- menntun ættu að ganga eins og í sögu. Steingeit (22. des. - 19. janúar) Þú hefur gott lag á að fá fólk til liðs við þig í dag og því eru miklar líkur á að þú munir hljóta þá aðstoð og fjár- mögnun sem þú þarft á að halda. Vatnsberi (20. jan. - 18. febr.) Samskipti þín við annað fólk ættu að ganga sérstaklega vel í dag. Fólk tek- ur mikið mark á því sem þú segir. Fiskar (19. feb. - 20. mars) Þú þarft að gæta þess að ganga ekki fram af sjálfri/sjálfum þér með vinnu í dag. Mundu að kapp er best með forsjá. Stjörnuspá Frances Drake Ljón Afmælisbörn dagsins: Hafa auðugt ímyndunarafl og sterka rétt- lætistilfinningu og kunna þá list að halda sig í nútíðinni. Nánustu sambönd þeirra verða í brennidepli á árinu. Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum grunni vísindalegra staðreynda. Félagsstarf Hæðargarður 31 | Púttarar Hæðargarðs standa fyrir heimsókn í félagsmiðstöðina Árskóga þriðjudaginn 27. júlí kl. 13.30. Upplýsingar hjá Helgu Guðbjörnsdóttur 553 4003 og Guðfinnu Þórarinsdóttur 553 3811. Fréttir Fjölskylduhjálp Íslands | Eskihlíð 2–4, í fjósinu við Miklatorg. Móttaka á vörum mánudaga kl. 13–17. Úthlutun á vörum þriðjudaga kl. 14–17. Netfang dalros@isl- andia.is. Kirkjustarf Strandarkirkja í Selvogi | Kirkjudagar í Strandarkirkju. Dagskráin hefst með messu kl. 14. Háteigskirkja | Eldri borgarar. Félagsvist á morgun í Setrinu kl. 13. Skráning í síma 511 5405. Grafarvogskirkja | Bænahópur kl. 20. Tek- ið er við bænarefnum virka daga frá kl. 9– 17 í síma 587 9070. Þorlákskirkja | TTT-starf í kvöld, sunnu- dag, kl. 19.30. Mannamót Gamli bærinn í Laufási | Starfsdagur við Gamla bæinn í Laufási. Hefst kl. 14. Klink & Bank | Markaður. Opinn frá 13–18. Myndlist Gestavinnustofa Gilfélagsins | Joachim Stallecher mun sýna vatnslitaverkin sem hann hefur unnið sl. vikur frá kl. 13-17. Síð- asti sýningardagur. Edinborg á Ísafirði | Pétur Tryggvi Hjálm- arsson gull- og silfursmiður og Hlynur Þór Magnússon skrifari opna sýningu kl. 17. Sýningin nefnist Silfurljóð og má þar líta verk smíðuð úr orðum og málmi. Sýningin mun taka stöðugum breytingum auk þess sem gestir koma fram. Safnasafnið Svalbarðsströnd | Valdimar Bjarnfreðsson. Síðasti sýningardagur. Leiklist Furulundur | í Heiðmörk. Stútungasaga kl. 16. Skemmtanir Bar 11 | Bíókvöld kl. 21. Sýndar verða valdar myndir eftir Tim Burton. Söfn Árbæjarsafn | Heyjað á túninu við Árbæ. Gestum velkomið að taka þátt í heyskapn- um. Húsfreyjan í Árbæ býður upp á lumm- ur og á baðstofuloftinu verða saumaðir roðskór. Mjaltir eru kl. 16.30. Karl Jónatansson leik- ur á harmóníku í Dillonshúsi. Í Listmuna- horni safnsins sýnir Jórunn Dóra Sig- urjónsdóttir töskur og púða úr skinni og leðri. Útivist Útivist | gengur frá Draumadal með fram Bláfjöllum vestan megin og um Jósefsdal, á milli Vífilsfells og Sauðadalahnúka. Brott- för er frá BSÍ kl. 10.30. Tónlist Hallgrímskirkja | Bandaríski orgelleikarinn Gary Verkade leikur m.a. verk eftir Sweel- inck og Bach kl. 20. Stykkishólmskirkja | Áshildur Haralds- dóttir heldur tónleika á vegum Sum- artónleikaraðar í Stykkishólmskirkju. Flutt verður tónlist frá ýmsum tímabilum hinnar vestrænu tónleikasögu. Tónleikarnir hefj- ast kl. 17. Hóladómkirkja | Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og Páll Eyjólfsson gítarleikari. Tónleikarnir hefjast kl. 15. Akureyrarkirkja | Fjórðu Sumartónleikar í Akureyrarkirkju. Flytjendur eru tékkneski tónlistarhópurinn Musica ad Gaudium. Þau munu einnig leika í kvöldmessu í Akureyr- arkirkju kl. 20.30. Deiglan á Akureyri | Lövststakken kl. 21: Norsku tónlistarmennirnir: Benna Hauge, gítar, mandólín og banjo, Per Halvorsen, gítar og bassa, og Stein Nielsen á fiðlu, flytja: Blue grass, þjóðlagadjass og kelt- neska tónlist. Staðurogstund idag@mbl.is FÆREYSKU rokkhljómsveitirnar 48 pag- es og Speaker, sem hafa verið á þeysireið um landið og leikið á ólíkum stöðum, ljúka tónleikaferð sinni á tónleikum á Grand Rokk í kvöld. Ásamt þeim leikur hin ærsla- fengna sveit Heiða og heiðingjarnir og einnig hin endurreista sveit Dýrðin, sem meðal annars inniheldur Magga „strump“ en hann gerði garðinn frægan hér áður fyrr með hljómsveitinni California Nest- box. Á myndinni eru „Heiðingjarnir“ Elvar Geir Sævarsson og Ragnheiður Eiríksdóttir, eða Heiða. Heiða, sem vakti fyrst veru- lega athygli með Unun, hefur haft í mörgu að snúast í ár. Hún tók þátt í Evr- óvisjónkeppninni hér á landi í vor, gekk í pönkrokksveitina Dys, gerði disk með spunninni tónlist við ljóð Charles Buk- owski og er nú, í enda árs, kominn fram með spánnýja plötu sem er eignuð Heiðu & Heiðingjunum. Tónleikarnir á Grand Rokk hefjast kl. 22 og það er 20 ára aldurstakmark. Morgunblaðið/Júlíus Færeyskur sunnudagur Evrópumótið í Málmey. Norður ♠D532 ♥ÁKG72 ♦K95 ♣4 Vestur Austur ♠KG106 ♠Á984 ♥963 ♥1084 ♦876 ♦DG1043 ♣762 ♣8 Suður ♠7 ♥D5 ♦Á2 ♣ÁKDG10953 Svíarnir Fredin og Lindkvist spila flókið kerfi, þar sem opnun á einu laufi getur verið eitt af þrennu: (1) jöfn hönd með 11-13 punkta, (2) 11-16 með lauf og stuttan tígul, eða (3) 17+HP og allar skiptingar. Þessi opnun er augljóslega nokkuð veik fyrir inn- ákomum, en jafnvel þótt andstaðan hafi hægt um sig er nægt svigrúm til misskilnings. Þeir félagar lentu í happasælum misskilningi í þessu spili gegn Ítölum: Suður gefur; enginn á hættu. Vestur Norður Austur Suður Lauria Lindkvist Versace Fredin -- -- -- 1 lauf Pass 1 spaði Pass 1 grand Pass 2 grönd Pass 3 lauf Pass 3 tíglar Pass 3 grönd Pass 4 hjörtu Pass 7 grönd Pass Pass Pass Laufið er eins og fyrr er rakið og svarið á spaða lofar hjartalit og já- kvæðum spilum (nema hvað!). Eitt grand opnarans sýnir sterku spilin og tvö grönd á móti lofa fjórlit í spaða. Þrjú lauf er biðsögn og með þremur tíglum hefur norður lýst skiptingunni að fullu: 4-5-3-1. Þá loks kom að eðli- legri sögn, þremur gröndum. Lind- kvist taldi sig eiga fyrir slemmuboði og breytti í fjögur hjörtu. Fredin túlk- aði sögnina sem svo að styrkur makk- ers lægi í hjarta og spaða (úr því norð- ur sagði ekki fjóra tígla) og teiknaði upp í huganum spaðaás og ÁK í hjarta, en þá eru þrettán slagir á borð- inu. Víkur þá sögunni til Versace í aust- ur. Hann harmaði að eiga ekki út, en þorði ekki að dobla, því hann óttaðist að makker tæki dobl sem beiðni um útspil í hjarta (sem er hinn raunveru- legi fyrsti litur blinds). Versace pass- aði því og vonaði það besta. En Lauria var skiljanlega ekki ginnkeyptur fyrir að spila út frá KG í spaða og byrjaði á tígli. Fredin gat þá lagt upp. Á hinu borðinu sögðu Bocchi og Duboin sex lauf, sem er hinn rétti samningur á spilin, svo Svíar unnu „aðeins“ 11 IMPa. BRIDS Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is Staður og stund á mbl.is. Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að finna á Staður og stund á forsíðu mbl.is. Meira á mbl.is Sængurfataverslun, Glæsibæ • Sími 552 0978 Sængur, koddar og dýnuhlífar
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.