Morgunblaðið - 25.07.2004, Side 48

Morgunblaðið - 25.07.2004, Side 48
MENNING 48 SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Sumarkvöld við orgelið í Hallgrímskirkju 25. júlí kl. 20.00: Gary Verkade frá Svíþjóð leikur verk eftir Bach, Sweelinck og Tournemire. Sun . 25.07 20 .00 ö r fá sæ t i laus Fös . 06 .08 20 .00 Lau . 07 .09 20 .00 Fös . 13 .08 20 .00 Lau . 14 .09 20 .00 ATH ! ATRIÐ I Í SÝNINGUNNI ER EKKI FYRIR V IÐKVÆMA ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA MIÐASALAN er opin á fame.is, á þjónustuborði Smáralindar og í síma 528 8008 JÓNSI SVEPPI Yfir 12.000 miðar seldir ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA Fös. 6. ágúst kl. 19.30 Lau. 7. ágúst kl. 19.30 Fim. 12. ágúst kl. 19.30 Fös. 13. ágúst kl. 19.30 Lau. 14. ágúst kl. 18.00 Fim. 19. ágúst kl. 19.30 Fös. 20. ágúst kl. 19.30 Sun. 22 ágúst kl. 19.30 7-Sýn úr norðri nefnist sumarsýning Norræna hússins sem stendur til 29. ágúst næstkomandi. Um er að ræða samýningu sjö myndlistarkvenna frá Norðurlöndum, þeirra Jóhönnu Bogadóttur og Valgerðar Hauks- dóttur frá Íslandi, Outi Heiskanen og Ullu Virta frá Finnlandi, Helmtrud Nyström og Ullu Fries frá Svíþjóð og Sonju Krohn frá Noregi. Norræna húsið er fyrsti áfangastaður sýning- arinnar áður en hún heldur til Nor- egs, Danmerkur og Finnlands. Allar myndlistarkonurnar utan ein hafa áður sýnt verk sín hér á landi og allar hafa þær unnið til viðurkenn- inga og sýnt mikið á alþjóðlegum vettvangi. En þær þekkja líka vel hver til annarrar og hafa starfað sam- an í ólíku samhengi. Sýning þeirra í Norræna húsinu myndar nokkurs konar samtal sjö myndlistarkvenna sem horfa á heiminn úr norðri og tjá þá sýn á persónulegan hátt. „Við vinnum hver um sig á eigin for- sendum, en engu að síður liggur sam- eiginlegur þráður í gegnum verkin á sýningunni. Allar tökum við á ein- hvern hátt á spurningunni um stöðu manneskjunnar í heiminum og sam- spili manneskju og náttúru,“ segir Jó- hanna Bogadóttir. En nálgunin er gjarnan heimspekileg, þar sem kunn- ugleg minni eða mótíf eru látin skír- skota til breiðara samhengis, þ.e. horft er á það sem er framandi í gegnum hið kunnuglega. Í mál- verkum Jóhönnu Bogadóttur takast form og litir á og endurspegla átök andstæðra afla í náttúrunni. „En fyr- ir mér verða þessi átök myndhverfing fyrir tilveru manneskjunnar,“ segir Jóhanna. Líkt og sjá má á málverkum á borð við „Brotinn heimur“ er sú til- vera mörkuð grimmum átökum, sem við hér í norðrinu og örygginu viljum e.t.v. ekki alltaf horfast í augu við. Hið persónulega og hið almenna Sonja Krohn frá Noregi notar hefðbundin mótíf og portrettmyndir til þess að koma áleiðis hugleiðingum um stöðu manneskjunnar í heim- inum. Skírskotunin er bæði tímalaus og samtímaleg, eins og t.d. í trérist- unni „Madonna“, þar sem mad- onnumynd í anda rússneskra íkona er sett í samhengi við stríðsátök sam- tímans fyrir botni Miðjarðarhafs. „Mannsmyndirnar eru margar hverj- ar sóttar í hefðbundnar fyrirmyndir, eins og t.d. íkonagerð, en þar tek ég minni úr trúarlegri list og færi þau í veraldlegt samhengi. Þá notast ég alltaf við raunverulegar fyrirsætur og reyni að láta myndirnar af þessum manneskjum segja eitthvað um lífið í heild,“ segir Krohn. Fyrir Valgerði Hauksdóttur er myndlistin aðferð til þess að hugsa um heiminn og stöðu okkar í honum, þar sem hvert líf er ákaflega stutt, en um leið hluti af stærri heild. Þetta leitast Valgerður við að endurspegla í collage-verkum, sem samsett eru úr ljósmyndum og efnum sem hún hefur tekið eða safnað víðs vegar um heim- inn. Eitt verkanna inniheldur m.a. jafn ólíka þætti og mynstraða efn- isbúta frá Indlandi og ljósmyndir af fólki sem var að skoða og upplifa Ís- land í fyrsta sinn. Valgerður undir- strikar í þessu samhengi þann skiln- ing á yfirskrift sýningarinnar, að þar sé ekki aðeins horft úr norðri á fjar- lægar slóðir. „Þetta ferli felst einnig í því að líta til baka á okkar eigin bak- grunn,“ segir Valgerður. Helmtrut Nyström frá Svíþjóð vinnur með hið persónulega, jafnvel ævisögulega, sem blandast í verkum hennar hinu óræða og hættulega. „Í grunninn nota ég ljósmyndir, sem ég ráðskast með þannig að veruleikinn á myndunum fær örlítið ókennilegan blæ. Sum mótífanna sæki ég í mína eigin ævisögu, en í framsetningunni er þetta þó ekki mín saga, eða mitt heimili, heldur einhver stærri saga og um leið eitthvað ókunnugt,“ segir Ny- ström. Mörg verkanna sýna heim barnsins, heim sem barnið vill ganga að sem öruggum og vísum, en á þó ekki ávallt því láni að fagna. Staða listamannsins Outi Heiskanen er meðal þekkt- ustu myndlistarmanna Finna en í list- sköpun sinni finnur hún innblástur í mörkunum milli mannlegrar tilveru og tilveru annarra lífvera. Þar lætur hún áhorfendum eftir stóran hluta túlkunarinnar. Þannig vinnur Outi út frá samtímanum og skapar m.a. óræð tengsl við andatrú fortíðarmenningar okkar. Finnska listakonan Ulla Virta er sú eina í hópnum sem ekki hefur sýnt verk sín áður hér á landi, en í verkum sínum horfir hún gagnrýnum augum á stöðu manneskjunnar í nú- tímanum. Líkt og í verkum margra listakvennanna á sýningunni eru við- fangsefnin sótt í þann veruleika sem Virta þekkir. Þar leitast hún þó ekki við að líkja eftir umhverfinu, heldur að túlka skynjun sína á því, og fanga þannig fegurðina, ljótleikann og hverfula tilfinningu augnabliksins. Sænska listakonan Ulla Fries hef- ur skapað sér mikla sérstöðu með listsköpun sinni, en ofurnatúralískar og nostursamlegar koparstungur hennar vekja í senn forvitni og tilfinn- ingu fyrir vísindalegri nákvæmni. „Ég kem úr fjölskyldu grasafræð- inga, og ólst upp við að skoða mynd- skreytingar í náttúrufræðibókum föður míns, en teikningarnar voru sá hluti vísindaritanna sem heilluðu mig mest,“ segir Ulla. „Ég hef ekki getað slitið mig frá þessu raunvísindalega tungumáli sem ég ólst upp við, en reyni að veita einhverju persónulegu inn í það, tjá þá forvitni og tilfinn- ingar sem þær vöktu með mér. Þessi samblöndun persónulegrar tjáningar og vísindalegrar nákvæmni birtist glöggt í koparstungunni „Heimspek- ingurinn“, forvitnilegri mynd af leð- urblöku sem hefur tekið á sig mann- legt yfirbragð. „Veran býr yfir einhverjum leyndardómi sem hún verndar og felur nærri sér, en reynir á sama tíma að bjóða öðrum að kynn- ast. Það er kannski táknrænt fyrir stöðu og tjáningu listamannsins,“ segir Ulla að lokum. Meðal verka á samsýningunni 7-sýn úr norðri er „Heimspekingurinn“, kop- arstunga eftir sænsku myndlistarakonuna Ullu Fries. Morgunblaðið/Ásdís Ulla Fries, Valgerður Hauksdóttir, Helmtrud Nyström, Jóhanna Boga og Sonja Krohn við verk sín í Norræna húsinu. Úr öryggi norðursins Á samsýningu sem nú stendur yfir í Nor- ræna húsinu staldra sjö norrænar myndlist- arkonur við og horfa á heiminn í kringum sig og um leið á eigin bakgrunn. Heiða Jóhannsdóttir ræddi við þær um kunnugleg og framandi viðfangsefni. heida@mbl.is TÉKKNESKI tónlistarhópurinn Musica ad Gaudium er nú staddur hér á landi og heldur hér þrenna tónleika. Það er Eydís Franzdóttir óbóleikari sem stendur fyrir komu hópsins til landsins, en hún mun koma fram með honum sem gesta- hljóðfæraleikari í nokkrum verkum. Eydís segir að hópurinn hafi sér- hæft sig í tónlist frá endurreisnar- og barokktímabilinu. Hann sé afar virtur á sínu sviði og mikill fengur sé í komu hópsins til Íslands. „Hann hefur hlotið fjölda viðurkenninga, meðal annars margoft gert upptökur fyrir tékkneska útvarpið, og haldið fjölda tónleika í Tékklandi og ná- grannalöndum,“ segir hún. Í Musica ad Gaudium eru Andrea Brožáková sópransöngkona, Alena Tichá semballeikari, Jaromír Tichý flautuleikari og Václav Kapusta fa- gottleikari. Allt er þetta tónlist- arfólk í fremstu röð, hver á sínu sviði. Hópurinn hefur starfað síðan árið 1987 og farið mjög víða, en hann er með höfuðstöðvar sínar í Pilzen í Vestur-Tékklandi. Eydís Franzdóttir var 1. óbóleik- ari tékknesku útvarpshljómsveit- arinnar í Pilzen á árunum 1992– 1994. Hún lék oft sem gestur með Musica ad Gaudium á þeim árum en haustið 2002 hófst samstarf þeirra að nýju er hópurinn bauð henni að vera gestur þeirra á tónleikum í ráð- húsinu í Pilzen. Eydís hefur komið fram á tónleikum víða um Evrópu, Norður-Ameríku og á Íslandi. Hún er m.a. meðlimur í Caput-hópnum og skipuleggjandi og óbóleikari Poulenc-hópsins. Undirbúningur í tvö ár Spurð um tildrög heimsóknar Mu- sica ad Gaudium segir Eydís: „Ég bjó í Tékklandi fyrir tíu árum og spilaði þá nokkrum sinnum með hópnum. Árið 2002 var mér svo boð- ið að spila með honum aftur, í Pilzen, og þá vaknaði sú hugmynd hvort ekki væri möguleiki á að hann kæmi hingað. Við höfum verið að undirbúa það síðan þá.“ Fyrstu tónleikarnir verða á laug- ardaginn, í Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd, kl. 14. Þá spilar hópurinn í Akureyrarkirkju á sunnudaginn kl. 17 og í Listasafni Sigurjóns Ólafssonar á þriðjudag kl. 20.30. Á efnisskránni verður aðallega barokktónlist, en einnig verða nýrri verk, meðal annars einleiksverk fyr- ir sembal eftir tékkneska tónskáldið Jiri Besdek. Tónlist | Musica ad Gaudium heldur þrenna tónleika hér á landi Morgunblaðið/Þorkell Musica ad Gaudium ásamt Eydísi Franzdóttur. Barokkmeistarar frá Tékklandi

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.