Morgunblaðið - 25.07.2004, Page 50

Morgunblaðið - 25.07.2004, Page 50
50 SUNNUDAGUR 25. JÚLÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 13.30 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Sýnd kl. 2, 3, 5, 6, 8, 9 og 11. B.i. 12 ára. HUGSAÐU STÓRT kl. 3.30, 6, 8.30 og 11. Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. 3 barnalegir menn 3 börn - 3 -falt gaman! Léttgeggjuð grínmynd l i l j í ÓÖH „Tvímælalaust besta sumarmyndin...“  SV MBL "Afþreyingarmyndir gerast ekki betri."“  ÞÞ.FBL. „Geðveik mynd. Alveg tótallí brilljant“ FRUMSÝNING Toppmyndin í USA Stærsta opnun á Will Smith mynd! Missið ekki af svakalegum spennutrylli af bestu gerð. 30 þúsund gestir Sýnd kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15. B.i. 12 ára.  SV MBL "Afþreyingarmyndir gerast ekki betri."“  ÞÞ.FBL. „Geðveik mynd. Alveg tótallí brilljant“ ÓÖH „Tvímælalaust besta sumarmyndin...“ FRUMSÝNING Toppmyndin í USA Stærsta opnun á Will Smith mynd! Missið ekki af svakalegum spennutrylli af bestu gerð. Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 12 ára. Sýnd kl. 3.40. 30 þúsund gestir Papana þarf ekki að kynnafyrir tónelskum Íslend-ingum en sveitina skipaþeir Dan Cassidy, Ey- steinn Eysteinsson, Georg Ó. Ólafs- son, Matthías Matthíasson, Páll Eyj- ólfsson og Vignir Ólafsson. Síðustu tvær hljómplötur þeirra félaga, með lögum Jónasar Árnason- ar, hafa verið þaulsætnar á vinsælda- listum hér á landi og um helgina kemur út nýjasta plata sveitarinnar, Leyndarmál frægðarinnar, en þar gefur að heyra 14 lög Bubba Mort- hens í Papa-búningi. Um tilurð og aðdraganda nýju plötunnar segir Páll: „Við vorum mikið að velta fyrir okkur hvað við ættum að gera eftir Jónasar-plöturnar þegar Bubbi kom til mín með þessa hugmynd. Mér fannst hún alveg fáránleg!“ við- urkennir hann og Matthías sam- sinnir. „Ég skellihló þegar ég heyrði þessa hugmynd fyrst. Okkur fannst þetta alveg óhugsandi. Maður hreyfir ekki við kónginum.“ „Ég sagði Bubba bara að gleyma þessu en hann lætur sjaldnast segja sér fyrir verkum,“ segir Páll. „Hann settist því niður með gít- arinn og spilaði fyrir mig svona 20 af lögunum sínum og sýndi mér teng- inguna. Hann er auðvitað þjóðlaga- söngvari og það erum við einnig. Hann náði að sannfæra mig en þá tók við að sannfæra restina.“ Matthías segir að endanleg ákvörðun um að gefa plötuna út hafi eiginlega ekki verið tekin fyrr en bú- ið var að taka hana upp. Vinnsluferli plötunnar hófst á því að Paparnir settust niður og hlýddu á öll lög Bubba Morthens sem gefin hafa verið út, en þau eru rúmlega 400. „Við völdum um 50 lög, svo 30 af þeim og enduðum svo með 14 lög sem við erum virkilega ánægðir með,“ segir Matthías. Af lögunum 14 hafa tvö ekki komið út áður en Bubbi samdi þau sér- staklega fyrir Papana og hina vænt- anlegu plötu. Bubbi Morthens er einhver þekkt- asti og afkastamesti tónlistarmaður Íslandssögunnar og mörg laga hans fólki afar hjartfólgin. Paparnir ráðast því ekki á garðinn þar sem hann er lægstur. Finnst þeim þetta ekkert hættulegt? „Jú, þetta er auðvitað alveg stór- hættulegt,“ segir Matthías og hlær. „En það verður ekki aftur snúið úr þessu,“ segir Páll. „Það sem skiptir máli er að Bubbi er sáttur og að hug- myndin kemur þaðan. Við hefðum aldrei haft hugmyndaflug í það að láta okkur detta þetta í hug. Okkur fannst þetta aftur á móti mjög spenn- andi og ögrandi verkefni.“ „Ég held að við gerum Bubba góð skil á plötunni,“ segir Matthías. Bubbi sjálfur er búinn að heyra plötuna og segist sáttur við útkom- una. „Sumt finnst mér alveg brilljant en annað finnst mér síðra. En það er bara eins og gengur og gerist,“ sagði hann í viðtali við blaðamann á dög- unum. „Mér finnst fínt að menn vilji spila lögin mín og menn hafa fullan rétt til að gera það með sínu nefi.“ Bubbi segir mörg laga sinna eiga vel heima hjá Pöpunum og segir það ekki skrýtið að heyra lögin sín í nýj- um búningi. „Maður heyrir lögin kannski öðru- vísi og sér þau á annan hátt,“ segir hann. 1. Öldueðli „Þegar við hlustuðum á lagið var það einróma samþykki að þetta væri lag fyrir Papana og var þetta fyrsta lagið sem allir voru algjörlega sam- mála um. Það er mikill „papismi“ í þessu lagi.“ 2. Strákarnir á Borginni „Við vorum svolítið efins um þetta lag í upphafi. Okkur fannst við ekki geta gert neitt við það og vildum ekki spila það nákvæmlega eins og það var áður. Eysteinn trommuleikari kom svo með þá góðu hugmynd að snúa laginu alveg við og það er spilað á röngunni ef svo má segja.“ 3. Söngurinn hennar Siggu „Þetta er eina lagið á plötunni sem Bubbi á ekki, en hann á textann. Það er skemmtilegur gítarleikur í laginu og við setjum það í nettan jameson- búning. Það mikið fjör og sum- arstemning í laginu. Við þurftum í raun bara að æfa þetta lag einu sinni, það steinlá hjá okkur.“ 4. Vorvísa „Þetta er annað nýju laganna sem Bubbi samdi sérstaklega fyrir þetta tilefni. Þetta er svona nett ádeila á það sem hefur verið að gerast í þjóð- félaginu. Þetta er ofsalega írskt lag hjá honum og passar okkur mjög vel. Það var mjög gaman að fá þessi tvö lög frá honum. Þau setja ákveð- inn svip á plötuna.“ 5. Aldrei fór ég suður „Það hljómar aðallega öðruvísi hjá okkur án þess að við séum að breyta laginu mikið. Lagið var samið á ákveðnu tímabili hjá Bubba, þegar ákveðinn hljómur var í tísku sem kannski gengur ekki allt of vel í dag. Við tökum lagið til baka í óraf- magnaða útgáfu og hröðum því að- eins. Það er mjög nakið og þurrt hjá okkur.“ 6. Skyttan „Þetta er frábært lag og við gerð- um í raun mjög mikið við það. Við Tónlist | Paparnir gefa út plötu með tónlist Bubba Morthens Morgunblaðið/Jim Smart Paparnir flytja lag af nýju plötunni sinni í Íslandi í dag. Hún inniheldur fjórtán lög, öll eftir Bubba Morthens. Gerum Bubba góð skil Um helgina kemur út ný plata með Pöp- unum þar sem þeir taka lög Bubba Mort- hens upp á sína arma. Paparnir Páll Eyj- ólfsson og Matthías Matthíasson leiddu Birtu Björnsdóttur í gegnum lögin á disk- inum, Leyndarmál frægðarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.