Morgunblaðið - 09.08.2004, Page 22
© DARGAUD
Bubbi og Billi
HEFURÐU KOMIÐ
HINGAÐ ÁÐUR?
ÞETTA ER SVO
ÓGNVEKJANDI AÐ ÞAÐ
KEMUR ENGINN HINGAÐ
LENGUR
ER ÞÉR
KALT?
ÉG HEFÐI ÁTT AÐ TAKA
MEÐ MÉR PEYSU. ÞAÐ ER
PÍNU VINDUR HÉRNA
ÞETTA MINNIR MIG Á
VAMPÍRUSÖGU
ÉG VIL EKKI HEYRA
ÞESSA SÖGU!
ÞAÐ VORU TVO
FÓRNARLÖMB SEM VORU
AÐ GANGA Í KIRKJGARÐI UM
MIÐJA NÓTT
EF ÞÚ ERT AÐ REYNA
AÐ HRÆÐA MIG ÞÁ
GETUR ÞÚ VERIÐ
ÁNÆGÐUR, VEGNA ÞESS
AÐ ÞAÐ TÓKST
OG ALLT Í EINU
HEYRÐIST
HRÆÐILEGT
HLJÓÐ
HÆTTU!
VISSIRÐU AÐ RÓMEÓ OG
JÚLÍA ERU GRAFIN Í
ÞESSUM KIRKJUGARÐI?
EN RÓMANTÍSKT!
Grettir
Smáfólk
Smáfólk
LENDIRÐU EINHVERN TÍMAN Í
ÞVÍ AÐ VERÐA ÞREYTTUR SEINT
UM EFTIRMIÐDAGINN?
ÞAÐ
GERI
ÉG
OG ÞESSI EFTIRMIÐDAGUR HEFUR
ENST Í 25 ÁR
YFIRHUNDURINN
ER HORFINN!!
HVAR ER
HANN? HANN
ER HORFINN!!
ÉG ÞORI
AÐ VEÐJ AÐ
ÁLAGIÐ VAR
OF MIKIÐ...
EN HVERT
HEFUR HANN
FARIÐ?
HALLÓ?
Dagbók
Í dag er mánudagur 9. ágúst, 222. dagur ársins 2004
Um daginn fórVíkverji akandi
frá Reykjavík til
Akureyrar. Það er
svo sem ekki í ann-
ála færandi. En svo
vildi til, að bíll Vík-
verja var drekkhlað-
inn af fólki og far-
angri og því varð
bensíneyðslan meiri
en ella og dugði
tankurinn tæpast
norður. Ákveðið var
að taka bensín í
Varmahlíð í Skaga-
firði til að verða nú
örugglega ekki
strandaglópar á Moldhaugnahálsi
eða einhverjum álíka vandræða-
legum stað. Í Varmahlíð er bens-
ínstöð Esso, tvær dælur, og hvor-
ug merkt þjónustu eða
sjálfsafgreiðslu, að Víkverji fékk
séð. Útiafgreiðslumaðurinn (sem
þegar Víkverji á sínum yngri ár-
um gegndi þessu starfi hét „bens-
íntittur“) var upptekinn við að af-
greiða úr báðum slöngunum á
annarri dælunni og Víkverjir brá
sér því í sitt gamla hlutverk og
dældi sjálfur – eins og hann gerir
reyndar alltaf þegar hann kaupir
bensín. Rak augun í að lítraverðið
var 111 krónur, og reiknaði með
að þar væri um að ræða verð á
lítra með þjónustu, þar sem fyrr
um daginn hafði lítrinn verið á 106
krónur í sjálfs-
afgreiðslu á Esso-
stöðinni sem Vík-
verji verslar jafnan
á í Reykjavík. Þeg-
ar kom að því að
greiða sopann
spurði Víkjverji
hvort hann fengi
ekki lítrann á sjálfs-
afgreiðsluverði, 106
krónur, þar sem
hann hefði jú dælt
sjálfur. Nei, kassa-
maðurinn sá öll
tormerki á að það
gæti gengið. Eins
og lesendur geta
sjálfir ímyndað sér lauk þessu að
sjálfsögðu með því að Víkverji
greiddi 111 krónur fyrir lítrann.
Þjónustuverð þótt hann hafi dælt
sjálfur vegna þess að afgreiðslu-
maðurinn var upptekinn við ann-
að. Víkverji verður að segja að
honum finnst þetta nú óþarflega
nánasarlegt af Esso (heitir það
ekki Olíufélag Íslands?), því Vík-
verji hélt að verðið á bensíninu
miðaðist við hvort kúnninn dælir
því sjálfur eða afgreiðslumaður
gerir það. En þarna virtist það
einfaldlega miðað við hvað stóð á
dælunni. Í það minnsta væri ráð
hjá þeim í Esso í Varmahlíð að
merkja báðar dælurnar þannig að
kúnninn viti að hann mun borga
þjónustuverð.
Víkverji skrifar... | vikverji@mbl.is
FJÖLDI fólks lagði leið sína á skáksýningu sem haldin var í Árbæjarsafni í
gær en þar leiddu saman hesta sína fulltrúar hinna ólíku kynslóða í sýning-
areinvígjum. Þar tefldu meðal annars saman feðgar og mæðgur, 83 ára fyrr-
um Íslandsmeistari og bráðefnileg 11 ára stúlka. Húnvetningar settust einn-
ig að tafli en þeir hafa löngum verið rómaðir fyrir mikla hæfileika við
skákborðið.
Með fram skáksýningunni var gestum og gangandi boðið að tefla og jafnvel
spreyta sig gegn unglingalandsliðsmönnum Taflfélags Reykjavíkur og kom-
ust færri að en vildu.
Árbæjarsafn stóð að skáksýningunni í samstarfi við Taflfélag Reykjavíkur.
Kynslóðirnar mættust
í Árbæjarsafni
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍMAR: Skiptiborð: 569 1100. Aug-
lýsingar: 569 1111. Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329, fréttir 569
1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, auglýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811,
gjaldkeri 569 1115. NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.400 kr. á mánuði
innanlands. Í lausasölu 220 kr. eintakið mánudaga til laugardaga. Sunnudaga 350 kr.
Orð dagsins: Gleð þú sál þjóns þíns, því að til þín, Drottinn, hef ég sál
mína.
(Sl.. 86, 4.)