Morgunblaðið - 09.08.2004, Blaðsíða 24
Skugginn/Barbara Birgis
Brúðkaup | Hinn 15. maí sl. voru gefin
saman í hjónaband í Dómkirkjunni þau
Hrönn Ósk Sævarsdóttir og Axel H.
Þorleifsson. Prestur var sr. Jakob
Hjálmarsson.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
DAGBÓK
24 MÁNUDAGUR 9. ÁGÚST 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Fös . 13 .08 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
Lau . 14 .08 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
ATH ! ATRIÐ I Í SÝNINGUNNI
ERU EKKI FYRIR V IÐKVÆMA
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
MIÐASALA: 552 3000
Miðasalan er opin frá kl. 10-18
SELJAVEGI 2 • 101 REYKJAVÍK
BEINT FRÁ SVÖRTU NEW YORK
SÖNGSKEMMTUNIN
HARLEM SOPHISTICATE
Föstud. 13. ágúst kl. 20.00 Frumsýning
Laugard. 14. ágúst kl. 20.00
Föstud. 20. ágúst kl. 20.00
Laugard. 21. ágúst kl. 20.00
AÐEINS
ÞESSAR
FJÓRAR
SÝNINGAR!
MIÐASALAN er opin á fame.is,
á þjónustuborði Smáralindar
og í síma 528 8008
JÓNSI
SVEPPI Yfir 13.000 miðar seldir
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
Fim. 12. ágúst kl. 19.30 Fös. 13. ágúst kl. 19.30
Lau. 14. ágúst kl. 18.00 Fim. 19. ágúst kl. 19.30
Fös. 20. ágúst kl. 19.30 Sun. 22 ágúst kl. 19.30
Þriðjudagstónleikar
10. ágúst kl. 20:30
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar,
Laugarnestanga 70, 105 Rvík.
www.lso.is - lso@lso.is
Kristjana Helgadóttir flauta,
Ingólfur Vilhjálmsson klarinetta og
Gunnhildur Einarsdóttir harpa.
Verk eftir Stravinsky, Denisov,
Berio, Scelsi, Carter,
Stockhausen, Takemitsu og
Castagnoli
17. ágúst kl. 20:30
Tangókvöld með Olivier Manoury
bandoneonleikara
Erfiðar aðstæður fyrir
fótgangandi og þung
skattbyrði öryrkja
ÉG VAR að fara yfir gatnamót
Lönguhlíðar og Miklubrautar, þar
er allt sundurgrafið og engar leið-
beiningar fyrir gangandi vegfar-
endur. Þar sem ég er sjónskertur og
á erfitt með að komast leiðar minn-
ar, var þetta mjög bagalegt og ekki
óhætt að fara út á þessar þungu um-
ferðargötur. Eins var á frídegi versl-
unarmanna, á gatnamótum Hring-
brautar, Miklubrautar og Snorra-
brautar var allt sundurgrafið og
heldur engar leiðbeiningar fyrir fót-
gangandi. Ég vil eindregið hvetja til
úrbóta um að hugað verði að leiðum
fyrir fótgangandi og að þær verði
skilmerkilega merktar.
Eins vil ég benda á athyglisverða
grein á baksíðu Fréttablaðsins 5.
ágúst. Þar er fjallað um laun for-
stjóra nokkurs sem eru 61. þúsund
krónur á mánuði. Ég er öryrki og
borga árlega í skatta á annað hundr-
að þúsund og nágrannahjón mín sem
bæði eru öryrkjar borga á þriðja
hundruð þúsund en þessi forstjóri
borgar væntanlega ekki til sam-
félagsins.
Gangandi skattgreiðandi.
Gullkeðja tapaðist –
fundarlaun
UM MIÐJAN maí sl. tapaðist gull-
hálsfesti á höfuðborgarsvæðinu.
Keðjan hefur mikið tilfinningalegt
gildi fyrir eigandann og því er heitið
veglegum fundarlaunum.
Finnandi vinsamlegast hafi sam-
band við Ingibjörgu í síma 555 4429
eða 696 0321.
Gleraugu fóru í sjóinn
við Ingólfshöfða
UM MIÐJAN júlí var ég við Ingólfs-
höfða og fékk yfir mig mikla öldu
sem skellti mér í sjóinn. Við þetta
tapaði ég gleraugunum mínum í sjó-
inn. Ef svo ólíklega vildi til að þau
ræki á land og einhver fyndi þau þá
er viðkomandi vinsamlega beðinn að
láta mig vita í síma 869-5596.
Kettlingar óska
eftir heimili
TVÆR sjö vikna þrílitar læður óska
eftir góðu heimili. Kassavanar og
blíðar. Upplýsingar gefur Linda í
síma 699 5006.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Vinnustofa kl. 9, boccia kl.
10, félagsvist kl. 14. Hárgreiðsla, fótaað-
gerð.
Árskógar 4 | Boccia kl. 11, félagsvist kl.
13.30, pútt kl. 10–16.
Ásgarður | Glæsibæ. Brids kl. 13. Handa-
vinna og spjall kl. 13.30.
Bólstaðarhlíð 43 | Handavinna kl. 9–16,
samverustund kl. 10–11.
Dalbraut 18–20 | Leikfimi kl.10–10.45,
brids kl. 13–16.45, pútt.
Dalbraut 27 | Handavinnustofan kl. 8–16,
verslunin kl. 10–13, leikfimi kl. 11–11.30.
Gerðuberg | Lokað vegna sumarleyfa til 17.
ágúst.
Gjábakki | Fannborg 8. Handavinna kl. 9–17.
Gullsmári | Gullsmára 13. Félagsþjónustan
opin virka daga kl. 9–17.
Hraunbær 105 | Fótaaðgerð kl. 9, bæna-
stund kl. 10, hárgreiðsla kl. 13.
Hraunsel | Flatahrauni 3. Opnað kl. 9, kl.
15.30 fundur með ferðanefnd v/ orlofs-
ferðar 15. ágúst.
Hvassaleiti 56–58 | Jóga kl. 9–10 og kl. 10–
11, spilað kl. 13–16. Fótaaðgerð.
Hæðargarður 31 | Félagsstarfið. Vinnustofa
kl. 9–16.30, pútt, hárgreiðsla og bað kl. 9–
12, félagsvist 13.30.
Kópavogur | Félag eldri borgara. Félagsvist
í Gullsmára 13 kl. 20.30. Fótaaðgerð kl. 10.
Skrifstofan opin kl. 10–11.30.
Langahlíð 3 | Fótaaðgerð kl. 9, verslunin kl.
10–12, föndur og handavinna kl. 13.
Norðurbrún 1 | Fótaaðgerð kl. 9–16, ganga
kl. 10–11.
Vesturgata 7 | Fótaaðgerð og hárgreiðsla
kl. 9–16, hannyrðir kl. 9.15–15.30, boccia kl.
9–10.
Vitatorg | Smiðjan kl. 8.45–11.45, hár-
greiðsla kl. 9–16, morgunstund kl. 9.30–10,
handmennt kl. 9.30–16, fótaaðgerð kl. 10–
16, spil kl. 13–16.
Sléttuvegur 11 | Opið í ágúst frá kl. 10–14.
Fundir
Samtök | þolenda kynferðislegs ofbeldis.
Fundir mánudaga kl. 20 að Sólvallagötu 12.
Norskir dagar | Seyðisfirði. klukkan 20.
Setning í Herðubreið. Fyrirlestur Reynis
Katrínar um Norrænar Gyðjur.
Opnun sýninga Reynis Katrínar frá Sólgarði
og Guðrúnar Ásgerðar Steingrímsdóttur
frá Stekkjarflötum, ásamt skinnum og fl. frá
Norsku súturunum Lene og Beate. Sýning-
arnar verða opnar alla Norsku dagana frá
klukkan 13 – 19
Einnig verða Langspil frá Helga Þórssyni
frá Kristnesi til sölu.
Staðurogstund
idag@mbl.is
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Staður og stund á forsíðu mbl.is.
Meira á mbl.is
BJÖRN Steinar Sólbergsson organisti sest við orgel Reykholtskirkju kl. 20.30 annað
kvöld og flytur verk eftir Johann Sebastian Bach, Felix Mendelssohn-Bartholdy, César
Franck og Pál Ísólfsson.
Tónleikarnir eru liður í tónleikaröð sumarsins í samvinnu Orgel- og söngmálasjóðs
Bjarna Bjarnasonar frá Skáney og Félags íslenskra organleikara. Þriðju og síðustu tón-
leikarnir í sumar verða 17. ágúst með þeim Herði Áskelssyni, organista við Hallgríms-
kirkju í Reykjavík, og Ingu Rós Ingólfsdóttur sellóleikara.
Morgunblaðið/Golli
Orgeltónleikar í Reykholtskirkju
1. e4 c5 2. c3 Rf6 3. e5 Rd5 4. d4 cxd4
5. Rf3 e6 6. cxd4 d6 7. Bc4 Rc6 8. 0-0
Rb6 9. Bd3 Rb4 10. Be4 d5 11. Bd3
Rxd3 12. Dxd3 Bd7 13. b3 Hc8 14. Ba3
Bxa3 15. Rxa3 0-0 16. Hfc1 De7 17.
Rc2 Hc7 18. Re3 Hfc8 19. Dd2 Bb5 20.
Re1 Da3 21. Hxc7 Hxc7 22. f4 Rd7 23.
f5 b6 24. Rf3 Da5 25. Df2 Dc3 26. Hd1
Bd3 27. fxe6 fxe6 28. Rg5 Rf8
Staðan kom upp í skákhátíðinni í
Pardubice sem lauk fyrir skömmu í
Tékklandi. Margir Íslendingar voru á
meðal keppenda og hér hafði Stefán
Kristjánsson (2.410) hvítt gegn stór-
meistaranum Vlastimil Babula
(2.569). 29. Rxe6! Rxe6 30. Rxd5 Dc1
31. De1! Dc2 32. Rb4? Hvítur hefði
staðið með pálmann í höndunum eftir
32. Rxc7 Be4 33. Df1! Eftir textaleik-
inn nær svartur að bjarga sér fyrir
horn. 32. ...Db2 33. Rxd3 Dxd4+ 34.
Rf2 Dc5 35. b4 Dc2 36. Dd2 Dxd2 37.
Hxd2 Hc1+ 38. Hd1 Hc2 39. a3 og
jafntefli samið.
SKÁK
Hvítur á leik.
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Evrópumótið í Málmey.
Norður
♠86
♥D6 V/Allir
♦ÁKD76532
♣10
Vestur Austur
♠ÁD95432 ♠107
♥84 ♥ÁKG105
♦9 ♦84
♣963 ♣DG85
Suður
♠KG
♥9732
♦G10
♣ÁK742
Tvisvar á EM fóru spilarar í opna
flokknum 3400 niður í redobluðum
samningi. En það voru dönsku Mad-
sen-bræðurnir sem fengu verstu út-
reiðina í dobluðu spili. Þeir voru í
NS gegn Tyrkjunum Zorlu og Ass-
ael:
Vestur Norður Austur Suður
Zorlu M. Madsen Assael L. Madsen
2 tíglar * 3 tíglar Pass 3 grönd
Pass Pass Dobl Allir pass
Enn á ný var það multi-sagnvenj-
an sem var örlagavaldurinn, en í
þetta sinn var þó ekki um neinn mis-
skilning að ræða, heldur hreina
óheppni. Á flestum borðum vakti
vestur á þremur spöðum, sem neyddi
norður til að koma inn á fjórum tígl-
um. Það gerðist til dæmis á báðum
borðum í leik Íslands og Skotlands.
Matthías Þorvaldsson var í suður og
tók góða ákvörðun þegar hann pass-
aði fjóra tígla – einn niður og 100 til
Skota. Á hinu borðinu hækkaði suður
í fimm tígla, sem Þorlákur Jónsson í
austur doblaði. Tveir niður, 500, og 9
IMPar til Íslands.
En aftur að leik Dana og Tyrkja.
Zorlu er varfærinn spilari og hann
vakti rólega á veikum tveimur, eða
multi-afbrigðinu, sem sýnir sex-spila
hálit. Við því hlýtur norður að segja
þrjá tígla og nú er fátt eðlilegra en
að reyna þrjú grönd með suðurspilin,
þótt það megi deila um þá hörku að
sitja í geiminu dobluðu (og þá er það
kannski frekar norður sem á að taka
út).
Zorlu var með puttana á réttum
stað þegar hann valdi hjartaáttuna
sem útspil. Assael tók strax fimm
slagi á hjarta, og þegar hann skipti
yfir í spaða átti Zolu sjö slagi þar!
Átta niður, takk fyrir, og 2300 í dálk
Tyrkjanna.
Schaltz-hjónin dönsku fengu 200 á
hinu borðinu fyrir að taka fimm tígla
tvo niður, en það var ekki upp í nös á
ketti – 19 IMPar til Tyrkja.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Brúðkaup | Hinn 12. júní sl. voru gef-
in saman í hjónaband í Dómkirkjunni
þau Hildur Ólafsdóttir og Einar Páll
Kjærnested. Prestur var sr. Pálmi
Matthíasson.
Skugginn/Barbara Birgis
Hlutavelta | Þessir ungu drengir,
Skúli Arnarsson og Emil Þór Gunn-
arsson, seldu flöskurog ýmist dót og
færðu Kristniboðssambandinu ágóð-
ann, rúmar tvö þúsund krónur. Þeir
vildu með því styrkja kristniboðið og
fátæk börn í Afríku. Þeim eru hér með
færðar þakkir fyrir gjöfina.
Brúðkaup | Hinn 24. júní sl. voru gef-
in saman í hjónaband í Eyrarbakka-
kirkju þau Charlotte Bøving og Bene-
dikt Erlingsson. Prestur var sr.
Bernharður Guðmundsson.
Skugginn/Barbara Birgis
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
Fréttasíminn
904 1100