Morgunblaðið - 07.09.2004, Page 2
FRÉTTIR
2 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
FÁI AÐ ÆTTLEIÐA
Nefnd forsætisráðherra um rétt-
arstöðu samkynhneigðra hvetur
kirkjuna til að gefa samkynhneigða
saman og leggur fram í nýrri
skýrslu m.a. þær tillögur að samkyn-
hneigð pör í staðfestri samvist fái að
ættleiða íslensk börn. Nefndin klofn-
aði í afstöðu sinni til ættleiðingar er-
lendra barna og tæknifrjóvgana
lesbía.
Mannfall á Gaza
Þrettán Palestínumenn biðu bana
og tuttugu og fimm særðust þegar
ísraelskar hersveitir gerðu árásir á
æfingabúðir Hamas-samtakanna á
Gaza-svæðinu í gærkvöldi. Talið er
að árásirnar nú séu svar Ísraela við
tveimur sprengjuárásum sem Ham-
as stóð fyrir á þriðjudag og kostuðu
sextán manns lífið.
Síminn betri söluvara
Geir H. Haarde fjármálaráðherra
segir að kaup Símans á 26,2% hlut
Fjörnis ehf. í Skjá einum geri fyr-
irtækið að betri söluvöru fyrir ríkið.
Síminn sé að gæta sinna hagsmuna á
viðskiptalegum forsendum og þetta
hafi ekki verið pólitísk ákvörðun.
Uppskurðurinn gekk vel
Læknar Bills Clintons, fyrrver-
andi Bandaríkjaforseta, spá því að
hann nái fullum bata en Clinton
gekkst undir hjartauppskurð í gær.
Uppskurðurinn hafi þó leitt í ljós að
ástand æðakerfisins hafi verið orðið
mjög alvarlegt og sögðu læknarnir
að hætt hefði verið að Clinton hefði
fengið alvarlegt hjartaáfall í nánustu
framtíð ef ekki hefði verið brugðist
við nú.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 22
Fréttaskýring 8 Minningar 24/30
Viðskipti 12 Dagbók 32/34
Úr verinu 13 Víkverji 32
Erlent 14 Myndasögur 32
Minn staður 15 Staður og stund 34
Akureyri 16 Menning 35/41
Suðurnes 17 Af listum 36
Austurland 18 Kvikmyndir 36
Landið 19 Bíó 38/41
Daglegt líf 19 Ljósvakar 42
Umræðan 20/21 Veður 43
Bréf 21 Staksteinar 43
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull-
trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf
Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl
!
"
#
$
%&' (
)***
HJÁVEITUGÖNGIN í stæði Kára-
hnjúkastíflu flytja 10–15% minna
vatn en gert var ráð fyrir, samkvæmt
bráðabirgðaniðurstöðum athugunar á
ástæðum þess að vatnsborð Jöklu
hækkaði jafnmikið ofan varnarstífl-
unnar og raun bar vitni um í ágúst.
Þegar lækkað hafði nægjanlega í
Jöklu, Jökulsá á Dal, var farið inn í
efri hjáveitugöngin og kannað hvort
eitthvað hefði hrunið úr þeim eða önn-
ur fyrirstaða myndast sem dregið
hafði úr vatnsrennsli um þau í vatna-
vöxtunum. Ekkert slíkt kom í ljós.
Sigurður Arnalds, talsmaður
Landsvirkjunar vegna Kárahnjúka-
virkjunar, segir skýringuna á minna
rennsli mega hins vegar rekja til
breytinga í göngunum á fram-
kvæmdatímanum, einkum til styrk-
ingar þeirra, sem dregið hafi úr flutn-
ingsgetu ganganna. Alltaf séu
einhver skekkjumörk í reikningum af
þessu tagi.
Varnarstíflan var hækkuð um 17
metra vegna vatnavaxta í ágústbyrj-
un en það reyndist vera mun meira en
þörf var á þegar upp var staðið og að
sögn Sigurðar var aldrei hætta á að í
stífluna kæmi skarð eða að hún gæfi
eftir á nokkurn hátt þegar vatnavext-
irnir voru sem mestir.
Fá meiri þrýsting og hraðara
rennsli með hækkun garðsins
Varnarstíflan er bráðabirgðamann-
virki sem ætlað er að verja vinnu-
svæðið neðan við, þar sem unnið er að
fremsta hluta sjálfrar Kárahnjúka-
stíflu. Hjáveitugöngin eru líka bráða-
birgðamannvirki og gegna því hlut-
verki að veita Jöklu fram hjá
stíflustæðinu á framkvæmdatíman-
um. Neðri hjáveitugöngunum verður
lokað áður en Hálslón myndast en efri
hjáveitugöngunum verður síðar
breytt í botnrásargöng, varanlegan
hluta af stíflumannvirkjunum.
„Bráðabirgðastíflan var hugsuð
upprunalega fyrir ákveðinn viðburð,
kannski flóð sem kæmi að meðaltali á
20 ára fresti og hæð hennar miðuð við
það. En þegar þeirri hæð er náð skila
göngin kannski ekki því vatnsmagni
sem menn höfðu reiknað með. Lausn-
in á því var einfaldlega að hækka
garðinn en þannig fá menn meiri
þrýsting og hraðara rennsli.“
Sigurður segir að fyrst hafi menn
hugsað sér að hækka stífluna sem
nam því að leiðrétta fyrir mismuninn í
vatnsrennslinu en í kjölfar veðurspár
um eina mestu hitabylgju í manna
minnum í marga daga hafi menn
ákveðið að hafa vaðið verulega fyrir
neðan sig og hafi þess vegna ákveðið
að hækka stífluna myndarlega. Svo
þegar á hafi reynt í hlýindunum hafi
flóðið ekki alveg náð flóðinu sem kom
5. ágúst en það flóð hafi verið sam-
bland af rigningu og hita. „Það var
það mikið í húfi að tefja ekki verkið
þannig að menn ákváðu að taka enga
áhættu. En það var fyrst og fremst
þessi svakalega spá sem gerði það að
verkum að menn urðu skelkaðir og
ruku til og hækkuðu garðinn,“ segir
Sigurður Arnalds.
Hjáveitugöng Kárahnjúkavirkjunar athuguð eftir hlaup
Flytja 10–15% minna
vatn en reiknað var með
ÞAU eru ýmis farartækin á þjóðvegum landsins, en
varla eru þeir margir sem ferðast um landið á
hjólastól, eins og þessi þýski dugnaðarforkur sem
lætur fötlun ekki stöðva sig. Hér ræðir Sigurgeir L.
Ingólfsson, lögreglumaður á Hvolsvelli, við Frank,
eins og þýski ferðamaðurinn heitir, þar sem hann
var á leið til Hellu, eftir að hafa farið Þingvalla-
hringinn.
Ferðast um landið í hjólastól
Morgunblaðið/RAX
HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir atburðina í Norður-
Ossetíu þá sorglegustu sem hann
man eftir lengi og sé það hræðilegt að
saklausum börnum sé beitt í slíkum
átökum. „Það er eins og ekkert sé
heilagt í þessu lífi,“ segir hann. „Það
er ljóst að mínu mati að þetta verður
til þess að herða baráttuna gegn
hryðjuverkum í Rússlandi og það
komi til með að takmarka frjálsa för
fólks og hafa að því leytinu slæmar af-
leiðingar á uppbyggingu og samskipti
þar.“
Um aðgerðir rússneskra yfirvalda
gegn gíslatökufólkinu vill Halldór
ekki dæma. Öngþveitið á vettvangi
hafi leitt til þess að erfitt hafi verið að
átta sig á hlutunum og ekki sé hægt
að setja sig í spor þeirra sem hafi ver-
ið falið að taka á ástandinu.
Í fréttatilkynningu frá utanríkis-
ráðuneytinu kem-
ur fram að Hall-
dór Ásgrímsson
hafi ritað bréf til
Sergei Lavrov, ut-
anríkisráðherra
Rússlands, þar
sem rússnesku
þjóðinni er vottuð
samúð. Í bréfinu
segir utanríkis-
ráðherra m.a. að
með því að ráðast vísvitandi á varn-
arlausa óbreytta borgara, þ.á m.
börn, hafi hryðjuverkamenn enn einu
sinni sýnt að öfgar þeirra lúti engum
siðferðilegum takmörkunum. Þá
ítrekaði utanríkisráðherra að íslensk
stjórnvöld myndu sem endranær
styðja baráttuna gegn alþjóðlegri
hryðjuverkastarfsemi á grundvelli
lýðræðislegra gilda og alþjóðalaga.
„Eins og ekkert sé
heilagt í þessu lífi“
Halldór
Ásgrímsson
Á FJÓRÐA hundrað börn hafa enn
ekki fengið pláss á frístundaheim-
ilum Reykjavíkurborgar, þar sem
boðið er upp á barnagæslu eftir
skóla. Ráða þarf um 30 manns í
störf til að hægt sé að veita öllum
pláss. Að sögn Soffíu Pálsdóttur,
æskulýðsfulltrúa hjá ÍTR, er mikil
mannekla vegna þess að 16 heimili
hafa bæst við frá fyrra ári. Stefnt
er að því að öll börnin verði byrjuð
á frístundaheimilum í þessari og
næstu viku en upphaflega hafði
verið gert ráð fyrir að öll börn
gætu hafið dvöl fyrir 1. september.
Enn vantar
marga pláss
ICELANDAIR varð að fresta flugi
til Orlando í Flórída í gærmorgun,
þegar tilkynning barst frá banda-
rískum tolla- og innflytjenda-
yfirvöldum um að flugvöllurinn í
Orlando tæki ekki við alþjóðaflugi
fyrr en í dag, þriðjudag.
Vegna fellibylsins Frances var
völlurinn lokaður um helgina og að-
eins opnaður í gær fyrir innan-
landsflug. Guðjón Arngrímsson,
upplýsingafulltrúi Flugleiða, segir
skýringu ekki hafa fengist á þessu
hjá Bandaríkjamönnum. Vél Ice-
landair er áætluð frá Keflavík til
Orlando í dag kl. 14 og mun hún
sækja þá um 160 farþega sem verið
hafa strandaglópar í Flórída.
Hjördís Vilhjálmsdóttir, móðir
piltanna sem greint var frá í
blaðinu í gær að hefði ekki náðst tal
af í Flórída síðan á laugardag, náði
slitróttu símsambandi við þá í gær-
kvöldi. Piltana sakaði ekki á meðan
fellibylurinn reið yfir og hús föður
þeirra skemmdist ekki. Enn var
rafmagnslaust í bænum Wellington
í Palm Beach-sýslu, þar sem þeir
búa, og útgöngubann á nóttunni
enn í gildi. Allt lauslegt hafði fokið
til í bænum.
Flug til Orlando
frestaðist um
sólarhring
LÖGREGLAN á Hvolsvelli stöðvaði
ökumann á 168 km hraða á Suður-
landsvegi við Markarfljót í gær. Þar
var á ferðinni erlendur ferðamaður
á bílaleigubíl og var hann sviptur
ökuréttindum á staðnum í þrjá mán-
uði, auk greiðslu sektar. Gildir þessi
ökuleyfissvipting einnig í heima-
landi mannsins, að sögn lögreglu.
Maðurinn gat engu að síður haldið
för sinni áfram um landið þar sem
ferðafélagi hans settist við stýrið.
Erlendur
ferðamaður
á 168 km hraða