Morgunblaðið - 07.09.2004, Page 4
KARL Sigurbjörnsson, biskup Íslands,
hvetur presta til að minnast fólksins í Besl-
an í Rússlandi þar sem hundruð manna,
börn og fullorðin, létu lífið og margir eru
sárir. Í bréfi til presta segir: „Ég bið presta
að minnast atburðanna í Beslan sérstaklega
í kyrrðarstundum og bænaguðsþjónustum
vikunnar, eða jafnvel efna til sérstakra
bænastunda. Sameinumst í bæn fyrir þeim
sem líða vegna þessara voðaverka, í sam-
stöðu með rússnesku þjóðinni sem verður
fyrir þessari grimmúðlegu árás.“
Prestar hvattir til
að biðja fyrir fólki
í Beslan
Þrjú sektuð fyrir
fíkniefnabrot
TVEIR karlmenn um þrítugt og rúmlega
tvítug kona hafa verið dæmd í Héraðsdómi
Vestfjarða til greiðslu fjársekta fyrir fíkni-
efnalagabrot á Ísafirði í febrúar sl.
Annar mannanna játaði brotið greiðlega
en hinn maðurinn og konan sóttu ekki þing
og var útivist þeirra metin sem játning. Sá
fyrrnefndi var sektaður um 45.000 krónur
fyrir að hafa afhent parinu í febrúar árið
2003 gegn greiðslu tvö grömm af marij-
úana og fyrir að hafa verið með á heimili
sínu 1,82 grömm af sama efni, sem hann
framvísaði við leit lögreglu þá um kvöldið.
BARNASTARF kirkjunnar hófst sl. sunnudag
en gert er ráð fyrir að á milli 12 og 15 þúsund
börn sæki starfið yfir vetrartímann. Gallup-
könnun sem Biskupsstofa kynnti á frétta-
mannafundi leiðir í ljós að rúmlega 82% þjóð-
arinnar hafa reynslu af barna- og unglinga-
starfi kirkjunnar. Unglingastarfið er jafn-
framt að fara í gang um þessar mundir en í
mörgum kirkjum eru starfandi æskulýðsfélög.
Skv. könnuninni telja rúmlega 70% lands-
manna þjóðkirkjuna sinna barna- og unglinga-
starfi vel. Könnunin var framkvæmd í gegnum
síma í febrúar og mars sl. og svarhlutfall var
60,4% en af þeim sem svöruðu voru 88,6% í
þjóðkirkjunni.
Morgunblaðið/Golli
Þúsundir barna sækja kirkju vikulega
FRÉTTIR
4 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Dubli
n
37.810kr.
Dublin bíður þín
á mann miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman.
Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Bewleys hótelinu,
íslensk fararstjórn og allir flugvallarskattar.
Netverð
4., 11., og 25. nóvember
SÍÐDEGIS á sunnudag óskaði leigubíl-
stjóri aðstoðar lögreglunnar í Reykjavík
vegna farþega sem hann hafði ekið. Far-
þeginn var eitthvað ósáttur með startgjald
leigubílsins og þegar hann var búinn að
gera upp við leigubílstjórann sparkaði
hann í hurð bílsins og kýldi ökumanninn í
andlitið, segir í frétt frá lögreglu.
Ósáttur við
startgjaldið
LÖGREGLAN í Reykjavík tók sautján
ökumenn fyrir of hraðan akstur um ný-
liðna helgi. Sá sem hraðast fór var mældur
á 152 km hraða á Kringlumýrarbraut þar
sem leyfilegur hraði er 70 km/klst. Öku-
maðurinn, sem er 17 ára gamall, hafði ein-
ungis haft ökuskírteini í rúman mánuð.
Hann var í kappakstri við annan bíl og var
sá mældur á 144 km hraða. Mega þessir
ökumenn teljast heppnir að lögregla
stöðvaði þá áður en ofsaaksturinn endaði
með ósköpum, segir í frétt frá lögreglu.
Um helgina voru 16 ökumenn stöðvaðir,
grunaðir um ölvun við akstur.
Ungur glanni tekinn
á 152 km hraða
„MÉR sýnist einfaldlega að sam-
keppni hafi myndast milli Símans
og Stöðvar 2 um kaup á þessu fyr-
irtæki [Fjörni ehf.] og Síminn hafi
náð viðskiptunum,“ segir Halldór
Ásgrímsson utanríkisráðherra um
kaup Símans á hlut í Skjá einum.
„Þetta er það sem gerist á hinum
frjálsa markaði.“
Halldór segist hafa spurst fyrir
um málið í gær og komist að því að
forsvarsmenn Símans hafi verið
að gæta hagsmuna félagsins með
því að tryggja að meira efni sé
dreift um dreifikerfi Símans.
Halldór segist ekki hafa haft
vitneskju um fyrirhuguð viðskipti
en segist hafa vitað um viðræður
milli Stöðvar 2 og Símans en upp
úr þeim hafi slitnað. „Og ég hafði
fréttir af því að það ættu sér stað
viðræður milli Símans og Skjás
eins. Ég […] hafði af þessu fréttir
símleiðis eftir að fréttir birtust um
þetta.“ Hann segist enga grein
gera sér fyrir því hvort viðskiptin
muni auka verðgildi Símans. „Það
er hins vegar stjórnar Símans að
bera ábyrgð á því að það sé hag-
kvæmt sem farið er út í.“
Síminn náði
viðskiptunum
Halldór Ásgrímsson utanríkisráðherra
BJÖRK Vilhelmsdóttir, formaður
félagsmálaráðs Reykjavíkurborg-
ar, segir það ekki stefnu borgaryf-
irvalda að veita öllum sem á þurfi
að halda ókeypis húsnæði. Borg-
aryfirvöld gangi raunar mun
lengra í að forða leigjendum Fé-
lagsbústaða frá útburði en reglur
kveði á um.
Ögmundur Jónasson, þingmað-
ur Vinstri grænna, benti á það í
grein í Morgunblaðinu í gær að
„krabbameinssjúkur öryrki“ hefði
á dögunum verið borinn út með
lögregluvaldi úr leiguhúsnæði
borgarinnar eftir langvarandi
vanskil á greiðslum. Ögmundur
beinir þeim spurningum til borg-
aryfirvalda hvort útburðir af slíku
taki séu algengir og hvaða skiln-
ing borgin leggi í lög um húsnæð-
ismál þar sem segi m.a. að sveit-
arstjórn beri ábyrgð á að leysa
húsnæðisþörf fólks sem þarfnist
aðstoðar. Björk svarar Ögmundi í
aðsendri grein í blaðinu í dag.
Sveitarfélagið ber ábyrgð
á að útvega fólki húsnæði
„Það er rétt að sveitarfélagið
ber ábyrgð á að útvega fólki hús-
næði. Það segir hins vegar ekki að
það eigi að útvega fólki ókeypis
húsnæði og það er ekki stefna
borgarinnar að veita öllum þeim
sem á þurfa að halda ókeypis hús-
næði,“ sagði Björk í samtali við
Morgunblaðið í gær. Hins vegar
sé boðið upp á verulega niður-
greitt leiguhúsnæði og sem dæmi
hafi húsaleiga umrædds einstak-
lings verið rúmar 14 þúsund krón-
ur á mánuði að teknu tilliti til
húsaleigubóta. Einnig séu rekin
gistiheimili fyrir þá sem eigi í eng-
in hús að venda og áfangaheimili
af ýmsu tagi fyrir sjúkt fólk sem
sé illa statt félagslega.
Samkvæmt upplýsingum frá
Félagsbústöðum hf. sem sjá um
rekstur og eignarhald á um 1.700
leiguíbúðum í eigu borgarinnar,
hafa fjórir útburðir átt sér stað
vegna vanskila það sem af er árinu
en þeir voru tveir í fyrra og einn
árið á undan. Vegna mikilla van-
skila allmargra leigjenda hafi ver-
ið ákveðið að semja við skuldara
um að greiddi viðkomandi áhvíl-
andi leigu sex síðustu mánaða
myndi Félagsþjónustan greiða
vanskil næstu 24 mánaða á undan.
Félagsbústaðir myndu hins vegar
afskrifa eldri skuldir. Viðkomandi
einstaklingur hafi á hinn bóginn
ekki nýtt sér þetta ákvæði.
Öryrki borinn út
úr félagslegri íbúð
Ekki stefna borgarinnar að veita ókeypis húsnæði
Ein milljón á dag
TALIÐ er að bílaleigubílar á Íslandi leggi
að baki um eina milljón kílómetra á dag yfir
sumarið, á mesta ferðamannatímanum.
Samkvæmt upplýsingum frá Samtökum
ferðaþjónustunnar eru bílar þeir sem leigð-
ir eru út af bílaleigum á Íslandi um það bil
4.000 talsins. Talið er að meðalakstur yfir
háönnina sé um 250 km á dag.
Reiknar SAF út að þar sem um sé að
ræða rúmlega 30 milljónir km á mánuði
leggi aksturinn ríkissjóði til um 66 milljónir
króna á mánuði með virðisaukaskatti af
eldsneyti. Er þá gengið út frá því að elds-
neytiseyðslan sé um 10 lítrar á hverja 100
kílómetra.
Skóli fyrir
sendiráðs-
börn í Vík-
urskóla
ALÞJÓÐASKÓLINN í
Reykjavík (Reykjavik Inter-
national School) sem starfrækt-
ur hefur verið á vegum banda-
ríska sendiráðsins fyrir
sendiráðsbörn á Íslandi verður
opnaður í Víkurskóla í Grafar-
vogi nk. miðvikudag.
Að sögn Árnýjar Ingu Páls-
dóttur, skólastjóra Víkurskóla,
er samvinna skólanna til
tveggja ára og verður að því
búnu metin í ljósi fenginnar
reynslu.
Sex nemendur
Nemendur Alþjóðaskólans
eru sex talsins og fer kennsla
fram á ensku. Erlendu nemend-
urnir munu þó sækja tíma með
íslenskum nemendum í smíði,
tónlist, myndlist og fleiri fögum.
SNEMMA á sunnudagsmorgun var lögregl-
unni í Reykjavík tilkynnt um yfirstandandi
innbrot í hús við Hverfisgötu. Er lögreglu
bar að garði var þjófurinn á leið út um
dyrnar með fangið fullt af þýfi. Hann var
handtekinn og þýfinu skilað. Stuttu seinna
var tilkynnt um innbrot í geymslu í húsi í
Grafarvogi. Þaðan var stolið haglabyssu.
Gómuðu innbrotsþjóf