Morgunblaðið - 07.09.2004, Page 6

Morgunblaðið - 07.09.2004, Page 6
FRÉTTIR 6 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Kynning á Alfa-námskeiðinu í Neskirkju þriðjudaginn 7. september kl. 20 Kaffi og veitingar Alfa fer sigurför um heiminn. Um 7 milljónir þátttakenda hafa sótt námskeiðið á sl. 15 árum. Hver er tilgangur lífsins? Hver er kjarni kristinnar trúar? Alfa er fyrir fólk sem efast, trúir eða trúir ekki. Komdu á þriðjudagskvöldið og kynntu þér málið án allra skuldbindinga. Einnig er hægt að skrá sig á neskirkja@neskirkja.is Fyrirlesarar sr. Örn Bárður Jónsson og dr. Sigurður Árni Þórðarson. Alfa-námskeið í Neskirkju ÁRNI Þór Sigurðsson, forseti borg- arstjórnar og borgarfulltrúi Reykja- víkurlistans, fer um næstu áramót til starfa í Brussel m.a. á vegum Sambands íslenskra sveitarfélaga. Mun hann fylgjast með framgangi og áhrifum löggjafar og reglugerða Evrópusambandsins á sveitarfélög ásamt fulltrúum annarra Norður- landa. Einnig á hann að skoða hvaða sóknarfæri liggja fyrir sveitarfélög- in á vettvangi Evrópusamstarfsins. Ekki á leið út úr stjórnmálum Árni Þór segist ekki vera á leið út úr stjórnmálum þrátt fyrir að taka þetta verkefni að sér. Um sé að ræða tímabundið starf til sex mán- aða fyrir öll sveitarfélög á landinu. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson, formaður Sam- bands íslenskra sveitarfélaga, segir þetta fyrst og fremst verkefni sveitarfélaga en Reykjavíkurborg, félagsmálaráðu- neytið og utanríkisráðuneytið komi að því. Verður Árni með aðstöðu í sama húsnæði og íslenska sendiráð- ið í Brussel. Mikil stefnumótunarvinna hefur verið unnin af svokallaðri EES- nefnd á vegum sambands sveitarfé- laga í samvinnu við utanríkisráðu- neytið, segir Vilhjálmur. Eftir þá vinnu hafi þetta verið ákveðið. Um sé að ræða tilraunaverkefni til sex mánaða þar sem skoðaðir séu þeir þættir í starfsemi ESB og Evrópska efnahagssvæðisins sem hafi áhrif á hagsmuni sveitarfélaga. Hann segir þungann af þeim tilskipunum og reglugerðum sem samþykktar eru lenda á sveitarfélögum. Árni Þór Sigurðsson hefur störf í Brussel Skoðar áhrif löggjafar ESB á sveitarfélög Árni Þór HOLLENDINGURINN Wout Ziljstra sigraði á Íslandsmótinu í Hálandaleikum sem fram fór á Akranesi um helgina. Mótið fór fram á skógræktarsvæðinu, Garða- lundi, og var töluverður fjöldi sem fylgdist með leikunum í blíðskap- arveðri. Kraftajötnarnir voru að sjálfsögðu í skotapilsum á meðan keppni stóð yfir en annar á eftir Ziljstra varð Pétur Guðmundsson sem á Íslandsmetið í kúluvarpi. Skotinn Colin Brecy varð þriðji. Ziljstra sigraði á alþjóðlega mótinu sem haldið var samhliða Ís- landsmótinu en Pétur varð Íslands- meistari í Hálandaleikum árið 2004. Keppt var í steinakasti, sleggju- kasti með skafti, lóðkasti yfir rá og staurakasti. Fjórir íslenskir kepp- endur voru á meðal þátttakenda auk Péturs en þeir voru Auðunn Jónsson, Pétur Guðmundsson kúlu- varpari, Óðinn Björn Þorsteinsson kringlukastari, Kristinn Óskar Haraldsson, Jón Valgeir Williams og Georg Ögmundsson. Gísli Gíslason, bæjarstjóri á Akranesi, opnaði mótið formlega með því að kasta steini sem var jafnframt fyrsta keppnisgrein Há- landaleikanna. Gísli kastaði stein- inum 7,80 m sem er að hans sögn langt frá sínu besta. Morgunblaðið/Sigurður Elvar Kraftlyftingamaðurinn Auðunn Jónsson var einn af keppendum á Hálandaleikunum á Akranesi. Hollenskur sigurvegari á Hálanda- leikunum Akranesi. Morgunblaðið. „MENN eru sammála því að þetta verkefni hjá samtökunum þurfi að hafa forgang næstu mánuði,“ segir Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmda- stjóri ASÍ, í samtali við Morgunblað- ið, aðspurður hvernig miði starfi sam- eiginlegrar lífeyrisnefndar aðila vinnumarkaðarins, en iðgjöld til sam- tryggingarlífeyrissjóða munu aukast um eitt prósentustig í byrjun næsta árs. Aðal- og varamenn í stjórnum líf- eyrissjóða á samningssviði ASÍ og Samtaka atvinnulífsins ásamt mál- efnanefndum samtakanna sem fjalla um lífeyrismál hafa verið boðaðir til upplýsinga- og samráðsfundar um stefnumörkun í lífeyrismálum síðar í þessari viku. Sameiginleg lífeyris- nefnd samtakanna, sem sett var á laggirnar eftir kjarasamningana í vor, hefur verið á fundum undanfarið. Samkvæmt kjarasamningunum voru iðgjöld til samtryggingarlífeyrissjóða aukin í tveimur áföngum um tvö pró- sentustig á samningstímanum og kemur fyrri áfanginn til fram- kvæmda um áramótin eins og fyrr sagði. Verkefni nefndarinnar samkvæmt bókun með samningunum er að gera tillögur um lausn á þeim vanda sem nú steðji að samtryggingarsjóðum og kerfisbreytingar sem horfi til lengri tíma. Staða einstakra sjóða sé afar mismunandi, bæði þegar horft sé til áfallinna skuldbindinga og framtíðar- skuldbindinga. Meðal verkefna nefndarinnar verði að leita leiða til þess að jafna örorkulífeyrisbyrði líf- eyrissjóða eftir því sem mögulegt er og einnig að leita leiða til þess að sjóð- irnir geti staðið undir núverandi skuldbindingum sínum og aukið eft- irlaunarétt í heild án skerðingar á rétti sjóðfélaga til örorkulífeyris. Gylfi sagði að farið yrði yfir stöðu málsins á fundinum og trygginga- fræðilega útreikninga ýmiss konar. Engar einhlítar tillögur yrðu lagðar fyrir, en farið yfir stöðu málsins frá ýmsum hliðum. Í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar vegna kjarasamninganna síðastliðinn vetur er komið inn á lífeyrismál. Rík- isstjórnin lýsir sig þar reiðubúna að taka upp viðræður við lífeyrisnefnd- ina um hugsanlega aðkomu stjórn- valda að tilteknum þáttum sem nefndin muni taka til meðferðar, „m.a. að því er varðar verkaskiptingu milli lífeyrissjóða og almannatrygg- inga“, eins og segir í orðrétt í yfirlýs- ingunni. Lífeyrisnefnd aðila vinnumarkaðarins fer yfir stöðuna í lífeyrismálum Verkefnið mun hafa forgang næstu mánuði Lífeyrissjóðir og málefnanefndir um lífeyrismál funda í þessari viku Nýjar rannsóknir á erfðaeiginleikumhornsíla geta gefið mikilvægar vís-bendingar um virkni á hluta erfða-mengis mannsins sem menn hafa ekki skilið til þessa, meðal annars þeim sem stýra lengd útlima og öðrum breytilegum þáttum í svip- gerð mannsins. Þetta var meðal þess sem kom fram í erindi sem David Kingsley, prófessor í þró- unarlíffræði við Stanfordháskóla í Bandaríkj- unum, hélt á alþjóðlegri ráðstefnu um vist- og þró- unarfræði fiska sem haldin var á Hólum í Hjaltadal og á Sauðárkróki. Kingsley segir fiska henta sérstaklega vel til erfðarannsókna þar sem þeir eignist mjög mörg afkvæmi og eigi um leið mjög margt sameiginlegt með spendýrum hvað varðar líkamsgerð. Þannig séu uggarnir líkir útlimum spendýra og rann- sóknir hafi sýnt að sama genamengi stýri uggum og útlimum. Þetta þýði að hægt sé að fylgjast með breytingum á eiginleikum margra mismunandi einstaklinga sem byggjast á sömu litningamengj- um og fá þannig öruggari og nákvæmari vísbend- ingar um virkni einstakra gena. Tíuþúsund kynslóðir fiska í vötnum á Íslandi „Annað sem er spennandi við fiska er það að kynslóðaskipti hjá þeim eru ör, eða árlega,“ segir Kingsley. „Það þýðir að fisktegundir aðlagast breyttu umhverfi mjög hratt, því breytingar koma fram í kynslóðum. Ísland er einmitt frábær vett- vangur til að rannsaka þessa hluti. Hér eru um 10.000 ár síðan fiskar tóku sér bólfestu í vötnum og ám og því hafa komið fram tíu þúsund kyn- slóðir, sem þýðir að þeir hafa einmitt aðlagast þessu breytta umhverfi. Fiskar aðlagast þannig ört að mjög ólíkum vistkerfum og svipaðar teg- undir geta haft mjög breytilega svipgerð. Hjá mönnum eru kynslóðaskipti á tuttugu ára fresti, þannig að þetta er í raun svipaður tími í kynslóðum talið og það tók manninn að aðlagast öllum þeim breytilegu umhverfum sem finna má á jörðinni og við sjáum að menn eru mjög ólíkir í svipgerð, eftir því hvaðan þeir eru.“ Hornsílin sem Kingsley rannsakar hér á Íslandi eru mjög ólík að svipgerð, eftir því hvar þau hafa þróast. Meðal þeirra hornsíla sem Kingsley hefur rannsakað eru hornsíli úr Vífilsstaðavatni, sem Bjarni Jónsson líffræðingur fann fyrir nokkru. „Sum hornsílin hafa losað sig við afturuggana og önnur hafa alla fjóra. Þarna höfum við getað leitað að genunum sem stýra þessum mismun,“ segir Kingsley. „Það sem kom okkur mjög á óvart er það að mjög flóknar svipgerðir geta stjórnast af einföldum erfðaupplýsingum. Með því að bera saman fiska sem hafa þróast hér á Íslandi við fiska sem þróuðust í Kyrrahafinu höfum við getað rakið uppruna þessara svipgerða til sérstakra litningasvæða og höfum komist að því að um er að ræða eina endurtekna leið sem þróunin fer að því að breyta útlimum.“ Þessar uppgötvanir geta að sögn Kingsleys nýst til að varpa ljósi á þau gang- verk náttúrunnar sem stýra þróun á mismunandi einkennum lífvera. Þá geta þær einnig nýst til að bæta skilning manna á stórum hlutum genameng- is mannsins. „Þau ferli, sem valda því að afturuggar fiska hörfa, eiga rætur á sömu svæðum genamengisins og við höfum ekki getað skilið hingað til. Það er mjög pirrandi að hafa þetta genamengi og skilja einungis þrjú til fimm prósent af því. Það er eins og lesa bók og skilja bara nokkur orð á blaðsíð- unni. Þessar rannsóknir hjálpa okkur að skyggn- ast betur inn í þessar upplýsingar sem við höfum hingað til ekki getað skilið.“ Rannsókn á erfðaeiginleikum hornsíla fer fram á Íslandi Gefa vísbendingar um gen sem stýra vexti útlima mannsins Morgunblaðið/Árni Sæberg David Kingsley telur íslenska náttúru hjálplega við rannsóknir á sviði þróunarlíffræði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.