Morgunblaðið - 07.09.2004, Síða 12

Morgunblaðið - 07.09.2004, Síða 12
                        !!"      # $% &$'"    VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF 12 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ● HEILDARVIÐSKIPTI í Kauphöll Ís- lands í gær námu liðlega 2,6 millj- örðum króna. Þar af námu viðskipti með hlutabréf tæplega 1,1 milljarði. Mest viðskipti voru með bréf KB banka, 585 milljónir, en næstmest með bréf Opinna kerfa, 341 milljón. Hlutabréf Flugleiða og Atorku hækkuðu mest, eða um 1,7%. Úrvalsvísitala Kauphallarinnar lækkaði um 0,13% og er 3.405,60 stig. Vísitölur vestanhafs, Dow Jones, Nasdaq og S&P, lækkuðu í gær, Nasdaq mest, eða um 1,5%, en þær hækkuðu hins vegar lítillega í Evrópu. Flugleiðir og Atorka hækka mest ÞETTA HELST ... VIÐSKIPTI ALLT stefnir í að tekist verði á um yfirráðin í Opnum kerfum Group á hluthafafundi félagsins í dag. Frosti Bergsson og þeir sem fylgja honum að málum eru með í kringum 40% hlut í Opnum kerfum, sem er álíka atkvæðamagn og fylkingin, sem upplýsingatæknifyrirtækið Kögun leiðir, hefur yfir að ráða. Kögun keypti 35,77% hlut í Opn- um kerfum í síðasta mánuði af Straumi fjárfestingabanka fyrir tæpa þrjá milljarða króna. Straum- ur, sem er stærsti hluthafinn í Kög- un, jók svo í gær hlut sinn í Opnum kerfum og er nú með 6,4% hlut. Þar fyrir utan má nefna að Trygginga- miðstöðin, sem Straumur á tölu- verðan hlut í, á um 0,6% hlut í Opn- um kerfum. Frosti Bergsson jók hlut sinn í Opnum kerfum í síðustu viku og á nú tæplega 17% hlut í félaginu. Ís- landsbanki, sem fylgir Frosta að málum, jók hlut sinn í Opnum kerf- um í gær og á nú rúm 10%. Sam- kvæmt heimildum Morgunblaðsins munu ýmsir smærri hluthafar ætla að kjósa með Frosta á hluthafafund- inum í dag. Stóðu frammi fyrir yfirtöku Frosti Bergsson segir óhætt að fullyrða að það stefni í baráttu um yfirráðin í stjórn Opinna kerfa. Kög- un hafi í krafti hlutar síns í félaginu farið fram á að fá þrjá menn í stjórn. „Það var eitthvað sem ég gat ekki fallist á,“ segir Frosti. „Ég bauð þeim að þeir fengju tvo, ég, Ís- landsbanki og tengdir aðilar fengj- um einnig tvo, og við myndum reyna að sameinast um oddamann sem yrði fulltrúi minni hluthafa og lífeyr- issjóða. Þessu var hafnað. Þeir sögðu að þeir væru búnir að fjár- festa fyrir þrjá milljarða og það þýddi að þeir þyrftu að hafa meiri stjórn á hlutunum.“ Hann segir að ýmsir hluthafar í Opnum kerfum hafi staðið frammi fyrir því að Kögun ætlaði að taka fé- lagið yfir. Þessir hluthafar hafi talað saman og velt fyrir sér hvort þeir vildu að það gengi eftir. Frosti er í framboði til stjórnar Opinna kerfa. Með honum í fram- boði eru Hjörleifur Jakobsson, for- stjóri Olíufélagsins, sem er í núver- andi stjórn, og Sindri Sindrason, fyrrverandi forstjóri Pharmaco, nú Actavis, en hann sat í stjórn Opinna kerfa um árabil. Vilja margfeldiskosningu Gunnlaugur Sigmundsson, for- stjóri Kögunar, segir að fyrirtækið hafi lagt til að það og þeir sem fylgdu því að málum, fengju tvo menn í stjórn Opinna kerfa. Það hafi verið háð því að núverandi formaður stjórnarinnar, Frosti, og núverandi varaformaður, Skúli Valberg Ólafs- son, sem situr í stjórn félagsins fyrir hönd Straums, sætu áfram í stjórn- inni. „Framan af héldum við að þetta gæti gengið svona en þá bað Ís- landsbanki um hlutfallskosningu á hluthafafundinum, sem þýðir að um væri að ræða listakosningu. Við átt- um þá ekkert annað svar en að biðja um margfeldiskosningu, sem þýðir að kosið verður um einstaklinga. Starfsmaður Íslandsbanka impraði á því við okkur að utanaðkomandi maður yrði kosinn í fimmta stjórn- arsætið, en ég hef svarað því til að ég teldi æskilegra að stjórnin væri skipuð mönnum sem ættu hags- muna að gæta. Það er því alls óvíst hvernig þessu máli lýkur.“ Gunnlaugur segir að þar sem Kögun hafi farið fram á margfeldis- kosningu þá verði sú aðferð viðhöfð á hluthafafundinum, þar sem hún yfirstígi hlutfallskosningu sam- kvæmt hlutafélagalögum. Fresta að ráða forstjóra Nokkur umræða hefur verið um starf forstjóra Opinna kerfa upp á síðkastið, en Frosti Bergsson hefur í raun gegnt því sem starfandi stjórnarformaður um skeið. Á stjórnarfundi fyrir u.þ.b. þremur vikum var ákveðið að ráða forstjóra til félagsins. Í ljósi óvissu vegna kaupa Kögunar á stórum hlut í fé- laginu var hins vegar ákveðið að fresta því. Frosti segir það sína skoðun að það verði eitt fyrsta verk- efni nýrrar stjórnar að ráða for- stjóra að Opnum kerfum. Tekist á um yfirráðin í Opnum kerfum Gunnlaugur Óvíst um málalok.Frosti Bauð hinum tvo.                   () *  +,$-. / !! *0, +,$-. /-,1 ,2 32,4") '5 ,46 )$,! +, ' 78 '9 '! / 9 '! : '9 '! 78 '  ,"8 "( ," 8 5 5 43 ,! .) . ' !",4 ;<",3 ), -;-, 32,4") '5 96 =-,     48 432,4") '5 4>8 5?  !; ,! 1-, 78 ' 8-58" 1 , @ ;. 13 ' @8-) 9,3A1-, /B' 1 ,96 @, 14,C) )6 DA,< 4' , & ,19$, ' ,  89 !-, 05-' :E4)F!' 3A1-, '' G<",3 7 E8 ,* ''8 ' 82)-,4>8 5 -1-,8 ' F.8 ) 08-; 1)01 <, 14,C) <6  '5 ,C55 '5 ; 1)01 ' H ''8-)01 ' D$,;6 , ;; ? F9",5   !  "# -)-,9 !!  !"8 C3 43 ,1 , : 'E; 78 ' F! 4F, H2),C55 '5 4>8 5 78 ' E1 ) * 1!6*",1          ?       ?  ? ? ?  ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? /,"C) '5 4,2 4C,, * 1!6*",1 ? ? ?   ?  ?   ?  ? ?   ?  ?   ? ? ?  ? ? ? ? ? ?  ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? I J I ?J I ? J I ? J I J ? I ? J ? I J ? I  J ? ? ? I J ? ? ? ? ? I ? J ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? @" 8 ,* 1! .)  5 '  89$1 E 8$!  5K  -. 8 6 6   6 6 6  6 6 6  ? 6  6  6 6 ?   6  6 6 ? ? ? 6 6 ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ?                 ? ?    ? ?  ?                       ?   ?           ?         H 1! .) E LB6 !,6 @6 M )<-5-' ,8 ) 308 * 1! .)    ?     ?    ? ? ?   ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? ? SAMNINGUR Símans um kaup á 26% hlut í Skjá einum og á eignarhaldsfélaginu Fjörni, og þar með útsendingarréttinum á enska fótbolt- anum, stenst ekki samkeppnislög að mati stjórn- enda Og Vodafone. Pétur Pétursson, forstöðumaður skrifstofu for- stjóra Og Vodafone, segir að Síminn sé með markaðsráðandi stöðu á ýmsum sviðum fjar- skiptamarkaðarins. „Mikið af hagnaði félagsins kemur til af þeirri starfsemi. Við teljum að Sím- inn sé m.a. að nýta sér þá fjármuni og þann hagnað sem verður til á þessum sviðum til þess að skapa sér stöðu á nýjum vettvangi og teljum að slíkt brjóti í bága við sam- keppnislög. Þess vegna höfum við ákveðið að vekja athygli samkeppnisyfirvalda á þessum þætti, en þau hafa nú þegar tilkynnt að þau ætli að taka málið til skoðunar að eigin frumkvæði,“ segir Pétur. Aðgangur fyrir alla Fyrir um hálfum mánuði lýstu Og Vodafone og Orkuveita Reykjavíkur formlega yfir vilja til samstarfs um að ljósleið- aravæða heimili og fyrirtæki í landinu. Jafnframt er ætlunin að nýta ADSL-kerfi Og Vodafone samhliða þessu til dreifingar á gögnum, og þar á meðal á sjónvarpsefni. Fyrirtækin hafa lýst því yfir að þau stefni að því að skilgreina starfsemi sína þannig að Og Vodafone einbeiti sér að mark- aðssetningu, vöruþróun og þjónustu við við- skiptavini, en Orkuveita Reykjavíkur einbeiti sér að rekstri og uppbyggingu ljósleiðaranetsins. „Við sjáum þetta fyrir okkur þannig, að við munum semja við efnisveitur um aðgang að þessu neti, sem flestir hefðu aðgang að, ólíkt því sem aðrir eru að gera núna,“ segir Pétur. Samningurinn sagður brot á samkeppnislögum Pétur Pétursson VERKFALL 800 starfsmanna Bec- ancour-álversins í Quebec í Kanada sem er að 75% hlut í eigu Alcoa, og 25% hlut í eigu Alcan, hefur nú staðið í rúma tvo mánuði. Þetta bendir til þess, að mati greinarhöfundar á vef kanadíska ríkisútvarpsins, CBC, að breytingar séu að verða í áliðnaði héraðsins, en undirstaða iðnaðarins á svæðinu hefur ávallt verið ódýr orka frá vatnsaflsvirkjunum. Verk- fallsdeilan er í hnút og óvíst um lykt- ir. Í greininni segir að þar sem heimsmarkaðsverð á áli sé lágt um þessar mundir liggi álfyrirtækinu ekkert á að enduropna tvo af þremur ofnum álversins sem lokaðir hafa verið síðan 7. júlí sl. Fyrr á þessu ári hætti Alcoa við eins milljarðs dollara endurnýjun og stækkun á öðru álveri í Quebec, Baie-Coumeu, eftir að það hafði ekki fengið nægjanlega gott til- boð í orku fyrir stækkunina. Þá var- aði Alcan 1.200 starfsmenn við ál- verksmiðju í Sagenay í Quebec við því í síðustu viku að það myndi þurfa að skera niður kostnað, eða loka verinu ella árið 2007. Í sama mund og viðræður Alcoa við yfirvöld í Quebec um stækkun Baie-Coumeu versins runnu út í sandinn skrifaði Alcoa undir vilja- yfirlýsingu um byggingu álvers í Trinidad, en auk þess er fyrirtækið að hefja byggingu álvers á Reyðar- firði, sem er fyrsta álverið sem fyr- irtækið byggir frá grunni í 20 ár. Gullöldin búin Quebec hefur allt síðan snemma á síðustu öld laðað til sín mörg álver auk annarrar stóriðju, vegna gnægð- ar af ódýrri orku sem þar er að fá, en orka er um 25% af rekstrarkostnaði álvera. Marcel Cote, sérfræðingur í áliðn- aðinum, segir að gullöld áliðnaðarins í Quebec sé nú yfirstaðin. Orkuauð- lindir sem ódýr orka hafi verið búin til úr hafi verið misnotaðar og orku- samningar grundvallaðir á þeim séu læstir á lægstu töxtum til stóriðjunn- ar. „Áliðnaðurinn í Quebec mun breytast mikið vegna þessa. Álfyr- irtækin geta auðveldlega fundið sér staði annars staðar í heiminum þar sem orka er ódýrari,“ segir Cote. Hann segir að orkufyrirtækið Hydro-Quebec hafi gengið fram af auðlindum sínum sem það notar til að framleiða orku á tvö sent kílóvatt- stundina, eða 2,2 íslenskar krónur. Með öðrum virkjunarkostum kosti kílóvattstundin 6–8 sent í fram- leiðslu. „Álframleiðendur sem nú þegar eru í Quebec munu halda áfram að framleiða og fjárfesta í álverum sín- um en það verður engin útvíkkun í iðnaðinum, allavega ekki í næstu framtíð.“ Áliðnaður Quebec í uppnámi ● FJÁRFESTINGARBANKAR eru með á teikniborðinu hjá sér hugsanlega uppskiptingu breska verslunarfyr- irtækisins Big Food Group, BFG. Frá þessu er sagt í vefútgáfu velska blaðsins Icwales, en blaðið vitnar í orð sem höfð eru eftir ónefndum að- ila í fjármálageiranum sem tengist Bill Grimsey, forstjóra BFG, í The Sunday Express. BFG er stærsta fyrirtæki í Wales mælt í veltu og skiptist í mat- vörukeðjuna Iceland, heildsöluna Booker og Woodward sem þjónustar veitingahúsageirann. Iceland er þekktasta merki keðj- unnar og hefur átt á brattann að sækja í harðri samkeppni við stór- markaði eins og Tesco og Morrison. Til að bregðast við samkeppninni greip BFG til þess ráðs m.a. að end- urnýja verslanir sínar sem skipta hundruðum, en fyrirtækið á enn tals- vert í land með að klára þá vinnu. Verð hlutabréfa félagsins hefur hrunið úr 182 pensum á hlut í febr- úar á þessu ári niður í 88, eins og verðið var við lokun í gær. Í Icwales segir að menn hafi lengi velt vöngum yfir hugsanlegri yfirtöku Baugs á BFG, en Baugur á fjórðungs- hlut í félaginu, og í ágúst var jafnvel talið að Bill Grimsey myndi fara fyrir stjórnendum félagsins og kaupa það. Vitnað er í ónefnda sérfræðinga á markaðnum sem draga í efa að rökin fyrir því að taka félagið yfir séu nógu góð. Uppskipting BFG sögð hugsanleg

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.