Morgunblaðið - 07.09.2004, Side 15
Hafin er byggingnýs íþróttahúss áSuðureyri við
Súgandafjörð. Átta börn
tóku fyrstu skóflustung-
una á dögunum. Ísafjarð-
arbær bauð út smíði húss-
ins í alútboði, að því er
fram kemur á vef bæj-
arins. Verktakafyrirtækið
Ágúst og Flosi á Ísafirði
varð hlutskarpast og ann-
ast smíðina.
Húsið rís milli grunn-
skólans og sundlaug-
arinnar og verður tengt
báðum húsunum. Íþrótta-
kennsla hefur farið fram í
félagsheimilinu á Suður-
eyri. Það er hins vegar
orðið gamalt og þarfnast
viðhalds. Þess vegna var
tekin ákvörðun um að nýtt
íþróttahús yrði fjölnota
þannig að það gegni hlut-
verki félagsheimilis þegar
það á við, segir á vefnum,
þótt aðalhlutverk þess
verði í þágu íþróttanna.
Félagsheimilið verður
auglýst til sölu.
Íþróttahús
Rúnar Kristjánssonfór til Grímseyjarí fyrrasumar og
naut dvalarinnar. Hann
orti:
Grímsey í öllu er íslensk og sönn
og ekki er hér kynslóðabilið.
Hér lifir og dafnar sú áræðis önn
sem alltaf á virðingu skilið.
Hann skrifaði svo eftir-
farandi í gestabókina á
gististaðnum þegar þau
hjónin kvöddu eyna:
Við komum og gistum hér
fagnandi frjáls,
í ferðinni perlurnar lásum.
Og þökkin í hjörtunum hóf sig til
máls
á hreinustu gleðinnar rásum.
Og sólina í ljóma hins sindrandi
báls
við sáum með hrifningu á
Básum!
Við biðjum að allt sem til
blessunar er
sé byggðinni í Grímsey til þrifa.
Að fólkið það megi til framtíðar
hér
við farsæld og hamingju lifa.
Sú bæn er frá konunni minni og
mér
og mitt var að yrkj́ana og skrifa!
Blessuð sé
Grímsey
pebl@mbl.is
Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti Hallgrímsson, skap-
ti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson,
krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-
5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115. Árborg-
arsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Eftir gott og gjöfult sumar er lífið smám
saman að færast í fastari skorður. Skólastarf
er hafið og smám saman hefst ýmis starf-
semi sem fylgir vetrinum, íþróttir, kórastarf
og ýmiss konar félagsstarf og óðum styttist í
göngur og réttir. Börnin sem þurfa að sitja
allt upp í klukkutíma hvora leið í Grunnskól-
ann í Borgarnesi, anda nú léttar eftir að í ljós
kom að sömu, vinsælu skólabílsstjórarnir
mundu áfram sjá um aksturinn. Þar með er
sú óvissa og sá kvíði sem greip um sig þegar
bæjarstjórn Borgarbyggðar ákvað að bjóða
út skólaaksturinn á enda. En eitthvað hefur
ævintýrið kostað og ekki er séð fyrir endann
á því enn, þar sem deilumál hafa risið vegna
útboðsins í skólaakstur í Varmalandsskóla.
Óvissan um hvort kennaraverkfall skellur á
er mikil þessa dagana og slæmt ef svo verð-
ur, ekki síst fyrir nemendur í 4. og 7. bekk
sem eiga að taka samræmd próf um miðjan
næsta mánuð. Verkföllum þessum fylgir oft
mikil upplausn og kemur verst niður á nem-
endunum. Ef verkfall skellur á þurfa börnin í
þessari sveit ekki að hafa áhyggjur af því að
biðja um réttarfrí, því réttað verður í Hítar-
dal 20. september og á Grímsstöðum 21.
september. Þótt fé hafi fækkað mikið er
óhætt að segja að fólki sem kemur í rétt-
irnar, hvort sem er ríðandi eða akandi, fjölgi
stöðugt. Það er alltaf gaman í réttunum og
flestir virðast fyrst og fremst vera komnir til
að sýna sig og sjá aðra og njóta dagsins.
Réttarstörfin ganga yfirleitt fljótt fyrir sig,
eiginlega of fljótt, enda hafa margir gaman
af því að hjálpa til við að draga fé fyrir fjár-
flestu bændurna.
Hér á Álftanesi er kirkja sem er 100 ára á
þessu ári. Bygging hennar hlýtur að hafa
verið mikið afrek fyrir sóknina á sínum tíma
og sést að lögð hefur verið alúð við hvert
smáatriði. Viðgerð á kirkjunni hófst árið
1987 og lauk árið 1995 þegar haldið var upp á
95 ára afmælið, ári of seint. Enn hefur ekk-
ert verið ákveðið með afmælishald, en von-
andi tekst að halda upp á þessi merku tíma-
mót á afmælisárinu sjálfu að þessu sinni.
Álftaneskirkja ásamt Borgarkirkju, Akra-
kirkju, Álftártungukirkju og Staðarhraun-
skirkju eru helstu menningarverðmæti
þessa svæðis. Á undanförnum árum hefur
verið lagður metnaður í að gera þær upp og
halda þeim vel við eins og vera ber.
Úr
sveitinni
ÁLFTANES Á MÝRUM
EFTIR ÁSDÍSI HARALDSDÓTTUR BLAÐAMANN
Keflavík | Rán Ísold Eysteinsdóttir, 9 ára Keflavíkur-
mær, bauð Ljósanæturgestum að velja sér óskastein og
henda í óskabrunninn að ósk lokinni.
Rán Ísold er mikill steinasafnari og alltaf þegar hún
finnur fallega steina tekur hún þá með sér heim. Hún
safnar óskasteinum. Þegar hún sá að lítið væri í boði
fyrir börn á Ljósanótt, nema það kostaði peninga,
ákvað hún að bjóða þeim að óska sér með steinunum
sínum. Hún bjó til mynd sem á stóð „Við látum óskir
þínar rætast“ og rétti fram körfuna. Allmargir óskuðu
sér, ekki bara börn, og stóð hún vaktina alveg fram að
flugeldasýningu á laugardag.
Með Rán Ísold á myndinni er Saga litla systir.
Morgunblaðið/Svanhildur
Óskir rætast
Vatnsmýrin | Mávager safnaðist
saman við framkvæmdirnar við
færslu Hringbrautar þegar verið
var að fylla með skeljasandi ekki
langt frá Reykjavíkurtjörn.
Mávarnir voru hrifnir af þeirri
hugmynd að nota skeljasand í
undirlagið og leituðu í hundr-
aðatali að fæði í sandinum.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Mávager sækir í framkvæmdir
Ætisleit
UMHVERFISNEFND Ísafjarðarbæjar
nefnir þann möguleika að efna til útboðs
meðal olíufélaganna við úthlutun lóða undir
bensínstöðvar á Ísafirði. Kemur þetta fram í
umsögn um umsóknir fjögurra olíufélaga
um lóðir undir bensínstöðvar.
Ein lóð er laus fyrir bensínstöð, á Skeiði
fyrir ofan Ljónið. Í síðasta mánuði bárust
bænum fjórar umsóknir, frá Olís sem vill
byggja sjálfsafgreiðslustöð, Bensínorkunni,
Olíufélaginu og Atlantsolíu sem hyggst
koma upp sjálfsafgreiðslustöð. Fjallað hefur
verið um þessar umsóknir í nefndum bæj-
arins en niðurstaða liggur ekki fyrir.
Umhverfisnefndin kom sjónarmiðum sín-
um á framfæri við bæjarráð. Að því er fram
kemur í frétt á fréttavef Bæjarins besta tel-
ur nefndin heppilegast að bjóða út tvær lóð-
ir, aðra á Eyrinni en hina á Fjarðarsvæðinu.
Nefndin telur að með útboði sé hægt að
setja ýmis skilyrði, svo sem um að ætíð verði
boðið upp á sama verð á eldsneyti og lægst
er í Reykjavík, um þvottaplan og fleira.
Jafnframt leggur nefndin áherslu á að við
gerð útboðsgagna verði reynt að tryggja
samkeppni í eldsneytissölu.
Vilja bjóða út
lóðir fyrir
bensínstöðvar
FYRSTI fundur borgarstjórnar Reykjavík-
ur eftir sumarleyfi verður í dag klukkan tvö
í Ráðhúsinu. Reglulegir fundir borgar-
stjórnar verða fyrsta og þriðja þriðjudag
hvers mánaðar en ekki á fimmtudögum eins
og verið hefur. Fundir borgarráðs víxlast
við fundi borgarstjórnar og verða nú haldnir
á fimmtudögum í hverri viku.
Í vor var ákveðið breytt fyrirkomulag
borgarstjórnarfunda og hefur félagsmála-
ráðuneytið staðfest breytingarnar. Voru
oddvitar stjórnmálaflokkanna sammála um
að gera fundarsköpin líkari því sem fólk
þekkir á fundum Alþingis.
Borgarfulltrúar og ný forsætisnefnd, sem
skipuleggur starf borgarstjórnar, ákveða
hvaða mál fara á dagskrá borgarstjórnar-
funda og umræða um þau er kláruð áður en
farið er í það næsta. Áfram er borgarfulltrú-
um heimilt að fjalla um önnur mál, sem
koma fram í fundargerðum ráða og nefnda
borgarinnar, en tími til þess er styttur.
Borgarstjórn
kemur aftur
saman í dag
♦♦♦