Morgunblaðið - 07.09.2004, Side 16
MINNSTAÐUR
16 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Skemmtilegur kostur
á svalir
Slakaðu á í mjúkum og
notalegum nuddpotti frá Softub
Pottarnir frá Softub hafa farið sigurför um Bandaríkin og Kanada
undanfarin ár fyrir frábæra hönnun. Þessir léttu og einföldu nudd-
pottar hafa veitt ánægju og gleði en eru ekki síst notaðir heilsunnar
vegna.
Softub-pottana er hægt að nota í hvernig veðráttu sem er, jafnt inn-
andyra sem utan, t.d. við sumarbústaðinn, í garðinum, inni í stofu
eða úti á svölum. Á þeim stöðum þar sem ekki er aðgangur að heitu
vatni, sér hitunarbúnaður pottsins um að hita vatnið upp.
Auðvelt er að flytja pottana á milli staða. Þess vegna getur það hent-
að mörgum að vera með pottinn við sumarhúsið á sumrin en á
heimilinu yfir veturinn.
Softub-pottarnir vega einungis um það bil 30 kg tómir svo einstak-
lega auðvelt er að færa þá úr stað.
Softub-pottunum er hægt að rúlla í gegnum öll stöðluð hurðaop t.d.
utan úr garði og inn í stofu. Softub-pottana er hægt að fá 2, 4 og 6
manna og í ýmsum litum. Í öllum Softub-nuddpottunum er Ozone-
hreinsibúnaður.
Fallegt útlit - sterk bygging - þaulhugsaðar tæknilausnir
JÓN BERGSSON EHF.
SAMNINGUR milli Akureyrar í
öndvegi og Akureyrarbæjar var
undirritaður í gær, um fjölþætta að-
komu og styrk bæjarins við átaks-
verkefni miðbæjarins „Akureyri í
öndvegi“. Samningurinn leggur
grunninn að margháttaðri samvinnu
bæjarins og aðila verkefnisins og
miðar að því að verkefnið skili þeim
árangri sem aðstandendur þess hafa
stefnt að varðandi skipulag og efl-
ingu miðbæjarins á Akureyri.
Þannig mun bærinn fá aðgang að
upplýsingum og hugmyndum sem
safnast í samráðsferli með íbúum
Akureyrar og undirbúningi fyrir al-
þjóðlega hugmyndasamkeppni sem
samið hefur verið um að Arkitekta-
félag Íslands annist framkvæmd á.
Kristján Þór Júlíusson bæjarstjóri
mun leiða dómnefnd keppninnar og
Bjarni Reykjalín, deildarstjóri um-
hverfisdeildar bæjarins, verður ráð-
gjafi hennar. Að lokinni úrvinnslu
hugmynda mun bærinn öðlast að-
gang að öllum hugmyndunum og
stefnt er að frekari samvinnu til að
unnt verði að hrinda vinningstillög-
unni, eða tillögunum í framkvæmd.
Stefnt er að sem mestri þátttöku í
opna þinginu og þannig verði tryggt
að fullt tillit verði tekið til sjónar-
miða íbúa við útfærslu framtíðar-
skipulags miðbæjarins. „Ég skora á
Akureyringa að taka þátt í því að
nýta það framtak sem verður til úti í
samfélaginu til að skapa betri lífs-
skilyrði og móta framtíð svæðisins,“
sagði Kristján Þór.
Meðal þeirra þátta sem bærinn
mun leggja til er húsnæði og aðstaða
undir opna samráðsþingið í Íþrótta-
höllinni hinn 18. september, sem
mun standa frá kl. 10–18. Eins mun
bærinn leggja til húsnæði undir
kynningu í kjölfar þingsins sem og
kynningu á verðlaunahugmyndun-
um í sumarbyrjun á næsta ári. Þá
munu starfsmenn bæjarins aðstoða
við útvegun gagna sem varða skipu-
lag og sögu Akureyrar. Aðstandend-
ur verkefnisins telja að sú stuðnings-
yfirlýsing sem felst í samningnum
við bæinn sé mikils virði og auki
vægi alþjóðlegu hugmyndasam-
keppninnar og muni væntanlega
skila sér í fleiri og betri tillögum.
Auk þeirra samninga sem búið er
að ganga frá, við Akureyrarbæ,
Arkitektafélag Íslands og ráðgjafar-
fyrirtækið Alta, til að tryggja fram-
kvæmd íbúasamráðsins og hug-
myndasamkeppninnar, koma fjöl-
margir aðrir aðilar að undirbúningi
og framkvæmd opna þingsins.
Átaksverkefnið
„Akureyri í öndvegi“
Fjölþætt
aðkoma
bæjarins að
verkefninu
Reiðhjólaslys | Unglingspiltur slas-
aðist á höfði er hann hjólaði framan á
fólksbíl á gatnamótum Vestursíðu og
Bugðusíðu í gærmorgun. Hann var
fluttur með sjúkrabifreið á slysadeild
FSA en fékk að fara heim að lokinni
skoðun. Að sögn lögreglu slapp pilt-
urinn vel miðað við aðstæður en hann
var hjálmlaus og hefði sloppið enn
betur hefði hann verið með hjálm.
Helgin á Akureyri var með allra
rólegasta móti að sögn varðstjóra hjá
lögreglunni en þó voru tveir ökumenn
teknir, grunaðir um ölvun við akstur.
Mannúðarmál | Evrópusambandið
og mannúðarmál er yfirskrift lög-
fræðiþings sem haldið verður í Há-
skólanum á Akureyri í dag, þriðju-
daginn 7. september, kl. 16.30 í stofu
14 í Þingvallastræti.
Hulda Herjólfsdóttir Skogland
ræðir um hjálpar- og mannúðarstarf
ESB auk þess gerir hún grein fyrir
starfi sínu á hjá efnahags- stjórn-
mála- og lagadeild fastanefndar
sambandsins fyrir Noreg og Ísland
en nefndin hefur aðsetur í Ósló.
vinnu við fjölda háskóla sem sinntu málum sem
snúa að þróunarstarfi. Þegar væri til staðar
mikil þekking og reynsla á norðurslóðasvæð-
unum, en að vissu marki væri ástand þar með
SKRIFAÐ hefur verið undir rammasamning
milli Háskólans á Akureyri og Þróunarsam-
vinnustofnunar Íslands um samvinnu þessara
stofnana.
Mikael M. Karlsson, forseti félagsvísinda- og
lagadeildar Háskólans á Akureyri, sagði að
næstu skref yrðu að ræða um hugsanleg verk-
efni sem stofnanirnar gætu unnið sameiginlega
að. Björn Ingi Hrafnsson, stjórnarformaður
Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, sagði samn-
ing einnig vera á milli stofnunarinnar og Há-
skóla Íslands, en mikilvægt væri að færa út kví-
arnar og því ánægjulegt að samstarf hefði
einnig tekist við Háskólann á Akureyri. Hann
sagði þróunarsamvinnu mundu skipta æ meira
máli í framtíðinni og Íslendingar hefðu skyldum
að gegna gagnvart þjóðum sem ekki stæðu jafn
vel og Íslendingar. Á þeim vettvangi hefðum við
tekið okkur á og stefnt væri að því að þróun-
araðstoð myndi nema 0,35% af landsframleiðslu
árin 2008 til ’09. „Ég tel að þessi samningur geti
orðið mikil lyftistöng fyrir okkur, háskólann og
þróunarsamvinnu almennt,“ sagði Björn Ingi.
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á
Akureyri, sagði hann vel í stakk búinn til að tak-
ast á við verkefni á þessu sviði, en háskólinn
legði áherslu á alþjóðleg samskipti og ætti sam-
svipuðum hætti og í þriðja heiminum svonefnda.
„Það er mikilvægt að koma þeirri þekkingu og
reynslu á framfæri við heimsbyggðina,“ sagði
rektor.
Háskólinn á Akureyri og Þróunarsamvinnustofnun Íslands taka upp samvinnu
Rammasamningur undirritaður
Morgunblaðið/Kristján
Rammasamningur: Björn Ingi Hrafnsson, formaður stjórnar Þróunarsamvinnustofnunar Íslands, og
Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri, skrifuðu undir samninginn. Við hlið þeirra sitja
Sighvatur Björgvinsson, framkvæmdastjóri ÞSSÍ, og Sjöfn Vilhelmsdóttir, útgáfu- og fræðslustjóri.
♦♦♦
AKUREYRI