Morgunblaðið - 07.09.2004, Page 19
Íbakhúsi við Skipholt 33 b,leynist forvitnilegt völund-arhús þar sem gengið er úreinu herberginu í annað.
Lyktin er það fyrsta sem heillar:
Olíulitir. Málverk og höggmyndir út
um allt. Ljóð og heimspekilegar pæl-
ingar hér og þar. Og í einu herberg-
inu finnst loks það sem leitað er að:
Ásta Guðmundsdóttir fatahönnuður
innan um ótal flíkur, snið og efnis-
stranga. Þetta er vinnustofa Ástu og
kann hún afskaplega vel við sig í
kompaníi við unga og nýútskrifaða
listafólkið sem deilir með henni hús-
næðinu í Skipholtinu.
Ásta sinnir starfi sínu af mikilli
elju og nýlega var hún tilnefnd til
hönnunarverðlauna hjá danska tísku-
tímaritinu IN. „Ég hef sýnt mínar
línur í nokkur ár úti í París, á tísku-
vikunni sem þar er haldin tvisvar á
hverju ári. Þetta eru sölusýningar en
ég fór núna í ágúst í fyrsta skipti með
hönnun mína á sýningu til Kaup-
mannahafnar. Pressuskrifstofan
Spalt kynnti það sem væntanlegt var
á sýningunni og þarna kom fullt af
fólki og fulltrúar frá fjölmiðlum, með-
al annars tískublöðunum. Þeir hjá
IN-blaðinu voru greinilega hrifnir af
því sem ég hafði fram að færa, því ég
fékk fljótlega að vita að ég hefði verið
tilnefnd til þessara hönnunarverð-
launa. Þetta kom sér auðvitað vel, því
þá fékk ég meiri athygli á sýningunni
sjálfri.“
Íslenska ullin er töfraefni
Ásta byggir í hönnun sinni mikið á
íslenskri náttúru og vill hafa efnin
hrá og gróf og dálítið veðruð. „Ég er
mikið fyrir andstæður og því stefni
ég oft saman fínleika og grófleika í
fötunum. Ég nota íslenska ull mikið,
en líka silki og bómull. Ég hef alltaf
verið mikið fyrir að vinna með efnið
sjálft, ég þæfi ullina, lita efnin og
meðhöndla þau á einhvern hátt, svo
þau verði frjálslegri og eins og þau
hafi velkst um í sjónum og veðrast í
vindinum. Fötin mín eru kvenleg en
samt gróf og hrá, enda hefur þeim
veri lýst sem „brutal feminin“.
Ásta segir ullina vera frábært hrá-
efni og hún er alltaf að gera eitthvað
nýtt með þessu undraefni. „Sérstaða
okkar hér á Íslandi er hráefnið og við
eigum að notfæra okkur það en ekki
reyna að gera það sama og allir hinir
úti í heimi. Íslenska ullin er mikið
gæðaefni og hún býður upp á ótal út-
færslur í efnismeðferð.“
Fyrir ári síðan bætti Ásta smávör-
um í hönnunarlínu sína, húfum, trefl-
um og öðru slíku. Auk þess tekur hún
að sér að hanna flíkur á fólk við sér-
stök tækifæri og má þar helst nefna
brúðarkjóla.
Gaman að vinna fyrir leikhús
Ásta bjó í Þýskalandi í 17 ár og
lærði fatahönnun í Fachhochschule
für Gestaltung og útskrifaðist þaðan
1990. „Eftir að ég lauk námi vann ég
meðal annars fyrir leikhús í Þýska-
landi. En ég flutti heim fyrir sjö ár-
um og þá ætlaði ég mér að fara meira
út í leikhúsvinnu og byrjaði á að gera
leikbúninga fyrir söngleikinn Evitu.
Mér finnst mjög skemmtilegt að
vinna fyrir leikhús og það sést
kannski á kjólunum sem ég hanna,
þeir eru dálítið dramatískir og hafa á
sér fantasíuyfirbragð. Ég starfaði
líka við auglýsingabransann og sá
meðal annars um búningasafnið fyrir
Saga Film. En síðastliðin þrjú ár hef
ég einbeitt mér eingöngu að fata-
línunni minni sem ég kalla Ásta
(créative clothes) og ég hef lagt mikið
í að koma henni á framfæri erlendis
og það gengur vel.“
Þetta er langhlaup
Ásta selur föt í Japan, Þýskalandi,
Svíþjóð, Írlandi og Englandi. „Svo
verður mjög spennandi íslensk versl-
un opnuð í Kaupmannahöfn fljótlega,
sem verður líka gallerí og þar verða
föt frá mér til sölu.“ Hér heima á Ís-
landi er hægt að nálgast fötin, sem
Ásta hannar, í Kirsuberjatrénu á
Vesturgötunni.
Fatahönnun er langhlaup að sögn
Ástu. „Þetta er mikil barátta sem
krefst þolinmæði, því það gerist ekk-
ert í þessum bransa nema á löngum
tíma. Ég er afskaplega ánægð með
þá kynningu sem ég fékk í framhaldi
af tilnefningunni hjá IN í Danmörku
og ég er á fullu að búa mig undir
næstu sýningar sem verða í París
núna í október, en þar ætla ég að
kynna sumarlínuna fyrir næsta ár og
síðan kynni ég vetrarlínuna 2005/6 í
febrúar í Kaupmannahöfn og í mars í
París.“
HÖNNUN | Ásta Guðmundsdóttir fatahönnuður var tilnefnd til hönnunarverðlauna hjá danska tískutímaritinu IN
Morgunblaðið/Sverrir
Ásta Guðmundsdóttir: Fatahönnuður á vinnustofu sinni.
Klæði hlaðin íslenskri náttúru
Síðan í danska tísku-
tímaritinu IN: Ásta
kynnt til sögunnar
vegna tilnefningar til
hönnunarverðlauna.
Logn, andvari,
gola, strekk-
ingur, stormur,
rok, ofsaveður,
fárviðri.
www.astaclothes.is
khk@mbl.is
Ljósmyndir/Annetta Scheving
DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 19
580 80 80
Vilt þú auglýsa!
Þetta svæði er laust núna
hringdu í síma
midlun@midlun.is
Vilt þú komast frá amstri hversdagsleikans?
Sumarbústaðir með heitum potti, aðeins
klukkustundarakstur frá Reykjavík.
Stærra hús sem hentar fyrir
hópa og starfsmannafélög.
Stórbrotið umhverfi, hestaleiga á
Löngufjöru
s. 435 6628, 863 6628
Ferðaþjónusta Snorrastaða
s. 435 5627, 899 6627
Við höfum
svarið.
Stutt í
berjamó.Reykjavík v/ Ægisgarð • S. 555 3565 • www.elding.is
Hvalaskoðun
Þrjár ferðir daglega – fróðleg skemmtun
fyrir alla fjölskylduna!
Ferðir alla þriðjudaga kl. 18:00 og
laugardaga kl. 13:30. Einnig sérferðir
fyrir hópa, tímar eftir samkomulagi.
Sjóstangaveiði á sjó
Ævintýri
FERÐALÖG