Morgunblaðið - 07.09.2004, Page 20
UMRÆÐAN
20 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
OFT er talað um að á Akureyri sé
vagga flugsins á Íslandi. Um réttmæti
þeirrar staðhæfingar má eflaust deila
og sitt sýnist hverjum. Það má þó með
sanni segja að flugsaga
Akureyrar er mjög
merkur þáttur í flugsögu
Íslands.
Fyrsta flug íslenskrar
flugvélar var farið úr
Vatnsmýrinni í Reykja-
vík árið 1919 en þá hafði
fyrsta flugfélagið á Ís-
landi verið stofnað, Flug-
félag Íslands númer eitt.
Þetta gerðist 16 árum
eftir að Wrightbræður
flugu sínu fyrsta vél-
knúna flugfari, en það
var jafnframt fyrsta vél-
flug í heiminum. Flugfélag Íslands
númer tvö var stofnað í Reykjavík, 1.
maí 1928 og fyrsta áætlunarflug á veg-
um þess og jafnframt fyrsta áætl-
unarflug á Íslandi, milli tveggja staða,
var farþegaflug frá Reykjavík til Ak-
ureyrar 4. júní sama ár. Það var jafn-
framt í fyrsta skipti sem flugvél kom
til Akureyrar. En varanlegur grunnur
að framtíð áætlunarflugs á Íslandi var
lagður á Akureyri þegar Flugfélag
Akureyrar var stofnað þar 3. júní 1937.
Nafni félagsins var síðan breytt, 13.
mars 1943, í Flugfélag Íslands og varð
númer þrjú í röðinni með því nafni.
Það félag, upprunalega Flugfélag Ak-
ureyrar og Loftleiðir sameinuðust árið
1973 undir nafninu Flugleiðir. Flug-
félagið Loftleiðir hafði verið stofnað á
árinu 1944, eða fyrir 60 árum.
Allt frá því Akureyringar sáu Junk-
ers-flugvél Flugfélags Íslands á Poll-
inum, 4. júní árið 1928, hefur ríkt mikill
áhugi á flugi meðal Akureyringa, en á
árinu 1937 fóru hlutirnir að gerast.
Flugfélag Akureyrar var stofnað á því
ári, eins og áður er getið og einnig
Svifflugfélag Akureyrar sem enn
starfar af fullum krafti. Módelflugfélag
Akureyrar var stofnað á árinu 1939 og
Flugskóli Akureyrar á árinu 1945 og
starfaði fram á árið 1948. Flugskóli
með því nafni er enn rekinn á Ak-
ureyri, þó nokkuð langt hlé hafi orðið á
rekstrinum frá því sá fyrsti hætti
rekstri árið 1948. Flugkennsla lá þó
ekki niðri á Akureyri nema í u.þ.b. 12
ár, en á árinu 1960 hóf Tryggvi Helga-
son flugkennslu, sem nokkru síðar
fluttist undir nafn Norðurflugs og eftir
kaup Flugfélags Norðurlands á Norð-
urflugi var flugskóli
rekinn á vegum þess.
Flugskóli Flugfélags
Norðurlands fékk síðan
formlega nafnið Flug-
skóli Akureyrar árið
1990 með samþykki
stofnenda fyrsta skól-
ans með því nafni, Gísla
Ólafssonar og Árna
Bjarnarsonar
Núverandi Flugskóli
Akureyrar er rekinn á
vegum Kristjáns Vík-
ingssonar.
Gísli Ólafsson, lög-
reglumaður á Akureyri, fékk snemma
áhuga á flugi og var einn af stofn-
endum Flugfélags Akureyrar, á Hótel
Gullfossi, árið 1937. Hann lagði fram
300 krónur sem nú standa sem hlutafé
í Flugleiðum hf. og er mér ekki kunn-
ugt um aðra stofnendur á lífi.
Gísli gerðist félagi í Svifflugfélagi
Akureyrar árið 1939 og æfði svifflug af
krafti. Gísla langaði til að læra vélflug,
en enginn flugskóli var til á Akureyri
svo ekki var um annað að ræða en að
stofna einn slíkan. Það gerði hann
ásamt Árna Bjarnarsyni, bóksala á
Akureyri, á árinu 1945. Nokkru síðar
bættist þriðji eigandinn við, sem var
Steindór Hjaltalín frá Siglufirði.
Gísli frétti frá Íslendingum, sem
voru við flugnám í Kanada, að nokkuð
væri til af lítið notuðum æfingaflug-
vélum í Winnipeg. Flugvélarnar höfðu
verið í notkun hjá flugskóla hersins, en
hann var að draga saman seglin. Gísli
gerði fyrirspurn um verð, með aðstoð
Kristjáns Mikaelssonar, sem var einn
flugnemanna og leiddi það til kaupa á
tveim Tiger Moth flugvélum. Kristján
varð síðan fyrsti kennari Flugskólans.
Flugvélarnar komu til Reykjavíkur
með skipi, voru settar saman þar og
síðan flogið til Akureyrar. Annar Ís-
lendingur, sem hafði verið við flugnám
í Kanada með Kristjáni, Njáll Guð-
mundsson, gerðist einnig kennari við
skólann. Gísli lærði að fljúga hjá Krist-
jáni Mikaelssyni og tók A-próf, 11. júní
1947, hjá Sigurði Jónssyni flugmanni
sem gekk gjarnan undir nafninu Siggi
flug. Sigurður hafði íslenskt flug-
skírteini númer 1, en Gísli fékk skír-
teini númer 59.
Flugskólinn keypti alls 6 flugvélar á
ferli sínum, en mest voru 5 í notkun á
sama tíma.
Þessi fyrsti Flugskóli Akureyrar
hætti rekstri, eins og fyrr segir, árið
1948 vegna skorts á nemendum. Flug-
vélarnar voru allar seldar til flugskóla í
Reykjavík.
Þar sem Akureyri hefur átt ríkan
þátt í flugsögu Íslands, þótti staðurinn
tilvalinn fyrir flugsafn og var því Flug-
safnið á Akureyri stofnað í maí 1999. Í
stofnskrá kemur það fram að hlutverk
Flugsafnsins sé að safna, varðveita og
sýna muni sem tengjast upphafi flugs
á Íslandi og sögu og þróun þess. Einn-
ig er það markmið safnsins að safna
myndum og skrá sögu flugsins og aðra
þá þætti sem hafa menningarsögulegt
gildi fyrir flugsöguna. Og að Flug-
safnið á Akureyri sé minjasafn um
flugsöguna á Íslandi. Lögheimili þess
sé á Akureyrarflugvelli, Akureyri, en
starfssvæði þess nær til landsins alls.
Auk fastra sýninga, hjá Flugsafninu
á Akureyri, eru settar upp sérsýningar
árlega af ýmsum tilefnum. Í ár var
þess minnst að 60 ár eru frá stofnun
Loftleiða, og þess að 50 ár eru síðan
Arngrímur B. Jóhannsson hóf flug-
nám á Melgerðismelum, hjá Svifflug-
félagi Akureyrar.
Framundan eru næg tækifæri til
sérsýninga þó hæst beri 70 ár frá upp-
hafi Flugleiða, með stofnun Flugfélags
Akureyrar, 2007.
Brot úr flugsögu Akureyrar
Svanbjörn Sigurðsson
skrifar um flugmál ’Það má þó með sannisegja að flugsaga Akur-
eyrar er mjög merkur
þáttur í flugsögu Ís-
lands.‘
Svanbjörn Sigurðsson
Höfundur er framkvæmdastjóri
Flugsafnsins á Akureyri.
Í MORGUNBLAÐINU í gær
spyr Ögmundur Jónasson alþing-
ismaður borgaryfirvöld nokkurra
spurninga í kjölfar
útburðar Fé-
lagsbústaða á einum
leigjenda sinna. Ýms-
ar rangfærslur komu
fram í formála þing-
mannsins að spurn-
ingunum sem ekki er
tök á að svara enda
undirrituð bundin
trúnaði um málefni
einstaklinga. Spurn-
ingarnar voru þó
málefnalegar og rétt
að svara þeim. Spurt
er hversu algengt það
sé að efnalítið fólk sé
borið út úr húsnæði
vegna vanskila, hver
skilningur borgaryf-
irvalda sé á skyldum
sínum varðandi ein-
staklinga sem eiga í
húsnæðisvandræðum
og í þriðja lagi hversu
oft sé lokað fyrir hita
og rafmagn hjá efna-
litlu fólki og hvort
það sé gert í samráði
við félagsmála-
yfirvöld.
Reykjavíkurborg
gætir þess að vinna
samkvæmt settum
reglum til að gæta
fyllsta jafnræðis sem þýðir að fólk
sem býr við svipaðar aðstæður á rétt
á sambærilegri málsmeðferð. Ekki
er hægt að gera undantekningu frá
greiðslu lágrar leigu á meðan aðrir í
svipaðri stöðu eða enn verri standa
skil á sínu. Ef slíkt fengi að viðgang-
ast værum við farin að misnota kerf-
ið og komin út í gamaldags fyrir-
greiðslupólitík sem á engan rétt á
sér. Reykjavíkurborg hefur til ráð-
stöfunar alls 1.670 félagslegar leigu-
íbúðir sem ætlaðar eru tekjulágum
reykvískum einstaklingum og fjöl-
skyldum. Félagsbústaðir hf. eiga og
reka þessar íbúðir en þó er þeim
ekki heimilt að hagnast á rekstri
þeirra. Félagsþjónustan í Reykjavík
úthlutar félagslegum leiguíbúðum
skv. reglum um félagslegar leigu-
íbúðir og sérstakar húsaleigubætur
sem samþykkar voru í borgarráði
24. febrúar 2004. Með samþykkt
þessara reglna var bryddað upp á
þeirri nýjung að bjóða ein-
staklingum/fjölskyldum í erfiðum að-
stæðum, fjárhagslega og félagslega,
uppá sérstakar húsaleigubætur og
auka þannig möguleika þeirra í hús-
næðismálum. Reykjavíkurborg hefur
verið í fararbroddi í úrlausn húsnæð-
ismála og uppfyllir lagaákvæði í lög-
um um félagsþjónustu sveitarfélaga
þó svo við höfum ekki heimild til að
veita fólki húsnæði endurgjaldslaust
og er það ekki á stefnuskrá borg-
arinnar að bjóða upp á slíkt. Þrátt
fyrir að leiga í félagslegum leigu-
íbúðum sé ekki há miðað við almenn-
an markað þá geta komið upp að-
stæður hjá fólki sem gera það að
verkum að illa gengur að láta enda
ná saman og þar með að greiða
húsaleigu. Þessu fólki stendur til
boða að leita aðstoðar hjá Fé-
lagsþjónustunni í Reykjavík, þar
sem metið er hvort og þá hvernig
hægt sé að aðstoða viðkomandi við
að greiða úr fjármálum sínum þann-
ig að unnt sé að standa skil á húsa-
leigu. Ætíð er reynt eins og kostur
er að koma til móts við fólk í fjár-
hagsvandræðum og þá sérstaklega
til að tryggja húsnæði áfram. Regl-
urnar setja að sjálfsögðu ramma
sem m.a. er ætlaður til að tryggja
jafnræði milli notenda í sömu eða
sambærilegum aðstæðum.
Áður en til útburðar kemur er iðu-
lega að baki langur ferill þar sem
ítrekað hefur verið reynt að aðstoða
hlutaðeigandi með húsaleiguskuldir
en ætíð er gengið út frá þeirri for-
sendu að viðkomandi eigi að axla
sjálfur ábyrgð á húsaleigu og sýna
þannig fram á að hann getið greitt
leigu eftir að fengist hef-
ur fjárhagsleg aðstoð
annaðhvort með styrk
eða láni.
Varðandi fjölda út-
burða þá var skv. upplýs-
ingum Félagsbústaða á
árinu 2002 einn útburður
vegna vanskila, 2003
voru þeir tveir en frá
áramótum 2004 hafa út-
burðir á þessum for-
sendum verið fjórir.
Varðandi samstarf við
Orkuveituna er það svo
að Orkuveitan bendir
fólki í vanskilum á að
hægt sé að leita til Fé-
lagsþjónustunnar með
aðstoð. Með samþykki
notanda er þá í
ákveðnum tilvikum rætt
við Orkuveituna og lögð
upp áætlun um borgun á
skuld. Almennt er ekki
haft samband við Fé-
lagsþjónustuna áður en
lokað er fyrir rafmagn
enda hefur fólki alltaf
verið gefinn kostur á að
leita aðstoðar hjá Fé-
lagsþjónustunni áður. Af
framangreindu má ljóst
vera að félagsmála-
yfirvöld í Reykjavík eru
tilbúin að semja við fólk um húsa-
leiguskuldir og ganga yfirleitt mjög
langt í því að koma á móts við þarfir
fólks. En í þessum málum sem og
öðrum verða báðir aðilar að hafa vilj-
ann til að semja.
Um útburð úr
félagslegu
leiguhúsnæði
Björk Vilhelmsdóttir svarar
Ögmundi Jónassyni
Björk Vilhelmsdóttir
’Áður en til út-burðar kemur
er iðulega að
baki langur fer-
ill þar sem
ítrekað hefur
verið reynt að
aðstoða hlut-
aðeigandi með
húsaleigu-
skuldir.‘
Höfundur er borgarfulltrúi
og formaður félagsmálaráðs.
HÉR er smáinnlegg varðandi
brottfall og styttingu náms. Ít-
arlegri grein er á heimasíðu minni,
www.simnet.is/gislib. Fyrst um
styttingu náms.
Það verður ekki séð
að stytting náms til
stúdentsprófs sé besta
lausnin. Miðað við
Danmörku þá er sókn í
11. bekk grunnskólans
62%.(Vefrit mmrn.)
Samt verður að fara
varlega í allan sam-
anburð milli landa er
varðar kennslu-
stundafjölda eða daga-
fjölda í skóla. Ef sam-
ræmi á að vera milli
þessara landa verður
að bera saman ísl. 10.
bekk og danskan 9. bekk.
Hvað er brottfall?
Aðferðin sem hið opinbera notar er
sú að taldir eru saman nemendur í
dagskóla á framhaldsskólastigi
ásamt iðnnemum á samningi um
miðjan október 2002 samkvæmt
nemendaskrá Hagstofu Íslands og
þeir bornir saman við skráða nem-
endur í öllum skólum/skólastigum
um miðjan október 2003. Þeir nem-
endur sem hvorki höfðu útskrifast á
þessu tímabili né komu fram í nem-
endaskrá haustið 2003 teljast vera
brottfallnir þetta ár. (Vefrit mmrn
16/2004.) Þetta er ekki sama aðferð
og nágrannalönd okkar nota. Þá er
þetta ekki í samræmi við eldri ís-
lenskar kannanir (Jón Torfi og
Gerður G. Óskarsdóttir). Það er að
vísu tekið fram sérlega hjá Hag-
stofu. Það sést ekki að nemandi í
fjölbrautaskóla getur fallið frá námi
í ákveðinni grein eða greinum en
haldið áfram námi.
Oftar en ekki leiðir
þetta til brottfalls úr
skóla. Þetta ósýnilega
brottfall hefur ekki
mér vitandi verið rann-
sakað til hlítar. Kann
að vera að skólarnir
vilji halda sem lengst í
hvern nemanda jafnvel
þótt hann sé í innan
við tólf eininga námi (á
önn).
Ég veit þess dæmi
að í einni verknáms-
deild hafi byrjað tólf
nemendur en einungis fjórir verið
eftir við lok annar. Hér er brotfallið
66%.
Brottfall við upphaf náms
í framhaldsskólum
Þá á ekki að koma neinum á óvart
að brottfall er mest við upphaf
skólagöngu. Í raun mætti staðhæfa
að brottfallið sé meira. Staðreyndin
er sú að um þriðjungur í fjölbrauta-
skóla skiptir um námsgrein eða
braut á fyrsta skólaári. Þá kem ég
ekki auga á rökfestu fyrir styttingu
náms til stúdentsprófs að slík dragi
úr brottfalli. Enn á ný eru epli og
appelsínur borin saman. Mesta
brottfallið er meðal verknámsnem-
enda sem hafa ekki þrek í fjögurra
ára framhaldsnám eftir grunnskóla-
próf. Það þarf að skoða það í alvöru
hvort ekki sé hægt að búa til styttra
nám sem lýkur með e.k. réttindum.
Hér vísa ég í skýringartöflu sem
fylgdi svari m.m.ráðherra til Björg-
vins G. Sigurðssonar. Samkvæmt
henni er tvöfalt meira brottfall úr
starfsnámi en bóknámi. (Vefrit
mmrn ágúst 2003.) Til samanburðar
eru samsvarandi prósentutölur ná-
grannalandanna frá 4–10% Segjum
að hvert prósentustig kosti 100
milljónir, þá er kostnaðurinn hér á
landi nær milljarður á hverju ári
(nánar á heimasíðu).
Brottfall eftir kennsluformi
Í skýrslu Hagstofunnar er borið
saman brottfall eftir kennsluformi.
Í ljós kemur að mikill munur er á
brottfalli úr dagskóla og öðrum
kennsluformum s.s. fjarnámi, kvöld-
skóla og utan skóla. Áberandi mest
er brottfallið úr fjarnámi eða tæp
53%. Og svo kemur enn ein þver-
stæðan:
Brottfall eftir aldri nemenda
Athyglisvert er að skoða brottfall í
ljósi aldurs nemendahópsins. Brott-
fall vex með aldri eftir 19 ára aldur
þegar hlutfallstölur eru skoðaðar.
Brottfall 17 ára ungmenna, sem
flest hafa þá verið eitt ár í fram-
haldsskóla, er 15,2%. (Hagtíðindi
ág. ’04.) Sem sagt eldri nemendum
er hættara við að falla frá námi en
yngri. Ég nefndi kostnað upp á
tæpan milljarð fyrr í greininni en ef
þessir 4.100 nemendur hafa hætt
a.m.k. einu sinni í námi og hver
nemandi kostar 450 þúsund á
hverju ári má alveg nefna töluna 1,6
milljarða eða tæplega tvöfalt hærri
kostnað á ári.
Hvað hafa yfirvöld gert –
og hvað er ógert?
Frá því ég kom heim frá námi fyrir
sjö árum hef ég gengið milli emb-
ættis- og stjórnmálamanna til þess
að vekja athygli þeirra á þessum
vanda. Ég hafði kynnst baráttu
Dana, sem þeir nefndu Jakten efter
frafald, og kynnti ég þetta fyrir þá-
verandi menntamálaráðherrum og
fleiri aðilum innan stjórnkerfisins.
Ég taldi þá og tel enn að átak gegn
brottfalli í framhaldsskólunum eigi
að byrja í grunnskólunum. Það skal
upplýst fyrir þá sem það ekki vita
að engin ákvæði um náms- og
starfsráðgjöf eru í grunnskólalög-
unum með beinum hætti. Engin
ákvæði um að það skuli starfa
náms- og starfsráðgjafi í grunn-
skólum landsins og það í fullri
stöðu. Í Danmörku er einn náms- og
starfsráðgjafi á hverja 300 nem-
endur. (Nánar á heimasíðu.) Hér er
staðhæft að myndarleg heild-
arlöggjöf um náms- og starfsráðgjöf
á hvaða skólastigi sem er borgar sig
fyllilega. Vonandi verða þessi skrif
til þess að stækka þá holu sem
dropað hefur í allt of lengi.
Brottfall og stytting
náms til stúdentsprófs
Gísli Baldvinsson skrifar
um menntamál ’Þá á ekki að komaneinum á óvart að brott-
fall er mest við upphaf
skólagöngu.‘
Gísli Baldvinsson
Höfundur er náms- og starfsráðgjafi.