Morgunblaðið - 07.09.2004, Síða 23

Morgunblaðið - 07.09.2004, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 23 Harmi lostnir íbúar í borginniBeslan í rússneska sjálfs-stjórnarlýðveldinu Norður- Ossetíu báru í gær til grafar á annað hundrað fórnarlamba gíslatökunnar í liðinni viku, þúsundir manna voru í líkfylgdunum sem þokuðust áfram um borgina eins og löng lest á eftir líkkistunum. Þung ský hvíldu yfir borginni í gær og nokkuð rigndi. „Drottinn, af hverju tókstu hann svona fljótt?“ sagði grátandi kona sem syrgði ungan dreng. Margir héldu á krossi og mynd af hinum látnu. Sums staðar voru fleiri en einn í sömu gröfinni. Ein fjölskyldan hafði misst tvær systur, Alínu og Íru, þær voru 12 og 13 ára gamlar. „Hér er varla nokkur sem ekki fer í jarðarför í dag,“ sagði ungur maður sem stóð við rústirnar af leikfimisalnum þar sem yfir þús- und manns voru í gíslingu. „Enginn náinn mér dó, bara vinir vina minna. En hvaða máli skiptir það? Þetta voru allt börnin okkar, þau voru öll bræður okkar og systur.“ Þjóðarsorg var í Rússlandi, hvar- vetna voru fánar í hálfa stöng og aflýst var af- þreyingarþáttum í sjónvarpi, að sögn AP- fréttastofunnar. Járnbrautarlestir sem fóru um Beslan þeyttu flautur sínar í virðingarskyni við látna fólkið og fjöldi fólks var í gær við rústirnar af leikfimisal Grunnskóla númer eitt þar sem harmleikurinn fór fram. Örvæntingarfull leit Ekki er enn ljóst hve margir týndu lífi þótt vit- að séu með vissu að á fjórða hundrað dó. Allmörg börn hafa verið flutt á spítala í Moskvu, sum með slæma brunaskaða. Enn gengur fólk um Beslan í örvæntingarfullri leit að ástvinum sínum, heldur á myndum af þeim og biður liðsmenn sjónvarps- stöðva um að birta myndirnar, að sögn The Los Angeles Times. „Við erum að leita að drengnum okkar, Tímúr Tíblojev, hann er ellefu ára,“ sagði móðir sem hélt á mynd af syninum. „Hann hefur ekki fundist , hvorki hjá þeim sem dóu eða hinum sem sluppu. Ég var með honum en við týndum hvort öðru þegar mikil sprenging varð.“ Um 30–40 þúsund manns búa í Beslan sem hef- ur til þessa þótt afar friðsæl borg og algengt að fólk læsi ekki einu sinni útidyrum sínum. Um 30 manns eru taldir hafa verið í árásarliðinu, þ.á m. nokkrar konur. Í liðinu eru m.a. sagðir hafa verið Tétsenar og Ingúshar. Einnig eru grunsemdir um að einhverjir staðkunnugir hafi veitt mann- ræningjunum aðstoð. Gíslar sem komust af segja að ræningjarnir hafi þvingað nokkra fullorðna úr gíslahópnum til að brjóta upp gólfið í kjallara skólahússins og þar hafi verið falin vopn. „Ef ég hitti Tétsena eða Ingúsha mun ég drepa hann, eða móður hans, eða son hans,“ sagði ungur mað- ur í Beslan. Hann vildi ekki segja til nafns og sagðist enn vera að leita að systur sinni sem ekk- ert hefur spurst til eftir umsátrið. Frásagnir þeirra sem komust af eru átak- anlegar. „Við lærðum í fyrra að við ættum að hlaupa ef eitthvað kæmi fyrir. Nú héldum við að þeir væru að prófa okkur og þetta væri æfing. En þá skutu þeir nemanda og við vorum rekin inn í skólahúsið,“ segir ungur drengur. Hann er enn úrvinda, situr á sófa í nærbuxum og engu öðru. Alla Gadíeva, sem er 24 ára gömul og móðir hennar, Írína, höfðu ætlað sér að fara með son Öllu, Zaur, í skól- ann en þetta var fyrsti skóladagur vetrarins. En við tók þriggja daga martröð. Alla Gadíeva lá enn á sjúkrabörum þegar hún sagði frá reynslu sinni. Börnin voru svo hrædd að þau gátu ekki sofnað fyrr en það leið yfir þau af matar- og vatnsskorti. Hryðjuverkamennirnir hótuðu að skjóta þau öll og salurinn er ekki stærri en svo að varla var hægt að hreyfa sig. „Hræðslan var alger,“ segir Gad- íeva. „Fólk baðst stöðugt fyrir og þeir sem ekki vissu hvernig þeir áttu að bera sig að lærðu það.“ Gadíeva segir að ræningjarnir hafi skyndilega ráð- ist inn á skólalóðina og rekið jafnt börn sem fullorðna inn i leikfimisal- inn. Börnin æptu af ótta og hvarvetna heyrðist grátur og hróp. Gíslarnir voru þvingaðir til að sitja á hækjum sér með hendurnar aftan við höfuðið og og var skipað að afhenda alla farsíma. Þeir sem ekki gerðu það myndu verða drepnir og auk þess 20 manns sem sætu næst þeim. Kæfandi hiti og hlátur ræningjanna Fyrsta daginn fékk fólkið dálítinn mat en ekk- ert vatn. Um helmingur hinna látnu í Beslan var börn og voru þau mörg búin að afklæðast öllu nema nærfötunum vegna kæfandi hitans í salnum þegar blóðbaðið hófst. Fullorðnu gíslarnir hvöttu börnin til að reyna að pissa og drekka þvag frem- ur en ekki neitt. „Annan daginn bað ég um vatn handa móður minni en þeir hlógu að mér,“ segir Gadíeva. „Móðir mín var skelfingu lostin af hræðslu, ég hélt að hún væri að fá hjartaslag. Þegar ég sá son minn og mömmu falla í yfirlið … þau voru svo þreytt, svo þyrst, þá óskaði ég þess að þessu yrði bráðum öllu lokið. Það leið yfir börnin en gísla- tökumennirnir hlógu bara. Þeim var alveg sama… Þetta eru ekki menn. Ég mun aldrei skilja hvernig þeir gátu farið svona með okkur,“ sagði Alla Gadíeva. „Við erum að leita að drengnum okkar“ Meðal þeirra sem létu lífið í skólanum var Alana Katsanova, sem var 15 ára. Hér syrgja vinir hennar við mynd af henni í útförinni í Beslan í gær. Enn er fjölda manna saknað í Beslan í N-Ossetíu. Gíslar sem komust lífs af segja hermdarverkamennina hafa sýnt börnunum algert miskunnarleysi ’Það leið yfir börnin en gísla-tökumennirnir hlógu bara. Þeim var alveg sama.‘ Reuters DAGBLÖÐ í Rússlandi vændu Vladímír Pútín forseta og ríkisstjórn hans í gær um að forðast að taka á sig ábyrgð á dauða þeirra sem týndu lífi þegar hryðjuverkamenn tóku skólann í Beslan í Norður-Ossetíu á sitt vald. Sérstaklega var vikið að því að Pútín hefði reynt að gera „alþjóð- lega hryðjuverkamenn“ ábyrga fyrir ódæðinu sem kallað hefur fram gíf- urlega reiði og sorg í Rússlandi. Dagblaðið Kommersant vék í for- ustugrein að þeirri staðhæfingu Pút- íns að hin „alþjóðlega hryðjuverka- ógn“ hefði verið að verki í Norður- Ossetíu. Sagði blaðið að með þessu vildi forseti Rússlands forðast að axla ábyrgð vegna stríðsins í Tétsn- íu. „Með þessu móti geta ríkisstjórn- ir um heim allan komist hjá því að taka á sig ábyrgð vegna dauða þegna sinna,“ sagði m.a. í grein blaðsins. „Látið er sem börnin hafi ekki dáið vegna stríðsins í Tétsníu sem hefur staðið yfir í tíu ár heldur vegna þess að hin alþjóðlega hryðjuverkaógn hafi látið til sín taka,“ bætti leiðara- höfundur blaðsins við. Pútín forseti sagði í ávarpi á laug- ardag þegar umsátrinu um skólann hafði lokið með hroðalegu blóðbaði að Rússar hefðu „sýnt veikleika“ frammi fyrir þeirri ógn sem stafaði af „alþjóðlegri hryðjuverkastarf- semi“. Forset- inn gekk raun- ar lengra og tengdi gísla- tökuna í skól- anum í Beslan, sem kostaði 335 manns, hið minnsta lífið, við endalok Sovétríkjanna. Í ávarpi sínu til þjóðarinnar minntist Pútín aldrei á Tétsníu en óstöðugleiki þar og bar- átta skæruliða og hryðjuverka- manna fyrir sjálfstæði héraðsins frá Rússlandi eru taldar rætur þess hryllings sem riðið hefur yfir rúss- nesku þjóðina á undanliðnum tveim- ur vikum. Auk blóðbaðsins ógurlega í Norður-Ossetíu um liðna helgi ræð- ir þar um sjálfsmorðsárás í Moskvu sem kostaði tíu manns lífið og sprengjutilræði um borð í tveimur farþegaflugvélum sem urðu 89 manns að fjörtjóni. „Undarlegt má það heita að for- setinn hafi ekki vikið einu orði að ástandinu í Tétsníu í ávarpi sínu og að hann skyldi ekki lýsa yfir því að árásirnar tengist stöðu mála í Tétsn- íu,“ sagði m.a. í forystugrein dag- blaðsins Vedemostí. Fram til þessa er innanríkisráð- ófærir um að koma í veg fyrir gísla- tökuna í leikhúsinu og eru óábyrgir í allri framgöngu,“ sagði m.a. í grein Sergeis Ívanenkos sem tilheyrir hin- um frjálslynda Jabloko-flokki. Dagblöðin fóru einnig hörðum orðum um viðbrögð rússneskra ráðamanna og stjórnenda öryggis- sveita í Beslan. Spurt var hver hefði stjórnað aðgerðunum í ljósi þess að æðstu embættismenn hefðu kosið að láta sig hverfa. „Í sjónvarpi var sýnt hvar leiðtogar og ráðherrar öryggis- mála bjuggu sig undir að halda til Beslan. En enginn sá þá koma og enginn varð vitni að því að þeir létu til sín taka á staðnum,“ sagði í grein Nezavísímaja Gazeta. Andrei Ríj- abov, sérfræðingur við Carnegie- stofnunina í Moskvu sagði í viðtali við blaðið að það væri „fullkomin ráðgáta“ hvar háttsettir embættis- menn öryggislögreglu og innanrík- isráðuneytis hefðu haldið sig á með- an á umsátrinu um skólann stóð. Virtist svo sem yfirmenn öryggis- veita í Norður-Ossetíu hefðu stjórn- að aðgerðum á staðnum. Sagði Ríj- abov þessi viðbrögð ráðamanna „eðlileg“. „Með því að halda sig í hæfilegri fjarlægð var minni hætta á að þeir þyrftu að axla ábyrgð á af- leiðingum þeirra aðgerða sem hrint var í framkvæmd.“ herra Norður-Ossetíu, Kazbeck Dzantiev, eini maðurinn sem axlað hefur sína ábyrgð á mannfallinu í Beslan. Hann sagði af sér um liðna helgi þegar ljóst var að blóðbaðið í Beslan var hið mesta sem orðið hef- ur vegna aðgerða hryðjuverka- manna í Rússlandi. „Ábyrgðina bera án nokkurs vafa Pútín forseti, FSB- öryggislögreglan og innanríkisráðu- neytið,“ sagði í grein eftir Vladímír Rízhkov í Nezavísímaja Gazeta í gær. Rízhkov er frjálslyndur þing- maður og nýtur virðingar í Rúss- landi. „Það er ótækt að menn leiti skjóls á bakvið staðhæfingar um al- þjóðlega hryðjuverkastarfsemi. Rík- isstjórnir Bretlands, Bandaríkjanna og Frakklands hafa reynst færar um að bregðast við ógninni í þeim lönd- um,“ bætti Rízhkov við. „Öldungis óábyrgir í allri sinni framgöngu“ Í umfjöllun rússneskra dagblaða bar mjög á fullyrðingum þess efnis að leyniþjónustu- og öryggismála- stofnanir hefðu ekkert lært af blóð- baðinu ógurlega í október 2002 þeg- ar 129 gíslar og 41 hryðjuverka- maður féllu eftir að skæruliðar frá Tétsníu höfðu tekið leikhús í Moskvu á sitt vald. „Leyniþjónustunni stjórna sömu menn og reyndust Pútín sætir harðri gagn- rýni í rússneskum blöðum Vladímír Pútín sættu sig ekki við tæknilausnina. Hann viðurkennir að þeirra staf- ræna dreifikerfi, sem mun fara á milli senda í lofti, verði ekki eilíft og dreifiaðferð Símans komi til greina í framtíðinni. Hins vegar sé ekki hægt að nota þeirra áskrifendur í þá tilraun núna. Kristján Már Grétarsson, yfir- maður tæknideildar Norðurljósa, segir að fyrsta nóvember muni fyr- irtækið geta sent út stafrænt sjón- varpsefni til allra viðskiptavina í einu. Lausn Símans sé ekki tilbúin og þeirra lausn liggi fyrir. Aðeins þurfi að skipta út gömlu afruglurun- um fyrir nýja í október. Um leið nýtast sjónvarpstíðnirnar í loftinu betur og hægt verði að fjölga út- sendum sjónvarpsrásum til muna. Þetta sé því hagkvæmur kostur, en áfram verði fylgst með þróuninni því hún sé hröð í þessum geira. Nær til 91.500 heimila Samkvæmt upplýsingum frá Símanum á ekki að takmarka dreif- ingu stafræns efnis við eina leið. Fyrir áramót verður gerð tilraun sem felur í sér að 200 heimili á Ís- landi, sem þegar hafa ljósleiðara- tengingu, fá gögn í gegnum Inter- net, sjónvarp og síma um ljósleiðaranet. Áfram verða lagðir ljósleiðarar í nýrri hverfi og þegar lagnir í eldri hverfum eru endurnýj- aðar. Á þeim stöðum er hagkvæm- ara að koma á ljósleiðaratengingu. Annars staðar verður notast við koparþræði/símalínu fyrir Internet og sjónvarp í gegnum ADSL-kerfið. Það nái líka til 92% heimila á land- inu sem er um 91.500 heimili, en fjöldi heimila á landinu er 99.400 samkvæmt nýlegri vinnumarkaðs- könnun Hagstofu Íslands. Með betri nýtingu fást meiri tekjur sem stuðla að því að hægt verður að leggja ADSL í minni bæjarfélög en gert er í dag, segja talsmenn Sím- ans. Þannig megi koma til móts við fjölmörg bæjarfélög sem sóst hafa eftir þessari þjónustu en ekki fengið til þessa. Stjórnendur Símans meta það svo að á meðan heimilin hafi ekki þörf fyrir mikla bandbreidd geti símalínan gagnast notendum þang- að til öflugri ljósleiðaratenging fæst. Ekki séu kostnaðarlegar for- sendur fyrir því að koma á ljósleið- arasamböndum til allra fyrirtækja og heimila eins og þörfin sé núna. Þó sé fyrirsjáanlegt að þörfin fyrir aukna bandvídd muni aukast í fram- tíðinni. gum frá % heimila 2003. Um eð tvö eða u. Baldur segir að takmörk- . Við slík- hægt að ni á heim- son segir jónvarps- markandi þau sjón- inn biðji stanslaust gnum lín- n segir að ðalsins sé rpsrásir í ningsget- hve langt götu. Með flutnings- ðallengdin hægt að m á sek- ns einarsson, jósa, seg- að byggja reifikerfi, nn sæi um æðum var n að kerfið rið vegna Norðurljós samhliða ADSL-kerfinu arp mun imila bjorgvin@mbl.is $ !!  -0  *-12/ 3 !/ 12/ '  / 2)! 0 / 2)! '+ / 2)! 4 (0 +! ' ) $ 2) / 2)! 3 1$)  &(  2)! ) / 2)! <+ $ )  < / 2)! 6 !0 )! 0 / 2)! 3) / 2)! ,7()/ 2)! &2/    !"      #$%&'   ember nk. ar í lofti rfenda Síminn. ukast t verður i; áhorf- mál með dra efni í yndir frá eikarnir ða þeir m sinn. a breytir kjum í

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.