Morgunblaðið - 07.09.2004, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 07.09.2004, Qupperneq 26
MINNINGAR 26 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ réttarmálum á alheimsvísu, en hann var sérfróður á báðum þessum svið- um. Hann stóð um skeið framarlega í hérlendum samtökum um bætta náttúru- og umhverfisvernd, flutti ræður um þau efni og ritaði um þau ótaldar blaðagreinar, djarfmannleg- ar og beinskeyttar. Á alþjóðlegum vettvangi, m.a. á sviði hafréttarmála sem hann átti þátt í að móta, var hann góður fulltrúi lands síns og þjóðar, rökvís og fylginn sér. Má þar m.a. minnast þátttöku hans í hafs- botnsnefnd Sameinuðu þjóðanna og ýmsum samninganefndum um haf- réttarmál. Var hann löngum ráðu- nautur ríkisstjórnar Íslands í þeim málum. Þá átti Gunnar um skeið sæti á Alþingi. Hann var mjög áheyrileg- ur ræðumaður, skýrmæltur og radd- sterkur, og hafði mikið vald á ræðu- tækni. Fundastjórn lét Gunnari einstak- lega vel og er hafið yfir efa, að kunn- átta hans og lipurð í þeim efnum hafi oft skipt sköpum við vandasöm úr- lausnar- og ákvörðunarefni á marg- víslegum mannfundum, þar sem skoðanir voru skiptar og hiti kominn í fundarmenn. Minnist ég reyndar nokkurra slíkra funda, þar sem öruggt má telja, að stjórnviska og reynsla Gunnars hafi leitt til mun farsælli niðurstöðu en ella hefði orð- ið, ef hans hefði ekki notið við. Þeir, sem kynntust Gunnari, fundu það fljótt að hann var bæði fé- lagslyndur og mannblendinn. Tók hann virkan þátt í starfsemi margra félaga og veitti þeim sumum for- stöðu um hríð, enda lá hann aldrei á liði sínu ef um góðan málstað var að tefla. Má þar m.a. nefna Lögfræð- ingafélag Íslands, Félag háskóla- kennara og Bandalag háskóla- manna. Gunnar var trygglyndur, rausnar- legur og ræktarsamur í samskiptum við vini sína og góðkunningja. Sem kennari var hann alla tíð afar velvilj- aður nemendum deildarinnar og greiddi götu þeirra eftir mætti. Við samstarfsmenn var hann greiðvikinn og fór ég ekki varhluta af því fremur en aðrir. Gunnar G. Schram var áberandi maður hvar sem hann fór, óvenju- lega glæsilegur á velli og í fram- göngu, kurteis en þó ákveðinn. Um rausn, greiðvikni og glæsimennsku voru þau hjónin, Gunnar og Elísa, samvalin. Um leið og ég þakka langa sam- vinnu og viðkynningu færi ég Elísu og börnum þeirra hjóna, sem og öðr- um nánum aðstandendum, innilegar samúðarkveðjur mínar og konu minnar. Páll Sigurðsson prófessor lagadeild Háskóla Íslands. Gunnar G. Schram var okkur eft- irminnilegur skólabróðir. Hann var okkur fyrst og fremst hlýr og góður félagi í Menntaskólanum á Akureyri. Þar sýndi hann skólasystkinum sín- um vináttu, drengskap og hjálpsemi án þess að ætlast til nokkurs á móti. Hann sóttist ekkert sérstaklega eftir embættum innan skólans en þegar hann tók til máls þá var hlustað og þar sem hann fór vakti hann eftir- tekt fyrir kurteisa, fallega og drengi- lega framkomu. Gunnar var afbragðs góður stílisti og var sjálfkjörinn í hvaðeina sem þurfti að semja fyrir bekkinn. Sem unglingur í símavinnu var Gunnar duglegur og harðskeyttur verkmað- ur sem aldrei hlífði sér og fylgdi þessi harka og dugnaður honum alla ævi. En harka hans bitnaði ekki á öðrum en honum sjálfum. Hann beitti sjálfan sig miklum aga. Gunnar var maður sátta og sam- lyndis. En auðvitað gat hann brugð- ist við með hörku ef á hann var ráð- ist. Gunnar var á yngri árum glæsi- legur maður sem eftir var tekið. Og með vaxandi þroska og reynslu varð hann þekktur heima og erlendis sem hámenntaður og háttprúður heims- borgari. Að loknu stúdentsprófi 1950 fór Gunnar í lögfræði í Háskólanum og lauk þaðan prófi 1956. Hann fór í framhaldsnám erlendis í þjóðarrétti, fyrst í Þýskalandi og síðar í Eng- landi og lauk doktorsprófi í þjóðar- rétti við háskólann í Cambridge 1961. Gunnar var blaðamaður á Morg- unblaðinu meðan hann var í Háskól- anum og í eitt ár eftir að því námi lauk. Þá var hann ritstjóri Vísis 1961–66, en hóf störf sem deildar- stjóri í utanríkisráðuneytinu 1966 og gerðist þar um leið ráðunautur í þjóðarrétti. Hann var lektor við lagadeild Háskóla Íslands 1970 og prófessor við sömu deild frá 1974– 2001. Gunnar gegndi mörgum mikil- vægum störfum fyrir land og þjóð. Hann var til dæmis ráðunautur stjórnarskrárnefndar 1975–1983. Hann kom mikið að stjórnmálum og var meðal annars varaformaður og ritari Sambands ungra sjálfstæðis- manna 1953–57. Hann var alþingis- maður fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Reykjaneskjördæmi 1983–87 og varaþingmaður 1987–91. Gunnar var eftirsóttur stjórnandi á fundum erlendra sérfræðinga sem komu hingað til að flytja erindi. Hann hafði mjög gott vald á enskri tungu og var öllum hnútum kunn- ugur í samskiptum við erlenda gesti. Þegar hann hélt um stjórntaumana á slíkum fundum sópaði að honum. Þar var hann í essinu sínu. Gunnar var fulltrúi Íslands í mörgum alþjóðanefndum á vegum Sameinuðu þjóðanna og formaður í fjölmörgum félögum á starfsævi sinni. Honum var falin mikil ábyrgð á lífsleið sinni. Gunnari var umhugað um að halda tengslum við bekkjarsystkin sín, einkum seinni árin, og átti oft frum- kvæði að því að við kæmum saman. Við minnumst kynna okkar af Gunnari með gleði en söknum vinar og skólabróður og sendum fjölskyldu hans innilegar samúðarkveðjur. Erla Jónsdóttir og Stefán Aðalsteinsson. Fallinn er nú frá sá sem á sínum tíma setti hvað mestan svip á hóp stúdenta frá MA 1950. Þegar í menntaskóla var jafnan litið til hans sem e.k. leiðtoga bekkj- arins, enda glæsimenni á velli og í framgöngu, heiðarlegur og raungóð- ur. Að föðurætt upprunninn úr Vest- urbæ Reykjavíkur, sonur Gunnars Schram símstöðvarstjóra á Akureyri Ellertssonar skipstjóra Kristjáns- sonar Schram úr Reykjavík, en sú ætt komin frá Slésvík-Holstein um 1800 með Christian Schram verslun- armanni. Móðirin Jónína frá Arnar- nesi við Eyjafjörð Jónsdóttir Ant- onssonar, útvegsbónda af ættum harðduglegra sjósóknara og há- karlaformanna. Þannig í báðar ættir af athafna- og dugnaðarfólki til sjós og lands og öðlaðist að erfðum þann dug, framtakssemi og karlmennsku, sem einkenndi hann alla tíð. Enginn kveifarskapur eða linka heldur fram- sækni og hefir lýst sér í glæstum námsferli og afkastamiklum ritstörf- um og fjölmörgum trúnaðarstörfum, sem þarflaust er að tíunda hér ná- kvæmlega. Í háskólanum og utan hans tókst hann á hendur ýmis trúnaðarstörf og eftir framhaldsmenntun í þjóðarétti í Þýskalandi og Bretlandi tóku við enn fleiri trúnaðarstörf í þágu íslenzku þjóðarinnar ýmist innanlands eða ut- an. Leiðin lá svo til baka til háskólans; lektor og síðar prófessor við laga- deild HÍ frá 1970 og gegndi því emb- ætti til starfsloka fyrir þremur ár- um. Hann var einn þeirra manna sem stendur óbeygður, upplitsdjarfur og hnarreistur þótt hraglandi og hret- viðri tilverunnar hafi á stundum strokið honum um vanga og hefði beyglað eða brotið marga – en ekki hann. Hristi þessháttar smámuni og hégóma af sér án þess að bregða svip. 1957 kvæntist hann Elísu Jóns- dóttur, stórfallegri og rífandi dug- legri framkvæmdakonu, sem um margra ára skeið rak listmunaversl- unina Gallerí List, auk þess sjálf að vera starfandi leirlistakona. Við henni gat hann fjögur börn, en fyrir hjónaband eignaðist hann eina dótt- ur. Allt mannvænlegt myndarfólk. Ekki varð ellihrörnun honum að aldurtila, enda ekki honum líkt að koðna niður í almennri kröm, en ill- kynja sjúkdómur dró hann til dauða á tiltölulega skömmum tíma. Hugheilar samúðarkveðjur send- um við Elísu, börnum og barnabörn- um. Samstúdentar frá MA 1950. Gunnar kvaddi dyra hjá okkur hjónum og börnum í Cambridge á Englandi eins og hressandi gustur einn kyrran haustdag 1958. Þar með tvöfaldaði hann háskólasókn ís- lenskra stúdenta á staðnum í einni svipan og ásamt Elísu og frumburði þeirra hreif okkur upp í miklu líflegri „trafík og konkúrs“ en una máttum þrátt fyrir hóp ungmenna þar í enskunámi. Sálufélag á eigin tungu og þjóðlegum forsendum er ómetan- legt þeim, er meðtaka skal sterk fræðslu- og menningaráhrif í fram- andi umhverfi. Gunnar kom vel bú- inn til verkefnis síns og með nota- drjúga starfsreynslu blaðamanns, settist fast að verki og sóttist það vel að ná settum doktorsáfanga í haf- réttarfræðum. Skömmu síðar bar ég gæfu til að kynna hann fyrir hagfræðingum, sem með sínum hætti fengust við sjávarútvegsmál og alþjóðasam- vinnu og samruna, og taka á móti með þeim í París, þar sem Einar Ben. leiddi okkur inn í fágaða hætti heimsborgarinnar. Úr því varð næsta óformlegt teymi um slík hugð- arefni, sem náði saman til góðra stunda nógu oft til að allir byggju varanlega að þeim, þótt sundur skildi fulloft eftir atvikum og öðrum skyldum, ekki síst á efri árunum þegar flestir hneigjast meir til eigin uppruna og afsprengja. Nóg stendur þó eftir til að vekja með okkur ævar- andi þakklæti fyrir þroska og gleði. Gunnar gekk að öllum störfum sínum eins og víkingur, svo sem GUNNAR G. SCHRAM Í PERLUNNI Erfidrykkjur Upplýsingar og pantanir í síma 562 0200 Á fallegum og notalegum stað á 5. hæð Perlunnar. Aðeins 1.250 kr. á mann. www.englasteinar.is Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HANSÍNA MARGRÉT BJARNADÓTTIR (Haddý), Suður-Reykjum 3, Mosfellssveit, sem lést föstudaginn 27. ágúst, verður jarð- sungin frá Lágafellskirkju þriðjudaginn 7. sept- ember kl. 15.00. Ásta Jónsdóttir, Ragnar Björnsson, Bjarni Ásgeir Jónsson, Margrét Atladóttir, Kristján Ingi Jónsson, Einar Bogi Sigurðsson, Baldur Jónsson, Hugrún Svavarsdóttir, barnabörn og langömmubörn. Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengda- móðir og amma, ODDNÝ RÓSA RAGNARSDÓTTIR, Kleppsvegi 38, Reykjavík, lést á líknardeild Landspítala, Kópavogi, föstu- daginn 3. september. Útför hennar fer fram frá Áskirkju miðviku- daginn 22. september kl. 15.00. Stefán Guðmundsson, Hrönn Stefánsdóttir, Árni Guðmundsson, Kristín Stefánsdóttir Boyce, James Boyce og barnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, LILJA ÞÓRARINSDÓTTIR, áður Hólmgarði 49, Reykjavík, lést á hjúkrunarheimilinu Eir sunnudaginn 5. september. Útför hennar fer fram frá Bústaðakirkju föstu- daginn 10. september kl. 13.30. Oddný Ólafsdóttir, Ingvar U. Skúlason, Óli Sævar Ólafsson, Gréta Kjartansdóttir, Erling Ólafsson, Bergþóra Gísladóttir, Þórarinn I. Ólafsson, Guðný Björnsdóttir, barnabörn og langömmubörn. Ástkær dóttir okkar og litla systir mín, FJÓLA KRISTÍN GÚSTAFSDÓTTIR, lést laugardaginn 4. september. Útförin auglýst síðar. Elísabeth Anna Friðriksdóttir, Gústaf Þór Gunnarsson, Friðrik Helgi Gústafsson. Hjartkær eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir, afi og bróðir, JÓNAS HERMANNSSON járnsmiður, Tjarnarstíg 1, Seltjarnarnesi, varð bráðkvaddur laugardaginn 4. september. Jarðsungið verður frá Grafarvogskirkju mánu- daginn 13. september kl. 13.30. Dagbjört Theodórsdóttir, Gyða Arnórsdóttir, Margrét Jónasdóttir, Pétur Fannar Sævarsson, Freyja Ísold Pétursdóttir, Anna Guðný Hermannsdóttir, Guðmundur H. Jónsson, Tinna Dagbjört Theodórsdóttir, Jón Helgi Guðmundsson, Helgi Hermannsson, Þórdís B. Jóhannsdóttir, Hermann Ingi Hermannsson, Elísabet Nönnudóttir, Arnór Hermannsson, Helga Jónsdóttir, Magnús Hermannsson, Anna Linda Sigurðardóttir. Minningarkort Hjartaverndar 535 1825 Gíró- og greiðslukortaþjónusta

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.