Morgunblaðið - 07.09.2004, Side 33
DAGBÓK
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 33
Þjóðaratkvæðagreiðslu
um Símann
ÞAÐ á að fara að selja Símann og mér
finnst það stórmál því ég vil ekki að
Síminn sé seldur því þjóðin á þetta fyr-
irtæki. Nú heyrist enginn tala um þjóð-
aratkvæðagreiðslu sem mér finnst eiga
rétt á sér í þessu máli. Það er búið að
selja nægilega mörg ríkisfyrirtæki.
Borgari.
Góð þjónusta
ÉG vil koma á framfæri ánægju minni
með góða þjónustu í Versluninni
Hygea í Smáralind, vil ég sérstaklega
nefna Báru, veit að hún laðar við-
skiptavini að.
Ánægður viðskiptavinur.
Telpuveski í óskilum
LÍTIÐ telpuveski fannst í Öskjuhlíð-
inni fyrir nokkrum dögum. Upplýs-
ingar í síma 552 7619.
Barnaeldhúsinnrétting hvarf
BARNAELDHÚSINNRÉTTING,
sett, hvarf frá Norðurfelli 3 í síðustu
viku. Þeir sem vita um settið geta haft
samband í síma 557 9435 eða 557 4336.
Barnagleraugu í óskilum
BARNAGLERAUGU í bleiklitaðri
umgjörð fundust á Geirsgötu nálægt
Kolaportinu laugardaginn 4. sept.
Upplýsingar í síma 695 6813.
Svartur köttur týndur
FRESSINN minn, Jáum, er fullvax-
inn, svartur fress sem týndist í mars á
þessu ári frá heimili sínu í Árbæ í
Reykjavík. Hann bar þá bláa ól sem
líklega er dottin af og er eyrnamerktur
R0017. Okkur þætti gott ef fólk hefði
augun hjá sér, því eins lífseigir og kett-
ir eru, er líklegt að hann sé enn á lífi,
ráfandi eitthvers staðar um. Endilega
hringið í okkur í síma 587 1966 eða
866 0701 ef þið rekist á kött sem passar
við þessa lýsingu. Þið getið líka sent
póst á netfangið sigga_runa@hotmail-
.com eða einfaldlega hringt í Kattholt
þar sem hann er á skrá. Sigrún.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 kl. 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Hreinlæti í mjólkuriðnaði er meginum-fjöllunarefni fundar sem haldinn verð-ur á Grand hóteli Reykjavík níundaseptember næstkomandi. Það er
Rannsóknarstofnun fiskiðnaðarins sem skipu-
leggur fundinn í samvinnu við VTT Biotechnology
í Finnlandi, en fundurinn er styrktur af Nordic
Innovation Centre, Samtökum afurðastöðva í
mjólkuriðnaði og Framleiðnisjóði landbúnaðarins.
Á fundinum verða kynntar helstu niðurstöður
norræna verkefnisins DairyNet, sem hefur verið í
gangi undanfarin ár og lýkur nú í október. Þar
voru skoðaðir ýmsir þættir varðandi hreinlæti í
norrænum mjólkuriðnaði. Hvert norrænu land-
anna hafði sitt landsverkefni þar sem ýmis vanda-
mál voru tekin fyrir og munu fimm norrænir fyr-
irlesarar koma hingað til lands til að kynna
niðurstöður sínar. Þá munu fjórir íslenskir fyr-
irlesarar kynna íslenska hluta verkefnisins, sem
styrktur var af Rannís.
Sigrún Guðmundsdóttir, verkefnastjóri hjá
Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins vann ásamt
öðrum að rannsókn Íslendinga og mun kynna nið-
urstöður á fundinum ásamt öðrum.
„Hér á landi rannsökuðum við mengunarleiðir
Listeria monocytogenes í mjólkuriðnaði, en þær
geta verið sjúkdómsvaldandi bakteríur og eru al-
gengar í umhverfinu. Við fórum í eitt mjólk-
ursamlag og tókum sýni bæði úr vinnsluumhverf-
inu og afurðum. Það kom í ljós að ástandið
varðandi Listeriu er mjög gott í þessu samlagi,
því það fannst ekkert.
Í öðrum hluta verkefnisins voru sótthreinsiefni
skoðuð og athugað hvað er lágmarksstyrkur sem
þarf til að hindra vöxt þeirra bakteríustofna sem
voru rannsakaðir til að skoða hvort rétt efni séu
notuð í réttum styrk.“
Hver voru verkefni hinna Norðurlandaþjóð-
anna?
„Í Svíþjóð voru gæði lofts í ostagerð rannsökuð
og í Finnlandi var ný aðferð sett upp til að meta
virkni þrifa með því að mæla efnaleifar þvotta- og
sótthreinsiefna á vinnsluyfirborði. Norðmenn
skoðuðu myglusveppi í ostagerð og Danir skoðuðu
meðal annars þrif á varmaskiptum og fleira.“
Hvað vinnst með svona fundi?
„Markmiðið með þessum fundi er að dreifa
þessum upplýsingum til iðnaðarins, svo þessar
rannsóknir séu ekki einungis í skýrslum, heldur
einnig úti í iðnaðinum. Það er mjög mikilvægt að
miðla öllum rannsóknarniðurstöðum til iðnaðarins
svo hægt sé að nýta þær.“
Hægt er að skrá sig á fundinn á póstfanginu
sigrun@rf.is.
Matvælarannsóknir | Fundur um hreinlæti í mjólkuriðnaði á Grand hóteli
Miðla niðurstöðum til iðnaðarins
Sigrún Guðmunds-
dóttir er fædd árið
1966 á Selfossi. Hún
nam líffræði í Háskóla
Íslands og lauk M.Sc.-
gráðu í örverufræði frá
Herriot-Watt Univers-
ity í Edinborg, Skot-
landi. Sigrún er nú í
doktorsnámi við lækna-
deild HÍ, en verkefni
hennar fjallar um týpu-
greiningar með sameindafræðilegum aðferð-
um á Listeria monocytogenesstofnum.
Sigrún starfar nú sem sérfræðingur á Rann-
sóknarstofnun fiskiðnaðarins. Hún er gift
Guðmundi Karli Guðjónssyni.
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
Aðstoðarmaður
iðjuþjálfa
Sjálfsbjargarheimilið óskar eftir að ráða að-
stoðarmann iðjuþjálfa til starfa í þjónustumið-
stöð. Stöðuhlutfall 80%. Góðir samstarfs- og
samskiptahæfileikar mikilvægir svo og frum-
kvæði í starfi. Tölvukunnátta nauðsynleg.
Starfið getur hentað þeim sam hafa hug á að
fara í iðjuþjálfanám. Nánari upplýsingar veitir
Valerie Harris yfiriðjuþjálfi í síma 550 0300 og
550 0309.
Umsóknir merktar „aðstoðarmaður iðjuþjálfa“
sendist Sjálfsbjargarheimilinu, Hátúni 12, 105
Reykjavík, fyrir 20. september 2005.
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
ATVINNUHÚSNÆÐI
Skrifstofuherbergi
Til leigu rúmgott og snyrtilegt skrifstofuher-
bergi í Ármúla 29. Salerni og kaffistofa í mjög
góðri sameign. Góður staður. Einnig 1-2 herb.
á Suðurlandsbraut.
Upplýsingar gefur Þór í síma 899 3760.
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Opinn kynningarfundur
um Menningu 2000
miðvikudaginn 8. september kl. 15.00
í Kornhlöðunni, Bankastræti 2
Menningaráætlun Evrópusambandsins veitir
styrki til verkefna í öllum listgreinum og á sviði
menningararfs. Styrkir eru veittir fyrirtækjum,
félögum eða stofnunum en ekki til einstaklinga
og er lágmarksstyrkur 50.000 evrur.
Á fundinum verða m.a. kynnt ný umsóknar-
gögn fyrir verkefni á árinu 2005 og fjallað um
leit að samstarfsaðilum.
Skilafrestur umsókna er 15. október fyrir
styttri verkefni og fyrir 2-3 ára samstarfsverk-
efni er skilafrestur 29. október.
Upplýsingaþjónusta menningaráætlunar ESB, Túngötu 14, 101 Rvík,
sími 562 6388, tölvupóstur: info@evropumenning.is, ccp@iff.is,
vefsíða: www.evropumenning.is en þar er að finna umsóknargögn
og upplýsingar um skilyrði fyrir styrkveitingu, samstarfsaðila og
áhugaverða tengla.
FÉLAGSLÍF
Egyptaland
Í kvöld kl. 20 verður kynning í
Ljósheimum á ferð til Egypta-
lands sem verður farin í nóvem-
ber. Sýndar verða myndir og
sagt frá ferðinni sem er farin til
að tengja sig töfrum horfins
menningarheims.
www.ljosheimar.is
FIÐLULEIKARINN Ari Þór Vil-
hjálmsson hlaut í gær, 6. september
2004, viðurkenningu úr Styrktarsjóði
Önnu Karólínu Nordal. Árlega er
veitt viðurkenning úr sjóðnum að
upphæð 500 þúsund krónur, en
sjóðnum er ætlað að styrkja efnilega
tónlistarnema í „söng og fíólínspili“
eins og Anna sjálf orðar það í bréfi.
Þetta er í þriðja sinn sem styrkurinn
er afhentur í Salnum í Tónlistarhúsi
Kópavogs á fæðingardegi Önnu, en
styrkþegar voru þau Guðrún Jó-
hanna Ólafsdóttir, mezzó-sópran-
söngkona, árið 2002 og Eyjólfur Eyj-
ólfsson tenór árið 2003.
Anna Karólína Nordal var fædd í
Vesturheimi 6. september árið 1902.
Hún bjó alla ævi í Kanada og kom
aldrei til Íslands. Anna Karólína var
alþýðukona með mikinn tónlistar-
áhuga. Styrktarsjóður sem ber nafn
hennar var stofnaður fyrir rúmum
áratug og fyrst veitt úr honum árið
1990. Anna sýndi ættlandi sínu,
Íslandi og Íslendingum mikla
ræktarsemi alla tíð, og er þessi
höfðinglega gjöf hennar fagur
vitnisburður þess. Samstarf hefur
tekist með Salnum, Vesturfarasetr-
inu á Hofsósi og sendiráði Íslands í
Kanada í tengslum við styrkveit-
inguna.
Ari Þór Vilhjálmsson er fæddur
árið 1981og er af íslensku og mexík-
önsku bergi brotinn. Hann hóf tón-
listarnám 5 ára gamall samkvæmt
Suzuki-aðferðinni, var síðan nemandi
Guðnýjar Guðmundsdóttur kons-
ertmeistara frá árinu 1996, en hún
var aðalkennari hans í 4 ár, en þá tók
Sigrún Eðvaldsdóttir konsertmeist-
ari við kennslunni. Árið 2001 lauk Ari
einleikaraprófi frá Tónlistarskól-
anum í Reykjavík en sama ár lauk
hann stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum í Hamrahlíð. Að því búnu
hélt Ari til Bandaríkjanna þar sem
hann lærði hjá hjónunum Almita og
Roland Vamos frá árinu 2001–2003
við Northwestern University. Ari
stundar nú nám hjá Sigurbirni Bern-
harðssyni, við University of Illinois
at Urbana-Champaign, en Sig-
urbjörn starfar þar sem gesta-
prófessor.
Ari Þór mun þreyta frumraun sína
(debútera) á Íslandi á einleiks-
tónleikum í TÍBRÁ í Salnum laug-
ardaginn 27. nóvember kl. 16. Með-
leikari hans þar er Anna Guðný
Guðmundsdóttir píanóleikari og á
efnisskránni þá eru þessi verk:
Johann Sebastian Bach: Sónata
fyrir fiðlu og sembal nr 3 í E-dúr,
BWV 1016.
Franz Schubert: Rondeau Brill-
iant í h-moll op. 70.
Pyotr Tchaikovsky: Souvenir d’un
Lieu Cher, op. 42 nr. 1, „Meditation“.
Sergei Prokofiev: Sónata nr. 1 í
f-moll op. 80.
Styrkveiting úr sjóði
Önnu Karólínu Nordal
Morgunblaðið/Sverrir
Viðurkenning veitt úr Styrktarsjóði
Önnu Karólínu Nordal.
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 Bb4 4. Dc2 O-O
5. a3 Bxc3+ 6. Dxc3 b6 7. Bg5 Bb7 8.
e3 d6 9. Re2 Rbd7 10. Dd3 c5 11. Rc3
De7 12. Hd1 Hfd8 13. d5 Re5 14. Dc2
h6 15. Bh4 Rg6 16. Bg3 exd5 17. cxd5
Rh5 18. Be2 Rxg3 19. hxg3 a6 20. O-O
b5 21. Hfe1 He8 22. Bf1 Re5 23. e4 h5
24. Dd2 h4 25. Df4 g5 26. De3 hxg3 27.
Dxg3 Df6 28. He3 Kf8 29. b4 c4 30. Re2
Ke7 31. Rd4 Hh8 32. Rf5+ Kd7 33.
Hc3 Kc7 34. De3 Bc8 35. f3 Bxf5 36.
exf5 Dxf5 37. Hd4 Db1 38. Dxg5 Hag8
39. De7+ Kc8 40. Hd2
Staðan kom upp á meistaramóti
Úkraínu sem lauk fyrir skömmu í
Kharkov. Meistarinn í ár, hinn átján
ára gamli Andrei Volokitin (2638),
hafði svart gegn Vadim Malakhatko
(2555). 40... Hh1+! 41. Kxh1 Dxf1+ 42.
Kh2 Hh8+ 43. Kg3 De1+ 44. Hf2
Hg8+ og hvítur gafst upp enda fátt um
fína drætti í stöðu hans.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Svartur á leik.