Morgunblaðið - 07.09.2004, Qupperneq 34
DAGBÓK
34 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er mikið að gera hjá þér, bæði í
vinnunni og félagslífinu. Reyndu að
koma öllu heim og saman.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þú hefur mikla þörf fyrir rómantík
þessa dagana. Þetta er einnig góður
tími til að fara í frí og til hvers konar
skapandi starfa.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Fjölskyldan, heimilið og fasteigna-
málin eru þér ofarlega í huga þessa
dagana. Ekki gera of mikið úr því þó
að það komi upp spenna á heimilinu.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Stutt ferðalög, fundir og námskeið
gera það að verkum að það er óvenju-
mikið að gera hjá þér þessa dagana.
Reyndu að einbeita þér að því sem þú
ert að gera hverju sinni.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú hefur eytt óvenjumiklum pen-
ingum að undanförnu en sem betur
fer hefurðu einnig aflað meiri tekna.
Gættu þess bara að gleyma ekki hvað
skiptir raunverulegu máli í lífinu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það eru þrjár plánetur í merkinu þínu
og mars er ein þeirra. Þetta gæðir
þig óvenjumikilli ákveðni og fram-
kvæmdakrafti. Reyndu að fá útrás
fyrir orkuna með meiri hreyfingu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú munt njóta þess að skríða inn í
skel þína í dag og vera ein/n með
sjálfri/sjálfum þér.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þetta er ekki rétti dagurinn til að
hanga heima. Farðu út á meðal fólks.
Það vilja allir vera með þér þessa
dagana og þú ættir að leyfa þér að
njóta þess.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þú ert í sviðsljósinu þessa dagana,
hugsanlega vegna þess að þú hefur
verið beðin/n um að taka að þér
aukna ábyrgð. Þú hefur vonandi gert
það.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú hefur mikla þörf fyrir að kynnast
nýjum hugmyndum. Þú gætir því lagt
drög að spennandi ferðalagi eða
keypt þér bók um stjórnmál eða trú-
mál.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Þú hefur mikla þörf fyrir að bæta
sjálfa/n þig með einhverjum hætti.
Notaðu tækifærið og farðu á upp-
byggilegt námskeið eða lestu góða
sjálfshjálparbók.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Mundu að til þess að samband sé gott
þurfa báðir aðilar að henta hinum að-
ilanum. Reyndu að temja þér um-
burðarlyndi og þolinmæði og gleymdu
ekki að sýna umhyggju þína í verki.
Stjörnuspá
Frances Drake
Meyja
Afmælisbörn dagsins:
Eru dugleg og ákveðin, þrautseig og
virðuleg. Þau ættu að leggja hart að sér
á þessu ári því þau munu uppskera á
því næsta. Tækifærin bíða handan
við hornið.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html
Lárétt | 1 minnast á, 4 fisk,
7 auðkennt, 8 snúa heyi, 9
sár, 11 grind, 13 melting-
arfæris, 14 mannsnafns,
15 málmur, 17 klúryrði, 20
blóm, 22 auður, 23 ævi-
skeiðið, 24 gabba, 25 kján-
ana.
Lóðrétt | 1 lykt, 2 höf-
uðborg, 3 virða, 4 görn, 5
ganga á gefin loforð, 6
kvarta undan, 10 dásemd-
ir, 12 mál, 13 áburður, 15
varkár, 16 festir við, 18
ginna, 19 ops, 20 sarga, 21
vinna ull.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 hörmungar, 8 glært, 9 lundi, 10 tel, 11 seiga, 13
sorti, 15 skran, 18 úthaf, 21 err, 22 kokks, 23 alurt, 24 grið-
landi.
Lóðrétt | 2 ölæði, 3 metta, 4 núlls, 5 agnar, 6 uggs, 7 hiti, 12
góa, 14 oft, 15 sekk, 16 rýkur, 17 nesið, 18 úrana, 19 hrund,
20 fata.
LETTNESKI píanóleikarinn Liene Circene
leikur á opnunartónleikum Tíbrár, tón-
leikaraðar Kópavogs, í Salnum í kvöld kl.
20.
Á efniskránni eru verk eftir Bach,
Beethoven, Ginastera og Rachmaninov.
Liene lék í fyrsta sinn á Íslandi í Salnum í
október síðastliðnum og vakti verðskuld-
aða athygli fyrir leiftrandi flutning, frá-
bæra túlkun og tækni.
Hún hefur haldið fjölda tónleika víða
um heim og tekið þátt í fjölmörgum al-
þjóðlegum listahátíðum, m.a. í Þýskalandi,
Sviss, Frakklandi, Bretlandi, Bandaríkj-
unum, Póllandi, Úkraínu, Rússlandi, Lett-
landi og Litháen. Hún hefur einnig leikið
einleik með fjölmörgum hljómsveitum,
svo sem Fílharmóníunni í Varsjá, Þjóðar-
sinfóníu Lettlands, hljómsveit BBC í
Wales og hvarvetna hlotið mikið lof fyrir
leik sinn. Liene mun leika með Sinfóníu-
hljómsveit Íslands í mars árið 2005.
Árið 1992 hlaut Circene 1. verðlaun í
Vladimir Krainev, alþjóðlegri keppni ungra
sólista sem haldin var í Úkraínu. Árið
1993 komst hún í úrslit í Tschaikowski
keppninni í Moskvu, hlaut 1. verðlaun í
Maryse Cheilan Internationale píanó-
keppninni í Frakklandi og 1. verðlaun í
Baltic TV Alternativa keppninni sama ár.
Kirkjustarf
Akureyrarkirkja | Morgunsöngur kl. 9.
Árbæjarkirkja | Kyrrðarstund kl. 12–12.30.
Tónlist, hugleiðing og fyrirbænir. Súpa og
brauð gegn vægu gjaldi.
Bústaðakirkja | Haustferð kvenfélags Bú-
staðasóknar verður farin laugard. 11. sept-
ember. Farið verður frá kirkjunni kl. 12. Með-
al annars verður farið um Þingvelli. Nánari
uppl. og skráning: Ingibjörg 553 4594, Erla
897 5094, Stella 862 3675.
Ellimálaráð Reykjavíkurprófastsdæma |
Samkirkjuleg haustguðsþjónusta verður í
Hvítasunnukirkjunni Fíladelfíu miðvikudag-
inn 8. september kl. 14. Guðsþjónustunni
verður útvarpað á Lindinni FM 102,9. Kaffi-
veitingar í safnaðarsal eftir guðsþjón-
ustuna. Allir velkomnir. Hefst kl. 14.
Hallgrímskirkja | Fyrirbænaguðsþjónusta
alla þriðjud. kl. 10.30. Beðið fyrir sjúkum.
Morgunmessa alla miðvikud. kl. 8. Hugleið-
ing, altarisganga, léttur morgunverður.
Hveragerðiskirkja | Fyrsti foreldramorg-
unn haustsins verður í Safnaðarheimili
Hveragerðiskirkju í dag kl. 10. Feður eru sér-
staklega velkomnir. Hefst kl. 10.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Bað og vinnustofa kl. 9,
hárgreiðsla, fótaaðgerð.
Árskógar 4 | Bað kl. 9–12, leikfimi kl. 9,
ganga og spil kl. 13.30, pútt kl. 10–16.
Bólstaðarhlíð 43 | Hárgreiðsla kl. 8–13,
bað kl. 8.30–14.30, handavinna kl. 9–16,
vefnaður kl. 9–12, leikfimi kl. 9.45 fótaað-
gerð kl. 9–17, sund kl. 10–11.30, boccia kl. 15.
Dalbraut 18–20 | Hárgreiðsla, kl. 14, pútt
og félagsvist.
Dalbraut 27 | Handavinnustofan, vefnaður
kl. 8–16, myndband kl. 13.30.
Félag eldri borgara Kópavogi | Farið í
Skaftholtsréttir föstudaginn 10 sept. Matur
í Árnesi. Ekið um Hruna að Gullfossi og
Geysi og heimleiðis um Laugarvatn. Brott-
för frá Gullsmára kl. 8 og Gjábakka kl. 8.15
Skráning og upplýsingar í Gjábakka og Gull-
smára.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Skák í dag
kl. 13. Göngu-Hrólfar ganga frá Ásgarði kl.
10 á miðvikudag. Kl. 13–17.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Karla-
leikfimi kl. 13.
Hraunsel | Flatahrauni 3. Kl. 9 húsið opnað,
kl. 10 ganga, kl. 11.30 leikfimi, kl. 13 brids,
kl. 14-16 pútt á Ásvöllum.
Furugerði 1 | Farið verður í Þjóðminjasafnið
fimmtudaginn 9. sept. Lagt af stað frá
Norðurbrún 1 kl. 13 og síðan teknir farþegar
í Furugerði. Skráning á stöðvunum.
Gjábakki | Leikfimi kl. 9.05 og kl. 9.55,
handavinna kl. 10–17, ganga kl. 14, boccia kl.
14.45. brids kl. 19.
Gullsmári | Félagsþjónustan er opin virka
daga kl. 9–17.
Hraunbær 105, | Boccia kl. 10, versl-
unarferð, kl. 12.15, hárgreiðsla.
Hæðargarður 31 | Opin vinnustofa kl. 9, kl.
10–11 leikfimi, verslunarferð kl. 12.40, bóka-
bíllinn kl. 14.15–15, hárgreiðsla kl. 9–12.
Langahlíð 3, | Hárgreiðsla kl. 10, leikfimi kl.
11, föndur og handavinna kl. 13.
Norðurbrún 1| Kl. 9–12 myndlist og smíði,
kl. 9–16.30 opin vinnustofa og postulíns-
málning kl. 10–11 boccia, kl. 14 leikfimi.
Vesturgata 7 | Postulínsnámskeið og búta-
saumur byrja. Haustferð til Víkur í Mýrdal
14. sept. Skráning hafin.
Vitatorg | Smiðjan kl. 8.45–11.45, hár-
greiðsla kl. 9–16, handmennt kl. 9.30–16,
leikfimi kl. 10–11, fótaaðgerð kl. 10–16, fé-
lagsvist kl. 14–16.30.
Tónlist
Café Kulture | Djasskvintettinn Valentine
Quintet leikur fyrir gesti Cafe Kulture í
kvöld. Á efnisskrá eru ýmsar ljúfar djass-
melódíur og bossanova lög, bæði þekkt og
óþekkt. Kl. 21–23.
Kaffi Rósenberg | KK, Ellen Kristjánsdóttir,
Santiago og Nimbus halda styrktartónleika
fyrir fallhlífastökkvara sem stefna á heims-
meistaramóti í mynsturflugi í Króatíu. Tón-
leikarnir hefjast kl. 21, 1.000 kr. inn.
Fundir
Reykjavíkurdeildar SÍBS | Aðalfundur
Reykjavíkurdeildar SÍBS verður haldinn
fimmtud. 16. september kl. 17 að Síðumúla
5. Dagskrá venjuleg aðalfundarstörf og kjör
fulltrúa á næsta þing SÍBS sem haldið verð-
ur að Reykjalundi 22. og 23. október nk.
Fyrirlestrar
Askalind 4 | Stephen og Lynda Kane halda
fyrirlestur fimmtudaginn 9. september kl.
20, í Askalind 4, Kópavogi, um hvernig
breyta má lífinu með því að þróa orkuvit-
undina. Þau sérhæfa sig í orkulestri til að
bæta lífsgæði. Einnig verða námskeið og
viðtöl. Nánari upplýsingar í síma 861 3174
eða á gitte@mi.is.
Kennaraháskóli Íslands | Fyrirlestur um
sköpunargleði í hefðbundnu skólakerfi í
Kennaraháskóla Íslands við Stakkahlíð,
miðvikudaginn 8. sept. kl. 16.15. Þorvaldur
Þorsteinsson, listamaður fjallar um með-
höndlun mennskunnar og sköpunargleð-
innar í hefðbundnu skólakerfi.
Málstofur
Háskóli Íslands | Miðvikudaginn 8. sept-
ember kl. 12.15 er málstofa á vegum Hag-
fræðistofnunar og Viðskiptafræðistofnunar
í Odda, stofu 101. Stefán Bjarni Gunn-
laugsson er með erindi um „Umframávöxt-
un á íslenskum hlutabréfamarkaði“ þar sem
kynntar eru niðurstöður viðamikillar rann-
sóknar á íslenska hlutabréfamarkaðinum.
Staðurogstund
idag@mbl.is
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Stað og
stund á forsíðu mbl.is.
Meira á mbl.is
80 ÁRA afmæli. Ídag, 7. sept-
ember, er áttræð
Kristbjörg Guð-
mundsdóttir, Búlandi
8, Djúpavogi. Hún
tekur á móti gestum í
Safnaðarheimili Kárs-
neskirkju, Borgum,
Kastalagerði 7, Kópavogi, laugardag-
inn 11. september frá kl. 16–20.
100 ÁRA af-mæli. Í dag,
7. september, er 100
ára Sæmundur Jóns-
son. Hann dvelur nú á
hjúkrunardeild
Hrafnistu í Hafn-
arfirði.
Á opnu borði.
Norður
♠ÁKD
♥9876
♦K2
♣10987
Vestur Austur
♠876 ♠5432
♥DG10 ♥543
♦D97 ♦Á
♣KG43 ♣ÁD652
Suður
♠G109
♥ÁK2
♦G1086543
♣–
Suður spilar fimm tígla og fær út
laufþrist.
Við spilaborðið hafa menn aðeins
beinan aðgang að tveimur höndum –
sinni eigin hendi og blinds. En það
getur verið skemmtun í því (og góð
æfing) að reyna við þungar spilaþraut-
ir þar sem allar hendur eru uppi.
Bretar kalla slík spiladæmi „Double
Dummy“, en við tölum um þrautir á
„opnu borði“.
Í dag og nokkra næstu daga verður
þátturinn helgaður slíkum dæmum.
Lausn: Þrír tapslagir blasa við:
tveir á tromp og einn á hjarta. Lausn-
in felst í því að kæfa annan trompslag-
inn í tveggja spila endastöðu. Sagn-
hafi trompar laufásinn og notar svo
innkomurnar þrjár á ÁKD í spaða til
að trompa lauf þrisvar í viðbót. Síðan
er ÁK og þriðja hjartanu spilað.
Vestur lendir inni og á ekkert nema
tígul eftir. Hann spilar sjöunni, lítið úr
borði og austur fær á ásinn blankan.
Nú á austur út með tvö svört spil.
Heima á sagnhafi G10 í trompi, vestur
er með D9, en blindur blankan tíg-
ulkóng og hjartahund.
Austur spilar öðru svarta spilinu og
suður trompar (fylgir lit) með tígultíu.
Og þar með er trompdrottning vest-
urs kæfð (í hárri elli, frekar en fæð-
ingu).
Höfundur þessarar þrautar er Bret-
inn Tony Forrester.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
Liene Circene á opnunartónleikum í Tíbrá
flísar
Stórhöfða 21, við Gullinbrú,
sími 545 5500.
www.flis.is netfang: flis@flis.is
Allt fyrir baðherbergið
Missagnir
PÉTUR Pétursson hefur beðið um að
birt verði eftirfarandi vegna greinar
hans í Morgunblaðinu sl. laugardag:
„Nokkrar missagnir eru í grein minni
um barnaskólann í Keflavík sl. laug-
ardag. Misritast hefur starfsheiti.
Dagbjartur Einarsson er útvegsmað-
ur, en ekki útvarpsmaður.
Helgi prentari Helgason var faðir
Þorvalds beykis í Keflavík og þannig
afi Guðmundar H. Þorvaldssonar
kaupmanns. Það var fljótræði mitt að
skýra ekki rétt frá þessu. Helgi
prentari var frægur fyrir verk sín.
Dyrnar í Góðtemplarahúsinu opn-
uðust inn. Sigríður Magnúsdóttir,
vinnuhjú Þorgríms héraðslæknis,
vann það afrek að svipta upp hurð-
inni. Það bjargaði mörgum frá bráð-
um bana. Á örlagastund kemur það
fyrir að ofurkraftur verður til bjarg-
ar.
Pétur Pétursson.“
Ekki sami maður
RANGLEGA var farið með í „Af list-
um“ pistli í blaðinu í gær þegar ljós-
myndararnir tveir, Sigurgeir Sigur-
jónsson og Spessi, voru sagðir vera
einn og sami maður. Beðist er velvirð-
ingar á mistökunum.
Steinmóðarbær
EINNIG er beðist velvirðingar á því
að í greinum um myndina A Little
Trip to Heaven í gær og fyrradag var
tökustaðurinn Steinmóðarbær sagð-
ur vera í Austur-Landeyjum. Hið
rétta er að bærinn er í Vestur-Eyja-
fjallahreppi.
LEIÐRÉTT