Morgunblaðið - 07.09.2004, Qupperneq 36
MENNING
36 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Áskriftarkort á 6 sýnigar
Aðeins kr. 10.700
PARIS AT NIGHT e. Jacques Prévert
í samstarfi við Á SENUNNI
Fi 9/9 kl 20, Fö 10/9 kl 20, Lau 11/9 kl 20,
fi 16/9 kl 20, fö 17/9 kl 20
Takmarkaður sýningafjöldi
Stóra svið Nýja svið og Litla svið
LÍNA LANGSOKKUR e. Astrid Lindgren
Su 12/9 kl 14, Su 19/9 kl 14, Su 26/9 kl 14
CHICAGO e. Kender, Ebb og Fosse
Grímuverðlaunin: Vinsælasta sýning ársins!
Lau 18/9 kl 20, Lau 25/9 kl 20, Lau 2/10 kl 20,
Lau 9/10 kl 20
THE CONCEPT OF BEAUTY e. Nadiu Banine
WHERE DO WE GO FROM THIS
e. Peter Anderson
Fi 9/9 kl 20
NÚTÍMADANSHÁTÍÐ 3/9 - 11/9
MANWOMAN e. Ólöfu Ingólfsdóttur
& Ismo-Pekka Heikenheimo
Fö 10/9 kl 20
Lau 11/9 kl 20
Opnunartími miðasölu: Mánudaga og þriðjudaga: 10:00-18:00
Mið-, fim- og föstudaga: 10:00-20:00
Laugar- og sunnudaga: 12:00-20:00
Miðasölusími 568 8000 - miðasala á netinu: www.borgarleikhus.is
ÓSÓTTAR PANTANIR SELDAR DAGLEGA
Lau . 11 .09 20 .00 ÖRFÁ SÆTI
Sun . 12 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
F im . 16 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
Lau . 18 .09 20 .00 NOKKUR SÆTI
Fös . 24.09 20 .00 AKUREYRI
„Ekk i spurn ing að þe t ta e r e inn bes t i
söng le ikur sem ég hef séð . Ég á t t i e r f i t t
með að ha l da mé r í sæ t i nu og s tökkva
ekk i upp á sv i ð og ve ra með“
-B i rg i t ta Haukda l , söngkona - . “
Rakarinn morðóði
Óperutryllir eftir Stephen Sondheim
Frumsýning fös. 8. okt. kl. 20
Netmiðasalan hefst í dag! www.opera.is
Símasala kl. 10-18 virka daga: 511 4200
MIÐASALAN er opin á fame.is,
á þjónustuborði Smáralindar
og í síma 528 8008
JÓNSI
SVEPPI
Fim. 9. sept. kl. 19.30
Fös. 10. sept. kl. 19:30
Sun. 12. sept. kl. 19:30
SÍÐUSTU SÝNINGAR:
ATH. 2 AUKASÝN. Vegna
gríðarlegrar eftirspurnar
Fös. 17. sept. kl. 19.30
Lau. 18. sept. kl. 19.30
Vegna mikils álags á símkerfinu viljum við benda á
að hægt er panta miða með tölvupósti í
miðasala@smaralind.is eða inn á www.fame.is.
4 600 200
leikfelag.is
Miðasölusími
BRIM - e. Jón Atla Jónasson gestasýning
Lau 11/9 kl. 18
Lau 11/9 kl. 21
Sun 12/9 kl. 20
SVIK e. Harold Pinter
frumsýn. mán 1/10 kl. 20 UPPSELT
2. sýn. fös. 3/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
3. sýn. þri. 7/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
4. sýn. mið. 8/10 kl. 20 ÖRFÁ SÆTI
HÁRIÐ - sýnt í Íþróttahöllinni gestasýning
fös 24/9 kl. 20 - sala í fullum gangi!
Áskriftarkort!
4 sýningar á
aðeins 6.500 kr.
Varla er hægt að segja að bóka-flóðið hefðbundna sé hafið en
þó hafa bókaútgefendur látið ým-
islegt flakka um væntanlegar bæk-
ur. Í liðinni viku barst mér í hendur
4. bindi Sögu Akureyrar sem bóka-
útgáfan Hólar gefur út. Bókin kom
út hinn 29. ágúst sem var 142. af-
mælisdagur Ak-
ureyrarkaup-
staðar. Bókin er
vegleg, um 400
blaðsíður í
stóru broti,
prýdd mörg hundruð ljósmyndum
sem margar hverjar hafa ekki birst
á prenti fyrr. Þetta bindi Akureyr-
arsögu tekur yfir tímabilið 1919–
1940.
„Þetta 4. bindi sögunnar ber heit-
ið Vályndir tímar sem er mjög í takt
við hina miklu ókyrrð sem var í sam-
félaginu,“ segir ritstjórinn og útgef-
andinn Jón Hjaltason. „Bærinn var
að taka á sig þá mynd sem við þekkj-
um enn í dag og gekk ekki alltaf há-
vaðalaust. Oddeyrin varð allt í einu
heitasta bæjarmálið þegar Ragnar
Ólafsson keypti hana. Margir sögðu
að bærinn hefði verið rændur eyr-
inni af manni sem ætlaði að græða á
lóðabraski og lá við sjálft að kæmi til
ryskinga. Seinna, einkum um og eft-
ir 1930, var það verkalýðsbaráttan
sem kveikti í mönnum og blóðið
rann. Og nasisminn varð ekki til að
lægja ófriðaröldurnar. En bæj-
arbúar höfðu yfirleitt illan bifur á
Hitler þótt ekki væri það algilt,“ seg-
ir Jón Hjaltason.
Edda útgáfa sendi í vikunni semleið frá sér nokkrar for-
vitnilegar bækur fyrir alla aldurs-
hópa. Þar má fyrsta telja kiljuútgáfu
af þeirri ágætu bók Lindu Vilhjálms-
dóttur, Lygasögu, sem kom út fyrir
síðustu jól. Þá er sannarlega fengur
að þýðingum Gyrðis Elíassonar á
smásagnasafni meistarans Williams
Saroyans, Geðbilun í ættinni. Sar-
oyan (1908–1981) var einn þekktasti
rithöfundur Bandaríkjanna og
meistari smásagnaformsins. Þetta er
eitt þekktasta verk hans en áður hef-
ur komið út á íslensku smásagna-
safnið Ég heiti Aram í þýðingu
Gyrðis.
Ný bók um norska furðufuglinn
Elling er einnig komin út. Fugla-
dansinn nefnist hún og segir frá því
að Elling vaknar á geðdeild eftir
taugaáfall. Þar kynnist hann Kjell
Bjarne sem líkt og Elling er ekki
eins og fólk er flest. Vinátta þeirra
verður þó ekki átakalaus og eftir
sérlega misheppnað aðfangadags-
kvöld rifjar Elling upp viðburðaríka
ferð með móður sinni til Benidorm
þar sem hann gerði tilraun til að
haga sér eins og dæmigerður sólar-
landafari.
Grímuborgin er fyrsta bókin íflokki þriggja fyrir unglinga
eftir Mary Hoffman. Bókaflokkurinn
heitir Stravaganza. Þetta er sögð
spennandi ævintýrasaga fyrir börn
og unglinga þar sem segir frá Luc-
ien, 15 ára strák, sem liggur veikur á
sjúkrahúsi í London þegar pabbi
hans færir honum skrautlega bók
frá Feneyjum. Bókin býr yfir töfra-
mætti og með hjálp hennar flyst
Lucien til Talíu þar sem dulúðin
ræður ríkjum. Hér er lesandanum
svipt inn í aðstæður sem eru á marg-
an hátt hliðstæðar Feneyjum 16. ald-
ar og gagnrýnendur hafa keppst um
að lofa hana í hástert, fyrir spennu
og skemmtilega frásögn.
Síðast skal svo telja bókina Örlög-
leysi eftir ungverska Nóbelsskáldið
Imre Kertész í þýðingu Hjalta Krist-
geirssonar. Sagan segir frá dvöl 14
ára drengs í útrýmingarbúðum nas-
ista árin 1944–45. Sagan er sögð sér-
stæð lýsing á sálarlífi unglings sem
hrekst á milli þrennra fangabúða en
er um síðir bjargað á giftusamlegan
hátt.
Höfundurinn er fæddur 1929 og
er af gyðingaættum og lifði sjálfur
af vist í Auschwitz 1944–45 og sú
reynsla hefur mótað allt hans höf-
undarverk. Hann hlaut bókmennta-
verðlaun Nóbels árið 2002 og er
sannarlega fengur að þessari bók
hans á íslensku.
Vályndir tímar
’Saga Akureyrar, 4.bindi, er um 400 blaðsíð-
ur í stóru broti, prýdd
mörg hundruð ljós-
myndum sem margar
hverjar hafa ekki birst á
prenti fyrr.‘
AF LISTUM
eftir Hávar
Sigurjónsson
havar@mbl.is
Saga Akureyrar,
4. bindi.
Elling –
Fugladansinn.
Grímuborgin. Örlögleysi.
NÚ ER að hefjast ný hádegistón-
leikaröð í Hafnarborg í Hafnarfirði.
Það er Hafnarborg sem stendur
fyrir þessum tónleikum. Hafnfirð-
ingar virðast kunna vel að meta
þetta framlag Hafnarborgar og
fylla salinn í hvert sinn og gera von-
andi áfram. Listrænn stjórnandi
tónleikanna er Antonia Hevesi, org-
anisti við Hafnarfjarðarkirkju.
Eyjólfur Eyjólfsson söng á þess-
um fyrstu tónleikum vetrarins með
sinni engilfögru tenórrödd. Eyjólf-
ur sem er mjög ungur að árum hef-
ur fengið mjög fallega og hreina
tenórrödd í vöggugjöf sem hann
hefur mótað og þroskað með mús-
íkalskri næmi og góðri kennslu.
Hann stundar nú framhaldsnám í
London þar sem hann hefur nýlokið
meistaragráðu í söng en mun
stunda nám í óperusöng á vetri
komanda. Hér heima nam hann
söng hjá dr. Þórunni Guðmunds-
dóttur við tónlistarskólann í Hafn-
arfirði, þar áður hafði hann lokið
burtfararprófi í flautuleik frá sama
skóla undir leiðsögn Gunnars Gunn-
arssonar.
Á fyrri hluta tónleikanna var eins
og intoneringin færi einstaka sinn-
um úr fókus en það leið fljótt hjá og
söngurinn varð heilsteyptari. Ann-
að sem Eyjólfur þarf að laga eða
samræma er framburður á bók-
stafnum e, t.d. í Smaladreng Skúla
Halldórssonar, þar sem gleði-
strengur varð „glaæjdistrengur“ og
nokkur önnur tilfelli komu upp þar
sem e-ið varð eitthvað einkennilegt
og brenglaði textann. Að þessum
ambögum frátöldum var framburð-
urinn til mikillar fyrirmyndar, hver
stafur í textanum var mjög skýr og
textinn notaður til að undirstrika
tónlistina. Efnisskráin samanstóð
af íslenskum einsöngsperlum.
Smaladrengnum eftir Skúla Hall-
dórsson, Lindinni og Mánaskini Ey-
þórs Stefánssonar. Sönglað á göngu
og Vökuró eftir Jórunni Viðar, Í
Fjarlægð eftir Karl O. Runólfsson.
Ég lít í anda liðna tíð, Þú eina hjart-
ans yndið mitt og Heimir eftir Sig-
valda Kaldalóns ásamt Spretti
Sveinbjörns Sveinbjörnssonar.
Flutningur Eyjólfs var vandaður og
túlkunin úthugsuð. Eyjólfur virðist
vera góður ljóðasöngvari, hann hef-
ur gott vald á styrkleika sem hann
beitir af mikilli næmi fyrir tónlist og
texta. Hér er á ferðinni efniviður
sem vert er að fylgjast með í fram-
tíðinni. Antonia Hevesi lék á flyg-
ilinn af miklu öryggi og studdi vel
við bakið á söngvaranum.
TÓNLIST
Hafnarborg
Eyjólfur Eyjólfsson tenór og Antonia Hev-
esi píanóleikari flytja íslensk sönglög.
Fimmtudagurinn 2. september kl. 12.00.
EINSÖNGSTÓNLEIKAR
Jón Ólafur Sigurðsson
THINGS that happen at home er
heiti dansverks eftir hina sænskætt-
uðu Birgittu Egerbladh. Verkið sem
greinilega er unnið í náinni sam-
vinnu dansara, leikara og höfundar
er húmorískt skemmtiverk. Verkið
spannar grátbroslegar og hugs-
anlegar uppákomur á heimili nú-
tímamannsins þar sem hraði og
spenna takast á við þrá um afslöpp-
un og rólegheit. Í verkinu er lagt
upp með sniðugheit og ber verkið
með sér samkeppnisanda um hver
sýnenda eigi sniðugustu hugmynd-
ina. Áhorfendur fylgjast með því
hvernig heimilisfaðirinn reynir að
slappa af og lesa dagblað í hæg-
indastól, hann leitar eftir lesgler-
augunum, týnir blaðinu í leiðinni og
loks er hann sest niður þá er peran í
lesljósinu farin. Leikendur sýna
hættuna við að stíga á súperbolta
barnanna og sársaukann við að stíga
óvænt af öllum þunga á legókubb.
Að ógleymdum háskanum sem getur
skapast við að reka tána í uppbrett
teppishorn og í kjölfarið flengjast
yfir hálfa stofuna. Eftirminnilegir
eru þrifameistarar heimilisins sem
af snilld þóttust taka til en gerðu í
raun ekki neitt. Í atriðinu voru
fimleikataktar í hávegum hafðir.
Útfærslan hjá sýnendum var af-
bragð. Álagi við að halda heimili og
eiga þátt í nútíma heimilislífi var
komið til skila með sniðugum hug-
myndum og lausnum. Það sem þarf
til að koma húmornum til skila er
hárfín tímasetning hreyfinga og
svipbrigða og það tókst sýnendum
afbragðs vel. Uppbyggingin í sýn-
ingunni var örugg og vann verkið á í
framvindunni. Leikmyndin sem
samanstóð af færanlegum vegg-
flekum og öðrum heimilisvörum
þjónaði tilgangi sínum vel. Verkið er
skemmtiverk og stendur undir þeim
væntingum. Því er ætlað að vekja
kátínu áhorfenda sem ekki lágu á
liði sínu og hlógu nánast út allt verk-
ið.
Lilja Ívarsdóttir
LISTDANS
Reykjavík Dance Festival
Dans og leikur: Stalle Ahrreman, Bernard
Cauchard, Francoise Joyce, Bára Magn-
úsdóttir. Leikstjórn og leikgerð: Birgitta
Egerbladh. Dramatúrg: Bodil Persson,
Marie Persson Hedenius. Leikmynd: Pet-
er Lundqvist. Lýsing: Jan Gouiedo. Bún-
ingar: Maria Felldin. Borgarleikhúsið
4. september 2004.
THINGS THAT HAPPEN AT HOME