Morgunblaðið - 07.09.2004, Síða 39
www .regnboginn.is
Hverfisgötu 551 9000 Nýr og betri
Mjáumst
í bíó!
Sýnd kl. 6. ísl tal.
Sýnd kl. 6. Enskt tal.
SV MBLÓÖH DV
Sýnd kl. 10. B.i. 12 ára.
YFIR 40000 GESTIR
Yfir 25.000 gestir!
SÝND UM HELGAR.
www.laugarasbio.is
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Sýnd kl. 5.40, og 8.
Yfir 25.000 gestir!
„Myndir á borð við
þessar segja meira en
þúsund orð.“
HJ. MBL
„Drepfyndin“
Ó.Ö.H. DV
S.K., Skonrokk
Ó.H.T Rás2
Sýnd kl. 10.15.
Nicole Kidman
The Stepford Wives
Sýnd kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8 og 10.30.
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.30
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 6. ísl tal
S.V. Mbl.
Ó.H.T Rás 3.
HP. Kvikmyndir.com
Ný íslensk mynd gerð eftir
samnefndri metsölubók,
í leikstjórn
Silju Hauksdóttur,
með Álfrúnu Helgu Örnólfsdóttur í
titilhlutverkinu.
Stórskemmtileg nútímasaga úr
Reykjavík sem tekur á stöðu ungs
fólks í íslenskum samtíma með
húmorinn að vopni.
Ný íslensk mynd gerð eftir
samnefndri metsölubók,
í leikstjórn
Silju Hauksdóttur,
með Álfrúnu Helgu
Örnólfsdóttur í titilhlutverkinu.
Stórskemmtileg nútímasaga úr
Reykjavík sem tekur á stöðu
ungs fólks í
íslenskum samtíma með
húmorinn að vopni.
óvenjulega venjuleg stelpaóvenjulega venjuleg stelpa
NOTEBOOK
NOTEBOOK
NOTEBOOK
hollenskir
kvikmyndadagar
10-16 sept.
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 39
Kynntu þér tilboð okkar
á bílaleigubílum
Pantaðu AVIS bílinn áður en þú leggur af stað
Það borgar sig – Hringdu til AVIS í síma 591-4000
Við erum í 170 löndum
5000 stöðum
T.d. Reykjavík, London, Kaupmannahöfn,
Frankfurt, Milano, Alicante ...
AVIS Knarrarvogi 2 – 104 Reykjavík – Sími 591 4000 – Fax 591 4040 – Netfang avis@avis.is – Heimasíða www.avis.is
Minnum á Visa afsláttinn
TEKJUR af kvikmyndaaðsókn í Bandaríkjunum hafa
aldrei verið meiri en í sumar, annað sumarið í röð, þrátt
fyrir að bíógestum hafi fækkað örlítið. Hefur þar ýmislegt
að segja. Fahrenheit 9/11 var fyrsta heimildarmyndin til
að fara yfir 100 milljóna dala markið og grínmynd Bens
Stiller og Vince Vaughan, Dodgeball: A True Underdog,
var önnur mynd sem fór óvænt yfir 100 milljónir dala.
Þessar myndir og fyrirsjáanlegri smellir á borð við fram-
haldsmyndirnar Shrek, Spider-Man og Harry Potter
gerðu það að verkum að tekjur af aðsókn sumarsins fóru
hátt í fjóra milljarða dala, um 290 milljarðar króna, 3%
meira en á metsumari síðasta árs.
Hærra verð aðgöngumiða þýðir þó að færri miðar en
áður voru seldir. Fyrirtækið Exhibitor Relations, sem
fylgist með bíóaðsókn í Bandaríkjunum, segir að Banda-
ríkjamenn hafi keypt 637,8 milljónir miða í sumar, sem er
0,76% minna en í fyrra.
Shrek 2 er vinsælasta teiknimynd allra tíma, slær met
Finding Nemo frá 2003, og hefur halað inn 436,7 milljónir
dala, eða um 32 milljarða króna.
Spider-Man 2 slær ekki fyrri myndinni við. Hún hefur
tekið inn 370 milljónir dala, um 27 milljarða króna, en
fyrri myndin 404 milljónir dala, um 29 milljarða króna.
Betri myndir í sumar
Í heildina voru betri myndir frumsýndar í sumar en
sumarið 2003 þegar fjöldi óminnisstæðra framhalds-
mynda var frumsýndur, að sögn Pauls Dergarabedian,
framkvæmdastjóra Exhibitor Relations. „Þetta var gott
sumar. Góð blanda af stórmyndum, nokkrum frábærum
heimildarmyndum og myndum úr sjálfstæða geiranum.
Þetta er það sem áhorfendur vilja. Þeir vilja hafa val.“
Vinsælasta mynd helgarinnar í kvikmyndahúsum
vestra var kínverska bardagamyndin Hero, aðra helgina í
röð en myndin er með Jet Li í aðalhlutverki. Þrátt fyrir að
verið sé að frumsýna hana nú vestra er myndin tveggja
ára gömul og er til á íslenskum myndbandaleigum.
Af nýjum myndum fór hasarmyndin Paparazzi hæst,
eða í fjórða sætið. Myndin er gerð af Icon, fyrirtæki Mels
Gibson, og fjallar um hasarmyndastjörnu sem eltir uppi
hóp ljósmyndara, sem hafa elt hann á röndum. Leikurinn
snýst því við en Tom Sizemore er þarna í stóru hlutverki,
því stærsta síðan hann var sakfelldur fyrir að hafa beitt
fyrrverandi kærustu sína, Heidi Fleiss, ofbeldi.
Grínmyndin The Cookout, sem fjallar um körfubolta-
stjörnu sem heldur grillveislu í gamla hverfinu sínu, fór
beint í 5. sætið. Wicker Park, sálfræðitryllir með Josh
Hartnett, fór í 6. sætið. Kvikmyndin Vanity Fair í leik-
stjórn Miru Nair með Reese Witherspoon er í 8. sæti um
frumsýningarhelgina. Myndin er gerð eftir samnefndri
bók William Makepeace Thackeray.
Almennur frídagur var í Bandaríkjunum í gær og löng
helgi. Þessi helgi er samkvæmt venju ekki mikil bíóhelgi í
Bandaríkjunum og má búast við því að aðsókn verði einn-
ig dræm næstu helgar.
Bíóaðsókn | Hero vinsælust í Bandaríkjunum
Mike Myers talar fyrir Skrekk en framhaldsmyndin um
Skrekk er aðsóknarmesta mynd sumarsins og vinsæl-
asta teiknimynd allra tíma.
Metsumar í Hollywood
KVIKMYNDIR
Háskólabíó – Bandarískir indí-dagar
KEN PARK Leikstjórn: Larry Clark og Edward Lach-
man. Handrit: Harmony Korine eftir sög-
um Larry Clark. Aðalhlutverk: Tiffany
Limos, James Ransone, Stephen Jasso,
James Bullard, Wade Williams og
Amanda Plummer. 98 mín. BNA. Fortiss-
imo Film Sales 2002.
ÞEIR eru komnir aftur, félagarnir al-
ræmdu, Larry Clark og Harmony
Korine sem gerði allt vitlaust fyrir
um 10 árum með kvikmyndinni Kids,
vægðarlausri og kynferðislega opin-
skárri kvikmynd um firringu banda-
ríska ungdómsins. Það verður ekki
annað sagt en að þeir félagar séu aft-
ur að taka í sama streng með Ken
Park. Hér er þó fremur hallað á for-
eldrana og ýjað að því að sökin liggi
hjá þeim þegar kemur að af-
brigðilegri hegðun unglinganna.
Myndin segir frá fjórum vinum,
fjölskyldulífi þeirra og kynlífi. Besta
sagan er án efa um Claude sem verð-
ur fyrir sífelldu áreiti af hendi föður
síns. Sagan af Peaches og yfirmáta
kristnum föður hennar er einnig
áhugaverð – eða þar til hún gengur út
í öfgar. Síðan er það Shawn sem sefur
sjá kærustunni og mömmu hennar
líka og Tate sem er snargeðveikur og
býr hjá ömmu sinni og afa.
Þær myndir sem dregnar eru upp
af þessu fólki og lífi þess eru mjög
áhugaverðar, þótt maður verði að
spyrja sig hvað leikstjórinn sé að
reyna að segja með þeim. T.d virðist
sagan af Tate vera hér einungis til að
ganga fram af fólki, því hún er í engu
samhengi við hinar sögurnar. Hinar
tengjast örlítið í lokin, en þó ekki
nægilega mikið til að einhver heild
myndist eða til að raunveruleg saga,
merking eða boðskapur komi fram.
Harmony Korine er greinilega ekki
að skila sínu, því hann byggir hand-
ritið á sögum Larry Clarks, og hefði
þurft að vinna mun meira með þær en
hann gerir.
Ekki síst vegna þessa verður að
segjast að Kids var betri og mun ít-
arlegra og vandaðra kvikmyndaverk.
Aftur fær leikstjórinn til liðs við sig
algerlega óreynda leikara og tekst að
ná því besta fram hjá þeim. Allur leik-
urinn er sérlega eðlilegur, og það er
ótrúlegt hversu hispurslaus kynlífs-
atriðin eru.
Þótt frásögnin sé sundurlaus – og
virðist oft tilgangslaus – ná persón-
urnar þeim tökum á manni að manni
verður annt um þær og örlög þeirra.
Þetta er helsti kostur myndarinnar
og góður kostur.
Ken Park er ekki merkilegt kvik-
myndaverk, en grípandi á einhvern
óljósan hátt þótt fólk verði seint sam-
mála um það.
Hildur Loftsdóttir
Grípandi firring
Ken Park er mynd sem sannarlega
er ekki allra.