Morgunblaðið - 07.09.2004, Side 41

Morgunblaðið - 07.09.2004, Side 41
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 41 NÚ STENDUR yfir Nútímadanshátíð í Reykja- vík, sem haldin er í Borgarleikhúsinu. Hátíðin var sett á föstudagskvöldið síðasta af forseta Ís- lands, Ólafi Ragnari Grímssyni, og lýkur 11. sept- ember. Fjölmenni fylgdist með verkunum Man- WoMan eftir Ólöfu Ingólfsdóttur og Ismo-Pekka Heikinheimo, Án titils eftir Ástrós Gunn- arsdóttur og Græna verkið eftir Jóhann Björg- vinsson. Nútímadanshátíð í Reykjavík var stofnuð árið 2002 til að skapa nýjan vettvang fyrir nútíma- dans á Íslandi. Hátíðin er orðin árlegur við- burður í íslensku menningarlífi og býður að þessu sinni upp á fersk dansverk eftir marga af fremstu danshöfundum landsins. Á dagskránni er úrval ólíkra dansverka, sem flest eru frumsýnd á hátíðinni. Sérstakur gestur Nútímadanshátíðar 2004 er Birgitta Egerbladh frá Svíþjóð. Dans | Nútímadanshátíð stendur yfir í Reykjavík Dans stiginn í Borgarleikhúsinu Morgunblaðið/Sverrir Forseti Íslands, Ólafur Ragnar Grímsson, setti hátíðina en hér er hann með Guðjóni Pedersen og Katrínu Hall, listdansstjóra Íslenska dansflokksins. Agnes Kristjónsdóttir og Kolbrún Halldórsdóttir við setninguna. Lísa Jóhannsson og Kristín Jóhann- esdóttir sáu setningarsýninguna. www.dancefestival.is VÁKORT Eftirlýst kort nr. 4539-8618-0017-6940 4741-5200-0002-4854 4507-4300-0029-4578 4741-5200-0002-5562 4507-4500-0033-0867 4543-3700-0047-8167 Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið ofangreind kort úr umferð og sendið VISA Íslandi sundurklippt. VERÐLAUN kr. 5000 VISA ÍSLAND Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Sími 525 2000. 04.09. 2004 Þrefaldur 1. vinningur í næstu viku 1 9 5 9 4 7 6 8 5 0 6 12 15 22 33 31 01.09. 2004 8 14 24 40 46 48 16 27 OFURTALAN 27 www.thjodmenning.is AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 EINN álitsgjafi kanadíska dag- blaðsins Toronto Star mælir með Næslandi sem einni af þeim mynd- um sem fólk eigi að fylgjast með á Kvikmyndahátíðinni í Toronto. Blaðið fékk 31 álitsgjafa úr kvik- myndaheiminum til að velja þrjár at- hyglisverðustu myndirnar úr hópi yfir þrjú hundruð mynda, sem sýnd- ar verða á hátíðinni. James Berardinelli, gagnrýnandi hjá www.reelviews.net nefnir Næsland, kvikmynd Friðriks Þórs Friðriks- sonar til sögunnar: „Hann hefur áð- ur gert frábærlega sérstæðar mynd- ir og vinnur í landi (Íslandi), sem er oft vanrækt í kvikmyndum,“ segir hann. Þetta er í 29. sinn sem hátíðin er haldin og verða sýndar 328 myndir frá 61 landi og er metfjöldi mynd- anna á hátíðinni, eða 82%, heims- frumsýndur eða frumsýndur í Norð- ur-Ameríku. Blaðið er að gera þessa úttekt, sem ætluð er að auðvelda fólki að ákveða sig hvaða myndir það eigi að sjá, í fjórða sinn. Á síðasta ári var The Barbarian Invasions á meðal þeirra mynda sem álitsgjafarnir mæltu hvað oftast með en myndin var valin besta kanadíska myndin á hátíðinni. Fyrir tveimur árum mæltu álitsgjafarnir með Whale Rider eftir Niki Caro, sem vann áhorfendaverðlaunin það árið. Í þetta sinn fengu flest atkvæði, eða þrjú, heimildarmyndin Gunner Palace eftir Michael Tucker og Petra Epperlein, Earth and Ashes eftir Atiq Rahimi, sem fjallar um hvernig stríð hefur haft áhrifa á líf fólks og menningu í Afganistan og Cinévardaphoto, þrjár stuttmyndir eftir Agnès Varda. Hátíðin hefst á fimmtudag og stendur til 18. september. Tvær ís- lenskar myndir til viðbótar taka þátt í hátíðinni, Mjóddin eftir Róbert Douglas og Skagafjörður eftir Peter Hutton, sem víðkunnur er fyrir landslagskvikmyndir sínar. Skaga- fjörður verður jafnframt opnunar- mynd kvikmyndahátíðarinnar Nordisk Panorama í Reykjavík hinn 24. september. Kvikmyndir | Úttekt á áhugaverðustu myndunum á Kvikmyndahátíðinni í Toronto Morgunblaðið/Kristinn Martin Compston, einn af aðalleikurum myndarinnar, og Friðrik Þór leik- stjóri skellihlæja á keflvísku heimili þar sem upptökur fóru fram. Mælt með Næslandi Söngvari hljómsveitarinnarPixies, Frank Black, sem kom hingað til lands í sumar, sendir frá sér nýja plötu 12. október. Plat- an, sem er tvöföld, heitir Frank Black Francis, en Black notaði nafnið Black Francis á með- an hann var í Pixies, áður en hljómsveitin hætti árið 1992. Hún kom svo aftur saman í vor og hefur verið á tónleika- ferðalagi síðan. Frank Black Francis er sem fyrr segir tvöfaldur geisladiskur. Á öðrum þeirra verða prufuupp- tökur af Pixies-lögum, frá því áð- ur en hljómsveitin var stofnuð. Upptökurnar hafa verið mjög eft- irsóttar hjá aðdáendum sveit- arinnar og hafa verið fjölfaldaðar á ólöglegan hátt. Á hinum disk- unum verða nýjar útgáfur af Pixies-lögum, sem Black vann í samvinnu við tónlistarteymið Two Pale Boys. Að sögn munu þær ekki vera í líkingu við þær útgáfur sem flestir þekkja með Pixies. Fólk folk@mbl.is ÁLFABAKKI Sýnd kl. 8 og 10.20 AKUREYRI Sýnd kl. 8. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 3.50 og 6. Ísl tal. AKUREYRI Sýnd kl. 10. B.i 14 ára. Þeir hefðu átt að láta hann í friði. KEFLAVÍK Sýnd kl. 8. ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. S.V. Mbl.  HP. Kvikmyndir.com Kemur steiktasta grínmynd ársins Kemur steiktasta grínmynd ársins KRINGLAN sýnd kl. 5.50 KRINGLAN sýnd kl. 8 og 10.20. KRINGLAN sýnd kl. 6, 8 og 10. b.i. 14 ára Julia Stilesli il ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 6. The KEFLAVÍK Sýnd kl. 8 og 10. B.i 14 ára. KEFLAVÍK Sýnd kl. 10. B.i 14 ára.  Ó.H.T Rás 3. AKUREYRI Sýnd kl. 8 og 10. B.i 14 ára. KRINGLAN Sýnd kl. 6 og 8

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.