Morgunblaðið - 07.09.2004, Side 44
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 ÞRIÐJUDAGUR 7. SEPTEMBER 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
ÍRSKI tónlistarmaðurinn Damien Rice,
sem lék á tónleikum 19. mars sl. fyrir troð-
fullu húsi á Nasa, mun endurtaka leikinn
23. september nk. og leika aftur á Nasa.
Miðar seldust upp á
fyrri tónleikana á innan
við degi og komust þá
miklu færri að en vildu.
Að þessu sinni mun
söngkonan Lisa Hann-
igan vera með Rice í för
og koma fram með hon-
um á tónleikunum.
Hannigan er í hljóm-
sveit Rice og söng með
honum nokkur lög á
plötunni margrómuðu O, sem selst hefur
vel hér á landi.
„Ég fékk bara frá honum SMS-far-
símaskilaboð þar sem hann spurði hvort
hann mætti ekki koma aftur,“ segir Kári
Sturluson tónleikahaldari, sem svaraði ját-
andi um hæl. Kári mun standa fyrir tónleik-
unum ásamt Birni Steinbekk.
Miðasalan hefst 18. september nk./40
Damien Rice til
Íslands á ný
Damien Rice
„KAJAKRÓÐUR getur bæði verið
rosalega rómantískur og sömuleið-
is farið út í miklar öfgar í hina átt-
ina,“ segir Þröstur Þórisson, 15 ára
kajakræðari frá Ísafirði, sem er
kominn í hóp þeirra allra bestu á
landinu eftir aðeins 18 mánaða
ástundun. Þröstur er í 4. sæti til Ís-
landsmeistaratitils í sjókajakróðri
og keppti um helgina í hinu árlega
Hvammsvíkurmaraþoni frá Geld-
inganesi að Hvammsvík í Hvalfirði.
„Ég hafði prófað kajakróður að-
eins með því að leigja bát á kajak-
leigum og fannst sportið skemmti-
legt. Ég fór síðan á námskeið hjá
Halldóri Sveinbjörnssyni, keypti
mér bát og hef verið óstöðvandi
síðan.“ Nú er Þröstur á kafi í starf-
semi Sæfara, Félags áhugamanna
um sjósport á Ísafirði, og hefur
hann kennt á kajaknámskeiðum í
sumar og verið með krakka á aldr-
inum 9–14 ára á siglinganám-
skeiðum. Því til viðbótar hefur
hann verið leiðsögumaður í kajak-
ferðum fyrir ferðamenn innlenda
jafnt sem erlenda.
Ekki er allt upptalið enn því
Þröstur náði þeim eftirsótta áfanga
fyrir skemmstu að verða fyrstur
Íslendinga svo vitað sé til að róa
samanlagt 1.000 km á árinu og
skaut þar með læriföður sínum
Halldóri Sveinbjörnssyni ref fyrir
rass. Þröstur stefnir nú að því að
róa 1.500 km áður en árið er liðið.
„Kajakróður er fyrsta flokks úti-
vist og besti ferðamáti sem ég veit
um. Þetta er eins og hver önnur
íþrótt og einu hætturnar felast í
sjávarkulda. Því þarf maður að
vera vel gallaður og alltaf í björg-
unarvesti. Einnig þarf að kunna
sjálfsbjörgun og félagabjörgun og
fara ekki út á sjó ef aðstæður eru
óviðráðanlegar. Ég býst við að það
versta sem ég hef lent í sé tveggja
metra ölduhæð í 30 metrum á sek-
úndu.“
Fimmtán ára Ísfirðingur kominn í hóp bestu kajakræðara landsins
„Besti ferðamáti
sem ég veit um“
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörns
Þröstur Þórisson hefur róið samanlagt yfir 1.000 km á árinu.
STEFNT er að því að bjóða upp á
tónlistarnám í grunnskólum borg-
arinnar á næstu misserum fyrir
nemendur í for- og grunnnámi tón-
listar. Að sögn Stefáns Jóns Haf-
stein, formanns fræðsluráðs, er vilji
fyrir því innan fræðsluráðs að
breyta reglum í þá veru og raunar
hafi verið stefnt að því í vor en ekki
tekist.
Boðið hefur verið upp á tónlist-
arnám í nokkrum grunnskólum
borgarinnar og var nemendum
Landakotsskóla t.a.m. síðastliðinn
vetur boðið upp á að læra á ákveðin
hljóðfæri og fékk skólinn styrk frá
borginni til kennslunnar.
Tónlistar-
nám verði í
boði í grunn-
skólunum
Formaður
fræðsluráðs
FYRSTI tökudagur vegna kvik-
myndarinnar Bjólfskviðu var í
gær. Byrjað var á myndatökum á
Jökulsárlóni og á milli atriða
brugðu nokkrir vígalegir víkingar
á leik við víkingaskipið Íslending
og tóku upp stafrænar myndavélar
sínar, eina helstu tækninýjungina
við upphaf 21. aldar, nokkuð sem
hefur án efa talist fjarlægur
draumur á þeim tímum sem Bjólfs-
kviða varð til til forna. Þetta eru
leikararnir Tony Curran, Rory
McCann, Ronan Vibert og Martin
Dalaney.
Að sögn Jóns Gústafssonar, sem
er að vinna heimildarmynd um
gerð Bjólfskviðu, gekk allt upp á
fyrsta tökudegi og veðrið eins og
best varð á kosið, stafalogn og Jök-
ulsárlónið skartaði sínu fegursta.
Jón sagði Sturlu Gunnarsson leik-
stjóra og hans starfsfólk vera í
skýjunum yfir því hvernig tök-
urnar fóru af stað. Þær munu svo
fara fram víðar um landið næstu
vikurnar, m.a. við Dyrhólaey og í
Kerlingardal í Mýrdalnum.
Morgunblaðið/RAX
Stafrænir
víkingar í
Bjólfskviðu
Lítið fiskimannaþorp/38
„ÉG TEL að þarna sé Síminn að
gæta sinna hagsmuna á við-
skiptalegum forsendum. Þetta er
ekki pólitísk ákvörðun og ég geri
ekki athugasemd við hana,“ segir
Geir H. Haarde fjármálaráð-
herra um kaup Símans á Fjörni
ehf., sem átti 26,2% hlut í Skjá
einum.
„Það verður að hafa það í huga
að Síminn er hlutafélag sem
starfar á markaði og það eru
stjórnendur félagsins sem taka
ákvarðanir af þessu tagi,“ segir
seldur fyrir áramót og þá segir
hann verð og fyrirkomulag söl-
unnar á hendi einkavæðingar-
nefndar að gera tillögur um.
Halldór Ásgrímsson utanríkis-
ráðherra segir að samkeppni hafi
myndast milli Símans og Stöðvar
2 um kaup á Fjörni og Síminn
hafi náð viðskiptunum. „Þetta er
það sem gerist á hinum frjálsa
markaði,“ segir Halldór.
það hvort fyrirtækið hefði átt að
efla dreifikerfið, held ég að það
sé augljóst mál að ef þetta verð-
ur til að styrkja fyrirtækið þá er
það vonandi betur í stakk búið til
að takast á við slík verkefni.“
Viðvíkjandi einkavæðingu fyr-
irtækisins segir Geir að málið sé
á borði einkavæðingarnefndar
sem muni vonandi á næstunni
leita eftir samvinnu ráðgjafa
varðandi einkavæðingarferlið.
Geir segist ekki geta svarað því
hvort Landssíminn verði jafnvel
Geir, sem vissi ekki af viðskipt-
unum fyrr en honum var greint
frá þeim á föstudag eftir að
gengið hafði verið frá þeim.
Spurður segist Geir ekki gera
sérstaka kröfu til þess að fá vitn-
eskju fyrirfram um viðskipti af
þessu tagi sem handhafi 99%
hlutafjár í Landssímanum. „Hins
vegar tel ég að þetta muni
styrkja fyrirtækið og gera það að
betri söluvöru fyrir ríkið og von-
andi flýta fyrir því að við getum
einkavætt fyrirtækið. Varðandi
Fjármálaráðherra um kaup Símans á 26,2% hlut í Skjá einum
Gerir fyrirtækið að betri
söluvöru fyrir ríkið
Síminn/4
Samningurinn/12
LÖGREGLAN í Reykjavík handtók 19 ára
pilt í gær, grunaðan um rán á lyfjum úr
Hringbrautarapóteki í JL-húsinu á laugar-
dag. Lögreglan lagði einnig hald á loftbyssu
sem fannst í fórum hans sem og lambhús-
hettu.
Að sögn Ómars Smára Ármannssonar,
aðstoðaryfirlögregluþjóns í Reykjavík,
vinnur lögregla nú að því að upplýsa málið
til fulls áður en ákvörðun verður tekin um
framhaldið. „Pilturinn hefur verið iðinn við
að gera það sem hann hefði ekki átt að
gera,“ sagði Ómar um feril piltsins.
Myndir náðust af manninum á öryggis-
myndavélar apóteksins en á leiðinni út tók
hann ofan lambhúshettu. Veifaði hann loft-
skammbyssu og ógnaði starfsfólkinu.
Morgunblaðið/Júlíus
Lögreglan handtók í gær ungan mann eft-
ir að lyf og loftbyssa fundust í fórum hans.
Handtekinn
fyrir rán