Morgunblaðið - 13.09.2004, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2004 C 5
Fálkahöfði - 3ja herb. *NÝTT Á
SKRÁ* Mjög falleg 103,8 m2, 3ja herbergja enda-
íbúð á 2. hæð í 3ja hæða fjölbýli við Fálkahöfða.
Tvö stór svefnherbergi, sjónvarpshol, stór stofa,
eldhús m/borðkrók, sér þvottahús og baðherbergi
m/kari og sturtu. Rúmgóðar svalir með miklu út-
sýni út á Sundin. Lánshæfi m.v. ásett verð og
80% lán, kr. 12.160.000. Eftirstöðvar kr.
3.040.000. Greiðslubyrði m.v. 40 ára lán með
4,2% vöxtum er ca kr. 52.445 á mánuði án verð-
bóta. Verð kr. 15,2 m.
Skeljatangi - 4ra herb. *NÝTT Á
SKRÁ* Vorum að fá 94 m2, 4ra herbergja íbúð á 2.
hæð í litlu fjórbýlishúsi, með sérinngangi og svöl-
um. 3 góð svefnherbergi, baðherbergi með kari,
geymsla, stór stofa og eldhús. Lánshæfi m.v.
ásett verð og 80% lán, kr. 11.920.000. Eftirstöðv-
ar kr. 2.98000.00. Greiðslubyrði m.v. 40 ára lán
með 4,2% vöxtum er ca kr. 51.418 á mánuði án
verðbóta. Verð kr. 14,9 m.
Miðholt - 2ja herb. *NÝTT Á SKRÁ*
Lítil 2ja herbergja íbúð á 3. hæð í litlu fjölbýli í
miðbæ Mosfellsbæjar. Svefnherbergi með góðum
fataskáp, baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með
baðkari, björt stofa og eldhúskrókur með góðri
innréttingu. Beykiparket á gólfum og fallegt út-
sýni - stutt í alla þjónustu. Verð kr. 9,8 m.
Hlíðartún - einbýli. *NÝTT Á SKRÁ*
Vorum að fá mjög sjarmerandi 140 m2 einbýlishús
ásamt gróðurhúsi, vinnuskúr og 10 m2 útisund-
laug. Húsið stendur á 1.200 m2 lóð sem er skógi
vaxin og sést varla í húsið frá götu vegna gróðurs.
3 svefnherbergi, mjög stór stofa, borðstofa, bað-
herbergi m/sturtu, eldhús og þvottahús auk
geymslu í kjallara. Í garðinum fjölbreytt úrval
plantna. Lánshæfi m.v. ásett verð og 80% lán, kr.
17.840.000. Eftirstöðvar kr. 4.460.000. Greiðslu-
byrði m.v. 40 ára lán með 4,2% vöxtum er ca kr.
76.741 á mánuði án verðbóta. Verð kr. 22,3 m.
Klapparhlíð 5 - 50 ára og
eldri Erum með í sölu glæsilegt 4 hæða lyftu-
hús með 20 íbúðum fyrir 50 ára og eldri í Klappar-
hlíð í Mosfellsbæ. Sér inngangur er í hverja íbúð
af svalgangi með glerskermun. Innangengt er í
bílageymslu með 16 bílastæðum. Húsið er ein-
angrað að utan og klætt með bárumálmklæðn-
ingu og harðvið. Íbúðirnar eru 3ja herbergja og
stærð þeirra er ca 107 - 120 m2. Íbúðirnar verða
afhentar í október nk. Nánari upplýsingar hjá
Fasteignasölu Mosfellsbæjar.
Klapparhlíð - raðhús. Erum með
þrjú 140 m2 raðhús á einni hæð með innbyggðum
bílskúr við Klapparhlíð. Íbúðirnar verða afhentar
fullbúnar án gólfefna og þökulögðum garði. Val
er um viðartegundir í innréttingum. 2 góð svefn-
herbergi, stór stofa, eldhús, sjónvarpshol, gott
baðherbergi og sér þvottahús. Húsin verða til af-
hendingar í vetur. Verð frá 22,3 m.
Þrastarhöfði 2-4
- Nýbygging
*NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá glæsi-
legt 3ja hæða fjölbýlishús í nýju
hverfi úr landi Blikastaða. Í húsinu
verða 22 íbúðir og 14 bílageymslur í
kjallara. Íbúðirnar eru 3ja, 4ra og 5
herbergja. Öllum íbúðum verður
skilað fullbúnum án gólfefna en með
flísalögðum baðherbergis- og
þvottahúsgólfum. Húsið verður ein-
angrað að utan og klætt með flísum og harðviði. Íbúðirnar eru til afhendingar
næsta sumar. ERUM VIÐ MEÐ KAUPANDA AÐ ÞINNI EIGN? Hjá Fasteigna-
sölu Mosfellsbæjar er fjöldi kaupenda á skrá sem bíður eftir draumaeigninni í
Mosfellsbæ. Hver veit nema að kaupandi bíði eftir þinni eign. Hafðu samband
við okkur hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar og kannaðu málið. ÁBENDING !
Hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar er það aðeins löggiltur fasteignasali sem
skoðar allar eignir, verðmetur og sér um allan skjalafrágang varðandi kaup og
sölu á fasteignum - þetta er grundvallaratriði að okkar mati! Vertu viss um að
löggiltur fasteignasali sjá um fasteignaviðskipti þín - frá upphafi til enda !
Tröllateigur 49-51 - Nýtt 10
íbúða hús. Vorum að fá í sölu 10 íbúðir í
3ja hæða fjölbýli við Tröllateig í Mosfellsbæ. Á
jarðhæð eru tvær 3ja herb., 101 m2 íbúðir, á 2.
hæð eru tvær 111 m2, 4ra herbergja íbúðir og
tvær 7 herbergja, 164 m2 íbúðir á 2 hæðum og á
3. hæð eru fjórar 100-110 m2 4ra herbergja íbúðir.
Allar íbúðir eru með sérinngangi og garði eða
svölum. Íbúðunum verður skilað fullbúnum, án
gólfefna, en baðherbergi og þvottahús verða
flísalagt. Afhending í apríl og júní 2005.
Tröllateigur 35, 37 og 39 *NÝTT
Á SKRÁ* Vorum að fá þrjú 185 m2 raðhús á
tveimur hæðum á mjög góðum stað við Tröllateig.
Á jarðhæð er eldhús, stofa, sólstofa (í endahúsun-
um), geymsla, gestasalerni og bílskúr, en á 2.
hæðinni eru 3-4 svefnherbergi, hol, baðherbergi
og þvottahús. Húsin eru afhent fullbúin að utan,
en að innan eru þau rúmlega fokheld, þ.e útvegg-
ir einangraðir og múraðir og raflagnarefni komið í
veggi. Verð frá kr. 19,9 m.
ÁGÆTU MOSFELLINGAR!
Vegna ágætrar sölu undanfarið þá vantar okkur
hjá Fasteignasölu Mosfellsbæjar allar gerðir
eigna á söluskrá okkar.
Við erum með fjölda áhugasamra kaupenda
sem bíða eftir draumaeigninni sinni.
Ólafur B. Blöndal
löggiltur fasteignasali
ÞÓRÐARSVEIGUR 20-24 - GRAFARHOLTI
GLÆSILEGT FJÖLBÝLISHÚS
Erum að hefja sölu á 27 glæsilegum 3ja–4ra
herbergja íbúðum í nýju fjölbýli á góðum stað í
Grafarholtinu. Annars vegar er um að ræða
hefðbundið 3ja hæða hús með sérinngangi af
svölum í allar íbúðir og hins vegar 5 hæða lyftu-
hús með sérinngangi. Húsin tengjast saman á
horni og myndast skjólgóður garður aftan við
hús. Afh. í feb.-mars 2005.
Íbúðirnar skilast fullbúnar án gólfefna með flísa-
lögðum baðherbergjum. Innréttingar eru vand-
aðar, möguleiki á nokkrum viðartegundum. Lóð
verður frágengin. Fyrsta flokks vara. Traustur
byggingaraðili: G.Á. Byggingar.
Allar nánari uppl., skilalýsingar og teikningar
á skrifstofu fasteign.is.
ÍBÚÐIRNAR
VERÐ
Verð á 3ja herb. með bílageymslu er frá 14,5 millj.
Stærri 3ja herb. með bílageymslu er frá 17,9 millj.
Verð á 4ra herb. með bílageymslu er frá 18,7 millj.