Morgunblaðið - 13.09.2004, Page 51

Morgunblaðið - 13.09.2004, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 13. SEPTEMBER 2004 C 51 Lómasalir Stór og sérlega rúmgóð 3ja her- bergja, 102 fm íbúð á fyrstu hæð með suð- urgarði. Sér inngangur af svölum. Stæði í bílageymslu fylgir íbúð. Parket og flísar á gólfum. Laus við Kaupsamning. Verð 15,7 millj. Hæðir Engihlíð Stórglæsileg, björt og velstaðsett 160 fm sérhæð í Hlíðunum. Húsið er allt ný- steinað að utan og lítur mjög vel út með glæsilegri aðkomu, sérinngangur í íbúð. Möguleiki á séríbúð í risi. Á aðalhæð er stór stofa, borðstofa, svefnherbergi, barnaher- bergi, baðherbergi, gangur og eldhús. Park- et og flísar á hæð. Verð 24,9 millj. Rað- og parhús Furugerði Stórglæsilegar íbúðir í sérbýli sem verið er að breyta frá grunni. Íbúðirnar eru tveggja hæða glæsiíbúðir með öllu sér. Forstofa flísalögð. Allar innréttingar eru frá HTH, bæði baðherbergi flísalögð með upp- hengd salerni og lýsing og hönnun lýsingar er frá Lúmex. Um er að ræða tvær 3ja her- bergja íbúðir. Verð 24,9 millj. www.eignir.is eignir@eignir.is Ingólfsstræti Glæsilegt 120 fm parhús á góðri eignar- lóð í þingholtunum. Þetta hús er fyrsta parhús Reykjavíkur og er friðað að utan. Húsið hefur verið tekið í gegn að mestu leyti, þ.e. gluggar og gler tvöfalt, raflagnir, pípulagnir, gólf pússuð og nánast allt tekið í gegn að innan, þ.m.t. eldhús og bað. Á miðhæðinni er forstofa, gestasnyrting, eldhús, gangur og eitt herbergi. Á efri hæð er baðherbergi, og tvö rúmgóð her- bergi. 2ja herb. Notaleg og skemmtileg 65,9 fm 2ja her- bergja íbúð í kjallara í Skólavörðuholtinu. ÖLL lýsing íbúðarinnar er halogen lýsing. Sérgeymsla fyrir íbúðina er á hæðinni og einnig þvottahús sem er sameiginlegt. Stór garður fylgir eiginni. Búið er að endurnýja allt rafmagn og gluggar og gler er nýtt. Verð 13,4 millj 3ja herb. Hringbraut. Sérlega vel skipulögð 3ja her- bergja íbúð með sérinngangi að sunnan- verðu við húsið. Húsið er í góðu ástandi og sameign mjög snyrtileg. Parket á holi og stofu, eldhús með hvítri innréttingu. Spenn- andi staðsetning. 13,8 millj. Torfufell FALLEG 3JA HERBERGJA ÍBÚÐ Á 3. HÆÐ Í GÓÐU FJÖLBÝLI. Íbúðin er öll nýmáluð, falleg hvít eldhúsinnrétting og parket á stofu og svefnherbergi. Sameign er mjög falleg. Stutt í alla þjónustu. Góð fyrstu kaup. Verð 9,6 millj. Naustabryggja Glæsileg 3ja herb. íbúð 110,3 fm á annarri hæð ásamt stæði í bílageymslu í Bryggju- hverfinu. Íbúðirnar í álmum 13 - 15 eru hinar glæsilegustu og afhendast fullbúnar án gólf- efna. Innréttingar og hurðir eru úr dökku Mahony. Þvottahús og geymsla er innan íbúðarinnar. Góðar svalir. Lyfturnar ganga niður í bílageymsluna. Verð 16,6 millj. Einbýli Markarflöt/Garðabær Glæsilegt einbýli á einni hæð ásamt bílskúr og sólstofu alls 224 fm. Húsið er mikið endurnýjað td. eldhús og bað, arinn í stofu. Nuddpottur í sólskála og útgegnt mót suðri. Einnig er í húsinu sauna klefi. Nýjir skápar í svefnherbergi. Frábær eign á frábærum stað. Verð 33,9 millj. Digranesheiði Snoturt 145 fm einbýli á grónum stað í Kópavogi sem stendur á 900 fm lóð. Í húsinu eru fjögur herbergi á efri hæð auk wc en á neðri hæð eru tvær stofur, eldhús, baðherbergi og eitt svefnherbergi. Til eru samþykktar teikningar af húsnæðinu auk teikn. af bílskúr. Verð 24,5 millj. Þórðarsveigur Glæsilegar 2-5 herbegja íbúðir ásamt stæði í bílageymslu. Íbúðirnar skilast fullbúin án gólfefna, en baðher- bergi, þvottahús og anddyri verða flísalögð. Íbúðirnar eru með vönduðum innréttingum frá HTH og AEG tækj- um frá Bræðrunum Ormsson. Baðherbergi eru með upphengdum WC og flísalögð upp í hurðarhæð, handklæða- ofni og spegli fyrir ofan vask. Hreinlætistæki eru frá Baðstofunni. Innihurðir eru yfirfelldar. Loftnets- og símalagnir eru í öllum herbergjum. Geymslur sem eru innan íbúða eru með gluggum svo þær gætu nýst sem auka herbergi. Allar svalir íbúðanna snúa í vestur og suður. Mynddyrasímar eru í öllum íbúðum. Sorplúgur á stigapöllum. Lóð skilast fullfrágengin/tyrfð og bílastæði malbikuð. Húsið er kvarsað að utan. Hrísholt. Vorum að fá skemmtilega eign við Hrísholt í Garðabæ. Eignin er samtals 280 fm á tveimur hæðum með innbyggðum tvö- földum bílskúr. Mjög stór og vel hirtur garð- ur er umhverfis eignina. Verð 35,9 millj. UNG börn öðlast hreyfi- getu löngu áður en þau þróa hæfni til þess að skilja hvað er hættulegt og hvað ekki. Hætt- urnar leynast víða og oft á þeim stöðum þar sem þeir fullorðnu átta sig ekki á. Til allrar lukku hefur öryggisbúnaður fyrir heimili tekið mikl- um framförum. En þar sem meirihluti slysa á börnum undir fjögurra ára aldri á sér enn stað innan veggja heimilisins er góð vísa aldrei of oft kveðin. „Hér á landi höfum við því miður enga slysaskráningu á landsvísu, en þó er til samræmdur gagnagrunnur sem Tryggingamiðstöðin, Lands- spítalinn, háskólasjúkrahús í Foss- vogi, lögreglan og Vinnueftirlit rík- isins skrá í og halda utan um,“ segir Sigrún. Börn undir fjögurra ára stærsti hópur þeirra sem slasast inni á heimilum „Á ári hverju verða um tólf þús- und slys inn á heimilum lands- manna. Börn og unglingar eru þar stærsti hópurinn en næst koma aldr- aðir. Það má segja að börn undir fjögurra ára aldri séu í hvað mestri áhættu og eru þau í meirihluta þeirra sem slasast inni á heimilum eða um sextíu prósent,“ segir Sig- rún. „Þegar talað er um heimaslys er átt við öll slys sem verða inni á heim- ilum og einnig í næsta nágrenni, t.d. á bílastæði sem tilheyra heimilinu eða garði. Börn undir fjögurra ára aldri slasast flest inni á heimilinu en börn á aldrinum fimm til níu ára slasast aftur á móti flest úti í næsta nágrenni við heimili sitt,“ heldur hún áfram. „Sá öryggisbúnaður sem fram- leiddur er miðast að mestu leyti við yngsta hóp barna en þegar börn eru orðin eldri en fjögurra ára þjónar hann ekki lengur tilgangi sínum þar sem börn á þeim aldri læra einfald- lega að meðhöndla búnaðinn,“ segir Sigrún Algengast að börn detti „Eins og eðlilegt er, eru yngstu börnin uppum og útum allt – lang- algengustu slysin eru að börn detta. Þetta gerist aðallega í svefn- herbergjum, stofu , forstofu eða gangi – sem dæmi má nefna að al- gengt er að börn rúlli fram af rúmi eða skiptiborðum og því er varasamt að skilja ung börn ein eftir við slíkar aðstæður,“ segir Sigrún. „Brunaslys eru líka algeng og geta verið mjög alvarleg. Algengast er að brunaslys eigi sér stað í eld- húsi eða baðherbergi íbúðar,“ held- ur hún áfram. „Ung börn eru afar forvitin og full af áhuga um heiminn sem þau búa í, því er afar eðlilegt að þau reyni að snerta flest það sem þau sjá og hrifsa til sín það sem þau ná í. Al- gengast er að börn brenni sig þegar þau toga í potta sem eru til dæmis fullir af heitu vatni svo eitthvað sé nefnt, einnig setja þau gjarnan hendur á hellu eldavélar. Það hefur komið fyrir að börn toga yfir sig eldavélar. Hægt er að fá hlífar yfir hellur og takka eldavélar og einnig er gott að festa niður allt sem mögu- legt er,“ heldur hún áfram. Margskonar öryggis- búnaður fáanlegur „Það er til margskonar örygg- isbúnaður fyrir heimilið og hefur slysavarnafélagið Landsbjörg gefið út bækling þar sem sá búnaður sem er á boðstólum hér á landi er kynnt- ur. Þennan bækling er hægt að nálg- ast á öllum heilsugæslustöðum og einnig fá flestir nýbakaðir foreldrar hann afhentan þegar þeir koma í ungbarnaeftirlit,“ segir Sigrún. „Mikilvægt er að setja stoppara á hurðir sem og læsa inni öll lyf og skaðleg efni. Hættulegasta efni sem er til á flestum heimilum í dag er þvottaefni sem notað er í uppþvotta- vélar, því er afar mikilvægt að geyma það ásamt öðrum hreinsivör- um á stað þar sem barnið nær alls ekki til,“ segir Sigrún. „Það er ýmislegt sem hafa þarf í huga – meðal þess sem gleymist oft er að setja hlið bæði upp og niður við stiga og einnig er mikilvægt að raf- magnssnúrur séu vel festar niður,“ heldur hún áfram Öryggisbúnaður kemur ekki í veg fyrir eftirlit „Það er mikilvægt að taka það fram að sá öryggisbúnaður sem framleiddur er fyrir heimilin er aldrei hundrað prósent öruggur. Til þess að geta kallast öryggisbúnaður þarf búnaðurinn að vera um sjötíu prósent öruggur og því er alltaf um þrjátíu prósent barna sem ráða við hann. Öryggisbúnaður er engu að síður afar mikilvægur og minnkar líkur á slysum verulega,“ segir Sig- rún. „Virkt eftirlit með börnum skiptir sköpum og einnig er vert að hafa í huga að okkur ber að aðlaga heim- ilið þörfum barna okkar,“ segir Sig- rún að lokum. Á heimasíðu www.árvekni.is er gátlisti sem allir foreldrar geta prentað út og gengið um heimilið með. Öryggi barnsins í fyrirrúmi Öll erum við sammála um mikilvægi þess að gæta öryggis barna bæði innan veggja heimilisins og utan. Langflest slys á börnum eiga sér stað inni á heimilum eða í næsta nágrenni þess og því er mikilvægt að hafa augun opin fyrir slysagildrum. Perla Torfadóttir ræddi við Sig- rúnu Þorsteinsdóttur, sviðsstjóra á slysavarnarsviði hjá Landsbjörgu, um þau úrræði sem fyrir hendi eru. Sigrún Þorsteinsdóttir, sviðsstjóri á slysavarn- arsviði Landsbjargar. Möguleg slysagildra.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.