Morgunblaðið - 02.10.2004, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 02.10.2004, Blaðsíða 2
2 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR MOLLY MOON OG DÁLEIÐSLUBÓKIN MEÐ 50% AFSLÆTTI: LESTRARHESTARFARA ALDREI ÍVERKFALL HÖFUNDURINN GEORGIA BYNG KEMUR TIL LANDSINS Í ÞESSARI VIKU! M Á T T U R IN N & D † R ‹ IN 1.440KR. KJÓSI UM AÐILD TYRKJA Jacques Chirac Frakklandsforseti vill að Frakkar efni til þjóðarat- kvæðagreiðslu um aðild Tyrklands að Evrópusambandinu, ef til slíkrar aðildar kemur. Talið er að Tyrkir geti ef til vill fengið aðild eftir ára- tug. Chirac styður aðild þeirra en kannanir gefa til kynna að meirihluti Frakka og Þjóðverja sé á móti. Kerry öflugri í einvíginu John Kerry, forsetaefni demó- krata, þótti standa sig betur í fyrsta sjónvarpseinvíginu gegn George W. Bush forseta á fimmtudagskvöld. Umræðuefnið var utanríkis- og varnarmál og voru þeir sammála um að helsta ógnin við Bandaríkin væri útbreiðsla kjarnorkuvopna. Herinn að hrynja Varnarmálaráðherra Rússlands segir að her landsins sé að komast í þrot vegna þess að ungir karlmenn komi sér undan herþjónustu með öll- um ráðum. Ástæðan er sögð vera slæm kjör í hernum og ótti við að verða sendur til að berjast í Tétsníu. Mótmæli við þingsetningu Meirihluti þingmanna stjórn- arandstöðunnar gekk út undir ræðu Halldórs Blöndal, forseta Alþingis, við þingsetningu í gær. Mislíkuðu þeim ummæli þingforsetans um for- seta Íslands og fleira. Halldór Blön- dal kveðst vilja standa á rétti Al- þingis og verja það. Fjárlagafrumvarp lagt fram Tekjuafgangur ríkissjóðs á næsta ári nemur 11,2 milljörðum króna samkvæmt fjárlagafrumvarpi fyrir 2005. Fjármálaráðherra segir aukið aðhald í rekstri ríkissjóðs og vaxandi tekjuafgangur skapi svigrúm til skattalækkana á næstu árum. Y f i r l i t Í dag Viðskipti 16 Forystugrein 30 Úr verinu 17 Viðhorf 32 Erlent 18/20 Messur 36 Höfuðborgin 22 Minningar 37/43 Akureyri 22 Brids 45 Suðurnes 23 Dagbók 48 Árborg 22 Víkverji 48 Landið 22 Velvakandi 49 Daglegt líf 25/26 Staður og stund 50 Ferðalög 27 Menning 51/57 Úr vesturheimi 28 Ljósvakamiðlar 58 Umræðan 29/34 Veður 59 Bréf 34 Staksteinar 59 * * * Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri, asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfull- trúi, orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@ .is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl                                  ! " #         $         %&' ( )***                       ICELANDAIR mun í maí á næsta ári hefja áætl- unarflug til San Francisco á vesturströnd Banda- ríkjanna. Til þess verður notuð Boeing 767-breið- þota sem tekur um 270 farþega og er þetta í fyrsta skipti sem breiðþota er notuð við áætlunarflug fé- lagsins. Boðið verður upp á beint flug sem tekur um níu klukkustundir. Breiðþotan er ein af þremur sem Loftleiðir, dótturfélag Icelandair, hafa notað í leiguflug. Næsta sumar verður framboð Icelandair í áætl- unarflugi aukið um 20% frá því sem var í sumar og munar mest um flugið til San Francisco. Vegna þessa hyggst Icelandair ráða 80–100 starfsmenn til viðbótar, þar af líklega nokkra tugi flugmanna. Talið er að velta félagsins muni aukast um 2–3 milljarða. Áætlunarflugið hefst hinn 18. maí og stendur fram í miðjan október. Flogið verður fjórum sinn- um í viku. Brottför verður frá Keflavíkurflugvelli síðdegis, á sama tíma og annað áætlunarflug til Bandaríkjanna, og verður lent í San Francisco um klukkan 18.30 að staðartíma. Flogið verður til baka klukkan 23.30 og lent á Keflavíkurflugvelli klukkan 14.30 daginn eftir. Miklir möguleikar Sigurður Helgason, forstjóri Icelandair, segir að flugið bjóði upp á mikla möguleika, jafnt fyrir fyrirtækið sem íslenska ferðaþjónustu í heild. Í Kaliforníu sé mikill áhugi fyrir Íslandi og Norð- urlöndunum en fram til þessa hafi félagið ekki haft þotur í áætlunarflugi sem geti flogið þangað í beinu flugi. Mikilvægt sé að geta boðið upp á beint flug. Bandaríkjamenn vilji síður þurfa að milli- lenda og eftir hryðjuverkin 11. september 2001 hafi þeir orðið enn tregari til þess. Steinn Logi Björnsson, framkvæmdastjóri sölu- og markaðssviðs, segir að hið beina flug til San Francisco muni styrkja mjög samkeppnisstöðu fé- lagsins á Norður-Atlantshafsmarkaðnum. Ekkert annað flugfélag á Norðurlöndunum bjóði upp á beint flug þangað. Icelandair muni næsta sumar bjóða upp á langstysta ferðatímann milli Norður- landanna og Kaliforníu. Takist vel til geti þetta myndað grundvöll fyrir beint áætlunarflug til Asíu. Auk flugsins til San Francisco verður framboð á flugi til annarra staða einnig aukið, t.d. til Boston og London, þar sem breiðþotan verður nýtt. Einn- ig er bætt við flugferðum til Frankfurt, Berlínar, München, Amsterdam og Orlando. Ragnhildur Geirsdóttir, framkvæmdastjóri rekstrarstýringar Icelandair, segir að vegna þessa þurfi að bæta einni Boeing 757 við í áætlunarflugi félagsins. Þegar er hægt að bóka flug til San Francisco og í vikunni verða auglýst kynningarfargjöld. Icelandair hefur áætlunarflug til vesturstrandar Bandaríkjanna næsta sumar Beint flug til San Francisco Morgunblaðið/Árni Torfason Sigurður Helgason forstjóri greindi frá nýjungunum í gær. Þarf að fjölga starfsfólki um 80–100 AUKIN umsvif í áætlunarflugi Icelandair kalla á að flýta þarf breytingum og stækkun á Flug- stöð Leifs Eiríkssonar, FLE, þar sem farþegum muni fjölga. Kem- ur þetta fram í frétt frá FLE. Ferðamálaráð fagnar mjög ákvörðun Icelandair að hefja áætlanaflug til San Francisco. Segir í tilkynningu frá ráðinu að þetta auki mjög möguleika ferðaþjónustunnar til útrásar. Framkvæmd- um flýtt í Leifsstöð LANDSSÖFNUN Rauða krossins, Göngum til góðs, fer fram í dag með þátttöku sjálfboðaliða um allt land. Gengið verður í hús milli kl. 10 og 18 en ágóði söfnunarinnar að þessu sinni rennur til stríðshrjáðra barna í fjórum heimshlutum. Í gærkvöldi höfðu um 1.200 sjálfboðaliðar skráð sig á vef Rauða krossins og gerir Þórir Guðmundsson upplýsinga- fulltrúi sér vonir um að takist að fá um 2.500 manns í söfnunina. Alls eru um 80 söfnunarstöðvar á landinu, þar af 30 á höfuðborgar- svæðinu. Meðal sjálfboðaliða sem ætla að ganga til góðs í dag eru Ólaf- ur Ragnar Grímsson forseti, Halldór Ásgrímsson forsætisráðherra, Þór- ólfur Árnason borgarstjóri, Björg- ólfur Guðmundsson bankaráðsfor- maður, Rannveig Rist forstjóri og Þórey Edda Elísdóttir stangar- stökkvari. Að sögn Þóris hafa grunnskólakennarar í verkfalli á nokkrum stöðum skorað hverjir á aðra að taka þátt í söfnuninni. Síðasta landssöfnun fyrir tveimur árum skilaði um 30 milljónum króna, sem var langt umfram vonir. Stefnt að stuðningi við börn í fjórum löndum Rauði krossinn stefnir að því að styðja börn í Afríkuríkinu Sierra Leone og á heimastjórnarsvæðum Palestínumanna. Takist vel til segir Þórir að söfnunarféð renni einnig til stríðshrjáðra og fatlaðra barna í Afganistan og til aðstoðar við að koma börnum í Kongó til foreldra sinna eða annarra ættingja. Þar hef- ur Rauði krossinn flogið milli land- svæða með börn sem misstu eða týndu foreldrum sínum og nánustu ættingjum í borgarastyrjöldinni í Kongó. Landssöfnun Rauða krossins fer fram í dag Ljósmynd/Rauði krossinn Þessar stúlkur söfnuðu 19.763 krónum fyrir börn í stríði, f.v. Birta Þórsdóttir, Thelma Rut Hermannsdóttir, Erna Björk Ólafsdóttir og Áslaug Dóra Einarsdóttir. Hörn Valdimarsdóttir komst ekki í myndatökuna. Gengið stríðshrjáð- um börnum til góðs ÖKUMAÐUR annarrar bifreiðar- innar sem lenti í árekstri í Gríms- nesi síðastliðinn fimmtudag lést í fyrrakvöld af völdum áverka sem hann hlaut í slysinu. Hinn látni hét Gunnar Karl Gunnarsson, til heim- ilis að Bæjarholti 13 í Laugarási. Hann var fæddur 2. nóvember 1986. Gunnar heitinn var ókvæntur og barnlaus. Í hinum bílnum var ung kona með rúmlega sex mánaða gamlan son sinn. Þau voru flutt á slysadeild LSH í Fossvogi en voru bæði út- skrifuð af slysadeild í gærmorgun. Samkvæmt upplýsingum frá lög- reglunni á Selfossi er unnið að rannsókn slyssins. Fulltrúi Rann- sóknarnefndar umferðarslysa mætti á slysstað og mun framkvæma sjálfstæða rannsókn. Báðir öku- menn voru með bílbelti spennt og barnið í barnabílstól. Lést af völdum bílslyss
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.