Morgunblaðið - 02.10.2004, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2004 19
ERLENT
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn
EKKERT lát hefur verið á skjálfta-
virkni í eldfjallinu St. Helens í Wash-
ingtonríki í Bandaríkjunum og telja
jarðfræðingar miklar líkur á að gos
verði í fjallinu á næstu dögum.
Þrír til fjórir litlir skjálftar hafa
mælst á hverri mínútu alla þessa
viku og 3.–4. hverja mínútu hafa
mælst skjálftar yfir 3 stig á Richter.
Þá sýna nýjar mælingar að hraun-
hellan í gíg fjallsins hefur færst um
nærri 8 sentimetra til norðurs frá því
á mánudag.
Í gær kváðust jarðvísindamenn
telja 70% líkur á eldgosi en bættu við
að ógerlegt væri að segja til um
hvort slíkar hamfarir hæfust á
næstu dögum eða næstu mánuðum.
Litlar líkur
á stórgosi
Vísindamenn búast ekki við að
gosið verði í líkingu við sprengigosið
sem varð árið 1980 en þá létu 57
manns lífið og aska lagðist yfir þorp í
allt að 400 km fjarlægð. Hins vegar
vara jarðfræðingar við því, að lítið
gos úr fjallinu gæti þeytt grjóti og
ösku allt að 5 km fjarlægð frá gígn-
um.
Fáir búa nálægt fjallinu, sem er í
þjóðgarði um 170 km suður af
Seattle. Margir ferðamenn hafa hins
vegar gert sér ferð til útsýnisstaða í
nágrenni fjallsins eftir að fréttir bár-
ust af skjálftavirkninni.
St. Helens-eldfjallið
Telja 70%
líkur á gosi
Seattle. AFP.
MIKIL sprenging varð í gær við
föstudagsbænir í mosku sjíta í
borginni Sialkot í Norðaustur-
Pakistan. Varð hún að minnsta
kosti 30 að bana og særði tugi
manna en talið er, að um sjálfs-
morðsárás hafi verið að ræða.
Hundruð manna voru í mosk-
unni er sprengingin varð og er
haft eftir vitnum, að skelfilegt
hafi verið um að litast á eftir.
Lík, líkhlutar og blóð um allt auk
mikilla skemmda á byggingunni.
Sagði talsmaður lögreglunnar, að
um hryðjuverk hefði verið að
ræða en mikið er um blóðug átök
milli súnníta og sjíta í Pakistan.
Eftir sprenginguna kom til
uppþota í borginni og átaka milli
sjíta og lögreglumanna og voru
þá nokkrar lögreglubifreiðar
brenndar. Linnti látunum ekki
fyrr en hermenn skökkuðu leik-
inn.
Farooqis hefnt?
Pervez Musharraf, forseti Pak-
istans, fordæmdi hryðjuverkið í
gær og sagði það sýna, að
hryðjuverkamenn ættu sér enga
trú og væru óvinir alls mann-
kyns. Fyrir fimm dögum felldu
pakistanskir öryggissveitamenn
súnnítann og al-Qaeda-liðann
Amjad Farooqi en hann er talinn
hafa lagt á ráðin um nokkrar
morðtilraunir, sem gerðar hafa
verið við Musharraf. Þá eru hann
og menn hans sagðir hafa myrt
bandaríska blaðamanninn Daniel
Pearl.
Ekki er talið ólíklegt, að
hryðjuverkið í sjítamoskunni í Si-
alkot sé hefnd fyrir dauða Faro-
oqis.
Hryðjuverk í sjítamosku
Islamabad. AFP.
„MJÖG GOTT FYRIR LEIKHÚSROTTUR“
Áskriftarkort á 6 sýningar
- 3 á Stóra sviði og 3 að eigin vali -
aðeins kr. 10.700
( Þú sparar 5.500)
Afsláttarkort á 10 sýningar
- frjáls notkun -
aðeins kr. 18.300
( Þú sparar 8.700) VE
RTU M EÐ
Í VETU R
Hausthátíð
Ljósaseríur
-nýjar gerðir
790 kr.
Heimilisvendir
499 kr.
Tilboð
á haustlaukum
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
B
LO
2
60
48
1
0/
20
04
Erikur 4 stk. 99
9 kr.
Aldrei betra verð
10 túlipanar (rauðir) 99 kr.
10 krókusar (bland) 139 kr.
Tilbúnir laukabakkar,
plantað beint í jörð 999 kr.
Nýtt!
HÁTTSETTUR maður í samfélagi
súnníta í Írak fordæmdi í gær
hryðjuverkið í Bagdad í fyrradag en
þá varð bílsprenging tugum barna að
bana.
„Hver ber ábyrgð á þessu hryðju-
verkið? Því kann að hafa verið beint
gegn hernámsliðinu en tortímdi
börnum, konum og öldruðu fólki,“
sagði Abdel Ghafur al-Samarrai við
föstudagsbænir í mosku í Bagdad.
„Megi þeir fara beinustu leið til helj-
ar, sem fyrir því stóðu.“ Liðsmenn
Abu Mussab al-Zarqawis, sem er tal-
inn stjórna aðgerðum al-Qaeda-
hryðjuverkasamtakanna í Írak, hef-
ur lýst yfir ábyrgð á bílsprenging-
unni.
Barna-
morðin í
Bagdad
fordæmd
Bagdad. AFP.
♦♦♦