Morgunblaðið - 02.10.2004, Blaðsíða 39

Morgunblaðið - 02.10.2004, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2004 39 MINNINGAR ✝ Sigríður Sigurð-ardóttir fæddist í Nikhól í Vest- mannaeyjum 22. júní 1922. Hún lést á Sjúkrahúsi Vest- mannaeyja 22. sept- ember síðastliðinn. Foreldrar hennar voru Sigurður Þor- leifsson, f. á Á á Síðu við Kirkjubæjar- klaustur 16.8. 1886, d. 15.5. 1969, og Margrét Vigdís Gunnlaugsdóttir, f. í Uppsalakoti í Svarfaðardal 6.1. 1898, d. 19.7. 1965. Syskini Sigríð- ar eru Gunnlaugur , f. 20.5. 1921, d. 29.11. 1963, Una Guðríður Rósamunda, f. 6.8. 1923, d. 30.4. 1978, Margrét, f. 6.2. 1925, búsett í Hafnarfirði, Fjóla, f. 17.8. 1928, búsett í Reykjavík, Pálína, f. 22.10. 1929, búsett í Reykjavík, Eiríkur, f. 31.1. 1931, búsettur á Selfossi, Oddný Sigurrósa, f. 1.10. 1933, búsett í Sandgerði, og Ein- ara, f. 17.1. 1936, búsett í Hafn- arfirði. Hálfbróðir Sigríðar var Pétur Sveinsson, f. 16.5. 1918, d. 8.9. 1985. Sigríður giftist 27. október 1941 Óskari Elíasi Björnssyni, f. 27.10. 1917, d. 4.12. 1989. For- Gíslasonar eru Sigríður Margrét, f. 3.10. 1999, og Auðbjörg Helga, f. 19.2. 2001. 4) Óskar Elías, f. 17.4. 1955, maki Hildur H. Zoëga Stefánsdóttir, f. 14.10. 1962. Synir þeirra Hreiðar Örn, f. 11.11. 1994, og Óskar Elías, f. 4.11. 1995. 5) Hannes Kristinn, f. 19.12. 1957, fórst við björgunarstörf 21.1. 1982. 6) Guðný, f. 29.3. 1959. Dótt- ir hennar og Valdimars Guð- mundssonar er Ármey, f. 11.4. 1994. 7) Ármey, f. 19.8. 1960, maki Sigurður A. Sigurbjörnsson, f. 4.4. 1954. Börn þeirra Hjörtur, f. 12.3. 1980, dóttir hans og Mar- grétar G. Ólafsdóttur er Ásrún Emma, f. 30.10. 2002, Hannes Kristinn, f. 29.11. 1984, og Óskar Elías, f. 25.10. 1989. Sonur Sig- urðar af fyrri sambúð Sigurbjörn, f. 11.12. 1975, d. 5.9. 1993. Sigríður ólst upp í Hruna. Hún lauk prófi frá Barnaskóla Vest- mannaeyja. Sigríður kynntist Óskari þegar hún réð sig sem vinnukona í Leynimýri í Reykjavík í kringum 1940 þar sem Óskar var vinnu- maður. Þau flytjast til Vest- mannaeyja þar sem þau hófu bú- skap í Berjanesi við Faxastíg svo á Staðarhól við Kirkjuveg. Síðar keyptu þau Faxastíg 5 og bjuggu þar alla tíð. Sigríður starfaði öt- ullega með Kvenfélagi Landa- kirkju og Slysavarnafélagi Ey- kyndils í Vestmannaeyjum. Útför Sigríðar verður gerð frá Landakirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 14. eldrar Óskars voru Björn Sæmundsson, f. 16.7. 1885, d. 15.1. 1925, og Guðrún Jónsdóttir, f. 6.7. 1894, d. 18.9. 1933. Börn Sigríðar og Óskars eru: 1) Ár- mann Halldór Björns- son Óskarsson, f. 20.4. 1941, d. 23.11. 1984, 2) Guðrún, f. 26.5. 1945, var gift Jóhannesi Helga Jenssyni, f. 31.8. 1945, d. 2.7. 2002. Slitu samvistir. Börn þeirra eru: a) Jens Karl Magnús, f. 20.1. 1965, maki Sigríður Guðmundsdóttir, f. 8.8. 1967, börn þeirra Sigríður Ósk, f. 21.3. 1986, Ármann Hall- dór, f. 30.12. 1992, og Jóhannes Helgi, f. 11.11. 2002. b) Brynjar Halldór, f. 18.3. 1966, maki Elín Inga Garðarsdóttir, f. 1962. Börn Brynjars og Gitte Ninna Ander- sen frá fyrri sambúð eru Daníel Helgi, f. 13.11. 1992, og Díana Brynja, f. 23.11. 1994. 3) Margrét Sigríður, f. 14.5. 1948, maki Auð- berg Óli Valtýsson, f. 15.12. 1944, d. 5.6. 1994. Börn þeirra Sigríður Ósk, f. 2.7. 1966, d. 10.1. 1967, Valtýr, f. 19.4. 1976, og Ósk, f. 3.9. 1980, börn hennar og Sigþórs Elsku Sigga mín, það eru margar stundirnar sem við áttum saman, bæði upp í bústað og heima á Faxó. Það eru tólf ár síðan ég og sonur þinn Óskar fórum að búa saman á Faxó. Sigga var þá búin að búa og halda myndarlegt heimili í 50 ár með manni sínum Óskari Elíasi Björnssyni sem lést 4. des 1989. Það var sérstakt heimilishald hjá okkur, hún tók þátt í öllu sem við gerðum, bæði með börnin og heim- ilið. Í gamla daga varð það algengt að afar og ömmur voru þátttakend- ur í lífi barna og barnabarna sem og hún gerði. Við Sigga stigum oft dans saman þó að stundum hafi ver- ið of mikill snúningur á okkur. Svona sambúð gengur ekki alltaf snurðulaust fyrir sig, en við réðum oftast fram úr því. Þú varst stór hluti í lífi okkar og sérstaklega Hreiðars og Óskars. Alltaf tókst þú á móti þeim þegar þeir komu úr skólanum með ilmandi pönnukök- um, þeir voru oft að monta stig af því við hina strákana í skólanum, stundum komu þeir með nokkra með sér heim. Alltaf tókst þú vel á móti öllum. Það var oft gaman að fara í ferða- lög með þér og mömmu minni Fjólu. Ég gleymi ekki þegar mamma og þú voruð að leita að gleraugunum hennar mömmu í aft- ursætinu í bílnum. Þið voruð að leita frá Þorlákshöfn upp í bústað. Ég sneri mér við í framsætinu og spurði þær hvað þær væru að brasa. Þá sagðir þú að þið væruð að leita að gleraugunum hennar Fjólu, hún hefði örugglega gleymt þeim í Herjólfi. Ég leit á þær og sagði hvernig væri að horfa í spegil, gler- augun væru á henni Fjólu, svo hlóg- um við mikið á leiðinni upp í bústað. Þú varst búin að missa mikið, Sigga mín, Hannes Kristin sem fórst við björgunarstörf aðeins 24 ára gamall þegar togarinn Pelagus strandaði við Prestabót á nýja hrauninu á Heimaey í janúar 1982. Það var erfið raun, það voru sár sem aldrei greru um heilt. En samheldni fjölskyldunnar er mikil og sterk, það hefur hjálpað alla tíð hvort heldur í blíðu eða stríðu. Þú misstir líka annan son, Ármann Halldór, sem varð bráð- kvaddur í Reykjavík 44 ára gamall. Ekki nóg með það, svo misstir þú manninn þinn, Óskar Elías Björns- son, 71 árs, það þarf mikinn styrk til að komast yfir alla þessa sorg. Þú vildir aldrei láta hafa fyrir þér en varst mjög ánægð og sátt við af- mæli sem fjölskyldan hélt þér þeg- ar þú varðst 80 ára. Þar hittir þú marga góða vini og ekki fannst þér verra að hafa börnin hjá þér sem ævinlega. Fjóla systir þín kom með ljóð sem hún sagði að Tryggvi frændi frá Fáskrúðsfirði hefði ort um þær systurnar sem þá voru fæddar. Una og Magga eru tvær einnig Palla og Fjóla síðast ég sá í gær Siggu fara í skóla. Sigga bjó síðustu 2 árin á Hraun- búðum, henni leið mjög vel þar. Starfsfólk Hraunbúða á miklar þakki fyrir það. Hún orðaði oft við okkur að hvað allir væru góðir við sig. Hún var mikil hannyrðakona og föndraði mikið hjá Hönnu, sem hún talaði mikið um. Starfsfólk Sjúkra- húss Vestmannaeyja á sérstaklega góðar þakkir fyrir góða umönnun. Elsku Sigga mín, þú hefur gert okkur að betri manneskjum og þökk fyrir það. Af eilífðarljósi bjarma ber, sem brautina þungu greiðir. Vort líf, sem svo stutt og stopult er, það stefnir á æðri leiðir. Og upphiminn fegri en auga sér mót öllum oss faðminn breiðir. (Einar Benediktsson.) Við munum sakna þín, elsku Sigga, Guð geymi og passi þig. Óskar og Hildur. Elsku amma, við söknum þín svo mikið. Þú hugsaðir svo vel um okk- ur. Þú sóttir okkur oft á Leikskól- ann Betel og fórst með okkur í bæ- inn til að kaupa snúða í bakaríinu. Þú bakaðir oft handa okkur pönnu- kökur, þær bestu í heimi, þegar við konum af leikskólanum og síðar Barnaskólanum ásamt nokkrum krökkum. Þú gerðir alltaf við sokk- ana okkar þegar gat var á þeim, mamma vildi bara henda þeim en þú lagaðir þá alltaf. Þú spilaðir líka við okkur olsen olsen og tefldir líka. Ef pabbi og mamma voru að skamma okkur fyrir að vera með læti, þá sagðir þú alltaf þetta eru nú bara börn. Þú fórst oftast með okk- ur upp í sumarbústað upp í Gríms- nes. Við vorum alltaf í kofanum sem þú gafst okkur krökkunum og við skírðum Siggukot. Við fórum oft í berjamó og göngutúra, líka í fót- bolta og þú varst í marki. Og þú kenndir okkur krökkunum líka að sippa og París. Amma sagði okkur að hún hefði lært að synda fyrir löngu á sumrin hjá Friðriki Jensen sem bjó á móti henni á Hól á móti Hruna. Hún fór alltaf með okkur í sund þegar hún gat. Einu sinni fór hún sem oftar í sundlaugina á Sel- fossi, hún var orðin eitthvað þreytt og hún fór inn á undan okkur, en fór í karlaklefann og kom þaðan út skellihlæjandi. Amma var engill í okkar augum. Amma talaði oft um Óskar afa, Ármann og Hannes með söknuði. Nú er hún komin til þeirra. Við elskum þig upp í geiminn. Þessa bæn fórst þú oftast með, með okkur. Vertu, Guð faðir, faðir minn, í frelsarans Jesú nafni, hönd þín leiði mig út og inn, svo allri synd ég hafni. (Hallgrímur Pétursson.) Strákarnir þínir Hreiðar Örn og Óskar Elías. Elsku Sigga mín. Mig langar að minnast þín í nokkrum orðum, minning þín yljar mér enn. Þegar ég hugsa til baka yfir farinn veg, þá man ég glöggt þegar þú varðst hluti af mínu lífi. Það gerðist þegar tvíburasystir mín fór að búa með og seinna giftist honum Óskari syni þínum. Frá þeim tíma hefur þú átt stað í huga mínum og hjarta. Sérstaklega vil ég þakka vinskap þinn víð móður mína sem féll frá 1996. Sá vinskapur var henni og okkur dýrmætur. Kæra vinkona nú á kveðjustund þakka ég Guði fyrir allar stundirnar sem við áttum saman á Faxastígnum og uppi í bústað. Hafðu þökk fyrir allt. Guð geymi þig og blessi. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð hjartans þakkir fyrir liðna tíð lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiðir sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir.) Þinn vinur Hreiðar Örn Zoëga Stefánsson. Elsku amma á Faxó. Nú ertu farin frá okkur og vitum við öll að þú ert komin á betri stað og er ég viss um að þér líður miklu betur, því nú ertu komin til afa, strákanna þinna og allra hinna. Og ég veit að þeir eru búnir að sakna þín síðan þeir fóru frá okkur því ég er strax farin að sakna þín og þú ert bara nýfarin. Þú vildir alltaf öllum allt gott og varst alltaf að gefa öll- um eitthvað fallegt og þegar við komum að heimsækja þig byrjuðum við alltaf á því að gá að þér inni í handavinnunni því þú varst alltaf svo duglag að sauma og föndra. Og ég var búin að lofa þér að byrja að sauma þegar ég myndi byrja aftur í skólanum því ég hafði svo lítinn tíma í sumar, og ég var búin að segja þér að ég væri byrjuð á jóla- sokk en gafst aldrei færi á að sýna þér hann en ég veit að þú sérð hann og hjálpar mér. Amma, þú varst yndisleg manneskja og ég veit að þú ert komin til afa og allra hinna, passaðu þau, við vitum að þú ert hjá okkur í anda og vil ég þakka þér fyrir allt sem þú hefur kennt mér og gert fyrir mig. Þín Sigríður Ósk. Amma á Faxó, maður gleymir henni aldrei, hún var alltaf blíð og góð, hún var alltaf brosandi. Ég gleymi aldrei þessu fallega brosi þínu. Þú varst oft að passa mig þegar ég var lítill, gafst mér gjafir þegar ég varð veikur varst alltaf svo góð við mig. Eins þegar þú komst í heimsókn til mín, þegar mamma og pabbi voru að vinna, þegar við spiluðum olsen olsen eða eins og þú kallaðir það alltaf azy crazy og þegar ég kom til þín á morgnana fyrir skóla horfðum við oft á sjónvarpið. Ég gleymi þessum stundum aldrei því þetta voru góð- ar stundir í lífi mínu. En núna færð þú að hvíla í friði hjá Óskari Elíasi, afa mínum sem ég fékk því miður ekki að kynnast eða frændum mín- um sonum þínum, amma, Ármanni og Hannesi, Óla hennar Möggu, tengdasyni þínum eða bróður mín- um Sibba. Amma, ég vona að þú skilir kveðju til þeirra og segir þeim að ég sjái þá þegar ég kem til himna. Kveðja Óskar Elías Sigurðsson. Elsku amma á „Faxó“. Nú ertu komin til afa. Þegar ég lít til baka og hugsa um stundir okkar saman þá kemur mér fyrst í hug þegar ég var lítil og var orðin pirruð og leið, þá sagðir þú alltaf að nú ætti ég að hjálpa þér. Þú náðir í tusku og sagðir mér svo að núna þyrfti að þurrka allt ryk í burtu. Einnig eru mér minnisstæðar allar sumarbústaðaferðir okkar. Yfirleitt fórum við upp í Munaðarnes í Borgafirði. Í hvert sinn er við keyrðum fram hjá litlu húsi sem er á leiðinni sagðir þú alltaf, þetta hús ætla ég að kaupa. Ég get haldið endalaust áfram en ætla að enda hér og geyma minn- inguna í hjarta mínu. Ég veit að þú horfir á okkur og verndar okkur. Og ég veit að þú hugsar vel um afa, pabba, Ármann, Hannes, Sigríði Ósk og alla hina. Elsku amma, ég elska þig og á eftir að sakna þín. Þín dótturdóttir Ósk. Elsku langamma. Okkur finnst nú dálítið skrítið að núna getum við ekki komið og heimsótt til inn á „Elló“. Við þekkt- um þig ekki lengi en allan þann tíma sem við þekktum þig þá var alltaf svo gott að koma í fangið á þér. Elsku langamma, við elskum þig og eigum eftir að sakna þín. Þínar langömmustelpur Sigríður Margrét og Auðbjörg Helga. Besta amma Sigga. Amma mín er með eyru sem hlusta og alvörufaðm sem heldur fast, ást sem er endalaus og hjarta gert úr gulli. Amma mín, nú ert þú komin til afa, Hannesar og Ár- manns, ég kynntist þeim ekki en hef heyrt fallegt um þá, kysstu þá frá mér. En amma, ég á eftir að sakna þín en ég veit að þér líður vel hjá hinum helmingnum. Kær ömmukveðja, Ármey. Elsku amma Sigga, sárt er að kveðja þig, en margar á ég góðar minningar sem ylja mér um hjarta- rætur. Þegar ég kynntist þér fyrir rúm- um fjórum árum þótti mér strax af- skaplega vænt um þig og börnin mín kölluðu þig alltaf ömmu Siggu og það þótti þér sko ekki verra og varst mjög ánægð með það. Heiðarleiki, trúmennska, réttlæti og umhyggja voru aðalsmerki þitt. Takk fyrir yndisleg kynni, elsku amma Sigga, nú er þinn tími kom- inn til að byrja uppá nýtt, takk fyrir mig. Þú áttir auð sem aldrei brást, þú áttir eld í hjarta, sá auður þinn er heilög ást til alls hins góða og bjarta. Til meiri starfa guðs um geim þú gengur ljóssins vegi. Þitt hlutverk er að hjálpa þeim er heilsa nýjum degi. Þín Elín Inga (Ella). Alltaf er sárt að kveðja í hinsta sinn þá sem okkur þykir vænt um. Eins og nú þegar við þurfum að kveðja hana Siggu, sem var svo stór partur í lífi okkar. Þessi orð Hall- gríms Péturssonar segja allt sem okkur býr í brjósti. Næm, skynsöm, ljúf í lyndi, lífs meðan varstu hér, eftirlæti og yndi ætíð hafði’ ég af þér, í minni muntu mér; því mun ég þig með tárum þreyja af huga sárum, heim til þess héðan fer. Kveðja Sigurvin og Helga, Valgerður Una og fjölskylda, Helena Rut og fjölskylda. SIGRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, TÓMAS GUÐMUNDSSON rafvirkjameistari, Hrafnistu, Hafnarfirði, síðast til heimilis á Austurvegi 16, Grindavík, lést fimmtudaginn 30. september. Fyrir hönd aðstandenda, Ingeburg Guðmundsson. Bróðir okkar, mágur og frændi, PÁLL KRISTJÁNSSON, Lönguhlíð 20, Bíldudal, lést á Sjúkrahúsi Patreksfjarðar föstudaginn 1. október. Jóna Kristjánsdóttir, Teitur Kristjánsson, Margrét B. Aðalsteinsdóttir og frændsystkini.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.