Morgunblaðið - 02.10.2004, Síða 20

Morgunblaðið - 02.10.2004, Síða 20
20 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ ERLENT GANGA fjölmiðlar erinda hryðju- verkamanna þegar þeir birta mynd- ir af gíslum þeirra og fórnarlömbum líkt og af Bretanum Kenneth Bigley í vikunni þar sem hann sást grát- biðja Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, um að bjarga sér? Ættu fjölmiðlar að hætta að birta myndir sem framleiddar eru og fram- reiddar af mannræningjum eins og þeim sem halda Bigley og tóku tvo bandaríska félaga hans af lífi og gerðu myndband af aftökunum svo opinbert? Þessum spurningum hafa margir tekið að velta fyrir sér í kjölfar tíðra gíslatökumála í Írak undanfarnar vikur og voru þær t.a.m. til umfjöll- unar hjá Peter Preston, fyrrverandi ritstjóra The Guardian, á fréttasíðu BBC í vikunni. Bendir Preston þar m.a. á að athyglin er einmitt það sem mannræningjarnir vilji, hvort sem þeir eru að senda frá sér mynd- bönd þar sem menn biðja sér griða eða þar sem sjá má hvar gíslar eru teknir af lífi á grimmdarlegan hátt. Auðvelt sé og eðlilegt að fólk hvarvetna finni til með gíslunum og um leið myndist þrýstingur á stjórnvöld um að gera eitthvað, jafnvel koma til móts við kröfur mannræningjanna. Í tilfelli mannræningjanna sem halda Bigley nú í gíslingu, sveitar manna sem taldir eru lúta forystu Jórdanans Abu Mussabs al- Zarqawis, er að vísu ekki talið að þeir kæri sig í reynd um að orðið sé við kröfum þeirra (þeir hafa farið fram á að konum í fangelsum í Írak verði sleppt úr haldi); þeirra mark- mið sé fyrst og fremst að valda ótta, halda ógninni á loftinni, terrorisera fólk sem mest þeir mega. Ný tegund spunameistara Peter Preston bendir á að til þess að ná þessum markmiðum sínum þurfi mannræningjarnir að koma verkum sínum á framfæri; dreifa þeim á Netinu, koma myndum á forsíður dagblaða og í sjónvarps- fréttatíma hvarvetna. Nái þeir ár- angri að þessu leyti telji þeir að áhrif þeirra og völd í Arabaheim- inum aukist verulega – og enginn þurfi að velkjast í vafa um að mynd- ir þessar valdi titringi á Vest- urlöndum. Hafa ber í huga að annars konar hópar hafa einnig staðið fyrir mann- ránum í Írak, hópar sem einkum líta á mannrán sem gróðaleið. Þeir senda síður frá sér myndbönd af gíslum sínum, kjósa að semja um lausn gíslanna á bakvið tjöldin gegn greiðslu. Spurningin sem hér er lagt upp með víkur því fyrst og fremst að hópi Zarqawis og öðrum sem skilgreina má sem hryðjuverka- menn. Sérfræðingar sjá ýmis merki um að Zarqawi og menn hans hafi bætt tækjakost sinn og vandi sig meira en áður í allri tæknivinnu að því er varðar framleiðslu myndbandanna. Níu mínútna langt myndbandið af því þegar Eugene Armstrong, ann- ar Bandaríkjamannanna sem rænt var með Bigley, var tekinn af lífi þykir til að mynda tæknilega betra en fyrri slík myndbönd, að því er fram kemur í frétt Associated Press. Hryðjuverkamennirnir séu semsé smám saman að ná tökum á tækninni en þeir gerist æ betri spunameistarar líka, ef svo megi að orði komast. Þeir virðist kunna að greina hið pólitíska andrúmsloft, átti sig til að mynda á því hversu sterk áhrif það myndi hafa að senda út nýtt myndband með Bigley, þar sem hann sást biðja sér griða í fyrra skiptið, daginn eftir að sá seinni af félögum hans var tekinn af lífi, fremur en drepa hann umsvifalaust eins og þeir höfðu hótað. Og athygli vakti að áður en aftak- an á Eugene Armstrong fór fram birtist fyrst titilsíða á myndbandi ódæðismannanna þar sem sagði á arabísku: „fjölmiðladeild Tawhid og Jíhad-hópsins kynnir drápið á fyrsta gíslinum“ – rétt eins og um Hollywood-framleiðslu væri að ræða. Eiga fjölmiðlar að ákveða sjálf- ir að sleppa myndbirtingu? Breska blaðið Sunday Telegraph svarar spurningunni sem hér var lagt upp með fyrir sitt leyti nýverið í leiðara en þar er því haldið fram að ef markmið al-Zarqawis sé að sýna fram á að Vesturlönd séu veik og úrkynjuð þá hafi hann haft ástæðu til að fagna undanfarið. Í umfjöllun sinni um hörmuleg mál Bigleys hafi breskir fjölmiðlar – og þá séu engir undanskildir, gæða- blöðin hafi fallið í sömu gryfju og slúðurpressan – óafvitandi hjálpað hryðjuverkamönnunum að ná mark- miði sínu, sem sé að stjórna at- burðarásinni, skapa þá ímynd að Vesturlönd séu ófær um að gera nokkurn skapaðan hlut og um leið gefa þeirri röngu hugmynd byr undir báða vængi að þjáningar Big- leys séu einhvern veginn afleiðing ákvarðana sem Bush Bandaríkja- forseti, og raunar í þessu tilfelli Tony Blair, hafi tekið. (Sú hugmynd sé röng því auðvitað séu hryðju- verkamennirnir, sem myrða fólk á grimmdarlegan hátt, þeir sem beri alla ábyrgð á þessum ódæðum.) „Ef við fjölmiðlafólk værum ekki svona viljug til að láta hryðjuverka- mennina spila með okkur þá gætum við lagt mikið af mörkum í stríðinu gegn þeim,“ segir sömuleiðis Helle Dale í bandaríska íhaldsblaðinu The Washington Times á fimmtudag. „Við vitum öll að ljósmyndir eru þúsunda orða virði, jafnvel þó að þeir sem unna hinu ritaða orði eigi erfitt með að viðurkenna það, og við gætum því til að mynda kosið að banna birtingu mynda af mannræn- ingjum og gíslum þeirra. Með þeim hætti yrði jafnframt tryggt að nið- urlæging gíslanna, sem sannarlega mega upplifa hörmungar, er ekki aukin frekar, þannig yrði mannlegri reisn gíslanna sýnd virðing og sömuleiðis þjáningum fjölskyldna þeirra. Fréttaflutningi af gíslatöku- málum þurfa ekki að fylgja allra grafískustu myndirnar og það þarf ekki heldur að slá þessum fréttum upp efst á forsíðu. Ef okkur er raunverulega alvara um að við séum í stríði þá þurfa fjöl- miðlar að skoða hug sinn varðandi hlutverk sitt í því stríði,“ segir Dale. Má segja að hér sé tekin upp stefnan sem Margaret Thatcher, fyrrv. forsætisráðherra Bretlands, hafði gagnvart Írska lýðveld- ishernum (IRA) á sínum tíma og sem Peter Preston rifjar upp í grein sinni en hún fordæmdi jafnan fjöl- miðla sem veittu talsmönnum lýð- veldissinna „súrefni opinberrar um- fjöllunar“. Þurfum að lifa í ljósinu En ekkert er einhlítt í þessum efnum og önnur sjónarmið hljóta að koma til skoðunar einnig. Preston bendir til dæmis á að neytendur fjölmiðla eru ekki viljalaus verk- færi, sem hægt sé að upplýsa en sem líka er hægt að neita um upp- lýsingar. Fréttir séu ekki heldur uppspretta sem hægt sé að kveikja og slökkva á með handafli. „Í frjálsu samfélagi,“ segir Pres- ton, „tel ég að borgarar sem lenda í því ofboðslega óláni að verða teknir gíslar eigi meira skilið en vera látn- ir deyja drottni sínum í kyrrþey, hverfa af sjónarsviðinu sporlaust.“ Segir Preston að eina leiðin sé sú að blaðamenn og ritstjórar, sem og fjölmiðlaneytendurnir sjálfir, hugsi málin til hlítar í hvert skipti og móti afstöðu sína þannig. Þetta feli í sér að menn reyni að átta sig á og út- skýra, frá degi til dags, eðli þess spuna sem hryðjuverkamennirnir séu að reyna að halda að fólki. „Verkefnið er, þegar öllu er á botn- inn hvolft, að segja alla söguna, all- an sannleikann. Og ef hluti þeirrar frásagnar felur í sér sjúklegan spuna [af hálfu hryðjuverkamanna] þá verðum við að tryggja að allir átti sig á því líka. Gíslarnir þurfa að lifa, viti sínu fjær af ótta, í myrkr- inu. Við þurfum hins vegar að lifa í ljósinu.“ Reuters Örlög Kenneths Bigleys eru mörgum hugleikin þessa dagana. ’Verkefnið er, þegaröllu er á botninn hvolft, að segja alla söguna, all- an sannleikann.‘ Eru fjölmiðlar verk- færi mannræningja? RÍKISSTJÓRN Spánar samþykkti í gær frumvarp til laga þess efnis að samkynhneigðum verði heimilað að ganga í hjónaband. Frumvarpið verður nú lagt fyrir Spánarþing. Verði það samþykkt verður samkynhneigðum pörum heimilt að ganga í hjónaband á næsta ári. Kveður það og á um að samkynhneigðum verði heimilað að ættleiða börn. Þetta mun þó ein- göngu gilda um börn fædd á Spáni. Talskona ríkisstjórnarinnar, María Teresea Fernandez de la Vega, sagði daginn í gær „mik- ilvægan“. Lýsti hún yfir því að með þessu móti kæmust Spánverjar í hóp forystuþjóða í Evrópu og raun- ar um heim allan í baráttu þeirri sem fram færi í því augnamiði að binda enda á mismunun gagnvart samkynhneigðum. Tvö önnur Evrópuríki, Belgía og Holland, hafa breytt lögum á þann veg að þar geta samkynhneigðir nú gengið í hjónaband. Hollendingar leyfa hins vegar einir samkyn- hneigðum að ættleiða börn. Talsmenn katólsku kirkjunnar á Spáni hafa andmælt fyrirhugaðri lagabreytingu. Nýtur stjórn José Luis Rodríguez Zapatero forsætis- ráðherra ekki meirihluta á þingi en getur treyst á stuðning tveggja vinstri flokka hið minnsta. Því er líklegt, að lögin verði samþykkt. Hjónabönd samkynhneigðra Spánarstjórn samþykkir lagabreytingu Madríd. AFP. UNGIR Palestínumenn virða fyrir sér brak úr skóla, sem Sameinuðu þjóðirnar reka á Gaza, en Ísraelar réðust á hann í gær með skothríð frá skriðdrekum. Ísraelsstjórn samþykkti í gær umfangsmiklar hernaðaraðgerðir á Gaza-svæðinu og ganga þær undir nafninu „Dagar iðr- unar og yfirbóta“. Eftir átökin á Gaza síðustu tvo daga liggja 34 Palestínumenn í valnum og þrír Ísraelar. Hundruð manna eru sár. AP Tugir manna liggja í valnum SVO virðist sem vítamín dragi ekkert úr líkum á krabba- meini. Er það niðurstaða rannsóknar evrópskra vís- indamanna en frá henni var skýrt í læknablaðinu Lancet að sögn BBC, breska rík- isútvarpsins. Um var að ræða 14 sjálf- stæðar rannsóknir, sem tóku til meira en 170.000 manns. Var einkum athugað hvort vít- amín, til dæmis E-vítamín, veittu einhverja vörn gegn krabbameini. Á það er lögð áhersla, að um sé að ræða bráðabirgðanið- urstöður en þær gefa samt til kynna, að vítamín, einkanlega þau, sem eru sögð vinna gegn svokölluðum sindurefnum, breyti engu um það hvort fólk sýkist af krabbameini. Virðast stytta lífið Niðurstöður úr helmingi til- raunanna gáfu raunar þvert á móti til kynna, að vítamín- neysla stytti líftíma viðkom- andi. Sem dæmi má nefna, að samband beta-karótíns og A- eða E-vítamíns jók hættu á ótímabærum dauða um 30% og 10%. Sumir hafa orðið til að gagnrýna þessa niðurstöðu og benda á, að í tilraunahópnum hafi verið margir reyk- ingamenn. Vítamínin eru næsta áhrifalaus

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.