Morgunblaðið - 02.10.2004, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 02.10.2004, Blaðsíða 22
22 LAUGARDAGUR 2. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Garðabær | Sjálandsskóli, nýr grunnskóli sem taka á í notkun haustið 2005, er nú óðum að spretta upp, og hefur Helgi Grímsson verið ráðinn skólastjóri hins nýja skóla. Hann seg- ist hlakka mikið til að taka þetta verkefni að sér, enda sé það eflaust óskadraumur hvers skólastjóra að byggja upp nýjan skóla alveg frá grunni. „Þá getur maður sett fram hugmyndir sem maður er búinn að melta með sér í gegnum tíðina í þessu nýja samhengi, í samstarfi við foreldra og þá starfsmenn sem koma þar til starfa,“ segir Helgi. Hann starfar í dag sem skólastjóri Laugarnesskóla í Reykjavík en tekur við stöðu skólastjóra Sjálandsskóla frá og með næstu áramótum. „Við þetta verkefni hafa menn borið gæfu til að vanda mjög til ferlisins í kringum hönn- un á skólanum sem tekur mið af hug- myndafræði um einstaklingsmiðað nám. Í Sjálandsskóla ætti því að vera auðveldara um vik en í öðru húsi með að sjá til þess að hver og einn nemandi fái verkefni við hæfi,“ segir Helgi. 60–70 nemendur í hóp Í Sjálandsskóla verður nemendum skipt niður í fjölbreyttari námshópa en tíðkast í hefðbundnum skólastofum. Þannig munu 60– 70 nemendur í tveim árgöngum eiga sameig- inlegt heimasvæði, en á hverju svæði starfa þrír til fjórir 15-20 nemenda hópar með um- sjónarkennara. Lungan úr deginum starfa nemendur hins vegar að verkefnum einir sér eða í hópum sem taka mið af styrkleika, áhuga og þörfum nemenda. Í slíkri vinnu blandast saman nemendur af öllu heimasvæð- inu. Á hverju vinnusvæði munu starfa þrír til fjórir kennarar og tveir til þrír aðrir starfs- menn. Helgi segir að það sé vissulega annað að stýra skóla þar sem kennt er eftir þessari hugmyndafræði. „Maður fer svolítið í annan gír í skipulagningunni, það hefur verið þann- ig í hefðbundnum skólum að taflan er reikn- uð út frá 40 mínútum eða 80 mínútum, en þarna eru öll tímamörk miklu sveigjanlegri.“ Rík áhersla er lögð á að samþætta náms- greinar og gera námið þannig heildstæðara. Ef nemendur eru t.d. að læra um sólkerfið þá fléttast saman eðlisfræði, efnafræði, stærð- fræði, sagnfræði, líffræði, íslenska, mynd- mennt, hönnun og smíði, ásamt upplýsinga- og tölvutækni. Það segir Helgi bjóða upp á möguleika fyrir nemendur að njóta sín á þeim sviðum sem þeir eru sterkir. Ráðning lykilstarfsmanna stendur nú fyrir dyrum, og segist Helgi verða var við mikinn áhuga á því að starfa við Sjálandsskóla, enda vilji fólk taka þátt í að skapa nýja framtíð. Hann vonar að góður hópur kennara komi að einhverju leyti að undirbúningi með honum strax á nýju ári. Foreldrar með frá upphafi „Ég legg mikið upp úr því að fá fólk í þankahríðina með mér, bæði starfsfólk og foreldra. Það er gríðarlega mikilvægt að for- eldrar séu með frá upphafi og viti að hverju sé stefnt. Foreldrar vilja búa börnum sínum öruggar og þroskavænlegar aðstæður og auðvitað vakna spurningar ef skipulag og námsfyrirkomulag er öðru vísi en foreldrar þekkja úr eigin skólagöngu. Þess vegna skiptir gott samráð og öflugt upplýsingaflæði höfuðmáli. Í Garðabæ eru afburðagóðir grunnskólar og Sjálandsskóli er mikilvæg viðbót í þá góðu flóru.“ Óskadraumur hvers skólastjóra Morgunblaðið/Sverrir Í byggingu Helgi Gíslason, nýráðinn skólastjóri Sjálandsskóla, við byggingarreit skólans. HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ GARÐABÆR hefur samið við Eignarhalds- félagið Fasteign hf. um byggingu og rekstur húsnæðis Sjálandsskóla sem tekur til starfa haustið 2005. Frá þessu er greint á heimasíðu Garðabæjar. Samkvæmt samningnum mun Fasteign hf. sjá um framkvæmdir við skólann og eiga og reka bygginguna. Bygging skólans hófst í sumar og hefur Fasteign hf. annast og fjármagnað byrj- unarframkvæmdirnar samkvæmt samstarfs- samningi við Garðabæ. Garðabær getur síðar keypt fasteignina telji bæjarstjórn það þjóna hagsmunum bæjarins. Undirbúningur skólans hefur gengið vel, að sögn bæjaryfirvalda. en framkvæmdir hófust að undangengnu útboði. Fyrsti áfanginn er 3.800 fermetrar og er áætlaður bygging- arkostnaður um 670 milljónir króna. Samið um Sjálandsskóla AKUREYRI Nýtt námskeið | Spænska: Tungu- mál – Menning – Tapas er heiti á nýju námskeiði sem Símennt- unarmiðstöð Eyjafjarðar, Símey, býður upp á, en á því er gerð tilraun til að blanda saman tungumála-, menningar- og matreiðslukennslu. Samnefnarinn í öllu saman er Spánn. Auk þess að kenna undir- stöðuatriði spænskrar tungu er einnig fjallað um spænska menningu og matarhefðir. Markmiðið er að þátttakendur nái tökum á und- irstöðuatriðum í málfræði og fram- burði, fái innsýn í spænska menn- ingu og sögu og læri að útbúa spænska smárétti, tapas. Kennt verður á þriðjudags- og fimmtudagskvöldum í október, fyrst 7. október næstkomandi frá kl. 19.30 til 21 auk mánudagsins 1. nóvember. Kennari er Hafdís Björg Hjálm- arsdóttir.    Flytja í Sunnuhlíð | Skákfélag Ak- ureyrar hefur flutt starfsemi sína í KEA-salinn í Sunnuhlíð og er gengið inn að sunnan. Næsta mót verður haldið þar 7. október kl 20 en það mun vera 7 mínútna mót og eru allir velkomnir. FIMM hross brugðu undir sig betri fætinum og skruppu í bæjarferð í gærmorgun. Þau sáust víða í Glerárhverfi, hlupu þar um stræti og torg og virtust una frelsinu vel, en ekki var laust við að bæjarbúar hafi rekið upp stór augu. Eftir nokkurra stunda frelsi voru hrossin handsömuð og þeim komið til eiganda síns. Hér er hópurinn á ferð í Lönguhlíð. Morgunblaðið/Kristján Hestar í bæjarferð ásýnd bæjarins að taka almennt úti- vistarsvæði við Þórunnarstræti und- ir íbúðir. Þessi staður er einn af lyk- ilstöðum í bænum og það væri meiri háttar skipulagsslys að taka það undir 12 hæða fjölbýlishús,“ segir í bókun Jóns Inga. Hann lagði til að afgreiðslu yrði frestað og ráðið kannaði hug bæjarbúa til hugmynd- anna með almennri skoðanakönnun. „Það er skoðun mín að þessi hug- mynd sé svo umdeild að það sé ekki unnið með hagsmuni heildarinnar að leiðarljósi, samþykki umhverfisráð þá tillögu sem hér liggur fyrir um breytingu á aðalskipulagi.“ UMHVERFISRÁÐ hefur lagt til við bæjarstjórn að tillaga að breytingu á aðalskipulagi svæðisins umhverfis Baldurshaga og Brekkugötu verði send Skipulagsstofnun til athugunar og hún síðan auglýst. Ráðið fjallaði um málið á síðasta fundi sínum. Til- lagan, sem unnin er af Árna Ólafs- syni arkitekt, gerir ráð fyrir að breyta óbyggðu svæði og almennu útivistarsvæði í íbúðarsvæði. Fulltrúi Samfylkingarinnar í um- hverfisráði, Jón Ingi Cæsarsson, bókaði að hann lýsti fullkominni and- stöðu sinni við tillöguna. „Það er mikið skemmdarverk á Send til Skipu- lagsstofnunar Tillaga að breyttu skipulagi við Baldurshaga TÆPLEGA 1.700 manns skrifuðu nafn sitt á undirskriftarlista þar sem skorað er á bæjaryfirvöld að falla frá hugmyndum um byggingu 12 hæða fjölbýlishúss á lóð Bald- urshaga við Þórunnarstræti. Þrír íbúar á Akureyri, Elín Hall- grímsdóttir, Guðrún Antonsdóttir og Jón Hjaltason, stóðu fyrir söfn- un undirskriftanna og afhentu listana bæjarstjóranum á Akur- eyri, Kristjáni Þór Júlíussyni. Hann sagði gott að fá listana í hendur, greinilegt væri að vakning væri meðal fólks varðandi skipu- lagsmál, það vildi hafa áhrif á skipulag nánasta umhverfis síns. Bæjarstjóri kvaðst munu leggja listana fyrir fund bæjarráðs, en engar ákvarðanir hefðu verið tekn- ar varðandi bygginguna enn. Til- laga væri til umfjöllunar í lögform- legu ferli. Morgunblaðið/Kristján Undirskriftalistar Elín Margrét Hallgrímsdóttir afhenti Kristjáni Þór Júl- íussyni bæjarstjóra undirskriftalistana þar sem byggingu háhýsis við Bald- urshaga er mótmælt. Hjá þeim standa Guðrún Antonsdóttir og Jón Hjaltason. Fallið verði frá hugmyndum um fjölbýli á Baldurshagalóð Undir- skriftir afhentar SKRIFAÐ hefur verið undir samning milli Sjálfsbjargar á Akureyri og Tryggingastofnunar um að koma á fót göngudeildarþjónustu iðjuþjálfa á Bjargi. Anna María Malmquist iðju- þjálfi hefur verið ráðin til að sinna þjónustunni. „Þetta er tímamótasamningur,“ sagði Jón Kristjánsson heilbrigð- isráðherra. „Þetta er í fyrsta sinn sem þjónusta af þessu tagi stendur til boða á Akureyri og ég er mjög ánægður með að hún skuli nú vera að komast á.“ Ráðherra sagði samninginn til þriggja ára, en að þeim tíma liðnum yrði árangur metinn í samvinnu við heilbrigðisdeild Háskólans á Akur- eyri. „Þetta mun verða mikilvægur þáttur í heilbrigðisþjónustu á Akur- eyri og ég geri ráð fyrir að horft verði til þessa samnings víðar að.“ Jón sagði iðjuþjálfun vaxandi þátt inn heilbrigðiskerfisins. Það mætti mikið til vinna að koma fólki að nýju til fullrar starfsorku, þannig að það gæti stundað atvinnu við hæfi. Göngudeildar- þjónusta iðju- þjálfa á Bjargi
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.