Morgunblaðið - 18.10.2004, Page 13
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2004 13
ERLENT
Antwerpen
124 km
Brussels
100 km
Liege
Lille
224 km
Paris
387 km
London
420 km
Düsseldorf
135 km
Eindhoven
128 km
Dortmund
232 km
Hannover
Bremen
Köln
123 km
Bonn
123 km Frankfurt
320 km
Luxembourg
142 km
Strassbourg
406 km
Stuttgart
Rotterdam
224 km
Amsterdam
250 km
Eins
og
skot
Liège
-beint fraktflug 11 sinnum í viku
Frá 15. október eykur Icelandair Cargo vikulegt fraktflug til og frá Liége úr 6 ferðum í 9 á viku.
Við bætum svo um betur frá 1. nóvember og fljúgum 11 sinnum í viku á þessari leið. Icelandair
Cargo í Liege er í innan við 400 km fjarlægð frá öllum stærstu borgum Evrópu.
Á skyggða svæðinu hér að ofan á 75% af allri flugfrakt frá Evrópu sér uppruna. Icelandair
Cargo býður þér landflutninganet hvaðan sem er í Evrópu.
Nýttu þér hraðvirkasta flutningsmátann innan Evrópumarkaðar.
Hafðu strax samband við Icelandair Cargo við Flugvallarveg í Reykjavík.
Sími 5050 400, fax 5050 630, veffang icelandaircargo.is.
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
FR
2
57
01
09
/2
00
4
Geymdu það ekki til morguns sem við getum gert í dag.
BESTA VERÐIÐ?
NÝSMÍÐI - BREYTINGAR - VIÐGERÐIR
HLYNUR SF
alhliða byggingastarfsemi
Pétur J. Hjartarson
húsasmíðameistari
SÍMI 865 2300
HÚS & HEIMILI
FULLTRÚAR ísraelskra landnema
á Gaza-svæðinu sögðu í gær að Ariel
Sharon, forsætisráðherra Ísraels,
væri á góðri leið með að valda klofn-
ingi í röðum gyðinga sem jafnvel
gæti leitt af sér borgarastríð. Sharon
átti fund með leiðtogum landnema í
gær og hafnaði hann þar með öllum
kröfum þeirra um að haldin verði
þjóðaratkvæðagreiðsla um áætlanir
forsætisráðherrans um að loka öllum
landtökubyggðum gyðinga á Gaza.
„Þessi fundur […] var hneyksli,“
sagði Yehoshua Mor-Yosef, talsmað-
ur landnema. „Við hittum fyrir afar
þrjóskan forsætisráðherra. Hann
svaraði engum spurningum okkar.
Hann er staðráðinn í að leiða þjóð
sína til órjúfanlegs klofnings.“
Annar leiðtogi landtökumanna,
Pinhas Wallerstein, sagði að Sharon
virtist ákveðinn í að valda klofningi,
sem leitt gæti til borgarastríðs.
Auki öryggi Ísraelsríkis
Sharon hyggst loka öllum land-
tökubyggðum á Gaza og fjórum á
Vesturbakkanum. Hafa þessar áætl-
anir vakið mikla reiði meðal gyðinga
á þessum svæðum en Sharon segir
að þessar áætlanir muni auka öryggi
Ísraelsríkis.
Fyrir fundinn í gær höfðu land-
nemar lýst því yfir að þeir vonuðust
til þess að þeir gætu fengið Sharon
til að samþykkja að þjóðaratkvæða-
greiðsla yrði haldin. Höfðu þeir heit-
ið því fyrirfram að þeir myndu fyrir
sína hönd lofa því að virða niður-
stöðu slíkrar atkvæðagreiðslu.
Segja Sharon
valda klofningi
Jerúsalem. AP, AFP.
PIERRE Salinger, sem
var blaðafulltrúi
Bandaríkjaforseta
1961–1964, lést í
Frakklandi á laug-
ardag. Hann var 79 ára
gamall.
Salinger hlaut frægð
fyrir störf sín fyrir
John F. Kennedy
Bandaríkjaforseta en
það var í blaðafull-
trúatíð hans sem farið
var að sjónvarpa beint frá frétta-
mannafundum í Hvíta húsinu. Hann
hafði áður verið blaðamaður fyrir
San Francisco Chronicle en gekk
síðan til liðs við Kennedy og var
blaðafulltrúi hans í Hvíta húsinu og
gegndi starfinu einnig fyrir Lyndon
B. Johnson um hríð, en Johnson
varð forseti við andlát Kennedys
1963. Salinger var valinn öld-
ungadeildarþingmaður fyrir Kali-
forníu til bráðabirgða árið 1964,
þegar sitjandi þingmaður féll frá,
en tapaði í kosningum um haustið.
Hann vann líka fyrir Robert
Kennedy í forsetaframboði
hans 1968 en Kennedy var
hins vegar myrtur það sumar,
rétt eins og bróðir hans fimm
árum áður.
Salinger bjó eftir þetta
lengi í Frakklandi og vann þá
fyrir útibú ABC-sjónvarps-
stöðvarinnar í París og hjá
franska fréttaritinu L’Ex-
press. Hann bjó aftur í Banda-
ríkjunum 1987–1993 en flutt-
ist síðan til Frakklands alfarinn árið
2000 eftir að George W. Bush var
kjörinn forseti Bandaríkjanna.
Salinger olli nokkrum úlfaþyt
fyrir sjö árum þegar hann hélt því
fram að bandaríski flotinn hefði
grandað flugvél TWA-flugfélagsins,
sem fórst við austurströnd Banda-
ríkjanna 17. júlí 1996 með alla 230
farþegana innanborðs, með flug-
skeyti. Síðar kom í ljós að Salinger
byggði fullyrðingar sínar á gögnum
af Netinu sem ekki reyndust áreið-
anleg.
Pierre Salinger látinn