Morgunblaðið - 18.10.2004, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2004 15
DAGLEGT LÍF
FÓLK sem fætt er á árunum 1945–
1954 er fjölmenn kynslóð víða, t.d.
í Svíþjóð. Þar er því nú haldið
fram að þessi kynslóð verði hress-
ustu eldri borgararnir nokkru
sinni. Þeir komi til með að haga
sér eins og unglingar, eins og það
er orðað í Dagens Nyheter. Sam-
kvæmt könnun Kairos Future, sem
m.a. var gerð í samvinnu við
Stokkhólmsborg, lítur þessi kyn-
slóð björtum augum á framtíðina
og hlakkar til að fara á eftirlaun.
Hún sér eftirlaunaaldurinn sem
frítíma þar sem hægt verður að
njóta lífsins í annað skipti á lífs-
leiðinni en fyrri frítíminn var
tímabilið eftir að flutt var úr for-
eldrahúsum og áður en börnin
komu til sögunnar.
Þessi kynslóð sér fyrir sér lang-
an frítíma þar sem hægt verður að
einbeita sér að áhugamálunum,
ferðast og láta drauma verða að
veruleika. En þetta fólk á erfitt
með að sjá sjálft sig sem aldrað og
hefur ekki hugsað sér að lifa neinu
kyrrsetulífi sem eldri borgarar.
Fjórðungur aðspurðra sér fyrir
sér að flytja til heitari landa þar
sem ellilífeyririnn dugir lengur en
flytjast aftur heim þegar ellin fer
að segja til sín. Þetta ætti að valda
sænskum stjórnmálamönnum
áhyggjum, að mati Magnus Kempe
sem stýrði könnuninni. „Þetta
verður fjársterkur neytendahópur
og því er nauðsynlegt að reyna að
halda þeim í landinu svo að pen-
ingarnir þeirra fari ekki úr landi.
Ef fólkið kemur til baka fyrst þeg-
ar það þarfnast umönnunar er það
bara kostnaður fyrir ríkið,“ segir
hann.
Munu haga
sér eins og
unglingar
ELLI
Morgunblaðið/Golli
BÖRN allt niður í þriggja ára geta
sent og tekið á móti tölvupósti með
nýju forriti sem þróað hefur verið í
Noregi og greint er frá á vef Aften-
posten. Með því að smella á myndir
geta börnin sjálf fundið þann sem
þau vilja senda tölvupóst, t.d. afa.
Þar sem yngstu börnin kunna
ekki að lesa og skrifa er einnig inn-
byggt í forritið að það greinir rödd,
svokallað voicemail, að sögn Lars
Jølstad hjá Easybits sem hefur þró-
að forritið í samvinnu við Telenor.
Forritið á að vera algjörlega varið
fyrir ruslpósti og vírusum og for-
eldrar þurfa að samþykkja öll net-
föng sem senda barninu tölvupóst.
Forritið heitir Magic Mail en fyr-
irtækið hefur einnig sett á markað
stýrikerfið Magic Desktop sem ætl-
að er fyrir börn og hefur m.a. inn-
byggðar netsíur. Magic Mail getur
verið liður í því að kenna börnum að
þekkja tölvupóst sem einn sam-
skiptamáta, eins og talsmaður Easy-
bits bendir á. Það má spyrja sig að
því af hverju þriggja-fjögurra ára
börn þurfa að senda tölvupóst, en
talsmaðurinn telur að það sé
skemmtileg áskorun fyrir börn á
þessum aldri að læra á tölvu og til
þess séu forrit sem höfða til barna
mikilvæg. Kannanir hafi sýnt að því
fyrr sem börn byrja tölvunotkun, því
betur gengur þeim með hana síðar
meir.
TÖLVUR
Þriggja ára
börn geta
sent tölvupóst
Morgunblaðið/Sverrir
Einfalt: Börnin smella á myndir af
þeim sem þau vilja senda tölvupóst
eins og t.d. ömmu eða afa.
Ídansskólum er boðið upp áhina fjölbreyttustu dans-kennslu fyrir alla aldurshópa.Svo virðist sem við Frónbúar
sækjum helst í suðræna og ástríðu-
fulla salsasveiflu, fjörugan línudans-
inn eða vinsæla „kvikmyndadansa“.
Samkvæmisdansarnir fara þó
aldrei úr tísku en hjá unga fólkinu er
það helst freestyle, hip hop og djass-
dans sem heilla. Á hverjum vetri
koma þó fram nýjungar í dans-
kennslu og í ár má rekja marga
dansa til frægra söngleikja, kvik-
mynda eða sjónvarpsþátta.
Krakkagleði í Hálsaskógi
Í Danssmiðjunni eru kenndir fjöl-
breyttir dansar fyrir alla aldurshópa
og eiga salsa, swing og línudansinn
vinninginn í vinsældum að sögn Jó-
hanns Arnar Ólafssonar danskenn-
ara. Í vetur er Danssmiðjan að fara
af stað með nýjung fyrir börn á aldr-
inum fjögurra til tíu ára. Námskeiðið
nefnist Krakkagleði en þar er lögð
jöfn áhersla á söng- og dansþjálfun.
„Í námskeiðinu er gert út á bæði
söng- og dansgleði barnanna og þau
þjálfuð í að samhæfa þetta tvennt í
takt við skemmtilega söngleikja-
tónlist. Hér eru Dýrin í Hálsaskógi
ofarlega á blaði, en einnig lög úr
Lion King svo dæmi séu nefnd, en
þar er gengið út frá sérstöku dýra-
þema,“ segir Jóhann. Þrír kenna á
námskeiðinu, þ.e. Jóhann, sem er
með sérþekkingu í dansi, Hrafnhild-
ur Ólafsdóttir sem kennir sönginn
og Theodóra Sæmundsdóttir sem
annast förðun og gervi sem eru stór
hluti af Krakkagleðinni.
Fame-dansar vinsælir
Kara Arngrímsdóttir hjá Dans-
skóla Jóns Péturs og Köru segir suð-
rænu sveifluna ávallt vinsælasta.
Hún segir námskeiðsúrvalið hjá
skólanum nokkuð sígilt, en á hverj-
um vetri er þó bryddað upp á ein-
hverju nýju í free-style-dansinum
sem unglingarnir sækja í, og í ár
verða kenndir dansar eftir tónlist-
inni í söngleiknum Fame.
Vinsældir Fame-dansanna má vit-
anlega rekja til söngleiksins Fame
sem sýndur hefur verið að und-
anförnu, en í Dansskóla Birnu
Björnsdóttur geta nemendur lært
Fame-dansana undir handleiðslu
sjálfra danshöfunda söngleiksins,
þeirra Birnu og Guðfinnu systur
hennar. Í Dansskóla Birnu er boðið
upp á samfellt dansnám fyrir fólk á
öllum aldri, sem lærir að byggja
markvisst upp danshæfni og tækni.
Hún segist því eiga von á því að sum-
ir nemendanna eigi jafnvel eftir að
reyna sig við „spíkatstökkin“ flottu
sem voru ómissandi þáttur í döns-
unum í Fame-þáttunum. Dansar úr
frægum kvikmyndum og sjónvarps-
þáttum eru víðar kenndir, en Sport-
húsið hefur verið með Flashdans-
tíma og bryddar nú upp á þeirri nýj-
ung að kenna hinn svokallaða Dirty
Dancing úr samnefndri kvikmynd
frá níunda áratugnum.
Bollywood næsta æðið?
Í Kramhúsinu er nú hægt að læra
dans- og leikstíl hinnar svonefndu
Bollywood-kvikmyndahefðar, þ.e.
dans- og söngvamynda sem njóta
gríðarlegra vinsælda á Indlandi. Það
er enginn annar en Evrópumeist-
arinn í magadansi, Anna Barner,
sem kennir á Bollywood-námskeið-
inu sem er vinsælt meðal ungra
stúlkna, að sögn Hafdísar í Kram-
húsinu. Dansinn sem um ræðir sæk-
ir til hins austræna magadansstíls,
en inn í hann tvinnast leikræn tján-
ing sem sterk hefð hefur skapast
fyrir í indversku dans- og söngva-
myndunum. „Það er mikil nákvæmni
fólgin í tjáningu Bollywood-dansins,
en þar hefur allt frá smæstu augn-
hreyfingum ákveðna merkingu,“
segir Hafdís. Hver veit nema Bol-
lywood-dansinn verði næsta æðið á
Íslandi? „Kannski hjá konunum, en
karlarnir eru tregir til að leggja í
svona ævintýri,“ segir Hafdís og
brosir. „Þeir eru þó duglegir að
sækja tangóinn og suðrænu sam-
kvæmisdansana.“
TÓMSTUNDIR | Ýmsir dansar sem sóttir eru til kvikmynda og söngleikja eru vinsælir í vetur
Suðrænar og ástríðu-
fullar salsasveiflur og
fjörugur línudans á
upp á pallborðið
þetta haustið.
Morgunblaðið/Sverrir
Fame-dansinn: Krakkarnir í Dansskóla Birnu eiga ekki í vandræðum með splitt- og spíkatstökkin.
Morgunblaðið/Golli
Bollywood: Í Kramhúsinu kennir
Anna Barner danstækni indverskra
dans- og söngvamynda.
Morgunblaðið/Kristinn
Krakkagleði: Í Danssmiðjunni fara krakkarnir í gervi dýranna í Hálsa-
skógi, með tilheyrandi söng, dansi og andlitsmálningu.
Í fótspor
stjarnanna