Morgunblaðið - 18.10.2004, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2004 31
DAGBÓK
Sjálfstæðismenn í
Árbæjarhverfum!
Stjórn Fulltrúaráðs sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík.
Aðlfundur
Félags sjálfstæðismanna í Árbæ,Selási og
Ártúnsholti verður haldinn miðvikudaginn 20.
okt. kl. 20:00 í félagsheimilinu í Hraunbæ 102B
(við hliðina á Skalla)
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf.
Önnur mál.
Gestur á fundinum verður
Guðlaugur Þór Þórðarson alþm. og borgarfltr.
Tímamót urðu í sögu tóbaksvarna meðstofnun Lýðheilsustöðvar en í lögum,sem gildi tóku í júlí 2003, segir m.a. umhlutverk stöðvarinnar, að hún eigi „að
annast áfengis- og vímuvarnir, manneldi, slysa-
varnir, tóbaksvarnir og önnur forvarna- og heilsu-
eflingarverkefni á vegum ríkisins“. Við stofnun
Lýðheilsustöðvar var Tóbaksvarnanefnd lögð nið-
ur, en nú starfar innan Lýðheilsustöðvar tóbaks-
varnaráð, sem gegnir ráðgjafarhlutverki við Lýð-
heilsustöð. Pétur Heimisson læknir er nýráðinn
formaður tóbaksvarnaráðs og segir hann sögu
tóbaksvarna langa en mikinn árangur hafa náðst
undanfarin ár. „Um 1960 birtust fyrstu sannanir
um heilsuskaðleg áhrif reykinga,“ segir Pétur.
„Einstakir læknar hófu tóbaksvarnir fyrr, t.d.
Jónas Kristjánsson sem stofnaði tóbaksbindind-
isfélag 1929. Krabbameinsfélag Íslands, stofnað
1951, er æ síðan ötult. Fleiri ruddu braut og Al-
þingi tók fljótt við sér, fyrsti vísir tóbaks-
varnalaga kom 1969. Þau hafa oft breyst og
skerpst, hvað mest 1984, en sú breyting markaði
tímamót. Lögin tryggja fé til tóbaksvarna og tób-
aksvarnanefnd ráðstafaði því í samráði við ráð-
herra. Árangur starfsins er t.d.; 1980 reyktu tæp
40% fullorðinna, en nú minna en 25%, reykingar
ungmenna hafa minnkað mikið, reykingar að
mestu horfnar af vinnustöðum, opinberum stöðum
og úr almenningsfarartækjum, þeir sem reykja
eru almennt tillitssamir og Íslendingar gnæfa á
toppi þjóða sem best standa sig í tóbaksvörnum í
Evrópu að mati Alþjóðabankans.“
Hverjar eru þínar áherslur í embættinu?
„Fyrsta verk tóbaksvarnaráðs verður þátttaka í
að móta Lýðheilsustöð og að finna tóbaksvörnum
farveg innan hennar. Ráðið kom fyrst saman 15.
október og mótuð stefna af hálfu þess og Lýð-
heilsustöðvar er ekki tilbúin. Kappkostað verður
að varðveita og bæta það góða bú sem við er tekið.
Ég vil efla þann þátt tóbaksvarna að aðstoða fólk
við að hætta tóbaksnotkun. Stærsta einstaka
verkefni næstu mánaða liggur fyrir, því Jón Krist-
jánsson ráðherra hefur kynnt þann vilja sinn að
leggja í vetur fram lagafrumvarp til að draga úr
óbeinum reykingum, með því að banna reykingar
á kaffi- og veitingahúsum og hliðstæðu þjón-
usturými. Rök hans eru hin sömu og t.d. Norð-
menn, Írar og Svíar byggja slík lög sín á, vinnu-
og heilsuvernd starfsfólks. Tóbaksvarnaráð og
Lýðheilsustöð munu vinna með ráðherra að þessu
þarfa máli, sem og margir aðrir. Í starfi Lækna
gegn tóbaki, hef ég víða mætt skilningi og já-
kvæðni gagnvart þessu skrefi, t.d. bæði innan
stéttarfélaga og samtaka rekstraraðila sem það
snertir. Vonandi njóta tóbaksvarnir áfram áhuga
fjölmiðla, sem eiga sinn þátt í þeim árangri sem
náðst hefur, enda aðkoma þeirra oftar en ekki í
senn gagnrýnin og jákvæð. “
Tóbaksvarnir | Nýr formaður tóbaksvarnarráðs tekur til starfa
Mikill árangur undanfarin ár
Pétur Heimisson er
fæddur í Reykjavík
1954. Hann lauk kandí-
datsprófi frá Lækna-
deild HÍ 1980 og lauk
sérnámi í heimilislækn-
ingum í Svíþjóð 1983.
Pétur hefur starfað á
Heilbrigðisstofnuninni
á Egilsstöðum síðan
1988.
Pétur er einn af stofn-
endum félagsins Læknar gegn tóbaki og for-
maður þess frá byrjun. Hann er kvæntur Ólöfu
S. Ragnarsdóttur leikskólakennara og eiga
þau fjögur börn.
Kemur blóðið úr blóðbergi?
ÉG fór í blóðbankann á Akureyri um
daginn til að gefa blóð eins og ég hef
gert undanfarin ár. Ég er í hópi
þeirra Íslendinga sem eru í þeim sér-
staka blóðflokki er kallast O og er
svo kallað neyðarblóð sem hægt er að
gefa öllum, sama í hvaða blóðflokki
þeir eru. Þetta er blóðið sem mikið
slösuðum sjúklingum er gefið strax
og þeir koma á neyðarmóttöku eftir
slys, á meðan þeirra eigin blóð-
flokkur er greindur. Því get ég reitt
mig á að strax og ég er tilbúin að gefa
blóð aftur hringir blóðbankinn.
Ég fór því að velta fyrir mér hvort
ekki væri nóg af blóðgjöfum. Þegar
ég grennslaðist fyrir um það komst
ég að því að blóðbankinn hefur mikla
þörf fyrir fleiri blóðgjafa því oft eru
þeir að taka úr fólki sem ekki hefur
mikið umfram (eins og mér). Verst er
þó hvað lítið er af ungu fólki sem gef-
ur blóð.
Ég fór því að velta fyrir mér
hvernig á því gæti staðið að Íslend-
ingar væru svo tregir við að gefa
blóð. Ekki gat það verið að sú göfuga
þjóð væri svo blóðlítil. Svo á meðan
ég horfði á blóðið renna í pokann átt-
aði ég mig skyndilega á því að Íslend-
ingar halda örugglega að blóðið í
pokunum á sjúkrahúsunum komi
ekki úr fólki. Líklega komi það úr
blóðbergi eins og vín kemur úr vín-
berjum. Að blóðið sé unnið úr blóð-
berginu á sérstökum vísindastofum,
safnað í poka og sent til sjúkrahús-
anna. Það hlaut að vera ástæðan því
auðvitað gætu Íslendingar ekki verið
svo uppteknir í lífsgæðakapphlaup-
inu að þeir gætu ekki gefið sér tíma
til að gefa blóð sem gæti bjargað
mannslífi.
Ég vil því leiðrétta þennan mis-
skilning. Blóðið kemur úr fólki í
gegnum nál í handleggnum og flæðir
í þar til gerðan poka. Þannig að næst
þegar þú heimsækir einhvern á
sjúkrahús og sérð blóðpoka á slá fyr-
ir ofan rúmið mundu þá að það var
einhver sem gaf sér tíma til að gefa
þetta blóð.
Ég hvet fólk eindregið að fara í
blóðbankann, láta kanna hvaða blóð-
flokki það tilheyrir og athuga hvort
það geti orðið blóðgjafi. Ég get lofað
því að verður tekið vel á móti blóð-
gjöfum. Það er líka mikið öryggis-
atriði að gefa blóð, því bankinn skim-
ar blóðið fyrir sjúkdómum og lætur
fólk vita ef eitthvað er að. Hér gildir
svo sannarlega máltækið „sælla er að
gefa, en þiggja“.
Þú getur bjargað lífi.
Allar upplýsingar um blóðbankann
er hægt að fá á www.blodbankinn.is
Eydís Ólafsdóttir.
Velvakandi
Svarað í síma 5691100 frá 10–12
og 13–15 | velvakandi@mbl.is
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinnNÚ UM helgina lýkur sýningunni
PÓLÍS, sem er samsýning fimm
íslenskra myndlistarmanna í
borginni Wroclaw, sem þekkist
einnig sem Breslau, í Póllandi.
Það eru myndlistarmennirnir
Borghildur Óskarsdóttir, Eygló
Harðardóttir, Ólöf Nordal, Ósk
Vilhjálmsdóttir og Valgerður
Guðlaugsdóttir sem sýna þar sam-
an, en PÓLÍS er hluti verkefn-
isins Í Austurveg.
Sýningin mun síðan ferðast
áfram um Austur-Evrópu og er
ætlunin að setja hana upp í
Reykjavík árið 2006.
Íslenskir listamenn í
Austur-Evrópu
BÓKAFORLAGIÐ Bjartur hefur gefið út
kennslubókina Correcto: Spænsk
málfræði, eftir
Guðrúnu H. Tul-
inius spænsku-
kennara. Bókin er
ætluð byrjendum í
spænsku, en þar
er fjallað um
grundvallaratriði
spænskunnar,
stafrófið, fram-
burð og áherslur og sýnt hvernig
byggja má upp setningar. Bókin hent-
ar jafnt þeim sem stunda spænsku-
nám í frístundum og þeim sem læra
hana í framhaldsskólum.
Tungumál