Morgunblaðið - 18.10.2004, Síða 32
32 MÁNUDAGUR 18. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
DAGBÓK
Tónlist
Múli Grímsey | Hörður Torfa kynnir Lofts-
sögu kl. 21.
Fyrirlestrar
Kennaraháskóli Íslands | Miðvikud. 22.
okt. kl. 16.15–18 verður málþing um H.C.
Andersen og þýðingar á verkum hans.
Kristján J. Jónss. fjallar um ævi H.C. And-
ersen og störf. Jónína Óskarsd. fjallar um
mismunandi þýðingar á verkum hans.
Þórarinn Eldjárn fjallar um nýja þýðingu á
Ævintýrum og sögum. rannsokn.khi.is.
Listaháskóli Íslands | Þorlákur Einarsson
sagnfræðingur flytur í dag kl. 12.30 fyr-
irlestur í Laugarnesi, sem hann nefnir Er
til íslensk listasaga fyrir árið 1900? Þor-
lákur skoðar þar grunnsýningu Þjóðminja-
safns Íslands í nýju ljósi með þennan titil í
huga.
Fundir
Lionsklúbburinn Eik Garðabæ | Fundur
þriðjudaginn 19. okt. kl. 19, í Garðabergi,
Kirkjulundi 4, Garðabæ. Allar konur vel-
komnar til að kynna sér starf hreyfing-
arinnar. Þetta er matarfundur og er mat-
arverð kr 1.500. Þátttaka tilk. í síma hjá
Lilju: 5657634, 8620574 eða Guðrúnu:
5651711, 8988797.
Lögmannafélag Íslands | Lögmannafélag
Íslands heldur morgunverðarfund um
sjálfstæði dómstólanna, þriðjudaginn 19.
október kl. 8.15 í Háteigi, Grand hóteli.
Frummælendur verða: Magnús Thorodd-
sen hrl., og Ragnar Aðlsteinsson hrl.
Þátttaka tilk. fyrir kl. 12, mánudaginn 18.
okt. í síma 5685620 eða á gudny@lmfi.is.
Félagsstarf
Aflagrandi 40 | Félagsvist kl. 14. Vinnu-
stofa og leikfimi kl. 9. Boccia kl. 10.
Dalbraut 18–20 | Kl. 9–11 kaffi og blöðin,
kl. 10–10.45 leikfimi, kl. 11.15–12.15 matur,
kl. 13–16.45 brids, kl. 15–15.45 kaffi.
Félag eldri borgara í Kópavogi, | Skrif-
stofan í Gullsmára 9 er opin í dag kl. 10 til
11.30. Félagsvist spiluð í Gullsmára í kvöld
kl 20.30.
Félag eldri borgara, Reykjavík | Brids í
dag kl. 13, kaffitár með ívafi kl. 13.30, línu-
danskennsla byrjendur kl. 18. Samkvæm-
isdans framhald kl. 19 og byrjendur kl. 20.
Félagsheimilið Gullsmára 13 | Gull-
smárabrids. Eldri borgarar spila brids að
Gullsmára 13 alla mánu- og fimmtudaga.
Skráning kl. 12.45.
Félagsmiðstöðin Gullsmára 13 | Gull-
smárabrids. Eldri borgarar spila brids að
Gullsmára 13 alla mánu- og fimmtudaga.
Skráning kl. 12.45. Aðgangseyrir kr. 200.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Skrán-
ing stendur yfir í ferð í Borgarleikhúsið
að sjá Belgíska Kongó sunnudagskvöldið
31. okt.
Félagsstarf aldraðra, Garðabæ | Kvenna-
leikfimi kl. 9.15, 10.05 og kl. 11, bókband
kl. 10, pílukast og spilað bridge í Garða-
bergi kl. 13, spænska kl. 14, ullarþæfing
upp úr kl. 13.
Hraunbær 105 | Kl. 9 postulínsmálun,
keramik, perlusaumur, kortagerð, kl. 10
fótaaðgerð, bænastund, kl. 12 hádeg-
ismatur, kl. 13.30 skrautskrift, kl. 15 kaffi.
Hvassaleiti 56–58, | Opin vinnustofa kl.
9– 16, jóga kl. 9– 11, frjáls spilamennska kl.
13– 16. Fótaaðgerðir og böðun virka daga
fyrir hádegi.
Korpúlfar Grafarvogi | Á morgun þriðju-
dag sundleikfimi í Grafarvogslaug kl.
9.30.
Norðurbrún 1, | Kl. 9 smíði, kl. 13 opin
vinnustofa, kl. 9 fótaaðgerðir.
Vesturgata 7 | Kl. 9–16 hárgreiðsla og
fótaaðgerðir, kl 9.15– 15.30 handavinna, kl
9– 10 boccia, kl. 9.30– 11.30 skrautskrift,
kl 11–12 leikfimi, kl 11.45– 12.45, hádeg-
isverður, kl 13–16 kóræfing, kl. 14.30–
15.45 kaffiveitingar.
Vitatorg, félagsmiðstöð | Smiðja kl.
8.45, bókband og myndlist kl. 9, morg-
unstund kl. 9.30, boccia kl. 10, opin
handavinnustofa kl. 13, glerbræðsla kl. 13,
frjálst spil kl. 13. Munið haustfagnaðinn.
Kirkjustarf
Breiðholtskirkja | Barnakór Breiðholts-
kirkju æfir alla mánudaga kl. 15:30, 7–9
ára, og kl. 16:30, 10 ára og eldri.
Breiðholtskirkja | Barnakórinn æfir alla
mánudaga, kl. 15:30 yngri hópurinn, og
16:30 eldri hópurinn.
Grafarvogskirkja | KFUK fyrir stúlkur 9–
12 ára 17:30–18:30.
Hjallakirkja | Prédikunarklúbbur verður í
Hjallakirkju þriðjudaginn 19. október kl.
9.15–11 í umsjón dr. Sigurjóns Árna Eyj-
ólfssonar.
Hvítasunnukirkjan Fíladelfía | Alfa 2 og
unglinga Alfa í kvöld kl. 19.
Langholtskirkja | Starf fyrir krakka, 7– 9
ára kl. 15.30–16.30. Athugið breyttan
tíma. Umsjon hafa Ólafur Jóhann og Guð-
mundur Örn. Allir krakkar velkomnir.
Laugarneskirkja | Kl. 18 er opinn 12
sporafundur í safnaðarheimilinu. Vinir í
bata. Kl. 20, 12 sporahópar koma saman.
Umsjón hafa Guðlaugur Ólafsson og Haf-
dís M. Einarsdóttir.
Neskirkja | 6 ára starf kl. 13:40. Sögur,
leikir og föndur. Uppl. í 511 1560. Umsjón
Guðmunda og Elsa. TTT-starf fyrir 10 til
12 ára. Leikir, spil, föndur og margt fleira.
Guðmunda og Auður. 12 sporin – andlegt
ferðalag kl. 20.
Njarðvíkurprestakall | Ytri-Njarðvík-
urkirkja. Kór kirkjunnar æfir á þriðjudög-
um kl. 20. Nýjar raddir velkomnar. Alfa
námskeið miðvikudag kl. 19. Systrafélag
Ytri-Njarðvíkurkirkju: Fundir á mánudög-
um kl. 20.30. Nýjar konur velkomnar.
Staður og stund
http://www.mbl.is/sos
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði
dagsins er að finna á Staður og
stund undir Fólkið á mbl.is
Meira á mbl.is
Hlutavelta | Þær Kristín Gerður Óla-
dóttir og Hrefna Björk Aronsdóttir
héldu tombólu til styrktar Rauða
krossi Íslands og söfnuðu þær 3.885 kr.
Morgunblaðið/Sverrir
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html
Lárétt | 1 gangverk í
klukku, 8 sárið, 9 storm-
sveipur, 10 grjótskriður,
11 blettir, 13 hagnaður, 15
höfuðfats, 18 kuldi, 21
verkfæri, 22 slátra, 23
hakan, 24 djöfullinn.
Lóðrétt | 2 ljúf, 3 alda, 4
skipta máli, 5 stormurinn,
6 hönd, 7 vex, 12 rödd, 14
stilltur, 15 ráma, 16 súg,
17 vitra, 18 falskt, 19 fár-
viðri, 20 lesa.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1hnoss, 4 kelda, 7 lýkur, 8 liðug, 9 gól, 11 iðnu, 13
firn, 14 leiði, 15 kukl, 17 skær, 20 enn, 22 penni, 23 ílöng, 24
rausa, 25 keppa.
Lóðrétt | 1 halli, 2 orkan, 3 sorg, 4 kall, 5 liðni, 6 augun, 10
Óðinn, 12 ull, 13 fis, 15 kopar, 16 kunnu, 18 klöpp, 19
ragna, 2o eira, 21 nísk.
Evrópubikarinn.
Norður
♠Á832
♥Á762
♦Á2
♣K82
Vestur Austur
♠K107 ♠DG965
♥DG953 ♥4
♦96 ♦G73
♣DG4 ♣7653
Suður
♠4
♥K108
♦KD10854
♣Á109
Lorenzo Lauria og Alfredo Versace
stóðu sig langbest allra í keppninni um
Evópubikarinn í Barcelona, en árang-
ur einstakra para var reiknaður út sér-
staklega. Þeir félagar voru með spil
NS hér að ofan í úrslitaleiknum gegn
Pólverjum og renndu sér snarlega upp
í sex tígla, sem Versace spilaði í suður.
Cezary Balicki var í vestur og kom
út með spaða. Versace drap og tromp-
aði spaða. Tók svo þrjá efstu í tígli og
Balicki henti spaða. Síðan kom hjarta-
átta – nían frá Balicki, sem fékk að eiga
slaginn. Balicki sá fram á þvingun í
framhaldinu og reyndi að grugga vatn-
ið með laufgosa. Versace tók slaginn í
borði með kóng, stakk spaða og spilaði
síðasta trompinu. Balicki varð að valda
hjartað og henti lauffjarka, en Versace
lét ekki blekkjast og lagði niður lauf-
ásinn. Tólf slagir og jafn margir IMP-
ar, því Pólverjarnir á hinu borðinu
spiluðu þrjú grönd í NS.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 Rc6 3. Rc3 e6 4. d4 cxd4
5. Rxd4 Dc7 6. Be3 a6 7. Dd2 b5 8.
Rxc6 Dxc6 9. f3 Bb7 10. O-O-O Re7 11.
h4 h5 12. Bd3 O-O-O 13. Kb1 Kb8
Staðan kom upp í Evrópukeppni
taflfélaga sem lauk fyrir skömmu í
Cesme í Tyrklandi. Arkadij Naiditsch
(2611) hafði hvítt gegn gamla brýninu
Guyla Sax (2560). 14. Rxb5! Rc8 Ekki
hefði gengið upp að þiggja mannsfórn-
ina þar sem eftir 14... axb5 15. Da5
stendur hvítur með pálmann í hönd-
unum. Eftir textaleikinn er staða
svarts einnig gjörtöpuð. 15. Rd4 Dc7
16. De2 e5 17. Rb3 a5 18. Ba6 Bc6 19.
Bb5 Bb7 20. Bd2 Bb4 21. c3 Be7 22. c4
Bb4 23. Bxb4 axb4 24. Dd2 og svartur
gafst upp. Til marks um misheppnað
gengi Garry Kasparovs í keppninni þá
gerði hann tíðindalítið jafntefli við Sax
í síðustu umferð hennar. Það er langt
síðan sem Garry fékk einungis helm-
ingsvinningshlutfall í skákkeppni en
þessi árangur hans verður sennilega
þess valdandi að hann fari undir 2800
skákstig á næsta skákstigalista FIDE.
SKÁK
Helgi Áss Grétarsson | dagbok@mbl.is
Hvítur á leik.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú átt náðugan dag í vinnunni. Búðu
þig samt undir manneklu og örlitlar
tafir. Ekki bjóða þig fram til verka
nema að vel athuguðu máli.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér er talsvert í mun að koma miklu í
verk núna. Markið sem þú setur fyrir
þig og aðra er hátt, en mundu gildi þol-
inmæði og umburðarlyndis.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Dagurinn í dag gæti vel nýst til skap-
andi verka. Allt sem tengist listum og
hannyrðum mun blessast. Gættu þess
að eyða ekki um efni fram.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þér léttir þegar búið verður að hreinsa
andrúmsloftið á heimilinu. Krabbinn
hefur mikið á sinni könnu en þarf að
gæta þess að gefa sér tíma til slök-
unar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú verslar mikið þessa dagana og
stendur í alls kyns braski. Gættu var-
kárni í samningaviðræðum. Árangur er
líklegri snemma dags en eftir hádegi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Ástarplánetan Venus er í meyjunni og
gæðir hana meiri persónutöfrum og
háttvísi en ella. Ef hik kemur á þig
vegna fjárútláta áttu að bíða til morg-
uns.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Miklar annir og kraftur einkenna líf
vogarinnar núna. Reyndu að fá meiri
útrás í líkamsrækt og leikfimi. Þú
þarft að fá útrás fyrir vaxandi spennu.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Það er best að þú vinnir í hljóði og
bakvið tjöldin. Einvera við skyldustörf
veitir þér tækifæri til þess að fást við
það sem þig lystir og nauðsynlega hug-
arró.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Vinsældir þínar eru með mesta móti
þessa dagana. Þiggðu boð sem þér ber-
ast og sýndu krefjandi vini eilitla þol-
inmæði.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Aðstæður batna þegar líður á daginn
og þú verður í algeru þrumustuði í
kvöld. Fólk er svo sannarlega til í að
hlusta á þig um þessar mundir.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Blekkingameistarinn Neptúnus er og
verður í vatnsbera um nokkurt skeið.
Þú ruglar aðra hreinlega í ríminu,
reyndar óviljandi. Enginn skilur þig.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Það er ekki hægt að segja annað en að
þú sért áberandi í dag. Sama hvað þú
reynir að falla í fjöldann. Gættu að því
hverju þú klæðist.
Stjörnuspá
Frances Drake
VOG
Afmælisbörn dagsins:
Gegna mikilvægu hlutverki í lífi ann-
arra. Áhugamál og tómstundir þeirra
eru af margvíslegum toga og oftar en ekki
eru afmælisbörn dagsins leiðtogar. Þau
hvetja fólk til dáða og eru öðrum fyr-
irmynd.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
HÖRÐUR Torfason mun í
kvöld heimsækja Gríms-
eyinga og munda gígju sína
í félagsheimilinu Múla.
Hörður er nú á ferð um
landið, eins og hann hefur
verið undanfarna áratugi,
en í fótspor Harðar hafa
einnig fetað ekki ómerkari
kappar en Kristján Krist-
jánsson (KK) og nú síðast
Jón Ólafsson, en þeir hafa
einnig lagt sig fram um það
að hafa ekki eyjarskeggja
út undan þótt fáir séu og
langt í land.
Tónleikarnir í kvöld hefjast
kl. 21 og mun Hörður þar
kynna nýjustu plötu sína,
Loftssögu, en hún er um
leið tuttugasta plata þessa
sívinsæla söngvaskálds. Þá
mun hann leika gömul og
ný lög í bland, enda hefur
Hörður komið sér upp
nokkuð viðamiklu söngva-
safni.
„Ég tek bát út í Grímsey og
svo flýg ég til baka á
þriðjudag ef veður leyfir, en
maður þarf alltaf að vera
tilbúinn að bíða þegar mað-
ur er að ferðast svona um
landið,“ segir Hörður, sem
hefur heimsótt Grímsey
tvisvar áður. Spurður hvort
það sé ekki dýrt að fara til
Grímseyjar segir Hörður að
hann vilji gera sér far um að heimsækja
sem flesta staði á landinu og því sé
kostnaðurinn ekki alltaf aðalatriðið. „Það
er mikill kostnaður við að fara svona út
um landið, en það jafnar sig, ég lít á
þetta ferðalag sem eina heild.“
Morgunblaðið/Jim Smart
Loftssagan sögð í Grímsey
ÞESS misskilnings hefur gætt
vegna fréttar í Mbl. mánudag fyrir
viku um giftingu, skírn og ferm-
ingu í sömu athöfn, að sr. Vigfús
Þór Árnason hafi sagt að þar hafi
verið um þrjú sakramenti að ræða.
Það skal áréttað að mistalning
sakramentanna skrifast alfarið á
blaðamann Mbl. og tengist hún á
engan hátt samtalinu við sr. Vig-
fús.
Árétting