Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 9
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 9 FRÉTTIR • Engjateigi 5 • Sími 581 2141 Samkvæmisfatnaður Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16 Pallíettutoppar, blússusett og kjólar Matseðill www.graennkostur.is Þri. 26/10: Karrý korma & nanbrauð m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti. Mið. 27/10: Pizza & spínat & tofusalat m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti. Fim. 28/10: Hnetusteik og valdorfsalat m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti. Fös. 29/10: Koftas (litlar linsu- & hnetubollur og karrý m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti. Helgin 30/10: Ítölsk helgi & 2 fyrir 1 á sunnudag m/fersku salati, hrísgrjónum & meðlæti. Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) sími 551 2040 Laugavegi 63 (Vitastígsmegin) sími 5 1 2040 Silkitré og silkiblóm Mikið úrval af fallegum silkitrjám fyrir fyrirtæki, húsfélög og heimili Eddufelli 2 Bæjarlind 6 sími 557 1730 sími 554 7030 Sportpeysur og buxur Laugavegi 63, sími 551 4422 Úlpuúrval Laugavegi 4, sími 551 4473 • www.lifstykkjabudin.is Póstsendum Fjölbreytt úrval af undirfötum Laugavegi 53, s. 552 1555. TÍSKUVAL Svartar dragtir Jakkar, pils og buxur Gott verð Opið virka daga kl. 10-18, lau. 11-16 BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700 Tvíréttað í hádeginu á aðeins 1.900 kr. Nýr hádegismatseðill alla þriðjudaga villibráð á kvöldin • • • • • • BOGI Ágústsson, forstöðumaður fréttasviðs Ríkisútvarpsins, hefur ákveðið að fréttamenn, sem sæti eiga í stjórn Félags fréttamanna, verði ekki með fréttir sem fjalla um kjaradeilu grunnskólakennara og sveitarfélaga. Ákvörðun Boga er tekin í kjölfar frétta um að stjórn fé- lagsins hafi samþykkt að veita 220 þúsund krónur í verkfallssjóð grunn- skólakennara. Jón Gunnar Grjetarsson, formað- ur félagsins, segist ekki sáttur við þessa ákvörðun. „Við skiljum þessa stöðu sem forstöðumaðurinn er í en við erum engu að síður ósátt við ákvörðun hans. Við lítum ekki svo á að við séum, með ákvörðun okkar, orðin vanhæf til að sinna starfi okk- ar. Annars vegar störfum við sem fréttamenn en hins vegar gegnum við trúnaðarstörfum í stéttarfélagi.“ Stjórnina skipa fimm fréttamenn á fréttastofum Útvarps og Sjónvarps. Bogi segist hafa tekið umrædda ákvörðun á þeim forsendum að hlut- leysi Ríkisútvarpsins þyrfti að vera hafið yfir allan vafa. „Það höfðu bor- ist fyrirspurnir og athugasemdir um að fólki fyndist þetta ekki eðlilegt [að stjórn Félags fréttamanna veitti fé í verkfallssjóð kennara] og í fram- haldinu tók ég þessa ákvörðun,“ út- skýrir hann. Rætt á fundi í vikunni Jón Gunnar leggur áherslu á, í þessu sambandi, að Félag frétta- manna sé aðili að Bandalagi háskóla- manna (BHM). „Bandalag háskóla- manna var að safna, í síðustu viku, í sjóð kennara, meðal sinna aðildar- félaga. Við í stjórn Félags frétta- manna tókum þátt í því.“ Það hafi á hinn bóginn ekki komið nógu vel fram, segir hann, að Félag frétta- manna hafi veitt fé í verkfallssjóð Kennarasambands Íslands í gegnum aðild sína að Bandalag háskóla- manna. „Það var eins og við værum að gera þetta ein og sér,“ útskýrir hann, „en ekki sem hluti af heild- inni.“ Jón Gunnar segir að stjórn Félags fréttamanna muni ræða umrædda ákvörðun Boga á fundi sínum í vik- unni. Fréttamenn á RÚV sem sitja í stjórn Félags fréttamanna Beðnir um að fjalla ekki um kjaradeilu kennara Á HÁSKÓLAHÁTÍÐ um síðustu helgi var tilkynnt kjör tveggja heið- ursdoktora við Háskóla Íslands. Ed- mund S. Phelps hefur verið kjörinn fyrsti heiðursdoktor í viðskipta- og hagfræðideild HÍ. Einnig hefur Richard N. Ringler verið kjörinn heiðursdoktor við heimspekideild HÍ. Á myndinni eru Oddný G. Sverr- isdóttir, deildarforseti heimspeki- deildar, Richard N. Ringler, heið- ursdoktor við heimspekideild HÍ, Edmund S. Phelps, heiðursdoktor í viðskipta- og hagfræðideild HÍ, Gylfi Magnússon, deildarforseti við- skipta- og hagfræðideildar, og Páll Skúlason, rektor Háskóla Íslands. Morgunblaðið/Kristinn Nýir heiðursdoktorar við HÍ STJÓRN Sálfræðingafélags Ís- lands hvetur heilbrigðisráðherra til að beita sér fyrir eðlilegri þróun geðheilbrigðisþjónustu hér á landi með því að nýta sér þekkingu og færni sálfræðinga til að sinna sjúk- lingum með aðferðum sem eru bæði árangursríkar og hagkvæmar og sem sjúklingar sjálfir óska eftir að séu notaðar. Nýlega kom fram í umræðum á Alþingi að heilbrigðisráðherra hyggst ekki að svo stöddu ganga til samninga við sálfræðinga um þátt- töku Tryggingastofnunar í kostn- aði við sálfræðiþjónustu. Stjórn Sálfræðingafélagsins telur þessa ákvörðun ráðherra bera vott um skammsýni og sýna ranga for- gangsröðun í geðheilbrigðis- málum. Heilbrigðisráðherra sagði í Morgunblaðinu að samningur Tryggingastofnunar við sálfræð- inga myndi leiða til þess að útgjöld ríkisins til þessa málaflokks ykjust um hundruð milljóna króna. Sál- fræðingafélagið bendir á að þetta fari eftir umfangi þjónustunnar sem samið er um. Nær lagi væri að tala um tugi milljóna. „Rannsóknir sýna að sálfræði- meðferð við ákveðnum tegundum þunglyndis og kvíða er bæði ár- angursrík og hagkvæm auk þess sem hún hefur ekki í för með sér lyfjanotkun og þar af leiðandi hvorki kostnað né aukaverkanir sem því fylgir,“ segir í ályktun frá Sálfræðingafélaginu. Samningur við TR hluti af eðlilegri þróun FULLTRÚAR Neyðarlínu, Sjúkra- hússins á Akranesi og lögreglunnar á Akranesi og í Borgarnesi munu í dag eiga fund vegna vandamála sem komu upp í samskiptum þess- ara aðila eftir að rúta með 45 starfsmönnum Norðuráls valt í fár- viðri undir Akrafjalli fyrir viku. Guðjón Brjánsson, framkvæmda- stjóri sjúkrahússins, segir að ýmis- legt hefði betur mátt fara í sam- skiptum björgunaraðila og hvaða upplýsingar þeir fengu varðandi slysið, þ.m.t. fjölda slasaðra. Einn helsti vandinn hefði verið sá að Tetra-kerfið norðan Hvalfjarðar- ganga sé ónýtt og því hefðu menn þurft að ræða saman í farsíma. Slíkt ástand væri með öllu ótækt og hefði valdið verulegum erfiðleikum í samskiptum. Hann nefndi sem dæmi að fulltrúi Almannavarna rík- isins hefði ekki frétt af slysinu fyrr en hann heyrði af því í hádegis- fréttum. Fundurinn verður haldinn í Borgarnesi. Farið yfir sam- skipti vegna rútu- slyss í Hvalfirði AUGLÝSINGADEILD netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111 Fréttasíminn 904 1100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.