Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 38

Morgunblaðið - 26.10.2004, Blaðsíða 38
38 ÞRIÐJUDAGUR 26. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Miðasala opnar kl. 15.30 EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS Mjáumst í bíó! Kr. 450 Sýnd kl. 4. Ísl. tal. VINCE VAUGHN BEN STILLER DodgeBall punginn á þér!  Ó.Ö.H. DV  S.V. Mbl. Sýnd kl. 4. Ísl. tal.Sýnd kl. 6. Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára.Sýnd kl. 8 og 10. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 6. Snargeggjuð gamanmynd frá hinum steikta Scary Movie hóp Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10.15. Sýnd kl. 5, 8 og 11. B.i. 16 ára. B.i. 16 ára. Bakvið martraðir hans leynist óhugnalegur sannleikur Ó.H.T Rás 2 DENZEL WASHINGTON MERYL STREEP Frá leikstjóra Silence of the Lambs THE HUNT FOR THE BLOOD ORCHID kl. 5, 8 og 11. B.i. 16 ára. „Ég anda, ég sef, ég míg ... Tónlist“ Bubbi Morthens Til heljar og til baka með atómbombunni Bubba Morthens Sýnd kl. 6, 8 og 10. ÞÆR ERU MÆTTAR AFTUR...ENN BLÓÐÞYRSTARI! KYNGIMAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA.  DV V.G. DV S.V. Mbl. 28.10.04 28.10.04 THE HUNT FOR THE BLOOD ORCHID ÞÆR ERU MÆTTAR AFTUR...ENN BLÓÐÞYRSTARI! KYNGIMAGNAÐUR SPENNUTRYLLIR SEM FÆR HÁRIN TIL AÐ RÍSA. á allar erlendar myndir í dag, ef greitt er með Námukorti Landsbankans á allar erlendar myndir í dag, ef greitt er með Námukorti Landsbankans Iceland Airwaves-tónlistarhátíðin er af-staðin og maður er þegar farinn að bíðaeftir næstu hátíð. Eins gott að segja það beint út: Airwaves 2004 var besta hátíðin hing- að til sem sannast kannski best á því að ég hef ekki áður misst af jafn mörgum hljómsveitum á Airwaves sem mig langaði að sjá. Það er ein- mitt kvölin þegar slíku nægtaborði er upp slegið, maður er sífellt að velja og hafna. Þó það sé gaman að fá hingað erlendar hljómsveitir og listamenn, ekki síst þegar eins tekst til og hefur verið á undanförnum Air- waves-hátíðum (Rapture, Flaming Lips, TV on the Radio, Shins, Magnet, Kid Koala o.s.frv.) þá er samt einna skemmtilegast að sjá íslensku hljómsveit- irnar. Airwaves gefur þeim mörgum markmið, er hvatning til að æfa sem aldrei fyrr. Þegar þær eru síðan komnar á svið með almennilegt hljóðkerfi og góð ljós frammi fyrir hundruðum blómstra þær margar.    Af þeim fjölmörgu íslensku hljómsveitumog listamönnum sem ég náði að sjá á Airwaves að þessu sinni, ýmist allt sem flutt var eða nokkur lög, er eftirfarandi eftir- minnilegast: Mugison toppaði allt, stóð sig frábærlega vel. Hann var ör og ákafur á sviðinu, á stund- um var eins og allt væri að hrynja, en hrundi þó ekki og svo kom í ljós að þetta átti einmitt að vera svo – ævintýralegt. Hápunkturinn var svo þegar Guðmundur Kristjánsson faðir hann leiddi fjöldasöng í lokalaginu, Poke a Pal. Gít- arleikari Mugisons, Pétur Þór Benediktsson, fór líka á kostum. Þórir Georg Jónsson, sem kallar sig Þóri, hélt einkar skemmtilega tónleika í Nasa á mið- vikudagskvöld, einlægur og skemmtilegur. Söngröddin er viðkvæmnisleg, brothætt og til- finningarík og lögin frábær. Það var líka gaman að sjá KK á mið- vikudagskvöldið, hann stóð sig einkar vel, lág- stemmdur og blíður framan af en hleypti svo á skeið. Legg til að meira verði af slíku, að eldri listamenn láti líka sjá sig á Airwaves þó þeir séu ekki endilega að reyna að slá í gegn í út- landinu. Mér finnst eins og Úlpa hafi aldrei fengið al- mennilegt pláss á Airwaves, alltaf verið að leika í smábúllum. Það er kannski misminni, en að þessu sinni var ekki yfir neinu að kvarta, Úlpa var ekki bara á besta staðnum heldur líka á besta tíma, í Nasa kl. 22:30 á fimmtudags- kvöldinu. Þeir Úlpumenn nýttu tækifærið líka vel, voru hreint framúrskarandi þéttir og skemmtilegir. Íslenskt hiphop hefur ekki verið eins áber- andi á Airwaves og nú, því ekki var bara mjög gott Chronic-kvöld á Gauknum á fimmtudeg- inum heldur léku Skytturnar og Forgotten Lor- es á Nasa á föstudagskvöld. Forgotten Lores komu einkar vel undirbúnir til leiks, léku eins og þeir hefðu ekki annað gert en standa á svo stóru sviði, hljómsveitin vel nýtt til að styðja rímnaflæðið, en aldrei í aðalhlutverki og þeir þremenningar í framlínunni einkar traustir og skemmtilegir. Frábær frammistaða. Lokbrá hefur smám saman verið að færa sig upp á skaftið á Airwaves, að vísu leikið á litlum stöðum en kemur ekki að sök eins og sást á Grand rokki þar sem þeir byrjuðu með örfáa í salnum en þegar þeir byrjuðu að spila streymdi fólkið að. Lokbrá verður sífellt þétt- ari og sérstaklega er gaman að heyra spila- gleðina og kímnina sem gegnsýrir allt sem sveitin gerir. Pant fá þá á Gaukinn á góðum tíma á næsta ári.    Svo eru það demóin: Alltaf er nokkuð umþað að fólk sem ég hitti á Airwaves- tónleikum gauki að mér kynningardiskum. Þeir diskar eru aðallega ætlaðir útlendingum en sem betur fer sitja þeir ekki einir að þeim. Einkunnagjöf: Sign:  Crossroads (snælda):  Hölt hóra:  Kimono:  Siggi Ármann:  Tonik:  Að lokum: Útlendingarnir. Hef ekki mörg orð um þá en þó þetta: Four Tet betri en ég átti von á og nýstárlegri, Hot Chip var geggjað gaman, Kid Koala er snillingur, Magnet var einkar dægilegur, Stills komu skemmtileg á óvart, Nox Phixion var stuðband fram í fing- urgóma, Shins stóð fyrir sínu og vel það. Ann- að síðra. Nægtaborð tónlistarinnar ’Airwaves 2004 var besta há-tíðin hingað til sem sannast kannski best á því að ég hef ekki áður misst af jafn mörg- um hljómsveitum á Airwaves sem mig langaði að sjá.‘ AF LISTUM Árni Matthíasson arnim@mbl.is Úlpa Mugison Forgotten Lores Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir Four Tet Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir Ljósmynd/Ingvi Morgunblaðið/Björg Sveinsdóttir

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.